Morgunblaðið - 10.03.2011, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011
Á sunnudag nk. stendur Sleða-
hundaklúbbur Íslands fyrir fyrstu
Íslandsmeistarakeppninni í hunda-
sleðaakstri á Mývatni. Keppt verð-
ur í sex greinum: 5 km kúski á
hundasleða, 2 km gönguskíða-
keppni, 1 km gönguskíðakeppni í
unglingaflokki, 2 km sleðakeppni,
500 metra spyrnu og 5 km þrauta-
keppni á sleða með einn farþega.
Sleðahundaklúbbur Íslands var
stofnaður árið 2010 af hópi
áhugafólks um sleðahundasport.
Klúbburinn er ört vaxandi og hafa
félagar unnið með sleðahunda allt
frá stærstu Síberíu- og Græn-
landshundum niður í smæstu smá-
hunda. Allar frekari upplýsingar
um mótið má sjá á www.sleda-
hundar.is.
Sleðahundar Vaxandi áhugamál.
Sleðahundamót
Í dag, fimmtudag kl. 20:30, stend-
ur Ný dögun, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, fyrir samveru í
safnaðarheimili Háteigskirkju.
Séra Vigfús Bjarni Albertsson
sjúkrahúsprestur flytur þar erindi
um barnsmissi. Á samverunni
verður einnig kynnt hópstarf fyrir
þau sem hafa misst barn. Á undan
kl. 19:30 verður opið hús á sama
stað þar sem fólk getur komið,
spjallað og fengið kaffi. Allir eru
velkomnir.
Ný dögun stendur fyrir
mánaðarlegri samveru um sorg í
vetur. Auk þess standa samtökin
fyrir hópavinnu fyrir syrgjendur.
Nánari upplýsingar má finna á
www.sorg.is.
Samvera vegna
barnsmissis
Aðalfundur Félags eldri borgara
gerði samþykkt á aðalfundi sínum
þann 26. febrúar sl. þar sem mót-
mælt er síendurteknum kjara-
skerðingum sl. 2 ár.
Mótmælt er eindregið að ekki
skuli vera gert ráð fyrir neinni
hækkun til eldri borgara á fjár-
lögum þessa árs á sama tíma og
launþegar með 220 þúsund og
minna á mánuði hafa fengið 16%
kauphækkun. Þá er mótmælt
skerðingum frá Tryggingastofnun
ríkisins og að einungis lítill hópur
aldraðra fái greiðslu verðbóta.
Einungis 400 eldri borgarar fái
fullar lágmarksbætur frá TR en
eldri borgarar eru alls um 30 þús-
und.
Eldri borgarar mót-
mæla skerðingum
Búið er að troða
gönguskíða-
braut á golfvelli
GKG í Vetrar-
mýri. Það voru
starfsmenn
Þjónustu-
miðstöðvar
Garðabæjar og
GKG ásamt
Dráttarbílum sem sameinuðust í
þessu verkefni. Brautin er um 2,5
km að lengd og byrjar við áhalda-
húsið.
Tilvalið er fyrir alla að nýta sér
aðstöðuna og bregða sér á göngu-
skíði í Garðabæ. Brautin verður op-
in eins lengi og veður leyfir og er
öllum opin.
Gönguskíðabrautin
í Garðabæ er opin
STUTT
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Þú minnkar
um eitt númer
Næg bílastæði
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-16
20% afsláttur
af öllum buxum
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðaðu Basic bæklinginn á www.laxdal.is
Mörg snið
Stærðir
36-48
Verslaðu
glæsilegan
fatnað þar
sem gæði
og þjónusta
skipta máli
VIKUTILBOÐ
15-30% AFSLÁTTUR
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ BASIC DRAGTIN
Aukahlutir: ABS hemlar - Aksturstölva - Armpúði - Álfelgur - Brettakantar - Fjarstýrðar
samlæsingar - Geisladiskamagasín - Glertopplúga - Hiti í sætum - Hleðslujafnari -
Hraðastillir - Höfuðpúðar aftan - Innspýting - Leðuráklæði - Litað gler - Loftpúðafjöðrun -
Rafdrifin sæti - Rafdrifnar rúður - Rafdrifnir speglar - Samlæsingar - Símalögn - Spólvörn -
Stöðugleikakerfi - Topplúga - Útvarp - Veltistýri - Vökvastýri - Þakbogar - Þjófavörn -
Þjónustubók - Nýleg Toyo dekk, nýkominn úr stóru þjónustuskoðuninni, Panorama þak,
hiti í framrúðu hiti í framsætum og aftursætum.
LAND ROVER LR3 SE 4,4L
Árgerð 2006. Ekinn 82 þ.km. Nýskráður 2006
Ekkert áhvílandi. Skipti á ódýrari koma til greina.
