Morgunblaðið - 31.03.2011, Side 23

Morgunblaðið - 31.03.2011, Side 23
✝ GuðbjarturKjartansson fæddist í Reykjavík 18. nóvember 1957. Hann lést á hjarta- deild LSH við Hringbraut 20. mars 2011. Hann var sonur hjónanna Sigríðar Nikulás- dóttur, f. 16. júní 1918, d. 24. mars 1973, og Kjartans Þorleifssonar, f. 4. júlí 1918, d. 8. mars 1994. Guðbjartur var næstyngstur sjö systkina og eru þau í aldursröð: a) Bryndís, f. 26. júlí 1943, maki Karl Arason, arholtsskóla. Hann fór snemma að sjá fyrir sér með hinum ýmsu störfum, og lá leið hans fljótlega til sjós, og starfaði hann lengst af á sambandsskipunum. Frá árinu 1987 var hann starfandi fangavörður við Hegning- arhúsið við Skólavörðustíg til ársins 2006, er hann tók við varðstjórastöðu við Fangelsið Kópavogsbraut 17. Guðbjartur sótti mörg námskeið í tengslum við starf sitt og gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum fyrir fangaverði og fangavarða- félagið, og var um tíma í stjórn félagsins. Guðbjartur gekk til liðs við Druit-stúkuna Fjölni 28. janúar 2009 og var virkur og áhugasamur félagi allt til dauðadags. Guðbjartur verður jarðsung- inn frá Grafarvogskirkju í dag, 31. mars 2011, og hefst athöfnin kl. 15. þau eiga sex börn, b) Ágústa, f. 10. maí 1947, maki Ólafur F. Ólafsson, þau eiga þrjá syni, c) Halldór Valgeir, f. 11. maí 1949, d) Helgi, f. 28. nóv- ember 1950, d. 23. ágúst 2010, e) Svan- hvít, f. 6. september 1953, maki Einar S. Sigurðsson, þau eiga fjögur börn og f) Bára, f. 21. apríl 1963, hún á tvö börn. Guðbjartur ólst upp í Mel- gerði 25 í Reykjavík og lauk hann skyldunámi frá Rétt- Það var milt og gott veður og útgeislun frá snjónum. Þvílík kyrrð og ró sem var fyrir utan gluggann þegar Guðbjartur frændi kvaddi þetta líf. Mér finnst það jafn óraunverulegt og þegar Helgi bróðir hans dó fyrir sjö mánuðum. En mig langar að minnast þeirra í nokkrum orðum og þakka fyrir samfylgdina og all- ar gleðistundirnar sem við áttum saman. Umburðarlyndi og jafnað- argeð einkenndi bræðurna og þeir voru ekki að æsa sig yfir hlutun- um. Ekki heldur þegar við krakka- skarinn (systrabörn þeirra) gerði innrás inn í Melgerði með tilheyr- andi ágangi og hávaða. Trúlega hefur Helgi verið í kokkanáminu í Danmörku á þessum tíma því ég man ekki svo mikið eftir honum heima í Melgerði en ég man þegar hann var að koma að utan með góðgæti handa okkur krökkunum. Guðbjartur hafði einstakt lag á að róa okkur krakkana niður með því að lána okkur tindátana sína eða fótboltamyndirnar og við fengum líka að skoða frímerkin hans sem hann var þá byrjaður að safna. Aldrei hastaði hann á okkur. Það merkilega við það er að Guðbjart- ur var aðeins sex árum eldri en ég og Bára systir hans. Þá voru ófáar stundirnar sem við Bára áttum í herbergi Guðbjartar á unglingsár- um okkar þar sem við fengum að hlusta óspart á hljómplöturnar hans. Og hann eftirlét okkur líka herbergið sitt þegar hann var á sjónum. Guðbjartur vann um tíma hjá Olíufélaginu og kynntist þar Eiríki (eiginmanni mínum) sem væri ekki frásögu færandi nema fyrir það að Guðbjartur reddaði Eiríki aukavinnu í fiskverkuninni þar sem við Bára unnum, ásamt afa sem var verkstjóri. Við eigum því Guðbjarti það að þakka að hafa kynnst. Guðbjartur hafði alltaf gaman af því að ferðast. Hann fór meðal annars í heimsókn til bróður síns sem bjó og starfaði sem kokkur í Danmörku þar til Helgi lenti í bíl- slysi árið 1988 en þá fluttist Helgi aftur til Íslands og bjó í Hátúni. Það var Guðbjartur sem ræktaði sambandið við alla í fjölskyldunni. Hann hringdi reglulega til að