Morgunblaðið - 10.03.2011, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Snæfellska þungarokkssveitin Endless Dark
vakti fyrst á sér athygli á Músíktilraunum en hjól-
in fóru þó fyrst að snúast þegar hún sigraði í Ís-
landsriðli Global Battle of the Bands í ársbyrjun
2010 (og ekki skaðaði að hún hafnaði í öðru sæti í
sjálfri úrslitakeppninni í London).
Tónlist Endless Dark er nokkurs konar „post-
hardcore“ eða „screamo“; rokktónlist sem er
sprottin úr harðkjarnarokki og hefur sumpart að-
gengilegra yfirbragð. Níðþungir kaflar og hámel-
ódískir sprettir skiptast á eins og ekkert sé sjálf-
sagðara.
Sveitina skipa bræðurnir Atli Sigursveinsson
(gítar), Egill Sigursveinsson (hljómborð) og Vikt-
or Sigursveinsson (söngur) ásamt þeim Guðmundi
Haraldssyni (gítar), Hólmkatli Leó Aðalsteins-
syni (bassi) og Rúnari Sveinssyni trommara sem
leysti Daníel Hrafn Sigurðsson af hólmi í fyrra-
haust. Það er Rúnar sem svarar fyrir fyrstu út-
gáfu sveitarinnar, en þó hann sé tiltölulega ný-
genginn í sveitina hefur hann unnið með henni um
langa hríð, m.a. við upptökurnar á plötunni sem
hafa staðið yfir í tvö ár með hléum.
Betra, skemmtilegra og þéttara
„Manni finnst hún hafa tekið alltof langan
tíma,“ segir Rúnar. „En við erum afskaplega sátt-
ir með útkomuna. Það er ekki það að við séum
búnir að liggja mikið yfir henni, meira að hún hafi
verið gerð í skorpum. Við vorum svo að breyta dá-
lítið og bæta og þegar Daníel hætti tókum við
trommurnar upp aftur.“
Endless Dark er þegar komin með tengingar út
í heim og þannig véluðu útlendingar um hljóð-
blöndun og -jöfnun á plötunni. Umboðsmaður og
bókari eru líka í höfn og sveitin hefur verið að
spila aðeins erlendis, m.a. á nýliðinni Eurosonic-
hátíð og framundan er spilamennska á Graspopp í
Belgíu.
„Við horfum til útlanda og höfum verið að vinna
markmiðsbundið í þessu. Við sendum lög til bók-
unarfyrirtækisins X-Ray Touring og það var
strax haft samband við okkur sem var frábært.“
Á þessu stigi í ferli sveita er vænlegast að reyna
að hoppa á túr með lengra komnum og segir Rún-
ar að sveitir eins Bring me the Horizon og Archi-
techts séu einmitt að spila á Graspop.
„Það væri gaman að heilsa upp á þær! Annars
erum við að vinna að næstu plötu núna. Efnið er
svipað, aðeins flóknara kannski en að okkar viti
bæði betra, skemmtilegra og þéttara.“
Múraðir Endless Dark tekur því rólega …eða þannig. Sveitinni hefur vegnað vel síðustu misseri og hyggur nú á landvinninga á erlendri grundu.
Glerhjartað
slær
Endless Dark gefur út fimm laga plötu Horft til útlanda og árangur að nást í
þeim efnum Vinna við næstu plötu er þegar komin í gang og lofar hún góðu
Hljómsveitin Rökkurró, með
söngkonuna Hildi Kristínu Stef-
ánsdóttur í fararbroddi, heldur í
stutta tónleikaferð um Evrópu í
apríl og kemur víða við á stuttri
ferð. Fyrstu tónleikarnir verða
haldnir í Brixton í Lundúnum 13.
apríl og degi síðar í Hoxton í sömu
borg. Frá Englandi heldur hljóm-
sveitin svo til Brussel í Belgíu og
heldur tónleika 16. apríl. Þaðan er
förinni heitið til Antwerpen, síðan
til Amsterdam og svo aftur til Belg-
íu. 20. apríl leikur Rökkurró í
Frankfurt og seinustu tónleikarnir
verða haldnir degi síðar í Erfurt í
Þýskalandi.
Morgunblaðið/hag
Rökkurró heldur í tón-
leikaferð um Evrópu
Opnað var fyrir innsendingar
á kvikmyndum til sýninga á
næstu Alþjóðlegu kvikmyndahá-
tíðinni í Reykjavík, RIFF, í síð-
ustu viku og segir í tilkynningu
að áhuginn hafi verið slíkur, inn-
sendingar svo margar að tölvu-
kerfið hafi hrunið. Hátíðin í ár
fer fram dagana 22. september til
2. október. Í tilkynningu frá
RIFF segir að gaman sé að sjá
svo sterk viðbrögð.
Áhuginn svo mikill
að tölvukerfið hrundi
» Í gær fóru framtökur á myndbandi
við framlag Íslands til
Evróvisjónkeppninnar
í ár, „Aftur heim“ eftir
Sigurjón Brink. Vinir
Sigurjóns flytja lagið
og af myndunum að
dæma var fagmennsk-
an og snyrtimennskan
í fyrirrúmi sem fyrr.
Myndband tekið upp fyrir Evróvisjón innlegg Íslendinga, lagið „Aftur heim“
Morgunblaðið/Golli
Flottir Það er óneitanlega smá Bugsy Malone stemning í gangi hjá köppunum.
Blástur Skært lúðrar hljóma í myndbandinu eins og þessi mynd sýnir. Nánd Þeir Matti, Pálmi og Gunni taka sig vel út í þessari nærmynd.
Hress Þórunn Erna Clausen og Felix Bergsson voru nett á því.