Morgunblaðið - 10.03.2011, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Einræðisherrann Muammar Gadd-
afi segir þjóð sína munu grípa til
vopna ef flugbann verður sett á land-
ið, líkt og þrýst hefur verið á um,
meðal annars til að hindra að leiðtog-
inn geti beitt flughernum gegn upp-
reisnarmönnum.
Gaddafi lét þessi orð falla í viðtali
við tyrkneska ríkissjónvarpið og
bætti því við að slíkt bann myndi
reynast Líbíu gagnlegt, enda myndi
þjóðin þá sjá að erlend ríki ásældust
yfirráð í landinu og olíuauð þess.
Fé til höfuðs leiðtoganum
Hefur stjórn hans jafnframt sett
sem svarar hátt í 47 milljónum króna
til höfuðs Mustafa Abdel Jalil, fyrr-
verandi dómsmálaráðherra og leið-
toga uppreisnarmanna.
Harðir bardagar hafa geisað í
borgum landsins og fullyrti einn her-
foringjanna í gær að hersveitir
Gaddafis hefðu nú náð „95% stjórn“
á borginni Zawiya. Fylgdu þau að-
vörunarorð með að „rottur“, þ.e.
uppreisnarmenn, kynnu enn að leyn-
ast í húsasundum í borginni en unnið
væri hörðum höndum að því að upp-
ræta þær. Ekki er vitað hversu mikið
mannfallið var en talið er að minnst
40 hafi fallið í valinn í Zawiya í gær.
Uppreisnarmenn í borginni voru
sagðir eiga í vök að verjast við aðal-
torg borgarinnar en hersveitir ein-
ræðisherrans sóttu fram af hörku
með skriðdrekum og leyniskyttum.
Talsmenn uppreisnarmanna neit-
uðu því að vera á undanhaldi og
sögðu borgina mundu aftur verða á
valdi þeirra í fyrrinótt, að því er fram
kom á vef New York Times.
Jafnframt hafði systurstöð sjón-
varpsstöðvarinnar Al Jazeera eftir
heimildum sínum að háttsettir her-
foringjar á bandi Gaddafis hefðu fall-
ið í átökum í Zawiya í gær.
Borgin er hernaðarlega mikilvæg,
meðal annars vegna olíuhreinsunar-
stöðvar sem þar er.
Barist við olíuhreinsunarstöð
Þá voru harðir bardagar í ná-
grenni olíuhreinsunarstöðvar í bæn-
um Ras Lanuf og hafði blaðið eftir
sjónarvottum að orrustuþotur hefðu
sveimað yfir svæðinu síðdegis í gær,
skömmu áður en mikill reykjar-
mökkur steig upp til himins.
Harðir bardagar í Líbíu
Gaddafi segir líbísku þjóðina munu rísa upp ef flugbann verður sett á landið
Tugir taldir hafa fallið í borginni Zawiya Misvísandi frásagnir af átökunum
Reuters
Olía og átök Uppreisnarmaður skýtur eldflaug að sveitum Gaddafis
skammt frá gasvinnslustöð milli bæjanna Ras Lanuf og Bin Jiwad.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skortur á störfum mun halda áfram
að setja þrýsting á valdhafa víða um
heim í ár líkt og á síðustu árum.
Athygli vekur að hlutfall ung-
menna án vinnu er víða mjög hátt en
það er sérstakt áhyggjuefni í löndum
þar sem meðalaldurinn fer hækk-
andi, vegna stórra árganga af eldri
borgurum sem komu í heiminn á ár-
unum upp úr síðari heimsstyrjöld.
Land tækifæranna?
Byrjum á Bandaríkjunum.
Nýjar atvinnuleysistölur þaðan
undirstrika að Barack Obama forseti
á erfitt verk fyrir höndum. Atvinnu-
leysi hefur að vísu minnkað um 0,9%
síðan í nóvember 2010 og stóð í 8,9% í
febrúar, en það er úr háum söðli að
detta. Um 13,7 milljónir Bandaríkja-
manna eru skráðar atvinnulausar en
áætlað er að milljónir manna vanti á
skrána sem gefist hafa upp á at-
vinnuleit. Hlutfall karla án vinnu er
8,7% og 8% hjá konum. Það er mun
hærra hjá unglingum eða 23,9%.
Dregið hefur úr bjartsýni um um-
skipti í Kaliforníu, stærsta hagkerf-
inu innan Bandaríkjanna.
Ný skýrsla hagfræðinga við Kali-
forníuháskóla (UCLA) undirstrikar
þetta en þeir spá því að atvinnuleysi í
sambandsríkinu verði að meðaltali
11,6% í ár, 10,5% árið 2012 og 9,3%
árið 2013, miðað við 12,4% í janúar.
Olíuverðið hefur áhrif
Segir á vef Los Angeles Times að
hátt verð á hrávörum og olíu valdi því
að atvinnurekendur séu tregir til að
ráða nýja starfsmenn.
Það hefur einnig harðnað á daln-
um í Flórída og kemur fram á vef
dagblaðsins Orlando Sentinel að
neðri deildin á þingi sambandsríkis-
ins muni ákveða fyrir helgi hvort
réttur til atvinnuleysisbóta verði
skertur úr 26 vikum í 20 vikur, sé at-
vinnuleysi í ríkinu 9% eða hærra.
Fari það hins vegar undir 5% skerð-
ist rétturinn niður í 12 vikur.
Það hefur einnig gengið hægt að
fjölga störfum í ríkjum Evrópusam-
bandsins. Þetta kemur skýrt fram í
nýjum tölum Eurostat, hagstofu
ESB, um atvinnuleysi í evruríkjun-
um 17 en það var áætlað 9,9% í jan-
úar, borið saman við 10% í janúar í
fyrra. Atvinnuleysi er ögn minna í
aðildarríkjunum 27 eða 9,5% að
meðaltali í janúar, líkt og í fyrra.