fá fréttir. Oft fór hann í bíltúr með einhverju systkina sinna og höfðu þau þá iðulega viðkomu í kaffi hjá öðrum í fjölskyldunni. Mér þótti sérlega gaman þegar hann kíkti í heimsókn til mín, þá gat ég gauk- að að honum umslagi með frí- merkjum sem ég hafði safnað fyr- ir hann. Guðbjartur var líka einstaklega duglegur að hafa ofan af fyrir Helga og taka hann með sér í sunnudagsbíltúra. Mér er sérstaklega minnis- stætt þegar ég fékk að fara með Guðbjarti, mömmu, Halldóri og Svanhvíti á Snæfellsnesið, þar sem hin systkinin höfðu ekki tök á að fara. Ferðinni var heitið með Baldri á Flatey en þegar við kom- um í Stykkishólm kom í ljós að báturinn var bilaður. Stundum fara hlutirnir ekki eins og við ætl- uðum en við héldum áfram og fór- um þess í stað í fjöruferð. En nú er komið að leiðarlokum. Það er allt- af erfitt að kveðja en minningin um Guðbjart og Helga mun lifa áfram með mér og öðrum sem voru svo heppnir að þekkja þá. Sigríður Sigurðardóttir. Á glaðbjörtum febrúardegi gægðust vetrargosar og krókusar upp úr moldinni, kumpánlegir líkt og þeir vildu vekja athygli okkar á hversu fljótt þeir væru á ferð. Við horfðum á gula og hvíta kolla og hrifumst af fegurð þess lífs sem brosti til okkar. Gott ef ekki dálítið meyrir þar sem við reyndum að klæða hugsanir okkar í heim- spekilega kápu sem var líkt og oft áður vel við stærð á mig en smell- passaði á frænda. Þarna stóð hann, stór, dálítið fattur, líkt og bóndi á góðum réttardegi. Við lík- ar aðstæður skaut þeirri hugsun stundum niður í huga mér hvort hann myndi rétta mér tóbakshorn og fleyg. Það hefði brotið gegn lífsmynstri hans en verið í sam- ræmi við þá mynd af djúpvitrum bónda sem svo oft kom í hugann þegar fundum okkar bar saman. Hann bar með sér djúpa visku í til- gerðarleysi sínu og jákvæðni. Það er mér mikils virði að leiðir okkar skyldu liggja saman að nýju og verða að vináttu. Það sem sam- einaði okkur var áhugi á sögu og ferðalögum, á söguferðum. Í góð- um hópi var Guðbjartur ekki hrókur alls fagnaðar, hann þurfti hvorki að sýnast bestur né mest- ur. Í því fólst stærð manns sem var laus við þörf á að bera sig sam- an við aðra. Hún fór ekki fram hjá neinum þessi góða nærvera manns sem aldrei hallaði orði á aðra og notaði orðið nei helst þeg- ar það merkti já. Hann þurfti ekki að hrópa á torgum að frímerkjasöfnun væri göfug og merkileg til þess að ferðafélagar hans vissu af ástríðu hans. Það leið sjaldan langur tími frá því ferð var hafin þar til við vorum öll komin á útkikk eftir pósthúsum. Eftir okkar fyrstu ferð með frænda um Pólland ef- uðumst við ekki um sögulegt gildi póstþjónustu og frímerkja. Ef ein- hvern tíma hefur læðst að grunur um hið gagnstæða hvarf hann þann heita sumardag þegar við stóðum fyrir framan pósthúsið í Gdansk. Í þessu húsi hafði starfs- fólkið varist sveitum Hitlers í 15 klukkustundir á fyrsta degi seinni heimstyrjaldar. Þá sögu sagði Guðjartur af þekkingu og samúð sem ekki gleymist. Þar sem við frændur stóðum þennan milda febrúardag, dáð- umst að fegurð blóma og undruð- umst hvatvísi þeirra, setti að okk- ur geig um hugsanlegt hret og dauða. Við vissum náttúrulega líka að þótt þau lifðu veturinn af myndi líf þeirra, líkt og okkar, að- eins verða augnabliksblossi í ei- lífðinni. Við sem þekkjum hring- rás árstíðanna vitum hvenær blóm sölna og hníga í kalda mold, en við vitum sem betur fer sjaldnast hverjum klukkan glymur næst. Það vissu póstmennirnir í Danzig ekki og það vissum við frændi ekki. Nú þegar dauðinn hefur fyr- irvaralaust læst greipum sínum í vin og frænda svíður í hjartað þótt okkur öllum sé ljóst að Hallgrímur sálugi Pétursson hafði lög að mæla þegar hann sagði: „Innsigli engir fengu upp á lífsstunda bið, en þann kost undir gengu allir að skilja við.