Morgunblaðið - 10.03.2011, Síða 2

Morgunblaðið - 10.03.2011, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Níu manns voru handteknir og færðir til yfirheyrslu í umfangsmikl- um aðgerðum á vegum bresku efna- hagsbrotadeildarinnar, Serious Fraud Office (SFO), í London í gær í tengslum við rannsókn stofnunar- innar á aðdraganda falls Kaupþings. Húsleit var gerð hjá tveimur fyrir- tækjum og á heimilum átta einstak- linga. Embætti sérstaks saksókn- ara, sem unnið hefur með SFO undanfarin misseri, aðstoðaði við að- gerðirnar í gær. Talsmaður SFO sagði að kæmi til ákæru yrði allur málarekstur fyrir breskum dómstól- um. Aðgerðirnar, sem hófust fyrir klukkan sex í gærmorgun, eru liður í rannsókn SFO á greiðu aðgengi bræðranna Roberts og Vincents Tchenguiz að lánsfé hjá hinum fallna banka. Þeir voru báðir handteknir og yfirheyrðir. Í sameiginlegri yfir- lýsingu sem þeir sendu frá sér kveð- ast þeir þess fullvissir að rannsóknin muni ekkert misjafnt leiða í ljós. Fimm Íslendingar handteknir Tveir fyrrverandi stjórnenda Kaupþings, þeir Sigurður Einars- son, sem var stjórnarformaður, og Ármann Þorvaldsson, sem stýrði rekstri bankans í Bretlandi, voru handteknir í gær. Auk þeirra voru þeir Guðmundur Þór Gunnarsson, sem var viðskiptastjóri gagnvart Tchenguiz-bræðrunum, Bjarki Diego, sem stýrði útlánasviði bank- ans, og Guðni Níels Aðalsteinsson, sem var yfir fjárstýringu, allir hand- teknir í gær, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Þeir Bjarki og Guðmundur voru handteknir hér á landi, en Guðni Níels ytra. Sá síðast- nefndi átti um tíma sæti í skilanefnd Kaupþings. Reynt var að ná tali af Guðmundi, Bjarka og Ármanni í gærkvöldi, en án árangurs. Talsmaður SFO sagði í gær að öll- um yrði sleppt að yfirheyrslum lokn- um, og að nokkur tími gæti liðið þar til hugsanlega yrði kært vegna rann- sóknarinnar, væru forsendur fyrir því. Húsleitir stóðu hins vegar fram á kvöld. Áhætta einangruð SFO horfir einkum til félagsins Oscatello Investments, en ýmis fé- lög í eigu bræðranna voru sameinuð undir því nafni síðla árs 2007. Í byrj- un árs 2008 nam andvirði útistand- andi lána til þeirra bræðra fjórðungi af eiginfjárgrunni Kaupþings. Þrátt fyrir það var lánveitingum haldið áfram. Í lok maí 2008 var yfirdrátt- arheimild Oscatello hjá bankanum komin upp í 600 milljónir evra. Á þá heimild var dregið til þess að mæta veðköllum hjá öðrum fjármálastofn- unum. Með því jókst útlánaáhætta Kaupþings gagnvart bræðrunum til muna. Handteknir vegna Tchenguiz-útlána  Gríðarleg lán til Tchenguiz-bræðra undir smásjá SFO Reuters Húsleit Einkennisklæddur lögreglumaður gengur út af skrifstofu í eigu Tchenguiz-bræðra í Mayfair í gær. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mjög hefur gengið á birgðir lamba- kjöts vegna hagstæðra skilyrða til útflutnings. Ef sumarið verður gott og landsmenn verða duglegir að grilla getur svo farið að lambakótil- etturnar seljist upp áður en nýtt kjöt kemur á markað með haustinu. Til voru 3.800 tonn af dilkakjöti í byrjun febrúar. Er það um þúsund tonnum minna en á sama tíma á síð- asta ári. Minna framboð á heimsmarkaði Salan á innanlandsmarkaði var svipuð á síðasta ári og á árinu á und- an en þá varð verulegur sölusam- dráttur. Á móti kom að hagstæðara varð að flytja út, fyrst vegna gengis- lækkunar krónunnar og síðan vegna hækkana á heimsmarkaði. Framboð á lambakjöti hefur minnkað á heimsmarkaði, ekki síst vegna samdráttar í framleiðslu á Nýja-Sjálandi og Ástralíu, bæði vegna þess að bændur hafa hætt framleiðslu og fært sig í annað og vegna náttúruhamfara. Það hefur leitt til hækkunar á heimsmarkaðs- verði og þar með útflutningsverði frá Íslandi. Sláturleyfishafar gripu tækifærið í haust og mikið hefur verið flutt út. Nóg til af lærum „Það fer allt eftir sölunni í sumar. Lambakjöt er eftirsótt á grillið. Ef það verður gott grillsumar getur orðið skortur á einhverjum kjöthlut- um,“ segir Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Landssambands sauðfjárbænda. Ágúst Andrésson, forstöðumaður Kjötafurðastöðvar KS á Sauðár- króki, telur ekki hættu á að lamba- kjötið gangi til þurrðar í sumar. Af- urðastöðvar hafi tekið frá ákveðið magn fyrir sína föstu viðskiptavini og reyni að