Póstmannablaðið - 01.10.1942, Side 20

Póstmannablaðið - 01.10.1942, Side 20
Sæmundur Oddsson póstafgreiðslumaður í Garðsauka Það er nú senn liðið ár síðan Sæ- mundur Oddsson, póstafgreiðslumaður í Garðsauka, lézt, sem var hinn 15. nóv. 1941. Þótt svo langur tími sé lið- inn, vill blaðið ekki láta hjá líða að geta hans með nokkrum orðum. Sæmundur var fæddur hinn 12. des- ember 1875 að Sámsstöðum í Fljótshlíð, og var hann sonur Odds bónda Eyjólfs- sonar frá Hjálmsstöðum. Við póstafgreiðslustarfinu í Garðs- auka tók hann er Skúli prófastur Skúla- son fluttist frá Odda. En skipaður var hann í embættið hinn 3. maí 1918. Sæmundur naut jafnan mikils trausts sveitunga sinna og hafði á hendi ýms trúnaðarstörf fyrir þá bæði innan hreppsfélagsins og sýslunnar. Var hann m. a. um skeið í hreppsnefnd og sýslu- nefnd. Auk þess veitti hann forstöðu Sparisjóði Rangárvallasýslu. Við póst- afgreiðslumannsstarfið var Sæmundur ávallt hinn samvizkusamasti og gerði mann, er frægastur þykir allra fyrir frímerkjafalsanir, og er saga hans í fáum orðum þessi. Um 1891 var sett á stofn frímerkja verzlun í Genf. Auglýsingar þessarar verzlunar, þær sem enn eru til, þykja segja greinilega til um, hvaða sérgrein verzlun þessi lagði fyrir sig, en það var stæling gamalla frímerkja. Verzl- unin gekk frekar illa, því að stælingarn ar voru illa gerðar, og auðvelt að vara sig á þeim fyrir þá, er söfnuðu frí- merkjum og kunnu glögg skil á þeim hlutum. Kringum aldamótin gafst eig- andinn upp og seldi verzlun sína frönsk- um manni, Fran$ois Fournier að nafni, er verið hafði hermaður í fransk-þýska stríðinu 1807—71. Þessi nýi eigandi sýndi brátt, að þar var réttur maður á réttum stað, ef svo má að orði kveða um þá atvinnu, er (hann nú tók að leggja stund á. Hann var maður í bezta lagi greind- ur, hafði framúrskarandi kaupsýslu- mannshæfileika, og var svo hagur á leturgröft og mynda, að allt lék í hönd- um hans. Hann fór heldur ekki í neina launkofa með fyrirtæki sitt, heldur sendi út verðlista yfir stælingar sínar, og árið 1910 stofnaði hann tímarit, sem hann hélt úti fram á mitt árið 1913— það komu út 24 hefti. Tímarit þetta nefndi hann Le Fac- Similé — þýðir stældur eða eftirgerður hlutur — og réðist hvasslega á alla þá, sem ekki voru á hans máli um það, að stælingar hans væru ekki falsanir. — Tilbúning þessara eftirgerðu merkja stundaði hann með þeirri alúð og ágæt- um, að aðeins verður jafnað til hinna beztu prentsmiðja, enda varð það fyrst við dauða hans, að menn fengu fulla vitneskju um hvílíkt bákn fyrirtæki hans var. Hann átti sjálfur prentsmiðju og þar prentaði hann m. a. tímarit sitt Le Fac-Similé, sem fyrr er nefnt, og var upplagið að hverju hefti um 25 þúsund eintök. Framhald. 12 PÓSTMANNABLAÐIÐ

x

Póstmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.