“ (Hallgrímur Pétursson) Fyrir hönd vina og ferðafélaga sendum við ástvinum Guðbjarts samúðarkveðjur. Þorleifur og Þóra. Það er sárt að sjá á eftir góðum vin. Það er svo undarlegt að hugsa til þess að í lok febrúar var allur vinahópurinn saman kominn til að næra líkama og sál og aðeins fimm dögum seinna kom áfallið. Eins og hendi væri veifað er höggvið skarð í vinahópinn. Kynni okkar félaganna hófst í gleði yngri áranna, sem skilja eftir sig margar góðar minningar. Guð- bjartur keypti snemma íbúð á Langholtsveginum og þar hitt- umst við oft og áttum góðar stund- ir. Guðbjartur var um tíma dyra- vörður í Sigtúni á Suðurlands- brautinni. Þá lokuðu skemmti- staðirnir klukkan hálf tólf og það gat komið sér ágætlega þegar Guðbjartur var í dyravörslunni og liðkaði aðeins til fyrir okkur vin- unum sem vorum á ferðinni. Það er eftirminnilegt kvöldið 8. desem- ber 1980, það er kvöldið sem John Lennon var myrtur. Þá loguðu kerti um alla íbúð á Langholtsveg- inum og við syrgðum tónlistar- manninn mikla. Síðan var farið í Sigtún og þar átti John Lennon staðinn, þegar lögin hans voru spiluð og gestir veifuðu kveikjur- um eins og kertum. Guðbjartur ferðaðist mikið bæði hér innanlands og erlendis. Það var þó einn staður, Þórsmörk, sem hann hafði mikinn áhuga á að heimsækja. Það var ánægjulegt þegar við vinirnir fórum þangað saman sumarið 2009. Guðbjartur heillaðist af staðnum og nátt- úrunni. Veðrið í ferðinni var alveg einstakt og yndislegt að njóta úti- verunnar innan um ægifagurt landslagið. Guðbjartur hafði mikinn áhuga og góða þekkingu á landafræði og sögu, þá sérstaklega á seinni heimsstyrjöldinni. Það voru oft skemmtilegar og fróðlegar sam- ræður um þetta viðfangsefni og gaman þegar Guðbjartur var að segja frá og lýsa gangi mála. Við fjórmenningarnir náðum mjög vel saman, með svipaðan tónlistarsmekk og áhuga á kvik- myndum. Vinátta okkar hefur ein- kennst af virðingu og umhyggju hvers fyrir öðrum, vináttu sem aldrei hefur borið skugga á. Alla tíð höfum við vinirnir hald- ið þeim sið að hittast á afmæli hver annars. Við stofnuðum svo með okkur félagsskap sem við nefnd- um Bjartsýnisklúbbinn, en til- gangurinn með honum var að hitt- ast reglulega og fá okkur góðan göngutúr, snæða saman og spjalla. Allir fjölskyldumeðlimir taka þátt, eiginkonurnar, börnin og nú í seinni tíð hundurinn Týra. Guðbjartur hefur ávallt verið mik- ill fjölskylduvinur og fylgdist vel með högum okkar allra. Hans er nú sárt saknað, söknuður sem að- eins verður fylltur upp með góð- um minningum um Guðbjart, gleði hans, ástríki, kærleik og vin- áttu. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. - - - - Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Við sendum systkinum Guð- bjarts og fjölskyldum þeirra inni- legar samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að veita þeim styrk á þessum erfiðu tímum. Megi minningin um ástkæran vin lifa að eilífu. Jón og Ingibjörg, Eyþór og Ólöf, Hlöðver og Hanna Fríða. Hann var stór á velli og ljúfur við þá sem hann þekkti. Það var ekki annað hægt en að bera mikla virðingu fyrir honum. Kynni okk- ar hófust í félagsheimili Félags frí- merkjasafnara fyrir mjög mörg- um árum síðan. Hann hafði þá verið félagi lengi. Hann var virkur félagi og mætti á þá fundi sem hann gat ef hann var ekki að vinna. Það gat verið gott að detta stundum inn í heim frímerkjanna á löngum vöktum fangavarðarins. Ég kynntist honum nokkuð vel og voru ófáir skiptifundir okkar. Stundum var farið í göngutúra um Fossvogsdalinn og spjallað um þjóðmálin. Ég hitti Guðbjart um viku fyrir andlátið. Þá var það helst að frétta að bjart væri fram- undan. Minningin lifir um góðan dreng. Sveinn Ingi Sveinsson. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Genginn er góður maður. Við vinkonurnar, sem áttum því láni að fagna að njóta handleiðslu Guð- bjarts Kjartanssonar og vinna undir stjórn hans um tíma, viljum með örfáum orðum þakka vináttu hans og velvild í okkar garð. Guðbjartur var ekki aðeins samstarfsfélagi okkar og yfirmað- ur, heldur var hann góður vinur okkar. Hann hafði góða nærveru, öllum leið vel í návist hans. Guð- bjartur var mikill frímerkjasafn- ari, og reyndum við vinkonurnar að senda honum póstkort þegar við vorum á ferðalögum. Daginn sem hann lést sátum við saman í vorsólinni í Brussel, hugsuðum hlýlega til hans og skrifuðum póst- kort, í þetta sinn með sérstökum baráttukveðjum þar sem við viss- um að hann átti við veikindi að stríða. Sama kvöld fengum við þær sorglegu fréttir að hann væri fallinn frá. Okkur þykir erfitt að vera fjarri þegar kveðja þarf kær- an vin. Því kveðjum við Guðbjart með þessum orðum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem) Fjölskyldu Guðbjarts og öðrum aðstandendum sendum við sam- úðarkveðjur. Katrín Halldórsdóttir og Katrín Pálsdóttir. Kveðja frá Fangavarðafélagi Íslands Fyrir hönd Fangavarðafélags Íslands langar mig að minnast Guðbjarts Kjartanssonar og votta öllum ættingjum og venslamönn- um hans okkar innilegustu samúð. Það er erfitt að lýsa Guðbjarti öðruvísi en svo að hann var hvers manns hugljúfi og vildi allra vanda leysa. Í því erfiða starfi sem hann gegndi sem fangavörður og varð- stjóri fékk þessi eiginleiki hans oft að njóta sín, enda kunni hann að fara mjúkum höndum um brotnar sálir. Hann var traustið og örygg- ið holdi klætt og margir leituðu til hans með sín innstu mál, bæði fangar og frjálsir menn. Fátt kom honum úr jafnvægi, hvað þá að hann skipti skapi. Hins vegar var oft stutt í hláturinn hjá Guðbjarti og var hann mjög smitandi, þann- ig að mönnum hélst ekki lengi uppi að vera í fýlu í návist hans. Þessir eiginleikar hans, auk margra annarra kosta, gerðu Guð- bjart að góðum og traustum fé- laga og vini sem nú er sárt saknað. Guðbjartur hafði mikinn áhuga á félagsmálum og hann tók virkan þátt í starfi Fangavarðafélags Ís- lands. Hann var til margra ára að- altrúnaðarmaður félagsins, auk þess sem hann átti í nokkur ár sæti í stjórn, fyrir utan önnur trúnaðarstörf sem hann gegndi fyrir félagið. Þegar kom að kjara- málum og túlkun kjarasamninga var hann jafnan lykilmaður, enda fáir jafn vel að sér í þeim málum og hann. Hann var líka minnugur og glöggur á tölur og fjármál og hann hafði alltaf mikið til málanna að leggja þegar félagið stóð í kjarasamningum. Ótímabært fráfall Guðbjarts er áfall fyrir Fangavarðafélagið eins og svo marga aðra, þar er nú svo sannarlega skarð fyrir skildi. Við minnumst hans með þakklæti í huga fyrir allt það óeigingjarna starf sem hann vann fyrir félagið og fyrir íslenska fangaverði. Guð blessi minningu hans. Einar Andrésson, formaður Fangavarðafélags Íslands. Við vitum aldrei hvað gerist á okkar löngu vöktum. Þú fórst of fljótt og of snöggt, enginn veit hvað gerist þegar mað- ur kveður eftir næturvakt og næsta vakt tekur við. En þennan dag náði ég ekki að kveðja þig almennilega eða eins og ég vildi hafa gert. Svo