Morgunblaðið - 10.03.2011, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011
Páll Vilhjálmsson skrifar:
Írar eru í skulda-fangelsi Evrópu-
sambandsins sökum
þess að fráfarandi
ríkisstjórn gekk í
ábyrgð fyrir írska
bankakerfinu sem
hafði fengið lánað
frá þýskum og frönskum bönkum í
bóluviðskipti á fasteignamarkaði.
Þegar markaðurinn hrundi varlánasafnið ónýtt og írska ríkis-
stjórnin nánast knúin af Brussel til
að axla ábyrgðina.
Ný ríkisstjórn Írlands stendurframmi fyrir þjóðargjaldþroti
að óbreyttu.
Hagfræðingurinn og dálkahöf-undurinn David MacWilliams
hefur kynnt herfræði sem Írar gætu
þurft að fylgja ef Evrópusambandið
lækkar ekki vextina á neyðarlánum
til Írlands.
Herfræðin byggist á því að að-skilja skuldir írska ríkisins frá
skuldum írsku bankanna, borga þær
fyrrnefndu en láta hinar falla með
tilheyrandi tapi erlendra banka.
Þjóðaratkvæði gæti komið við sögu.
Líkt og Írar standa Íslendingarframmi fyrir skuldauppgjöri
óreiðubanka.
Icesave-skuldin er orðin til vegnaeinkabanka sem tók þátt í evr-
ópsku peningafylleríi.
Með því að segja nei í þjóð-aratkvæðagreiðslunni 9. apríl
styðjum við baráttu Íra til að losna
úr skuldafangelsi Evrópusambands-
ins.“
Páll Vilhjálmsson
Nei hjálpar Írum
STAKSTEINAR
Fylgstu með stærsta og fjölmennasta Reykjavíkurskákmótinu frá
upphafi. Á mótinu keppa um 30 stórmeistarar og eru þar á meðal
margir af þekktustu og sterkustu skákmönnum heims. Teflt er í
Ráðhúsinu og hefjast skákirnar kl. 16:30.
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
MP banki er meginbakhjarl Vetrarhátíðar í Reykjavík
MP Reykjavíkur-
skákmótið 2011
Í Ráðhúsi Reykjavíkur, 9.-16. mars
Taktu þátt í skemmtilegri getraun á staðnum. Þú gætir unnið
gjafakort frá MP banka.
Veður víða um heim 9.3., kl. 18.00
Reykjavík -7 léttskýjað
Bolungarvík -5 skýjað
Akureyri -10 skýjað
Egilsstaðir -7 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. -6 léttskýjað
Nuuk -12 léttskýjað
Þórshöfn -1 frostrigning
Ósló 1 skýjað
Kaupmannahöfn 3 skúrir
Stokkhólmur 2 léttskýjað
Helsinki 2 heiðskírt
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 8 skýjað
Glasgow 5 skúrir
London 10 skýjað
París 12 skýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 5 léttskýjað
Berlín 12 heiðskírt
Vín 8 léttskýjað
Moskva 2 heiðskírt
Algarve 16 skýjað
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 10 léttskýjað
Aþena 3 léttskýjað
Winnipeg -12 snjókoma
Montreal -6 skýjað
New York 4 heiðskírt
Chicago 6 súld
Orlando 25 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:05 19:12
ÍSAFJÖRÐUR 8:12 19:15
SIGLUFJÖRÐUR 7:55 18:58
DJÚPIVOGUR 7:35 18:41
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur um að
vísa beri frá máli, sem Rammi á
Siglufirði höfðaði gegn ríkinu vegna
þeirrar ákvörðunar sjávarútvegs-
ráðherra að gefa veiðar á úthafs-
rækju frjálsar.