sjá til þess að innan- landsmarkaðurinn líði ekki skort. Ný sláturtíð hefst í byrjun sept- ember. Ef einhverjar tegundir ganga til þurrðar verður það í ágúst og þá væntanlega helst kótilettur. Fleiri læri eru til en hryggir, af nátt- úrulegum ástæðum. Kótiletturnar gætu klárast í góðri grilltíð  Birgðir dilkakjöts 1.000 tonnum minni Morgunblaðið/Eggert Grillað Lambakjötið er vinsælt á grillið en fleira kemur til greina. Á fundi skipulagsráðs Reykjavík- urborgar í gær var einróma sam- þykkt að óska eftir umsögn skipu- lagsstjóra og byggingarfulltrúa um tilmæli umhverfis- og samgöngu- sviðs borgarinnar þess efnis að fólk færði til sorptunnugerði, eða -geymslur, til þess að uppfylla svo- kallaða 15 metra reglu en sam- kvæmt henni verður innheimt gjald fyrir hverja sorptunnu sem er í meira en 15 metra fjarlægð frá götu. Það var Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem lagði fram tillöguna eftir að honum bárust ábendingar frá nokkrum einstaklingum sem höfðu fengið bréf sent frá umhverfis- og samgönguráði fyrir helgi. Hugsanlegt brot á reglum „Þetta fólk er með sorpílát sem eru handan þessara 15 metra marka og fékk því sent bréf þar sem boðið er upp á þrjár leiðir; að færa sorpið út að götu á þeim degi sem það er hirt, að færa sorpgerðið nær götunni eða að borga 4.800 krónur á tunnu,“ segir Júlíus. Hann segir tillögur borgarinnar um flutning á sorpgerðunum orka tví- mælis, bæði fylgi því fyrirhöfn og kostnaður og það geti bókstaflega brotið gegn reglum. „Í byggingarreglugerð og ýms- um deiliskipulagsáætlunum má víða finna skýrar reglur varðandi stað- setningu sorpíláta. Þar að auki er spurning hver eigi að bera kostnað sem hlýst af slíkum tilfæringum. Tæplega er sanngjarnt gagnvart húseigendum að kveða á um stað- setningu sorpíláta í byggingarleyfi og koma svo fyrirvaralaust og rukka um aukagjald sem byggist á staðsetningu þessara sömu sorp- íláta,“ segir Júlíus. holmfridur@mbl.is Flóknara en við fyrstu sýn Morgunblaðið/Brynjar Gauti  Fá umsögn um sorptunnuflutninga Alls tóku 135 lögreglumenn og starfsmenn SFO þátt í hús- leitum í London í gær. Aðdrag- andinn hefur verið býsna langur, en þegar árið 2009 var rann- sókn málsins hafin. Talsmaður SFO sagði í sam- tali við Morgunblaðið að ekki væri rétt að líta svo á að dráttur hefði orðið á handtökunum, um- fangsmikil gagnavinnsla og rannsóknarvinna byggi að baki aðgerðunum í gær, sem einnig voru til upplýsingaöflunar. Samkvæmt nýjustu árs- skýrslu stofnunarinnar var 91% þeirra sem ákærðir voru árið 2009 sakfellt. Því til viðbótar kemur fram að í hverju einasta máli sem ákært var í náðist ein sakfelling hið minnsta, en í sumum tilfellum voru fleiri en einn kærðir. 91% ákærðra hlaut dóm SERIOUS FRAUD OFFICE „Nú getur maður keikur staðið við það að hvetja sauðfjárbændur til þess að auka framleiðsluna. Við erum ekki lengur að ýta birgðunum á undan okkur,“ segir Ágúst Andrésson, forstöðumaður Kjötafurðastöðv- ar KS. Hann hvetur til þess að bændur og afurðastöðvar setji sér sam- eiginleg markmið um að auka framleiðsluna um 20% á 3-4 árum. Ágúst segir að verð á lambakjöti hafi ekki hækkað í takt við verð- lagsþróun undanfarin ár. Nú séu allar matvörur að hækka, þar á meðal kjöt. Hann telur ljóst að lambakjötið hækki einnig og þörf sé á því vegna hækkunar aðfanga sem bændur og afurðastöðvar finni vel fyrir. Ágúst bætir því við að bann samkeppnisyfirvalda við forverðmerkingum kjöt- afurða geti eitt og sér stuðlað að hækkun smásöluverðs. Hvatt til aukinnar framleiðslu AUKINN ÚTFLUTNINGUR SKAPAR NÝ TÆKIFÆRI Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Laugalandi, Holtum, föstudaginn 26. mars 2010 og hefst kl. 15:00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins. 2. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Reykjavík, 9. mars 2010. Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. l l s svf. ver ur haldinn á Goðalandi Fljó shlíð, föstudagi n 25. mars 2011 og hefst kl. 15:00. f l si s. r l, l l il fra á a alfundi þurfa að vera fl í stj r arinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir 7 1 Skannaðu kóðann og fylgstu með málum Tchenguiz- bræðra og Kaup- þings á mbl.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.