Morgunblaðið - 10.03.2011, Page 14

Morgunblaðið - 10.03.2011, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sífellt hrann-ast uppmerkin um getuleysi ríkis- stjórnarinnar. Og það gildir í smáu sem stóru. Vand- ræðagangurinn í Magmamál- inu. Launamál seðlabanka- stjórans. Sjávarútvegurinn settur í uppnám þegar fyr- irheit um að byggt yrði á störfum sáttanefndar var svikið og ónýtt. Stjórnlaga- þingsklúðrið. Árásin á Hæstarétt í framhaldinu. Landsdómsfirran og fárán- leikinn. „Einkavæðing“ Arionbanka og Íslandsbanka, þar sem sagt er að kröfuhafar sem engir viti hverjir séu stjórni þeim á meðan slita- stjórnir og skilanefndir, sem bera ekki ábyrgð gagnvart neinum, láta sína fyrri kaup- greiðendur maka krókinn, hina sömu og settu Ísland á hausinn. Sagt var að ríkið sparaði fé með hinni undarlegu einka- væðingaraðferð. Hagnaðar- tölur „einkavæddu bank- anna“ sem birtar hafa verið benda til að það sé mjög vafa- samt. Og nú koma launamálin upp á ný. Allir áttu að miða við laun Jóhönnu Sigurðar- dóttur. Nú er komið á daginn að laun Jóhönnu Sigurðar- dóttur voru ekki einu sinni miðuð við laun Jóhönnu Sig- urðardóttur. Hún hefur feng- ið ofgreidd laun og þykist ekki hafa vitað af því. Laun handhafa valds forseta Ís- lands eru miðuð við laun for- setans. Þau laun höfðu verið lækkuð. En ekki handhaf- anna! Þeir hafa fengið of- greitt. Forsetaembættið fell- ur stjórnskipulega undir forsætisráðuneytið innan stjórnarráðsins. Útilokað er með öllu að forsætisráðu- neytið hafi ekki vitað um launalækkun forsetans. Fjár- málaráðuneytið byggir á áætlun forsætisráðuneytisins um þau laun og er útilokað að Steingrímur J. hafi ekki vitað um launlækkunina og of- greiðslu til handhafanna. Svo Jóhanna og Steingrímur hafa einfaldlega sagt ósatt um málið og bætist enn í þann haug. Þau tvö hafa einnig komið sér undan að svara því, hvort endurgreiðsla verði miðuð við næstu mánaðamót eða hvort hún verður dregin, hvort hún verði dráttarvaxta- reiknuð og þar fram eftir göt- unum. Þegar laun bankastjóra Arionbanka valda ókyrrð í þjóðfélaginu hafa Jóhanna og Steingrímur uppi stór orð. En á daginn kemur að fulltrúi ríkisins og bankasýslunnar sem á undir Stein- grím studdi bein- línis hina óvæntu launahækk- un í Arionbanka og annar fulltrúi ríkisins lagðist ekki gegn henni í Íslandsbanka. Steingrímur þóttist vita í gegnum þessa fulltrúa sína allt um vangaveltur um bón- usa og þess háttar en ekkert um hinar miklu launahækk- anir. Hver trúir því? Og mitt í öllu þessu neitar Steingrímur að gefa upp hver ósköpin hann hefur greitt samninganefndarmönnum sínum um Icesave. Hann ætl- ar að reyna að þegja um þær stórfréttir fram yfir kjördag um Icesave. Það bendir óneit- anlega til að þær greiðslur þoli ekki dagsins ljós. Sjálfir neita samninganefndarmenn- irnir að gefa upp þær greiðslur án fullnægjandi skýringa. Norræna velferðarstjórnin um skjaldborg um heimilin lofaði hátíðlega að í hennar stjórnartíð yrði gagnsæ og opin stjórnsýsla í öndvegi. Ekkert hefur verið fjær sanni. Hvers vegna lætur Umboðsmaður Alþingis rík- isvaldið komast upp með að upplýsa ekki um greiðslur sem þegar hafa farið fram og óskað hefur verið eftir? Hvers vegna láta alþingis- menn það líðast? Var það innifalið í hinu „ískalda mati“ sem notað var sem afsökun á kúvendingu á afstöðu í stór- máli og að ganga gegn ótví- ræðri landsfundarákvörðun, að hjálpa skyldi ríkisstjórn- inni við að fela upplýsingar sem almenningur verður að hafa áður en gengið verður til þjóðaratkvæðis? Samninga- nefndarmenn sem byggðu af- stöðu sína áður á lögfræði- legum sjónarmiðum og sögðu skýrt að greiðsluskylda stangaðist gegn þeim og sjálf- um stjórnskipunarreglum landsins létu sjónarmið um háa eða lága vexti skyndilega