Þrengingarnar á vinnumarkaði
hafa áhrif á tugi milljóna Evrópubúa.
Þannig áætla sérfræðingar Euro-
stat að rúmlega 23 milljónir manna
séu án atvinnu í aðildarríkjunum 27,
þar af 15,8 milljónir í evruríkjunum.
Kynslóð atvinnuleysis
Hlutfall atvinnulausra undir 25
ára aldri í janúar var 19,9% á evru-
svæðinu og 20,6% í ESB-ríkjunum
27. Það var 20,2% annars vegar og
20,7% hins vegar í fyrra. Mikill mun-
ur er á hlutfallinu milli landa. Það er
lægst í Hollandi (7,8%) og Austurríki
(8,0%) og hæst á Spáni (43,1%) og í
Slóvakíu (37,7%).
Heimildir: AGS, upplýsingasíður CIA, Alþjóðabank.* Áætlun **Brasilía, Rússland., Indland, Kína
Athugið: Tölurnar eru frá 2010 nema annað sé tekið fram. 2003: Jemen; 2004: Líbía, Óman; 2005: Barein;
2007: Djíbútí; 2008: Máritanía; 2009: Írak; Jan. 2011: ESB27, Rússland og Brasilía; feb. 2011: Bandaríkin
ATVINNULEYSI UMVÍÐA VERÖLD
Land í Mið-Austurlöndum/N-Afríku
sem logi byltingar hefur farið um
BNA /
ESB27
**
60
50
40
30
20
10
0
HLUTFALL
ATVINNULAUSRA%
MIÐGILDI ALDURS ÍBÚA (ÁR)
Annar helmingur íbúafjöldans er yngri og hinn eldri
15 20 25 30 35 40 45
Alsír 10
Djíbútí 59*
Egyptal. 9,2*
Íran 14,6*
Írak 15,3*
Jórdanía
13
Kúveit 1,6*
Líbía 30*
Máritanía
30*
Óman 15*
Sádi-Arabía 10,5
Súdan 13,7
Sýrland 8,3*
Túnis 13,2
Barein
15*
Brasilía 6,1
Jemen
35*
BNA 8,9
EU27
9,5
Rússland 7,6
Kína 4,1*
Indland 10,8*
1.000 milljónir
100 milljónir
10 milljónir
1 milljón
Stærð hringjanna er í
takt við íbúafjöldann
0 5 10 20
HLUTFALL ATVINNULAUSRA %
50 95
KÍNA
RÚSSLAND
ÁSTRALÍA
JAPAN
BANDARÍKIN
KANADA
BRASILÍA
INDLAND
Heimsbyggðin þarf fleiri störf
Enn mikið atvinnuleysi í Bandaríkjunum og í ríkjum ESB
Hátt olíu- og hrávöruverð seinkar umskiptum í Kaliforníu
Reuters
Viljum vinna! Suðurkóreskir háskólanemar krefjast starfa. Um 8,5% S-Kórumanna undir 25 ára eru án vinnu. Til
samanburðar eru 18% atvinnulausra Íslendinga á aldrinum frá 16 til 24 ára. Atvinnuleysi á Íslandi var 8,5% í janúar.
Eins og sjá má á kortinu hér fyrir
ofan eru margir án vinnu í lönd-
unum sem logi byltingar hefur far-
ið um í Norður-Afríku og Mið-
Austurlöndum að undanförnu og
má nefna að atvinnuleysið er 30%
í Líbíu og 35% í Jemen. Bæði ríkin
eru staðsett vinstra megin á kort-
inu en það þýðir að miðgildi
aldursdreifingarinnar er lágt, þ.e.
að ungt fólk er í meirihluta.
En hvernig er ástandið í Kína á
sama tíma og tveimur stærstu
hagkerfunum, Bandaríkjunum og
ESB-blokkinni, blæðir? Nýjar tölur
um stöðu tólftu fimm ára áætlun-
arinnar (2011-2015) sýna að um 8
milljónir manna í dreifbýli eru án
vinnu en 24 milljónir manna í þétt-
býli, þ.m.t. 14 millj. nýstúdenta úr
háskólum og framhaldsskólum, að
sögn China Economic Review.
Óánægð og án vinnu
STÖRFIN SKORTIR Í NORÐUR-AFRÍKU
„Annað hvort öðlumst við frelsi
og keppumst við að ná jafn-
stöðu við mannkynið og þróun
heimsmála, eða verðum hlekkj-
aðir þrælar undir harðri hendi
einræðisherrans Muammars
Gaddafis,“ sagði í lauslegri þýð-
ingu á vefsíðu líbíska bráða-
birgðaþjóðarráðsins þegar hún
var opnuð í enskri útgáfu í gær.
Andstæðingar Gaddafis
viðurkenna að óvíst sé um fram-
vindu mála og segir New York
Times einræðisherranum hafa
tekist að nýta sér ágreining á
meðal ólíkra ættbálka til að
sundra mótherjum sínum. Þykir
leiðtoginn og vígasveitir hans
hafa sótt í sig veðrið.
Gaddafi beitir fjölmiðlum á
sinni hendi miskunnarlaust í
áróðrinum gegn uppreisnar-
mönnum og í gær sýndi ríkis-
sjónvarpsstöð landsins myndir
af mannfjölda í borginni Za-
wiyah sem hélt á lofti myndum
af einræðisherranum og hróp-
aði slagorð honum til stuðnings.
Frelsið eða
hlekkirnir
SKÝRIR KOSTIR