ótrúlega þolinmóður, og skiptir ekki skapi, tókstu á við okkar erfiða og krefjandi starf í öll þessi ár, það þarf sterk bein til að endast svona vel og lengi í þessu. Þú hugsaðir alltaf svo vel um systur þínar og passaðir uppá að þær fengju kjöt á haustin og treystir á að þær myndu bjóða þér í mat í staðinn, sem þær auðvitað gerðu. Um búshætti í sveitinni minni spurðir þú oft og ætlaðir nú að koma þar við ef þú ættir leið þar hjá yfir sumartímann. Margar minningar geymi ég um okkar starf saman og tek þol- inmæði þína til fyrirmyndar. Takk fyrir frábæran starfs- tíma, sem hefði átt að vera miklu lengri. Kæru aðstandendur, ég vil votta ykkur samúð mína á erfiðum tímum. Hver minning dýrmæt perla að liðn- um lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Dagný Sturludóttir fangavörður. Kveðja frá Fangelsis- málastofnun ríkisins Guðbjartur Kjartansson, varð- stjóri í Fangelsinu á Kópavogs- braut 17, lést langt um aldur fram á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 20. mars sl. Hann hafði starfað við fangelsin á höf- uðborgarsvæðinu um hartnær þriggja áratuga skeið eða frá 1981. Guðbjartur var traustur og íhugull starfsmaður. Hann lagði sig fram við að sinna fangavarð- arhlutverkinu á jákvæðan hátt og af samviskusemi, samstarfsmenn og skjólstæðingar minnast hans með söknuði. Fyrir hönd starfs- manna Fangelsismálastofnunar sendi ég fjölskyldu hans og vinum innilegar samúðarkveðjur. Páll E. Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar. Guðbjartur Kjartansson HINSTA KVEÐJA Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Höf. ók.) Kæri bróðir, farðu í friði og hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín litla systir, Bára Kjartansdóttir. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011 Það er hálfundarlegt að sitja og ætla að fara að skrifa minning- argrein um þig minn kæri vinur, þar sem þú sagðir ævinlega: „Það er nú ekki eins og það liggi á.“ En nú er þinn tími liðinn og komið að kveðjustund. Já Jenni minn, líklega eru fáir til sem áttu eins mikinn tíma fyrir vini sína og þú, það var sama Jens Óli Kristjánsson ✝ Jens Óli Krist-jánsson fæddist á Akureyri 16. nóv- ember 1959. Hann lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 16. mars 2011. Útför Jens Óla fór fram frá Ak- ureyrarkirkju 25. mars 2011. hvað vantaði; þú varst alltaf klár. Það var ósjaldan sem mig vantaði aðstoð ef eitthvað bilaði, hvort sem það var heima eða í vinnunni, þú áttir alltaf viðeigandi verkfæri, ráð og al- veg nóg af tíma til að hjálpa mér. Ég mun aldrei gleyma öllum ferðunum sem þú fórst með mér í Hafnarfjörðinn seint á kvöldin til að losa trukkinn. Helga mín verð- ur þér ævinlega þakklát fyrir þær ferðir. Það er svo ótalmargt sem rifj- ast upp fyrir mér sem ég ætla að geyma í hjarta mínu og orna mér við á komandi árum. Og trúðu mér Jenni minn þegar það verður talað um vináttu þá mun ég segja frá þér. Ég bið fyrir velferð þinni, minn kæri vinur, og færi þér al- úðarþakkir fyrir einstaka sam- veru. Þér mun ég aldrei gleyma. Elsku Anna, Sigrún Jenný, Jens Kristófer, Kristján og Rak- el, megi styrk hönd leiða ykkur í ykkar miklu sorg og missi. Með þessum orðum kveð ég minn elskulega vin. Sértu Guði falinn og vinum vafinn. Sverrir Torfason. Mest óska ég þér friðsældar og ánægju. tíma til að vera til. fjarri ys og argaþrasi. Já, ég óska þér friðar og kyrrlátrar gleði. Elsku Jenni, við munum passa hana Önnu þína, Tátu og Kris. Hvíldu í friði. Kveðja, Þóra og Birgir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.