Morgunblaðið - 10.03.2011, Page 27

Morgunblaðið - 10.03.2011, Page 27
AF LISTUM Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Bókabreiðurnar á markaði út-gefenda í Perlunni eru líkarsjálfum veraldarsænum að umfangi. Í stórum sal eru bækur; leikrit, ljóð og sögur, æviminn- ingar, þjóðlegur fróðleikur, ljós- myndabækur, barnakver og er þá fátt eitt talið. Margt af því sem finnst á útsölum sem þessum er bókamönnum kunnuglegt; að minnsta kosti er hlaði einstakra titla alltaf stór. Aðrar bækur seljast betur. Í góðærinu runnu sjálfshjálp- arbækur og draumaráðningakver út eins og heitar lummur. Með hruni breyttust viðhorf. Í dag renna út bækur um heimarækt- un, matreiðslu, prjónaskap og slíkt.    Á bókamarkaðinum sá ég konumeð fangið fullt af bókum um íslenska jólasiði. Allur er varinn góður, þarna mátti sumsé fá góðar gjafir sem nýtast vel á helgri hátíð. Innan um og saman við voru þarna bisnessbækur með hollráðum við- skiptavitringa; svo sem lítið kver um betrun í viðskiptaháttum og hvernig megi læra af mistökum sín- um. Sú bók er eftir Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóra Sjóvár, eins og nokkrar fleiri í sama dúr. Slíkar heilræðabækur hafa fengið nýtt inntak eftir efnahagshrunið. Og svo voru þarna kynstrin öll af ævisögum. Ævisaga Elvu Gísla- dóttur leikkonu, Pétur Benedikts- son bankastjóri í bunka, Kletta- fjallaskáldið Stephan G. er fjarri því gengið út hjá forlaginu sem og ævisaga Guðna Ágústssonar. Íslensk ævisagnamenning hef- ur breyst mikið á undanförnum ár- um. Sú var tíðin að áberandi voru bækur þar sem mjög hafði verið kastað til höndum. Bók, umfram blaðagrein eða netpistil, er ætlað að lifa. Netfrétt er einnota og grein- arstúfur í dagblaði lifir daginn sem breytir þó ekki því að hvergi má slaka á kröfum um góða íslensku og réttar aðferðir í heimildaöflun þó sumir telji þau atriði léttvæg fund- in. Þegar kemur að bókaskrifum verður tungutakið því að vera enn meitlaðra og ganga verður úr skugga um að hvert atriði sé pott- þétt, enda er bókin langtímaheim- ild. Því er hvekkjandi þegar flett er upp í bókum að sjá eftir haft að menn „minni eitt- hvað“ eða „haldi að“ þetta og hitt hafi ver- ið svona eða hin- segin. Í þessum skrifuðum orð- um renni ég í snöggheitum yfir mínar eigin bókahill- ur. Hér er ævi- saga verkalýðs- hetju tuttugustu aldarinnar og víst er að Guðmund Jaka rak minni til ýmissa hluta eins og eftir honum er haft. Ævi- saga Ingólfs á Hellu er sama marki brennd.    Góðu heilli hefur sagnarituntekið breytingum til hins betra á undanförnum árum. Vandað er betur til verka. En þó gilda stofna reki á fjöru berast þangað líkar maðksmognir kubbar. Í bókadómum í Morgun- blaðinu sl. haust fjallaði ég um nokkrar ævisögur sem voru fjarri því nógu góðar. Ævisögur trökkdræveranna Elísar P. Sig- urðssonar, Sæmundar Sigmunds- sonar og Sveins Sigurbjarnarsonar voru afleitar bækur. Í öllum til- vikum voru skrásetjarar of nærri viðfangsefni sínu, stíllinn til- þrifalaus, umbrotið flat- neskjulegt en meg- invandinn þó sá að sögumaður hafði ekki það fram að færa að saga hans ætti erindi í kver bundið inn í harðspjöld. Og það eru bækur þessu marki brenndar sem sjást í stöflum á mörkuðum eins og þeim sem nú er hald- inn. Bækurnar góðu og veraldarsærinn » Og það eru bækurþessu marki brennd- ar sem sjást í stöflum á mörkuðum eins og þeim sem nú er haldinn. Morgunblaðið/Ómar Bókafólk Kynslóðirnar sækja á bókamarkað. Þúsundir titla í boði; góðar bókmenntir en rusl innan um og saman. MENNING 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011 