Morgunblaðið - 10.03.2011, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.03.2011, Blaðsíða 23
DAGBÓK 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011 Sudoku Frumstig 3 7 4 1 8 2 8 6 4 1 9 8 2 4 8 6 7 3 9 1 3 8 1 7 6 7 1 8 5 9 5 1 6 1 3 8 2 2 3 1 2 8 5 7 8 3 9 6 5 1 2 2 7 9 5 3 7 3 1 8 9 2 4 8 1 8 4 3 2 9 3 4 5 6 3 1 4 9 7 8 2 5 5 9 8 2 6 3 1 4 7 2 4 7 5 1 8 9 6 3 7 8 4 1 2 6 5 3 9 3 6 5 7 8 9 2 1 4 9 1 2 3 5 4 6 7 8 1 7 6 9 3 5 4 8 2 4 2 9 8 7 1 3 5 6 8 5 3 6 4 2 7 9 1 2 8 7 9 5 1 3 4 6 1 4 6 7 3 2 5 9 8 9 5 3 6 4 8 1 2 7 5 6 4 2 9 7 8 1 3 3 7 1 4 8 6 9 5 2 8 2 9 5 1 3 6 7 4 6 9 5 8 2 4 7 3 1 7 3 2 1 6 9 4 8 5 4 1 8 3 7 5 2 6 9 1 8 7 5 9 6 3 4 2 3 6 2 1 8 4 7 9 5 5 9 4 3 2 7 6 8 1 4 7 1 9 3 5 2 6 8 9 2 5 8 6 1 4 7 3 6 3 8 7 4 2 5 1 9 2 1 6 4 5 9 8 3 7 7 4 3 2 1 8 9 5 6 8 5 9 6 7 3 1 2 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 10. mars, 69. dag- ur ársins 2011 Orð dagsins: Andinn opinberast í sér- hverjum til þess, sem gagnlegt er. (I.Kor. 12, 7) Um 1200 börn munu hafa tekiðþátt í Nettómótinu í körfu- bolta, sem haldið var í Reykjanesbæ um helgina og er það mesta þátt- taka frá því þetta mót var haldið fyrst fyrir 21 ári. Víkverji hefur ver- ið fastagestur á mótinu undanfarin ár og getur ekki annað en hrósað að- standendum mótsins hjá Njarðvík og Keflavík fyrir umgjörðina. Það er lítil ást á milli þessara liða inni á vellinum, en þau kunna greinilega að taka höndum saman. x x x Á þessu móti keppa yngstu þátt-takendurnir í körfubolta og það getur verið hin mesta skemmt- un að fylgjast með þeim. Sumir þátttakendur geta gert ótrúlegustu hluti við boltann þótt ungir séu og aðrir eru komnir með leikskilning, sem sumir öðlast aldrei þótt þeir þráist við alla ævi, en allir eiga það sameiginlegt að leggja sig alla fram. Víkverji hefur orðið vitni að því á þessu móti hvernig hópur ósam- stæðra einstaklinga varð að liðsheild á einum degi. x x x Það hefur oft staðið ungmenna-starfi í hópíþróttum fyrir þrif- um hversu snemma er byrjað að draga keppendur í dilka í hinni þrot- lausu sókn eftir titlum. Markmiðið með íþróttastarfi er að fá börn til að hreyfa sig og mun ekki veita af þessa dagana. Áherslan á árangur getur hins vegar þýtt að þau börn, sem kannski helst þyrftu á hreyfing- unni að halda, hrökklast í burtu. Í körfuboltanum eru stigin ekki talin á mótum fyrstu árin. Þessi regla er í fullu gildi á Nettómótinu. Það eru því allir sigurvegarar. Í framhaldi af þessu er síðan ástæða til að hrósa þeirri reglu, sem gildir á Íslands- mótum í körfubolta fyrstu árin að lið fái aukastig fyrir að láta að minnsta kosti tíu leikmenn spila minnst einn leikhluta. Í raun ætti svona regla að vera óþörf því að hverjum þjálfara ætti að vera ljóst að til lengri tíma er best að vera með stóran hóp reyndra leikmanna, en það vill aug- ljóslega gleymast í hita leiksins. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 fugls, 8 grenji, 9 göfugmennska, 10 spils, 11 flýtirinn, 13 fífl, 15 vinna, 18 missa fótanna, 21 rimla- kassi, 22 lipurð, 23 öskrar, 24 hirðusamt. Lóðrétt | 2 þor, 3 eldstæði, 4 skynfærin, 5 hreysi, 6 kven- fugl, 7 gljúfri, 12 ferskur, 14 leðja, 15 fiskur, 16 hrella, 17 ærslahlátur, 18 hestur, 19 götum, 20 siga. