Morgunblaðið - 10.03.2011, Side 15

Morgunblaðið - 10.03.2011, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011 Nýjustu fréttir af ís- lensku bönkunum eru enn ein vísbendingin um það sem hefur verið að koma betur og betur í ljós, þ.e. hversu lítið hef- ur breyst. Almenningur á að borga þegar illa fer en fjármálakerfið hér á landi og erlendis heldur sínu striki með aðstoð stjórnvalda. Meiri hagnaður en 2007 Íslandsbanki hagnaðist á síðasta ári um hærri upphæð en Glitnir gerði árið 2007. Að mestu leyti er hagn- aðurinn til kominn vegna vaxtamunar og vegna þess að lánasöfn voru færð yfir í nýja bankann með miklum af- slætti. Þetta svigrúm hefði átt að nýta í að færa niður lán eins og fram- sóknarmenn hafa ítrekað bent á und- anfarin tvö ár. Einnig hefði átt að standa öðruvísi að stofnun bankanna og nýta það lága verðmat sem var á lánasöfnum banka eftir efnahags- hrunið almenningi í hag. Hagsmunir ríkisstjórnarinnar Í staðinn er unnið að því hörðum höndum að innheimta sem mest. Allt er þetta gert samkvæmt forskrift rík- isstjórnarinnar sem hannaði kerfið. Ríkið hefur reyndar mikinn hag af því að bankarnir sýni sem mestan hagnað því að það eykur skatttekj- urnar. Hjá Landsbankanum fá menn svo meira upp í skuldabréfið sem á að ganga upp í Icesave með því að láta almenning borga sem mest. Það er óheppilegt ef ríkisstjórnin lítur svo á að hag sínum sé best borgið með því að fá sem mestar tekjur úr bönk- unum fremur en að bankarnir ráðist í sem víðtækasta leiðréttingu lána. Hvatakerfi bankanna Laun bankastjóra eru eitt en hvernig ætli samspil tekna og inn- heimtu sé? Í fjármálabólunni hér á landi og annars staðar átti hvatakerfi bankanna stóran þátt í að ýta undir bólumyndunina. Er ríkisstjórnin nú búin að hanna bankakerfi sem felur í sér sterka hvata til að innheimta stökkbreytt lán íslensks almennings og smáfyrirtækja upp í topp? Almenningur á að borga Fréttir af afkomu í Íslandsbanka og Arion banka berast rétt eftir að sömu bankar stóðu fyrir miklum áróð- ursfundum til að afla fylgis við það að al- menningur ábyrgist gamlar skuldir einka- banka með hinum nýju Icesave-samningum. Þar voru mennirnir sem gerðu samn- ingana (þótt sumir hafi bara verið kynntir sem erlendir sérfræðingar) látnir útskýra fyrir al- menningi hvers vegna fólki væri hollast að rugga ekki báti hins alþjóðlega fjármálakerfis. Forsætisráðherra kemur enn af fjöllum Enn á ný virðast svo forsætisráð- herra og stjórnarliðar ætla að láta eins og þau séu í stjórnarandstöðu og hafi ekkert með málin að gera. For- sætisráðherra lét eins og hann kæmi af fjöllum þegar upplýst var um laun seðlabankastjóra og þegar sölunni á HS orku var mótmælt hélt forsætis- ráðherra því fram að mótmælin væru einmitt í samræmi við stefnu rík- isstjórnarinnar. Það gerði ráð- herrann þótt hann hefði í þremur rík- isstjórnum innleitt og framkvæmt þveröfuga stefnu (þar af í tveimur sem forsætisráðherra). Stjórnlaust land Það var núverandi ríkisstjórn sem einkavæddi bankana, hannaði nýju bankana (án þess að hlusta á aðvar- anir) og rekur Bankasýslu ríkisins sem hefur umsjón með öllu saman. Einhver þarf að fara að upplýsa Jó- hönnu Sigurðardóttur um að hún sé ekki lengur fyrrverandi félagsmála- ráðherra í stjórnarandstöðu. Það má minna ráðherrann á að hann hafi set- ið í stjórn Samfylkingar og Sjálfstæð- isflokks í efnahagshruninu og að- draganda þess og sé nú forsætisráðherra. Svo þarf að fara að stjórna landinu. Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson » Almenningur á að borga þegar illa fer en fjármálakerfið hér á landi og erlendis heldur sínu striki með aðstoð stjórnvalda. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er alþingismaður og formaður Framsóknarflokksins. Almenningur á bara að borga Efnahagskreppan sem hófst hér á landi 2008 hefur haft alvar- legar afleiðingar fyrir þjóðina. Sú alvarlegasta er sú auma ríkisstjórn sem komst til valda í kjölfarið. Getuleysi og óeining stjórnarinnar er meginvandinn sem þjóðin glímir við í dag, ásamt framtíðarsýn hennar sem er hugsandi fólki full- komin hrollvekja. Afleiðingarnar eru atvinnuleysi og fólksflótti og er sorg- legt til þess að vita að þessi vandi er að mestu leyti heimatilbúinn. Ef fjögur einföld skref væru stigin væri hér allt öðruvísi umhorfs í at- vinnulífi en raun ber vitni. Í farvatn- inu væri aukin landsframleiðsla og meiri útflutningsverðmæti, en hvort tveggja er okkur nauðsynlegt til að vinna bug á kreppunni sem við horf- umst í augu við alla daga. Nú eru liðin um tvö og hálft ár frá hruni bankanna og það var loks í vet- ur að viðskiptaráðherra beitti sér fyr- ir samkomulagi við fjármálafyrirtæki um leiðir til að leysa skuldavanda fyr- irtækja. Talið var að fjöldi þeirra væri á bilinu 6 til 7.000. Lítið hefur verið um efndir þessa samkomulags og virðast stjórnvöld ekki beita sér fyrir því efndum þess. Nú herma fréttir að búið sé að fækka þessum fyrirtækjum í u.þ.b. 3.000 og því ljóst að markmiðið um hvata til fyrirtækj- anna um að efla starfsemi sína og fjölga starfsmönnum er ekki að nást. Við þessu verður að bregðast strax og setja fjármálafyrirtækjum þær regl- ur sem duga til að þetta mikilvæga skref verði stigið án tafar. En er rík- isstjórnin að gera eitthvað í málinu? Nei. Ríkisstjórnin er upptekin við stjórnlagaþing og önnur viðlíka mál sem mega bíða. Sé litið til þess sem til umfjöllunar hefur verið á Alþingi undanfarið skín í gegn skilningsleysi ríkisstjórnarinnar á vanda skuld- settra fyrirtækja. Það er ólíðandi að stórhagnaður bankanna skuli m.a. byggjast á hækkuðu mati þeirra krafna sem þeir fengu fyrir lítið frá gömlu bönkunum, krafna sem þeir telja sig nú geta kreist meira út úr en áður á kostnað skuldara. Afskrift- irnar eiga skilyrðislaust að renna til skuldugra heimila og fyrirtækja, svigrúm bankanna til þeirra mála er greinilega miklu meira en þeir hafa haldið fram. Aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt fram skýrar kröfur við stjórnvöld vegna kjarasamninga sem eru í burð- arliðnum. Vantraust þeirra á ríkisstjórninni er reyndar algjört og fram hefur komið að kjarasamningar muni ekki nást nema ríkis- stjórnin verði búin að ljúka sínum þætti með lagasetningu. Ekkert þeirra mála sést enn á dagskrá þingsins. Ekki er það traustvekjandi, en stjórnvöld eru víst upptekin við annað. Auk þess að stuðla að endurreisn fyrirtækja er hægt að taka án tafar önnur, en mikilvæg skref í atvinnumálum. Ríkisstjórnin lofaði í nóvember að efna til átaks í vegagerð og bjóða út verk fyrir allt að 6 milljarða króna fyrir febrúarlok. Ekkert bólar á þessu fremur en öðru. Í yfirliti frá Vegagerðinni kemur fram að áætl- aður kostnaður við verk sem tilbúin eru til útboðs á næstu vikum og mán- uðum nemur allt að 42 milljörðum. Þar af eru tvenn jarðgöng, Norð- fjarðargöng og Vaðlaheiðargöng. Önnur verkefni stór og smá um allt land eru á þessum lista. Með því að efna til sérstaks átaks í vegagerð á árunum 2011 til 2013 má eyða þeirri óvissu sem verktakastarfsemin stendur frammi fyrir. Á annað þús- und störf myndu skapast á stuttum tíma. Ríkisstjórnin hefur borið fyrir sig blankheitum. Slíkur