Morgunblaðið - 10.03.2011, Side 6
Með símann að vopni Skönnun
kóðans flytur lesanda yfir á vefsíðu.
Eins og lesendur Morgunblaðsins
tóku eftir í gær fylgdi svokallaður
QR-kóði ýmsum fréttum í blaðinu.
Með því að taka mynd af QR-
kóðanum með sérstökum hugbún-
aði í símanum gátu lesendur nálg-
ast ítarefni eða myndskeið sem
tengdust viðkomandi frétt. Verk-
efnið eða öllu heldur tilraunin var
unnin í samstarfi við Símann. Njáll
Þórðarson, vörustjóri hjá Síman-
um, segir að lesendur hafi tekið vel
í tilraunina og hún hafi gengið
framar vonum.
Þúsundir notfærðu sér QR-
tæknina við lestur Morgunblaðsins
og hlóðu niður hugbúnaðinum sem
þurfti til.
Biðröð klukkan níu um morgun
Lesendur gátu einnig tekið þátt í
leikjum á vegum Símans með því að
skanna inn QR-kóða á vissum stöð-
um. Þónokkrir biðu í röð fyrir
framan verslun Símans í Ármúla
þegar hún var opnuð í gærmorgun
til að vitja vinninga sinna, til dæmis
aðgöngumiða á tónleika hjómsveit-
arinnar The Eagles hér á landi í
júní.
Njáll segir að Síminn hafi kosið
að kynna QR-kóðann fyrir lands-
mönnum í gegnum Morgunblaðið
til að sýna fram á nytsemi tækninn-
ar. Með því að hengja QR-kóða við
frétt sé ekki bara hægt að kynna
sér fréttina nánar, heldur einnig
fylgjast með þróun hennar yfir dag-
inn. Njáll segir tæknina bjóða upp á
ýmsa nýja möguleika fyrir fjöl-
miðlun og markaðsstörf í framtíð-
inni.
Síma-tilraun gekk
vonum framar
Þúsundir nýttu sér nýju tæknina
við lestur Morgunblaðsins í gær
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011
Akureyri stóð í gær fyllilega undir
nafni sem höfuðstaður öskudags-
hefðarinnar hér á landi. Þrátt fyrir
snjókomu arkaði fjöldi barna út í
myrkrið árla morguns, sum reynd-
ar bara út í bíl og þáðu skutl hjá for-
eldrunum. En sungið var af öllum
lífs og sálar kröftum í hinum ýmsu
fyrirtækjum og börnin þáðu ým-
islegt góðgæti fyrir sönginn. Kött-
urinn var svo sleginn úr tunnunni í
verslunarmiðstöðinni Glerártorgi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Allir í rétta átt á öskudegi
Söngurinn ómaði í höfuðstað Norðurlands
MMeira á mbl.is/Myndasyrpa
Mál og menning
mun opna dyrnar
að nýju á morg-
un, föstudag, kl. 9
en samningar
náðust í gær milli
eigenda húsnæð-
isins að Lauga-
vegi og Arndísar
Sigurgeirsdóttur,
eiganda Iðu við
Lækjargötu, sem
tekur á leigu bæði húsnæðið og nafn
Máls og menningar. Þeim starfs-
mönnum sem misstu vinnuna þegar
versluninni var lokað í febrúar verð-
ur boðin vinna á ný.
Snemma í gær var allt útlit fyrir
að ekkert yrði af samningnum þar
sem aðilar náðu ekki saman um
nokkur atriði. Seinnipartinn fóru þó
þreifingar af stað á ný og segir Arn-
dís það m.a. mega þakka skiptastjór-
anum, Sigmari K. Albertssyni, að
fléttan gekk upp að lokum. Enn
fremur að allir aðilar hafi gefið eitt-
hvað eftir til að af samningnum
mætti verða.
„Þetta voru margir þræðir sem
þurfti að spinna saman og þetta
gerðist mjög hratt,“ segir Arndís en
meðal þeirra atriða sem þurfti að
leysa var þáttur bókaútgefenda. Að
sögn Arndísar var það kappsmál að
þeir bæru sem minnstan skaða og
var um það samið að þeir kæmust
milliliðalaust að samkomulagi við
skiptastjóra um lagerinn.
Arndís segir ekki standa til að
breyta versluninni að ráði, hún verði
ekki ný Iða heldur verði lögð áhersla
á að halda séreinkennum Máls og
menningar.