Rithöfundurinn Stephen King er að skrifa bók um morðið á John F. Kennedy Bandaríkjaforseta og verð- ur hún litlar þúsund blaðsíð- ur. Titill bókarinnar verður 11/22/63, þ.e. dagurinn sem morðið var framið, 22. nóv- ember 1963, í Dallas í Tex- as. Saga Kings segir af grunnskólakennara í Maine, Jake Epping, og vini hans Al sem á tímavél. Epping er beðinn um að fara aftur í tíma og koma í veg fyrir morðið á forsetanum. Hann hittir Lee Harvey Oswald og verður ástfanginn af honum. King hyggst sem sagt endurrita söguna, svo að segja. Breskur útgefandi að bókum King segir í samtali við dagblaðið Guardian að í bókinni verði að finna þá spennu sem höfundurinn er þekktur fyrir og jafnframt að bókin verði stórbrotin. Bækur Kings hafa selst í yfir 350 millj- ónum eintaka og fjöldi kvikmynda verið gerður eftir bókum hans. JFK King sækir efnivið í morðið á John F. Kennedy. King skrifar um morðið á JFK Kvikmyndin Dark Knight var sýnd á Facebook í fyrradag í tilraunaskyni, dæmi um það hvern- ig baráttan um skemmtun á netinu færist í aukana. Gengi hlutabréfa vefsíðunnar Netflix, sem leigir kvikmyndir og sjónvarpsþætti á net- inu, féll um 6% við þessa nýjung Facebook, en Netflix hefur verið leiðandi á kvikmynda- leigumarkaðnum á netinu. Kvikmyndasíða Facebook hefur nú þegar um fjórar milljónir aðdáenda. Það er þó talið of snemmt að segja til um hvort Facebook muni yfirtaka kvikmyndaleigumarkaðinn eða ekki. Fyrirtæki á borð við Warner Bros eru þann- ig að færa viðskiptin þangað sem áhorfandinn er, en um 600 milljónir manna eru virkir not- endur Facebook í heiminum. Kvikmyndir eru leigðar í 48 klukkustundir í senn fyrir 3 doll- ara. Kvikmyndaleigan á Facebook einskorðast við Bandaríkin enn sem komið er en gert er ráð fyrir að hún verði opin öllum innan tíðar. Svo er bara spurning hvort fólk fari á Fa- cebook til að horfa á kvikmyndir í fullri lengd. Jókerinn Ledger í kvikmyndinni Dark Knight. RANGO ENSKT TAL Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10 RANGO ÍSLENSKT TAL Sýnd kl. 5:50 OKKAR EIGIN OSLÓ Sýnd kl. 6, 8 og 10 THE MECHANIC Sýnd kl. 8 og 10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar - T.V. - KVIKMYNDIR.IS HHHH - ROGER EBERT HHHH - H.S. - MBL HHHH - Þ.Þ. - FT -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum OKKAR EIGIN OSLÓ KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15 L OKKAR EIGIN OSLÓ LÚXUS KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15 L ROOMMATE KL. 5.50 - 8 - 10.10 14 RANGO MEÐ ÍSLENSKU TALI KL. 3.30 - 5.45 L RANGO MEÐ ENSKU TALI KL. 8 - 10.10 L THE MECHANIC KL. 10.30 16 HOW DO YOU KNOW KL. 3.30 L BIG MOMMA´S HOUSE KL. 3.30 L JUST GO WITH IT KL. 5.30 L SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5% 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS RANGO MEÐ ÍSLENSKU TALI KL. 6 L RANGO MEÐ ENSKU TALI KL. 8 - 10 L OKKAR EIGIN OSLÓ KL. 6 - 8 - 10 L OKKAR EIGIN OSLÓ KL. 5.45 - 8 - 10.10 L ROOMMATE KL. 10.10 14 RANGO MEÐ ÍSLENSKU TALI KL. 5.40 L HOW DO YOU KNOW KL. 8 - 10.35 L BIG MOMMA´S HOUSE KL. 5.30 L 127 HOURS KL. 10.30 12 BLACK SWAN KL. 5.30 - 8 16 GLERAUGU SELD SÉR -H.H., MBL-A.E.T., MBL SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI -H.S., MBL -Þ.Þ., FT Þú greiðir f.símanr. og að ra n otk un skv . v er ðs kr á á si m in n. is Dagurinn kostar aðeins 25 kr. (5 MB innifalin), engin skuldbinding. Prófaðu og fáðu nýjustu fréttir beint í símann. Netið í símanum er ódýrara en þú heldur Facebook í kvikmyndaleigu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.