Morgunblaðið - 10.03.2011, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011
Klöpp Mynd úr einum af mörgum görðum sem Björn hefur hannað. Hver veit nema álfar búi í þessari klöpp?
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Hvers vegna ættum við ekkiað geta flutt út hug-myndir að íslenskumgörðum þar sem sér-
kenni okkar njóta sín, rétt eins og við
flytjum út íslenska list og hönnun?“
spyr Björn Jóhannsson landslags-
arkitekt en hann hefur velt íslenskri
garðlist og garðamenningu mikið fyr-
ir sér.
„Við Íslendingar erum svo
heppnir að „garðurinn okkar“ er
landið sjálft, fjöllin og göngustíg-
arnir, fjaran og heiðarnar, þetta er
allt svo nálægt okkur. Mér finnst að
við eigum að nýta þessi sérkenni og
flytja þau á einhvern hátt inn í
garðana við húsin okkar. Við eigum
að vera óhrædd við að stíga út fyrir
einsleita sólpallana. Og hvers vegna
ekki að laða líka til okkar álfa, sem
búa jú helst í stórum steinum og
grashólum og eru hluti af sérkennum
okkar Íslendinga?“ segir Björn sem
ætlar að halda námskeið í byrjun
apríl um það hvernig fólk getur laðað
til sín álfa í garðana sína.
Álfar eru árrisulir
Björn er mikill útivistarmaður
og segir að í sínum augum séu álfar
hluti af íslenskri náttúru. „Ef við
opnum huga okkar þá blasir þetta við
okkur mjög víða úti í náttúrunni,
tröllumlíkir steinar og klettar eins og
álfaborgir. Við finnum sumstaðar
fyrir vættum landsins þegar við
göngum um landið. Einmitt þess
vegna legg ég áherslu á að fólk gangi
um sitt garðsvæði og finni hvar besta
andrúmsloftið er áður en það
ákveður hvar það ætlar til dæmis að
setja stóra steina sem það vill gera að
bústöðum álfa. Steinana þarf líka að
grafa djúpt ofan í jörðu, helst þarf
þriðjungur þeirra að vera neð-
anjarðar, til að jarðtengja álfabústað-
inn. Í mínum huga eru álfar árrisulir
og því mæli ég með að sú hlið steins-
ins sem er slétt og gæti hentað vel
sem inngangur, sé látin snúa í austur
þar sem sólin kemur upp.“
Það er að mörgu að huga þegar
búa á til svæði sem hugnast gæti álf-
um, þeir þurfa til dæmis að hafa sitt
næði og þeir þurfa að hafa útgöngu-
leið úr garðinum. Þeir þurfa sitt and-
rými. „Við eigum álfasérfræðinga
eins og Erlu Stefánsdóttur sem sér
og þekkir álfa og byggðir þeirra, og
ég hef lesið heilmikið eftir hana og
skoðað álfakortin hennar vel. Álfar
eru náttúruvænar verur og við eigum
að bera virðingu fyrir því þegar við
hönnum svæði sem við viljum að þeir
búi á, til dæmis mæli ég með að nota
ómeðhöndlað timbur, hafa hellurnar
gamlar með sál. Og ef við sækjum
Við eigum
að laða álfana
til okkar
Allskonar álfar Ein af mörgun teikningum sem Björn gerði fyrir álfahugmyndavinnubókina sína.
Hann vill að við horfum til sögunnar og menningar-
innar þegar við hönnum garðana okkar og bjóðum
álfa velkomna með umhverfi sem hugnast þeim.
Japanskir dagar hefjast í Bíó Paradís
í dag og standa til sunnudags. Eru
dagarnir kynntir undir yfirskriftinni
„Grín og gaman frá Japan“ í dag-
skrárblaði Bíó Paradísar enda er um
að ræða kvikmyndir sem hafa notið
mikilla vinsælda í Japan. Myndirnar
eru sýndar með fulltingi japanska
sendiráðsins hér á landi, aðgangur er
ókeypis en myndirnar eru textaðar
með enskum texta. Þetta er að sjálf-
sögðu einstakt tækifæri til að kynna
sér húmor Japana og reyna að átta
sig á hvort hann á eitthvað sameig-
inlegt með ísakaldri kímnigáfu okkar
Frónbúa.
Endilega …
… horfið á
japanskt grín
Morgunblaðið/Golli
Grín Japanskur húmor í Bíó Paradís.
Þegar konur eru á höttunum eftir lífs-
förunaut telja þær líklegra að djúp-
raddaðir karlar muni halda fram hjá
þeim en aðrir. Á hinn bóginn telja
karlar að hátóna konur séu líklegri til
að vera þeim ótrúar en aðrar. Þetta er
meðal niðurstaðna rannsóknar sem
gerð var við McMaster háskólann í
Ontario í Kanada.
Þannig horfa karlar og konur til
raddlegu hugsanlegra maka sinna
þegar þau meta líkur á tryggð við-
komandi. „Því meira aðlaðandi sem
röddin var – þ.e. hærri hjá konum og
dýpri hjá körlum – því líklegra þótti
fólki að viðkomandi myndi taka hlið-
arspor,“ segir Jillian O’Con-
nor, doktorsneminn sem
leiddi rannsóknina, í við-
tali við vefsíðu skólans.
Þátttakendur rann-
sóknarinnar
voru beðnir
um að
hlusta á
tvær upp-
tökur af
karl- og
kven-
röddum
sem var
breytt
með raf-
tækni þannig
að þær hljóm-
uðu hærri eða
lægri en þær
voru í raun. Þeir voru svo spurðir hvor
röddin þeim þætti líklegri til að til-
heyra einstaklingi sem myndi svíkja
maka sinn í tryggðum.
O’Connor segir framhjáhöld kostn-
aðarsöm með tilliti til andlegs álags,
kostnaðar í peningum og mögulegrar
upplausnar fjölskyldna. Niðurstöð-
urnar bendi til þess að fólk hafi til-
einkað sér ýmsar aðferðir til að verj-
ast slíkum áföllum.
Sálfræðiprófessor við háskólann
segir að dýpt raddar hafi áhrif á það
hvernig við metum líkur á framhjá-
haldi tengdar því sambandi sem sé
milli raddhæðar, hormóna og
ótryggðar. Karlmenn með
mikið testosterón hafi
djúpar raddir og konur
með mikið estrógen
háar raddir en mikið
magn þessara
hormóna sé tengt
auknum líkum á
framhjáhaldi.
Niðurstöðurnar
bendi til þess að
einstaklingar
séu að ein-
hverju leyti
meðvitaðir um
þessi tengsl og
noti þá þekk-
ingu þegar
þeir eru í
leit að
maka.
Sambönd
Röddin afhjúpi hugsanleg
hliðarspor væntanlegra maka
Reuters
Misstu ekki af spennandi tónlistarkokteil frá Katalóníu þar sem rúmba,
hiphop og flamenco blandast í iðandi fjöri.
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
MP banki er meginbakhjarl Vetrarhátíðar í ReykjavíkOjos de brujo
á Listahátíð í Hörpu, 27. maí
fyrir viðskiptavini
MP banka í mars.
Almennt verð 3.900 kr.
Sérstakt tilboðsverð
2.900 kr.
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Stoltur Björn er höfundur þessa stuðlabergsgosbrunns við Grand hótel.