Morgunblaðið - 10.03.2011, Side 12

Morgunblaðið - 10.03.2011, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011 ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Andri Teitsson, framkvæmdastjóri Fallorku, dótturfélags Norðurorku, telur Glerárgil, sem er skilgreint sem fólkvangur og náttúruvernd- arsvæði í aðalskipulagi, henta prýði- lega undir virkjun. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvað forráðamenn fyr- irtækisins hafa í huga.    Hugmyndir Fallorku um nýja vatnsaflsvirkjun í Glerá hafa fallið í grýttan jarðveg hjá sumu útivist- arfólki og náttúruverndarsinnum eins og fram kom hér á þessum vett- vangi í síðustu viku.    Fallorka sækir um leyfi til Ak- ureyrarbæjar til að reisa tveggja megawatta virkjun, á móts við gömlu sorphaugana. Þar yrði fimm metra há stífla og lón, örlítið stærra en lónið neðar í ánni, skammt frá Glerárskóla.    Hugmyndin er að frá lóninu yrði 2,8 km langt rör niður að stöðv- arhúsi sem yrði í hvammi á móts við steypustöðina. Fallrörið yrði grafið niður í malarhjallana norðan við ána.    Verði hugmyndir Fallorku að veruleika væri hægt að framleiða 12% af raforkunotkun á Akureyri að aflþynnuverksmiðju Becromal frá- talinni.    Andri Teitsson bendir á að árleg orkuframleiðsla nýrrar virkjunar, um 13,6 gígawattsstundir, nægði til að knýja 6.200 rafbíla ef hver yrði ekinn 15 þúsund km á ári.    Nefnt hefur verið að ekki sé verj- andi að raska Glerárdalnum. Því svarar Andri á þann veg að dalurinn sé ekki óraskaður. Sorphaugarnir verði reyndar græddir upp en þar komi í staðinn gasvinnsla. „Norðan við ána er skotæfingasvæði, bíla- klúbbur og stór iðnaðarlóð þar sem koltrefjaverksmiðja gæti risið.“    Andri bendir á að skilgreindur fólkvangur nær niður fyrir Gler- árskóla „þannig að inni í bænum er nú þegar virkjun, íbúðabyggð, sam- gönguæðar og atvinnustarfsemi meðfram fólkvangi og náttúruvernd- arsvæði“. Bendir í þessu sambandi á Elliðaárdalinn í Reykjavík, fallegt og vinsælt útivistarsvæði þar sem sé uppistöðulón.    Stífla í eigu Fallorku í Djúpadal í Eyjafirði brast í flóði fyrir nokkrum árum og olli miklu tjóni. Andri segir ekki möguleika á sambærilegu slysi á Glerárdal enda yrði í hinu nýja lóni aðeins um einn fertugasti þess vatns sem er í Djúpadal. Stórflóð gæti því ekki myndast þótt stíflan brysti. Segir virkjun og fólkvang fara prýðilega saman fyrir 28. mars hvort þeir kjósa verðtryggð eða óverðtryggð lán og skrifa undir nýja lánasamninga. Svanborg segir að flestir þeirra sem hafi nú þegar haft samband, velti fyrir sér hvort þeirra lán séu endur- reiknuð rétt. Hægt er að bera útreikningana undir Umboðs- mann skuldara, en einnig bjóða fjár- málastofnanir gjarn- an upp á slíka þjón- ustu. „Fólk veltir fyrir sér hvort útreikn- ingarnir séu réttir og skilur ekki af hverju lánin hafa hækkað svona. Það er miðað við óverðtryggða vexti Seðlabankans á hverj- um tíma fyrir sig. Þeir fóru hæst upp í 21% – sem eru auð- vitað talsverðir vextir,“ segir Svan- borg. „Síðan hefur komið nokkuð af kvörtunum um að fjármálafyrir- tæki séu ekki búin að reikna út og senda endurútreikninga á lánum.“ Óskar eftir fundi „Það virðist sem fjármála- fyrirtækin séu ekki alveg að nota sömu út- reikningana,“ segir Svan- borg. Umboðsmað- ur skuldara hef- ur óskað eftir fundi með Sam- tökum fjármálafyrir- tækja til að fá útskýr- ingar á þessu. Svanborg segir að vonast sé til þess að fundurinn verði haldinn fyrir næstu helgi. Þúsundir lána endurreiknaðar  Endurútreikningum fjármálastofnana á erlendum húsnæðislánum lýkur senn  Umboðsmaður skuldara óskar eftir fundi vegna ósamræmis í útreikningum Dæmi um endurútreikninga bankanna Íslandsbanki (5.000 endurútreikningar) Lán tekið í jan. 2005 18.500.000 kr. 31.000.000 kr. 22.700.000 kr. 27% Lán tekið í júl. 2005 1.500.000 kr. 800.000 kr. 450.000 kr. 44% Lán tekið í okt. 2007 5.600.000 kr. 13.500.000 kr. 6.500.000 kr. 52% Lán tekið í nóv. 2007 22.000.000 kr. 54.014.063 kr. 27.218.387 kr. 50% Landsbankinn (2.800 endurútreikningar) Lán tekið í ágú. 2005 4.000.000 kr. 9.652.729 kr. 6.785.689 kr. 30% Lán tekið í nóv. 2006 15.000.000 kr. 