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 snart, 4 fussa, 7 komma, 8 ártíð, 9 nár, 11 lært, 13 ár- ar, 14 ýmist, 15 fjör, 17 tonn, 20 kná, 22 tegla, 23 tengi, 24 kímin, 25 lerki. Lóðrétt: 1 sýkil, 2 aumur, 3 tían, 4 flár, 5 sútar, 6 arður, 10 ás- inn, 12 Týr, 13 átt, 15 fátæk, 16 örgum, 18 opnar, 19 neiti, 20 kann, 21 átel. 6 8 11 15 22 1 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 d5 4. Rc3 c6 5. cxd5 exd5 6. Bg5 Be7 7. Dc2 g6 8. e3 Bf5 9. Bd3 Bxd3 10. Dxd3 Rbd7 11. O-O O-O 12. Hab1 a5 13. a4 He8 14. Bh4 Db6 15. Hfe1 Bb4 16. Rd2 Rh5 17. f3 Dc7 18. g4 Rg7 19. Bg3 Bd6 20. Kg2 f5 21. e4 Bxg3 22. hxg3 dxe4 23. fxe4 fxg4 24. Dc4+ Kh8 25. Rb5 Db8 26. Rc3 Dd8 27. Rb3 Rh5 28. e5 Hc8 29. Hbd1 Hf8 30. De6 Hf3 31. Re4 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti fyrir skömmu í Chennai á Indlandi. Ís- lenski stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2580) hafði svart gegn Roy Prantik (2230) frá Indlandi. 31… Hxg3+! 32. Kf1 Df8+ 33. Rf2 Hf3 34. Dxd7 Hxf2+ 35. Kg1 Df4! 36. Dxc8+ Kg7 37. Dc7+ Kh6 38. e6 Df3 39. Dh2 Hxh2 40. Kxh2 Df2+ og hvítur gafst upp. Í dag fer fram 2. umferð MP Reykjavíkurskákmótsins en mótið er í Ráðhúsi Reykjavíkur. Svartur á leik. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Demanturinn slípaður. Norður ♠D83 ♥K53 ♦K862 ♣K83 Vestur Austur ♠7 ♠G6 ♥?xx ♥?xxx ♦D75 ♦ÁG10943 ♣D109652 ♣7 Suður ♠ÁK109542 ♥Á108 ♦-- ♣ÁG4 Framhaldssaga í 6♠. Eftir opnun austurs á 2♦ kemur vestur út með smáan tígul og suður trompar fyrsta slaginn. Sagnhafi spilar tvisvar spaða og vestur hendir laufi, hvergi smeykur. Nú þarf að byggja upp tvöfalda þvingun, þar sem austur valdar tígulinn og vestur laufið. Hjartalitinn valda þeir sameiginlega. Galdurinn er að spila tígli úr borði og henda lauffjarka heima! Þannig er talningin leiðrétt án þess að missa hót- unarspil. Nú getur tvennt gerst: (1) Austur spilar laufi. Sagnhafi „svínar“ gos- anum, drepur drottningu austurs á kóng, tekur ♣Á og rúllar niður tromp- unum. Hjartatían verður slagur í lokin. (2) Austur spilar hjarta. Sagnhafi hleypir á kónginn, klárar næst trompin og þvingar vestur til að henda frá hjartanu. Tekur svo ♣Á-K og þvingar austur. 10. mars 1934 Dregið var í fyrsta sinn í Happdrætti Háskóla Íslands. Drátturinn fór fram í Iðnó og var salurinn þéttskipaður fólki. Hæsti vinningurinn, 10 þúsund krónur, kom á miða nr. 15857. 10. mars 1935 Fyrsta tískusýningin hér á landi var haldin á Hótel Borg. Fjórar stúlkur „sýndu helstu nýjungar vortískunnar í kjól- um og höttum,“ að sögn Morg- unblaðsins. 10. mars 1944 Flugfélagið Loftleiðir hf. var stofnað. Tæpum þrjátíu árum síðar sameinaðist það Flug- félagi Íslands hf. undir nafn- inu Flugleiðir hf. 10. mars 1962 Söngleikurinn My Fair Lady var frumsýndur í Þjóðleikhús- inu. „Ég hef aldrei séð á ís- lensku leiksviði jafn glæsilega og skemmtilega leiksýningu,“ sagði leiklistargagnrýnandi Morgunblaðsins. 10. mars 1967 Þrjú timburhús á horni Lækj- argötu og Vonarstrætis í Reykjavík brunnu til grunna og hús Iðnaðarbankans skemmdist mikið. „Mesti bruni síðustu ára,“ sagði í fyrirsögn á forsíðu Morgunblaðsins. „Tugmilljóna tjón, ómetanleg verðmæti eyðilögðust.“ Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist… „Fjölskyldan liggur á mér um að halda ein- hverja stórveislu en vegna anna hefur ekkert verið sett á skipulagið ennþá, hvað sem gerist með vorinu,“ segir Ragnar Hauksson vélaverk- fræðingur, sem á 50 ára afmæli í dag. Hann hafði ætlað að taka sér frí í vinnunni en varð að taka starfið fram yfir stóráfangann vegna fundahalda en Ragnar vinnur hjá Al- mennu verkfræðistofunni, á byggingar- og iðn- aðarsviði. Hann býst þó við að gera sér ein- hvern dagamun með fjölskyldunni að vinnudegi loknum eða um helgina en eiginkona Ragnars er Esther Laufey Þórhallsdóttir og saman eiga þau tvö börn, 10 og 22 ára. Þó að ekki hafi verið mikið um byggingaverkefni og aðra mannvirkjagerð eftir hrunið segir Ragnar verkefnastöðuna hjá Almennu verkfræðistofunni ágæta. Árin frá hruni hafi vissulega verið erfið og mikill tími farið í verkefnaöflun. Það hefur þó skil- að einhverjum árangri. „Við berum okkur þokkalega,“ segir Ragnar en nokkur verk- efni eru í sigtinu hér á landi og í Noregi. bjb@mbl.is Ragnar Hauksson vélaverkfræðingur 50 ára Undir þrýstingi um veislu Flóðogfjara 10. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 3.12 0,8 9.16 3,4 15.27 0,8 21.36 3,4 8.05 19.12 Ísafjörður 5.20 0,3 11.14 1,6 17.37 0,3 23.36 1,7 8.12 19.15 Siglufjörður 1.35 1,1 7.39 0,3 14.05 1,1 19.47 0,3 7.55 18.58 Djúpivogur 0.29 0,4 6.23 1,6 12.35 0,4 18.45 1,7 7.35 18.41 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Mundu að töluð orð verða ekki aftur tekin. Leggðu drög að því að komast í gott ferðalag. Fólk á það til að segja ósatt. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú þarft að bregðast við og verja þig og þína gegn utanaðkomandi þrýstingi, sem er ósanngjarn og í raun rangur. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Lestu vandlega öll skjöl sem þú þarft að skrifa undir hvort sem um er að ræða einkaskjöl eða opinber plögg. Vertu með augu og eyru opin. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert í eilífu ákvörðunarferli þessa dagana. Ummælin gætu verið umdeild eða á skjön við skoðanir viðkomandi. Staðan verður varla betri en nú: gríptu öll tækifæri sem gef- ast í dag. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þar sem þú ert alltaf svo nærgætin/n, gæti það valdið vissum aðilum sársauka ef þú ætlar að vera hispurslaus. Þú ert á réttri leið í ástamálunum. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Fólk veitir þér svo sannarlega eftirtekt í dag. Gakktu í þau verk sem mestu skipta og kláraðu þau, en leyfðu smáhlutunum að eiga sig eitthvað áfram. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Vinsældir þínar í einkalífi og starfi eru miklar um þessar mundir og allir vilja hafa þig með. Þú færð einhverja peninga senda. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú og ástvinir þínir eruð ekki endilega sammála um hvað geri lífið spenn- andi. Sannleikurinn er stundum eins og að rífa af sér plástur. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er eitt og annað sem veldur þér sérstakri kátínu þessa dagana. Leitaðu ráðgjafar varðandi fjárfestingar og sparnað. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert sterkari en áður. Undirbúðu þig vel svo ekkert fari nú úrskeiðis, þegar á hólminn er komið. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú þarft að hafa mikið fyrir hlut- unum sem er allt í lagi ef þú bara gætir þess að skila vel unnu verki. Mundu að taka bara eðlilegt gjald fyrir vinnu þína. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Sýndu varkárni í samskiptum við ókunnuga. Gættu þess að sýna öðrum sann- girni þegar þú klífur metorðastigann. Stjörnuspá Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.