málflutn- ingur stenst enga skoðun. Þessi sama ríkisstjórn var tilbúin til að skuld- binda ríkissjóð í Icesave II fyrir allt að 500 milljarða króna. Fyrsta greiðsla af þeim samningi hefði verið yfir 60 milljarðar króna á árinu 2016. Það getur því ekki verið ríkissjóði of- viða að veita 22 milljarða í vegagerð á þessum árum sem má fjármagna með útgáfu ríkisskuldabréfa sem koma t.d. til greiðslu á árunum 2016 til 2026. Hugmyndir um vegatolla þarf að skoða miklu betur en gert hefur verið. Svigrúm til þess mun skapast á næstu árum. Ríkisstjórnin hefur staðið í vegi fyrir ákvörðunum um virkjanir. Á sama tíma segja orkufyrirtækin að mörg fyrirtæki í fjölbreyttum rekstri horfi til Íslands til uppbyggingar á at- vinnustarfsemi. Afleiðingin er m.a. sú að Landsvirkjun getur ekki rætt við slíka um framtíðaruppbyggingu á Suðurlandi vegna óvissu um getu til afhendingar á orku. Í stjórnarsátt- mála ríkisstjórnarinnar segir að ekki verði tekin ákvörðun um frekari virkjanaframkvæmdir fyrr en rammaáætlun liggur fyrir. Allir eru þó sammála um að virkjanir í neðri Þjórsá séu meðal vænlegustu virkj- anakosta sem muni verða staðfestir í rammaáætlun. Nú hefur umhverfis- ráðherra verið dæmdur í Hæstarétti fyrir ólöglega stjórnsýslu og því er ekkert í veginum með að hefja und- irbúning þessara virkjana. Slíkt myndi strax hafa jákvæð áhrif á ís- lenskt atvinnulíf og hægt væri að hefja viðræður við áhugasama kaup- endur á orkunni. Óvissa í sjávarútvegi kostar sam- félagið stórkostlega fjármuni. Við þær aðstæður sem nú eru í sjávar- útvegi, m.a. vegna veikrar stöðu krónunnar, væri eðlilegt að fyrirtæki í sjávarútvegi stæðu í fjárfestingum til starfsemi sinnar sem aldrei fyrr. Í heilt ár fór fram ítarleg vinna svo- kallaðrar sáttanefndar um breytta skipan á úthlutun aflaheimilda. Málið var skoðað ofan í kjölinn með aðkomu fulltrúa allra stjórnmálaflokka og hagsmunaaðila í greininni. Nið- urstaðan lá fyrir sl. haust og var breið samstaða um hana í vinnuhópnum. Eftir það hafa ríkisstjórnarflokkarnir haldið málinu í gíslingu vegna óein- ingar innan eigin raða. Nefnd á veg- um stjórnarflokkanna vinnur að mál- inu og sjávarútvegsráðherra boðaði að lagt yrði fram frumvarp um málið í febrúar. Ekkert bólar á því enn, sem er von þar sem stjórnarliðar koma sér ekki saman. Á meðan halda fyrir- tækin að sér höndum og lítil sem eng- in fjárfesting eða viðhald á sér stað umfram það sem nauðsynlegt er. Nokkur fyrirtæki sem byggja starf- semi sína á þjónustu við sjávarútveg hafa verkefni fyrir erlendar útgerðir, önnur hafa lítið sem ekkert að gera og öll lepja þau dauðann úr skel með tilheyrandi uppsögnum á starfsfólki. Það er sorglegt að vandi okkar skuli vera jafn heimatilbúinn og raun ber vitni. Með ákvörðunum í þeim málum sem ég hef hér nefnt yrði blásið bjartsýni í brjóst almennings og fyrirtækja í þessu landi. Enn og aftur kalla ég eftir ábyrgð og skyld- um þeirra þingmanna stjórnarflokk- anna sem ég veit að vilja sjá stefnu sem þessa verða að veruleika. Þeirra ábyrgð er ekki síðri en þeirrar aumu ríkisstjórnar sem hér er við völd. Eftir Jón Gunnarsson » Getuleysi og óeining stjórnarinnar er meginvandinn sem þjóð- in glímir við í dag, ásamt framtíðarsýn hennar sem er hugsandi fólki fullkomin hrollvekja. Jón Gunnarsson Höfundur er alþingismaður. Heimatilbúinn vandi Fjúk og frost Þótt veðrið hafi verið fallegt í Bláfjöllum í gær var tólf stiga frost, talsverður vindur og stundum skóf allmikið á toppnum. Þessi skíðakappi lét þó ekki fjúkið á sig fá. Rax

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.