Rammi vildi að viðurkennt yrði
með dómi, að ráðherra hefði verið
óheimilt að gefa rækjuveiðar frjálsar
á yfirstandandi fiskveiðiári. Vísaði
fyrirtækið m. a. til þess, að það hefði
fjárfest með umtalsverðum hætti í
aflahlutdeild í úthafsrækju í þeirri
trú að þær fjárfestingar myndu nýt-
ast því að óbreyttum lögum. Afla-
hlutdeildin hefði síðan verið gerð
verðlaus á þessu fiskveiðiári með því
að gefa veiðar frjálsar. Með þessu
hefði eignastaða Ramma verið rýrð
verulega til lengri og skemmri tíma.
Færi svo að úthafsrækjustofninn
yrði ofveiddur vegna hinna stjórn-
lausu veiða væri ljóst að Rammi yrði
fyrir varanlegu fjárhagslegu tjóni.
Með slíkum veiðum væri einnig brot-
ið gegn markmiðum um sjálfbærar
veiðar.
Ekki um rétt í ákveðnu tilviki
Hæstiréttur staðfesti úrskurð
héraðsdóms með vísan til forsendna
dómsins. Þær voru, að kröfugerð
Ramma fjallaði ekki um rétt fyrir-
tækisins í ákveðnu tilviki heldur fæl-
ist í henni krafa um að almennt yrði
viðurkennt að ráðherranum hefði
verið óheimilt að ákveða ekki með
reglugerð heildarafla sem veiða
mætti af úthafsrækju á fiskveiði-
árinu.
Það væri meginregla, að dómstól-
ar gætu ekki kveðið upp dóma þar
sem niðurstaðan yrði aðeins sú að
eitthvað væri almennt ólögmætt. Því
heyrði sakarefnið ekki undir dóm-
stóla og bæri að vísa málinu frá
dómi.
Rækjumáli vísað frá Hæstarétti
Dómstólar geta ekki kveðið upp dóma um að eitthvað sé almennt ólögmætt
MP Reykjavíkurskákmótið hófst í
Ráðhúsi Reykjavíkur í gær og engin
óvænt úrslit urðu í fyrstu umferð-
inni. 166 skákmenn frá 30 löndum
taka þátt í mótinu og þar af eru 29
stórmeistarar.
Úrslitin í gær voru almennt eftir
bókinni, það er að hinir stigahærri
unnu hina stigalægri enda styrk-
leikamunurinn mikill.
Af 166 keppendum eru 67 íslensk-
ir og 99 erlendir. Sigurvegari síð-
ustu þriggja Reykjavíkurskákmóta,
Hannes Hlífar Stefánsson, byrjaði
vel og vann skák sína við Spánverj-
ann Jordi Herms í aðeins 10 leikj-
um.
Morgunblaðið/Ómar
Setning Eva Einarsdóttir, formað-
ur ÍTR, setti skákmótið.
Hannes Hlífar vann
skákina í tíu leikjum
63% þjóðarinnar ætla að samþykkja
Icesave-lögin í þjóðaratkvæða-
greiðslu skv. nýrri Gallup-könnun.
Þetta kom fram í fréttum Sjón-
varpsins. 34% ætla að segja nei og
3% skila auðu. Könnunin fór fram á
netinu 23. febrúar til 2. mars. Svar-
hlutfall var 58,4% og úrtakið 1.279.
53% sögðust vera sammála þeirri
ákvörðun forsetans að staðfesta
ekki lögin, og vísa þeim til þjóð-
arinnar. 8% sögðust hvorki sam-
mála né ósammála, og 39% eru
ósammála ákvörðun forsetans, að
því er fram kom í frétt RÚV. Alls
tóku 73% aðspurðra afstöðu til
spurningarinnar um Icesave-lögin,
22% tóku ekki afstöðu og 5% sögð-
ust ekki vita hvort þeir ætluðu á
kjörstað.
Í frétt Sjónvarpsins af könn-
uninni kom fram að þeir svarendur
sem eldri eru segjast frekar ætla að
kjósa með lögunum en þeir sem
yngri eru. 88% þeirra sem styðja
ríkisstjórnina segjast ætla að kjósa
með lögunum en 46% þeirra sem
styðja hana ekki.
Meirihlutinn segist ætla að samþykkja