Bókabúð Máls og
menningar opnar
dyrnar að nýju
Arndís
Sigurgeirsdóttir
Morgunblaðið/Eggert
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Tvær innlendar sjónvarpsstöðvar
hafa sett á dagskrá beina útsendingu
frá útileik Íslendinga og Þjóðverja í
undankeppni EM í handbolta nk.
sunnudag. Til þessa hefur Sjónvarpið
verið með sýningarrétt á heimaleikj-
um Íslendinga, líkt og í gær, en Stöð 2
Sport sýnt beint frá útileikjunum.
Innan herbúða 365 miðla ríkir lítil
ánægja með nýjasta útspil þeirra í
Efstaleitinu en stöðvarnar hafa sem
kunnugt er bitist hart um sýningar-
rétt á landsleikjum íslenska karla-
landsliðsins í handbolta, nú síðast
vegna HM í Svíþjóð í janúar sl.
Útsendingin frá útileiknum hefur
verið auglýst grimmt af Stöð 2 Sport
og áhorfendur minntir á áskrifta-
deildina, þar sem leikurinn verður í
læstri dagskrá. Nú gefst íslenskum
sjónvarpsáhorfendum semsagt tæki-
færi til að sjá leikinn einnig í opinni
dagskrá hjá Sjónvarpinu en að öllu
óbreyttu í læstri dagskrá á Stöð 2
Sport.
„Með ólíkindum“
Ara Edwald, forstjóra 365 miðla, er
ekki skemmt. Athugasemdum hefur
verið komið á framfæri við þann aðila
sem seldi Stöð 2 Sport sýningarrétt
frá leiknum, þýska fyrirtækið Sport5,
en samkvæmt upplýsingum blaðsins
samdi RÚV við annan aðila. Telur Ari
að RÚV geti ekki sýnt sjónvarpsefni
sem það hefur ekki rétt á að sýna. „Það
er með ólíkindum að þetta geti átt sér
stað með ríkisstofnun en þó ekki þegar
RÚV á í hlut. Stjórnendur þeirrar
stofnunar hafa sýnt af sér ákaflega
sérstaka framkomu á markaðnum, og
telja sig hafna yfir lög og rétt,“ segir
Ari, sem telur engan vafa leika á hvaða
sýningarrétt Stöð 2 Sport hefur og
hvaða rétt RÚV hefur ekki.
Samið fyrir hálfu ári
Bjarni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri hjá RÚV, segir RÚV
hafa gengið frá samningi um sýningar-
rétt á þessum leik fyrir hálfu ári og
unnið sé í samræmi við það.
Spurður um þá gagnrýni forstjóra
365 miðla að RÚV fari ekki eftir leik-
reglum segir Bjarni að félagið fari
ávallt eftir reglum. Að öðru leyti vildi
hann ekki tjá sig um málið að svo
stöddu.
RÚV og 365 bítast enn um boltann
Sjónvarpið sýnir beint frá útileik Íslands og Þýskalands í handbolta líkt og Stöð 2 Sport 365 miðlar
telja sig hafa átt sýningarréttinn Framkvæmdastjóri hjá RÚV segir að ætíð sé farið eftir leikreglum
Morgunblaðið/Golli
Handbolti Frá leik Þjóðverja og Íslendinga á HM í Svíþjóð þar sem þýskur
leikmaður reynir að ná boltanum af Snorra Steini Guðjónssyni.
„Stjórnendur RÚV
hafa sýnt af sér
ákaflega sérstaka
framkomu á mark-
aðnum.“
Ara Edwald
1430 manns sóttu um störf flug-
freyju/flugþjóna í 50 stöður hjá Ice-
landair en þetta er met í fjölda um-
sókna. Samkvæmt upplýsingum
Guðjóns Arngrímssonar upplýsinga-
fulltrúa hefur fjöldi starfsfólks snúið
sér að því að velja hæfustu umsækj-
endur úr þessum hópi en verið sé að
móta ráðningarferlið. Þessi vinna
þurfi að klárast á stuttum tíma. Aug-
lýst var eftir fólki á aldrinum frá 21
til 30 ára. Guðjón telur að það sem
skýri þessa miklu aðsókn sé að ekki
hafi verið auglýst eftir flugfreyjum
og flugþjónum í nokkur ár og að
mikil aðsókn sé alltaf í flugið.
Aldrei jafn margar umsóknir
Vinsældir háloftanna enn miklar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skannaðu kóðann
og horfðu á mynd-
skeið á mbl.is.
Ferðafélag íslands • www.fi.is • fi@fi.is • Sími 568 2533
Aðalfundur
Ferðafélags Íslands
Aðalfundur FÍ verður haldinn
fimmtudaginn 17. mars kl. 20
í sal félagsins Mörkinni 6
Hefðbundin aðalfundarstörf
Stjórnin
Ferðafélag Íslands, Mörkin 6, 108 Reykjavík