ráða afstöðu sinni. Það er augljóst hagsmunamál fyrir þá sjálfa og þjóðina, sem á að eiga síðasta orðið um þetta mál, að allar greiðslur til við- komandi liggi á borðinu. Ekki síst eftir að samninganefnd- inni hefur verið breytt í áróð- ursnefnd fyrir hinu vafasama máli. Það hljóta þeir sjálfir og stjórnvöld landsins að sjá. Hvers vegna er þá setið á svo mikilvægum upplýsingum? Upplýsa verður um þóknun til samn- inganefndarmanna um Icesave} Laun á laun E instaka sinnum – en bara einstaka sinnum – hendir mann að hugsa með sér að kannski sé rík- isstjórnin ekki svo slæm. Hún sé að reyna að gera sitt besta á sér- lega erfiðum tímum. En á þeim veikleikastund- um, sem hugsun manns rambar í þessa átt, birt- ast ráðherrar og stjórnarþingmenn og opna munninn. Og maður gerir sér samstundis grein fyrir því að þetta fólk á að gera eitthvað annað en að stjórna landinu. Um daginn kom í ljós að helsta áhyggjuefni ráðherra ríkisstjórnarinnar er að nokkrir for- stjórar í einkabönkum eru með sómasamleg laun. Þetta eru laun sem eru um 3 milljónir á mánuði. Sem sagt mjög góð forstjóralaun. Hver á fætur öðrum mæta ráðherrar og stjórn- arþingmenn í fjölmiðla og tala af mikilli hneykslan um ofurlaun. Forsætisráðherra hef- ur sagt að fyrir launum þessara manna sé engin siðleg rétt- læting og þau séu ógn við stöðugleika í samfélaginu. Aðrir ráðherrar hafa í miklum hneykslunartón tekið undir þessi orð og jafnvel bætt í. Engu er líkara en verið sé að tala um 30 milljóna króna mánaðarlaun en ekki 3 milljónir. Birtar eru myndir í fjölmiðlum af „ofurlauna“- forstjórunum og því lætt inn hjá almenningi að forstjór- arnir sem þiggi einhverjar milljónir í mánaðarlaun séu úr takti við samtímann, þeir séu örugglega spilltir fjár- glæframenn og líklegir til að koma af stað nýju bankahruni. Mikill er þá orðinn máttur 3 milljóna króna mánaðarlauna! Hafa ráðherrar ríkisstjórnarinnar ekki um eitthvað brýnna að hugsa en ágæt launakjör í einkafyrirtækjum? Og hvernig er það, er það kannski rangminni að ríkisstjórnin hafi á sínum tíma gert sitt ýtrasta til að hífa upp laun seðla- bankastjórans, Más Guðmundssonar, af því þau þóttu smánarleg fyrir svo hæfan mann? Hvernig fór það mál annars? Er Már enn á sultarlaunum? Fær hann vinnu hjá einka- banka? Gott væri að fá svar við því hvort það sé al- mennt viðhorf innan hinnar ólánlegu vinstri- stjórnar að allir eigi að vera nokkurn veginn á sama plani og eiga mátulega lítið. Skattastefna stjórnvalda virðist byggjast á því að peningar séu tæki djöfulsins og ef einhver eignist meira en aðrir þá sé um að gera að stoppa hann af sem allra fyrst með því að leggja á hann alls kyns ofurskatta. Nú hefur vinstrisinnaður þingmaður, Lilja Mósesdóttir, bætt um betur. Hún hefur greinilega megna andúð á fjár- magni og leggur til að lagður sé 60-70 prósenta skattur á þau laun sem eru umfram milljón. Hvað segja sjómenn og skipstjórar við því? Hvað segja læknar við því? Já, vel á minnst, þeir eru reyndar margir búnir að flýja land og komnir í vel launuð störf í útlöndum. Og hvað segir hinn al- menni borgari – sem leggur hart að sér eitthvert árið af því hann er að reyna að bjarga sér – þegar hann kemst að því að allan tímann var hann að vinna fyrir Skattmann? kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórs- dóttir Pistill Hvaða ofurlaun? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Fleiri ílendast á fram- færi sveitarfélaga FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is A tvinnuleysið er greini- lega farið að segja til sín og það sýnir sig í því að fólk er farið að fá fjár- hagsaðstoð á stöðum þar sem aldrei þurfti að vera fjár- hagsaðstoð,“ segir Gyða Hjartar- dóttir, félagsþjónustufulltrúi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Eftir því sem líður á kreppuna er fjárhagsleg aðstoð farin að vega þyngra í útgjöldum sveitarfélaga. Munar þar mest um þann hóp fólks sem misst hefur vinnuna og á ekki rétt á örorku- eða atvinnuleysis- bótum, eða hefur fullnýtt bótaréttinn. Í Morgunblaðinu í gær voru nefnd nokkur dæmi um allt frá 23% til 38% aukningar í fjárhagsaðstoð stærri sveitarfélaga. Svipað er upp á ten- ingnum hjá mörgum smærri sveit- arfélögum, þar sem fjárhagsaðstoð var fremur fátíð á árum áður. „Breytingin hjá litlu sveitar- félögunum er einna helst sú að á tímabili fengu engir einstaklingar fjárhagsaðstoð hjá þeim, því þar gat fólk frekar komist í vinnu. En þetta er farið að breytast vegna atvinnu- ástandsins og hver og einn sem bæt- ist við vegur mjög þungt í fjárhags- áætlun hjá þessum litlu sveitar- félögum,“ segir Gyða. Ekki hugsað til langs tíma Þótt á heildina litið séu þeir sem þurfa á fjárhagsaðstoð að halda ekki svo verulega miklu fleiri nú en fyrir tveimur til þremur árum eru upp- hæðirnar samt sem áður mun hærri, vegna þess að hver og einn þarf leng- ur á aðstoðinni að halda. Sem dæmi má nefna Skagafjörð. Helmingi fleiri Skagfirðingar þurftu fjárhagsaðstoð árið 2009 en 2008. Lítil fjölgun varð hins vegar frá 2009 til 2010, úr 51 heimili í 53, en á sama tíma jukust út- gjöldin milli ára um 48%, úr tæpum 12 milljónum árið 2009 í rúmar 17 milljónir árið 2010. Þetta má fyrst og fremst rekja til þess að þörf var á aðstoðinni í lengri tíma. Þannig voru greiðslu- mánuðir Skagafjarðar samtals 163 árið 2009, eða að jafnaði 3,2 á hvert heimili. Ári síðar voru greiðslumán- uðirnir orðnir 218 og hvert heimili þáði aðstoð að jafnaði í 4,2 mánuði. Hjá Hveragerðisbæ hefur upp- hæðin sem varið er í fjárhagsaðstoð rúmlega tvöfaldast á þremur árum, úr 8,8 milljónum árið 2008 í 21.288 milljónir árið 2010. Að sögn Maríu Kristjánsdóttur, félagsmálastjóra hjá Hveragerðisbæ, hefur einstaklingum sem þurfa aðstoð fjölgað um rúm 100% frá 2008 og tímabilið einnig lengst. Að meðaltali varir aðstoðin í um sex mánuði, en síðustu tvö árin voru tveir sem þáðu fjárhagsaðstoð í 10-12 mánuði. Þetta er óheillavænleg þróun að sögn Gyðu, sem leggur áherslu á að fjárhagsaðstoðin eigi aðeins að vera tímabundin lausn. „Þetta á að vera síðasta öryggisnetið og til skamms tíma þegar ekkert annað er í boði. Hugsunin er sú að þetta brúi bilið svo fólk getið notað tímann á meðan til að koma sér í eitthvað annað því það er auðvitað enginn sem vill vera á fjár- hagsaðstoð í lengri tíma, þetta eru ekki háar upphæðir.“ Aðstæður fólks verði æ verri eft- ir því sem það þurfi lengur að lifa á svo lágum tekjum. Gyða segir það mikið hagsmuna- mál í augum sambandsins að bóta- réttur atvinnulausra verði hækkaður í fimm ár, líkt og eitt sinn var. „Því það eru miklu fleiri atvinnutengd úr- ræði á meðan þú ert með bótarétt, réttur á því að sækja námskeið, end- urhæfingu og annað.“ Til að bregðast við atvinnuástandinu séu sveitar- félögin þó í auknum mæli farin að inn- leiða virkniúrræði fyrir þá sem þiggja fjárhagsaðstoð og hafa ekki bótarétt. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hrekkur skammt Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er hugsuð sem úr- slitaúrræði til skamms tíma fyrir þá sem eiga ekki rétt á neinum bótum. 6 mánuðir eru meðallengd þess tíma- bils sem einstaklingar í Hveragerði þáðu fjárhagsaðstoð í fyrra. 50% aukning á fjárhagsaðstoð Ísafjarð- arbæjar milli ára, úr 9 milljónum 2009 í 13,5 milljónir 2010. 17 heimili í Skagafirði sem þurftu að- stoð 2010 fengu líka aðstoð 2009. 100% fjölgun hefur orðið frá árinu 2008 í hópi Hvergerðinga sem þurfa að- stoð. ‹ FJÁRHAGSAÐSTOÐ › »

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.