Morgunblaðið - 31.03.2011, Side 15

Morgunblaðið - 31.03.2011, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011 Viðurkenningin „Uppsveitabrosið“ hefur verið veitt í sjöunda sinn og var það Magnús Hlynur Hreiðars- son, blaða- og fréttamaður á Sel- fossi sem hlaut það fyrir frábært samstarf, jákvæðni og skemmti- legan fréttaflutning. Magnús Hlyn- ur er blaðamaður á Dagskránni og fréttamaður Rúv á Suðurlandi. Í verðlaun fékk hann mynd sem lista- konan Ellisif Malmo Bjarnadóttir teiknaði og málaði af honum sjálf- um. „Uppsveitabrosið“ er viður- kenning sem veitt er árlega fyrir- tæki eða einstaklingi sem lagt hefur ferðaþjónustu í uppsveitum Árnessýslu lið á jákvæðan og upp- byggilegan hátt. Ásborg Arnþórs- dóttir ferðamálafulltrúi afhenti Magnúsi viðurkenninguna. Uppsveitarbros Gylfi Magnús- son, hagfræð- ingur og dósent við Háskóla Ís- lands, mun halda erindi um framtíðarskipan gjaldeyrismála á Íslandi undir yf- irskriftinni „Evra eða króna?“ Erindið er hluti af funda- röð Já Ísland. Gylfi mun fjalla um ýmis álitamál sem tengjast fram- tíðarskipan peningamála á Ís- landi. Fundurinn verður haldinn í dag, fimmtudag, kl. 17 í Skipholti 50a. Evra eða króna? Gylfi Magnússon Á laugardag nk. verður haldinn götumarkaður á Garðatorgi í Garðabæ. Markaðurinn stendur frá kl. 13-18 og mun ýmislegt skemmtilegt verða á boðstólnum, bæði notað og nýtt. Íþróttakona Garðabæjar mun koma ásamt dansherra sínum og dansa um kl. 15:00. Þá verða fyrirtækin á Garðatorgi með ýmis tilboð þenn- an dag. Öllum er velkomið að koma og upplifa götumarkaðs- stemmninguna á Garðatorgi. Götumarkaður í Garðabæ STUTT Andri Árnason hrl., verjandi Geirs H. Haarde, mótmælir því harðlega að Alþingi geri breytingar á lögum um landsdóm, eftir að ákæra var samþykkt á Alþingi. Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, sagði í samtali við mbl.is á þriðju- dag, að hún undraðist að Al- þingi væri ekki búið að af- greiða frumvarp um breytingar á lögum um landsdóm. Ögmundur Jónasson, innanríkis- ráðherra, mælti fyrir frumvarpinu í lok nóv- ember á síðasta ári. Frumvarpið mætti mik- illi andstöðu sjálfstæðis- manna. Fyrstu umræðu um málið er enn ekki lokið og málið er enn ekki komið til nefndar þrátt fyrir að fjórir mán- uðir séu frá því að mælt var fyrir því. Andri sagðist hafa talið, að ákveðið hefði verið að svæfa þetta frumvarp og því kæmi mjög á óvart að saksóknari Alþingis væri að þrýsta á þingið um að fá það sam- þykkt. Afstaða Alþingis sl. haust hafi verið sú að engar breytingar þyrfti að gera á landsdómslögunum til að reka mál gegn Geir H. Haarde og því komi breytingar nú ekki til greina. Andri segir að það sé grafalvar- legt mál hvernig þetta beri að. Landsdómur sjálfur, eða forseti hans, sem fer með dómsvaldið í málinu, leggi til breytingarnar, geri tillögu í samráði að því er virðist við ráðherra, sem var einn af þeim sem samþykktu málshöfðunará- lyktunina, og fái síðan Alþingi, sem ákærir, til að breyta lögunum. „Venjulega þarf verjandi aðeins að glíma við ákæruvaldið. Þarna taka sig saman dómsvaldið, fram- kvæmdarvaldið og löggjafarvaldið og leggjast á sveifina með ákæru- valdinu, að laga málsmeðferðina og skipan dómsins til,“ segir Andri. Andri bendir á að samráð hafi verið milli saksóknarans í máli þessu annars vegar og dómsmála- ráðuneytisins hins vegar, en verj- andi var aldrei spurður álits. Þetta sé líklega einsdæmi í réttarsög- unni. Andri bendir á að það viti all- ir að það sé aðeins eitt mál til með- ferðar hjá dómstólnum og því sé lagabreytingunni ljóslega beint gegn ákærða og hún að nokkru leyti honum óhagfelld. Þá sé einnig algjörlega óviðeig- andi að saksóknari Alþingis í þessu máli gegn Geir sé að reka á eftir lagabreytingum. egol@mbl.is Óeðlilegt að saksóknari þrýsti á þingið  Verjandi kveðst glíma við ákæruvaldið, dómsvaldið, framkvæmdarvaldið og löggjafarvaldið Andri Árnason H V ÍT A H Ú SI Ð / SÍ A 10 -1 1- 04 95 Komdu og kynntu þér lausnir fyrir lántakendur Opið í öllum útibúum í dag til kl. 18 Íslenskt húsnæðislán 110% aðlögun húsnæðislána Erlent húsnæðislán Endurútreikningur eða höfuðstólslækkun Nýtt íslenskt húsnæðislán Sértæk skuldaaðlögun Það verður opið til kl. 18.00 í útibúum Íslandsbanka alla fimmtudaga í mars. Ráðgjafar okkar verða reiðubúnir að veita upplýsingar um úrræði og þjónustu bankans. Einnig verður opið hjá gjaldkerum og hægt að sinna öllum venjulegum erindum.* Dæmi um úrræði í boði: • Endurútreikningur erlendra húsnæðislána Við höfum hafið endurútreikning á erlendum lánum samkvæmt lögum. Reikna má með að höfuðstóll flestra erlendra húsnæðislána lækki á bilinu 25 til 40%. • 110% aðlögun Ef höfuðstóll lánsins þíns er hærri en 110% af markaðsvirði hússins stendur þér til boða að lækka hann sem því nemur að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. • Sértæk skuldaaðlögun Sé frekari úrræða þörf, stendur þér sértæk skuldaaðlögun til boða sem getur haft í för með sér enn frekari niðurfærslu skulda. Komdu í dag fyrir kl. 18 og farðu yfir þín mál með ráðgjöfum okkar. *Athugið að lokað verður hjá fyrirtækjaráðgjöfum milli kl. 16 og 18.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.