Upplýsingar í síma 822 3600
Mannanafnanefnd hefur samþykkt
að setja tvö ný nöfn á manna-
nafnaskrá. Þetta eru nöfnin Lilla
og Rósinkransa. Nefndin telur að
bæði þessi nöfn uppfylli ákvæði
laga um mannanöfn.
Á fundi í lok febrúar samþykkti
nefndin eiginnöfnin Kristofer,
Stapi, Einína og Berni.
Nöfnin Lilla
og Rósinkransa
samþykkt
Hlutafélagið Vaðlaheiðargöng hf.
var stofnað á Akureyri í gær. Fé-
lagið hefur það að markmiði að
standa að gerð jarðganga undir
Vaðlaheiði ásamt vegalagningu að
þeim, auk annars nauðsynlegs und-
irbúnings.
Samkvæmt lögum um stofnun
hlutafélaga um vegaframkvæmdir
er ráðherra einnig heimilt að fela
félaginu að annast rekstur og við-
hald ganganna að byggingu lokinni.
Hluthafar eru Vegagerðin, sem á
51% hlut, og Greið leið ehf. með
49% hlut.
Göngin stytta hringveginn um 16
km og er áætlað að um þau aki
1.400 bílar á sólarhring við opnun.
Reiknað er með að framkvæmdir
geti hafist í haust og að þeim ljúki
fyrir árslok 2014.
Göngin verða 7,5 km löng með
280 m vegskálum beggja vegna.
Þversnið ganganna verður 9,5 m og
vegtengingar 4,1 km. Grafnir verða
út um 700 þúsund rúmmetrar, þar
af 500 þúsund rúmmetrar Eyja-
fjarðarmegin. Áætlað er að kostn-
aður við göngin verði 10,4 millj-
arðar króna, á verðlagi ársins 2011.
Veggjald undir
þúsund krónum
Kristján Möller, fyrrverandi sam-
gönguráðherra og stjórnarmaður í
félaginu, segir að gjaldið um Vaðla-
heiðargöng verði hóflegt en muni
ráðast af þeim tilboðum sem koma,
fjármagnskostnaði og umferð um
göngin. „Við eigum eftir að sjá
hvernig tilboðin verða, en við höfum
verið að fá tilboð upp á 70-80% af
framkvæmdakostnaði. Ef við fáum
tilboð upp á 85% af kostnaðaráætl-
un þá lækkar framkvæmdakostn-
aður um 1,5 milljarða. Ég tel því
allar forsendur til að veggjaldið
verði hóflegt,“ sagði Kristján.
Forvalið verður auglýst í þessum
mánuði og mun fara fram á EES en
gert er ráð fyrir að forval, útboð og
yfirferð yfir tilboðin muni taka allt
að sex mánuði.
Vaðlaheiðargöng hf.
stofnað á Akureyri
Kosta 10,4 milljarða Áætla að opna fyrir árslok 2014
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Skrifað undir Frá vinstri: Halldór Jóhannsson, Steingrímur J. Sigfússon,
Hreinn Haraldsson, Kristján Möller og Pétur Jónasson.
Í nýjasta tölublaði FÍB-blaðsins eru
útreikningar aðstandenda Vaðla-
heiðarganga dregnir í efa og því
haldið fram að dæmið gangi ein-
faldlega ekki upp. Kemur þar fram
að fylgismenn ganganna séu óhóf-
lega bjartsýnir á lága vexti, mikla
umferð og lítinn rekstrarkostnað.
Í blaðinu kemur fram að í áætl-
unum sé gert ráð fyrir verðtryggðu
innlendu láni sem beri í kringum
3,5% vexti. Miðað við þær for-
sendur ætti veggjald upp á 800
krónur að duga til að standa undir
kostnaði. Í útreikningunum sé
einnig gert ráð fyrir að nær því öll
umferð sem áður fór um Vík-
urskarð muni fara um göngin.
Greinarhöfundur FÍB telur hins
vegar einsýnt að aldrei verði samið
um lægri vexti en 5%, að rekstr-
arkostnaður hafi verið vanmetinn
og til að standa undir kostnaði og
afborgunum muni veggjaldið þurfa
að vera 1.100 krónur hið minnsta.
Göngin spari fólki aðeins 9 mín-
útur í tíma og 400 krónur í bensín
og það verði m.a. til þess að um-
ferðin verði minni en áætlanir gera
ráð fyrir.
Niðurstaðan er sú að skattgreið-
endur muni þurfa að greiða 250-
400 milljónir árlega næstu þrjátíu
árin verði af göngunum.
Efast um að
forsendur standist
FÍB UM VAÐLAHEIÐARGÖNGIN
Stórfréttir
í tölvupósti