32.636.184 kr. 19.483.585 kr. 40% Lán tekið í jan. 2007 9.500.000 kr. 19.757.973 kr. 12.816.838 kr. 35% Lán tekið í nóv. 2007 4.000.000 kr. 10.149.419 kr. 4.050.088 kr. 60% Lán tekið í nóv. 2007 22.000.000 kr. 54.014.063 kr. 27.218.387 kr. 50% Arion (2.250 endurútreikningar) Lán tekið í okt. 2006 4.000.000 kr. 8.858.648 kr. 4.830.688 kr. 45% Lán tekið í des. 2007 3.100.000 kr. 6.183.887 kr. 3.023.782 kr. 51% Lán tekið í júl. 2008 3.000.000 kr. 2.678.825 kr. 1.359.523 kr. 49% Lækkun láns (%)Endurútreiknað Eftirstöðvar fyrir endurútreikningu Upphaflegur höfuðstóllSamsetning Utanríkis-, velferðar- og innanrík- isráðherrum hefur verið falið af rík- isstjórninni að athuga hvernig Ísland geti stuðlað að vitundarvakningu á al- þjóðavettvangi vegna mænuskaða. Tilefnið er sérstakt átak Sameinuðu þjóðanna til að auka umferðaröryggi, sem áætlað er að muni standa í ára- tug og eru ríki meðal annars hvött til að stuðla að umbótum í vegamálum og stuðla að aukningu í notkun á ör- yggisbúnaði. Auður Guðjónsdóttir, stjórn- arformaður Mænuskaðastofnunar Ís- lands, segir að sig hafi lengi dreymt um að Ísland tæki forystu í að vekja athygli á mænuskaða og er sér- staklega þakklát Jóhönnu Sigurð- ardóttur forsætisráðherra fyrir að hafa sýnt málefnum Mænuskað- astofnunarinnar áhuga. „Það er eins og allir haldi að lækna- vísindin gangi af sjálfu sér en það eru milljónir manna út um allan heim sem berjast fyrir framþróun og ýta á að eitthvað gerist. Þess vegna væri stór- kostlegt ef Ísland gæti tekið að sér það hlutverk að vekja athygli á mænuskaða og stuðla að því að það finnist lækning,“ segir Auður. Mænuskaðastofnun Íslands hefur unnið ötullega að því að fræða fólk um mænuskaða og segir Auður við- eigandi að fjallað verði um mænu- skaða nú þegar Sameinuðu þjóðirnar ætli að hrinda af stað alþjóðlegu átaki gegn umferðarslysum, enda séu um- ferðarslys orsök helmings allra mænuskaðatilfella. Taka þátt í átaki SÞ  Vitundarvakning um mænuskaða Morgunblaðið/Golli Áfangi Auður Guðjónsdóttir og Vig- dís Finnbogadóttir er Mænuskaða- stofnun Íslands tók til starfa. FRÉTTASKÝRING Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Stóru bankarnir þrír, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, hafa lokið eða eru um þessar mundir að ljúka endur- útreikningum á erlendum húsnæð- islánum. Er það gert samkvæmt breytingum á lögum um vexti og verðtryggingu, sem voru sam- þykktar á Alþingi í desember síð- astliðnum. Arion banki hefur endurreiknað nærri öll þau 2250 húsnæðislán, sem bankinn hyggst endurreikna. Íslandsbanki ætlar að endur- reikna um fimm þúsund húsnæð- islán og Landsbankinn hefur end- urreiknað öll sín erlendu húsnæðislán sem falla undir lögin, um 2800 talsins. Endurútreikningar kynntir viðskiptavinum á vefnum Útkoma endurútreikninganna sveiflast helst eftir samsetningu gjaldmiðla, lántökutíma og greiðslum yfir lánstímann.Við- skiptavinir bankanna geta nálgast útreikningana á sínum lánum á vef viðkomandi banka. Þar geta við- skiptavinir valið hvort nýja lánið verður verðtryggt eða óverðtryggt og hvort það verður með jöfnum afborgunum eða jöfnum greiðslum. Íslandsbanki er eini bankinn af þessum þremur sem er einnig með bílalán í sínum bókum. Stefnir bankinn að því að endurreikna tólf þúsund bílalán. Búast við fjölgun erinda Lítið hefur borið á erindum er varða endurútreikninga á erlend- um húsnæðislánum hjá Umboðs- manni skuldara hingað til. Hins vegar er búist við því að þeim muni fjölga á næstunni. „Megnið af erindunum sem hafa borist er um bílalánin. En við eig- um von á því, þar sem endurú- treikningarnir vegna fasteignaveð- lánanna eru núna að berast, að erindum muni fjölga verulega vegna þeirra,“ segir Svanborg Sig- marsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá umboðsmanni skuldara. Viðskiptavinir þurfa að staðfesta Þú greiðir f.símanr. og að ra n otk un skv . v er ðs kr á á si m in n. is Fylgstu með gangi mála í símanum! Fyrir aðeins 25 kr. (5 MB innifalin) getur þú t.d. farið 200 sinnum á farsímavefi á einum degi. Ódýrara en þú heldur!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.