Morgunblaðið - 31.03.2011, Page 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011
Sudoku
Frumstig
9 1 2 7
8 3 5
7 3 5 9 6
3 6 1 2
7
1 5 7 8
3
8 7 6 9
2 5
7 4 6
1 5 8 3 7
4 6 3
8 2 5
8
6 4 2 7
2 1 5
4
7 8
9 5 1 6
1 9
6 3 4 8
7 8 6 3
1 9 4 8
4 3 7 5
1 3
4 7 6 1 8 3 9 2 5
1 3 9 4 2 5 6 7 8
5 2 8 9 6 7 4 3 1
7 1 2 5 3 9 8 6 4
6 5 4 8 7 2 1 9 3
9 8 3 6 4 1 7 5 2
2 6 5 7 1 8 3 4 9
3 4 1 2 9 6 5 8 7
8 9 7 3 5 4 2 1 6
3 1 5 2 4 7 9 6 8
8 4 2 9 6 3 7 5 1
7 6 9 8 5 1 3 2 4
6 2 8 5 7 4 1 3 9
5 3 7 1 8 9 2 4 6
1 9 4 3 2 6 8 7 5
2 5 3 4 1 8 6 9 7
4 7 1 6 9 2 5 8 3
9 8 6 7 3 5 4 1 2
9 3 1 7 4 8 5 6 2
4 7 5 2 6 1 9 3 8
2 8 6 9 5 3 7 1 4
1 5 3 8 9 4 2 7 6
6 9 7 1 3 2 8 4 5
8 2 4 5 7 6 3 9 1
3 1 9 6 8 5 4 2 7
5 4 2 3 1 7 6 8 9
7 6 8 4 2 9 1 5 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 31. mars, 90. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar
himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.)
Mikið írafár hefur verið íReykjavík upp á síðkastið
vegna hugmynda borgarstjórnar
um að spara í grunnskólum borg-
arinnar. Því hefur verið lýst yfir að
sparnaðurinn muni nema um 1,1
milljarði króna. Í upphafi átti að
skera niður kennslu, en því var af-
stýrt. Hugmyndir eru uppi um að
sameina skóla og leikskóla. Skóla-
stjórum er gert að skera niður og
með einhverjum hætti mun það
bitna á skólastarfinu. Kennslan
sleppur, en utanumhald að öðru
leyti gæti liðið fyrir sparnaðinn. Til
dæmis er hætt við að dragi úr eftir-
liti í frímínútum og milli kennslu-
stunda og börnin verði eftirlitslaus
einmitt þegar hættast er við einelti.
Ugglaust má spara í skólakerfinu,
en fráleitt er að láta afleiðingar
bankahrunsins bitna á börnunum.
x x x
Víkverja blöskraði þegar hann sáað borgin ætlar að lána Orku-
veitunni tífalda þá upphæð, sem á
að spara í skólakerfinu. Full-
komlega óþörf monthöll Orkuveit-
unnar gnæfir yfir Reykjavík
skammt þar frá, sem Morgunblaðið
hefur höfuðstöðvar sínar, og blasir
því við Víkverja í hvert sinn sem
hann fer til og frá vinnu – bauta-
steinn góðærisdrambsins. Rekst-
urinn á Orkuveitunni hefur ekki
verið í neinu samræmi við það ein-
falda hlutverk hennar að sjá borg-
arbúum fyrir orku. Nú er OR
tæknilega gjaldþrota og Reykvík-
ingar súpa seyðið af því. Alfreð Þor-
steinsson sagði í viðtali við RÚV í
ágúst í fyrra að hann bæri ekki
ábyrgð á skuldum Okruveitunnar.
Líkti hann um leið Reykjavíkurborg
við eiturlyfjasjúkling, sem sogaði til
sín fé úr Orkuveitunni. Nefndi hann
meðal annars að andvirði sölunnar á
hlut Orkuveitunnar í Landsvirkjun
hefði farið í hirslur borgarinnar. Nú
má segja að Orkuveitan sé farin að
soga til sín Landsvirkjunarpen-
ingana, sem að öðrum kosti hefði
mátt nota til að verja skólakerfið.
Staða Orkuveitunnar hefur blasað
við um nokkurt skeið. Nú er afneit-
uninni lokið og raunveruleikinn er
ansi napur. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 ofurlítill, 8 ber
birtu, 9 kyrrði, 10 espa, 11
treg, 13 flot, 15 lýsa heilagt,
18 slöngva, 21 frístund, 22
telji úr, 23 skellur, 24 bana-
mein.
Lóðrétt | 2 geta á, 3 ákveð, 4
mas, 5 gróði, 6 riftun, 7 tví-
stígi, 12 ótta, 14 hress, 15 at-
hvarf, 16 smá, 17 bardag-
anum, 18 lítið, 19 stétt, 20
kjáni.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hyrna, 4 subba, 7 góðir, 8 jafna, 9 sjá, 11 arna, 13 trén,
14 syrgi, 15 fork, 17 nóta, 20 gat, 22 karpa, 23 íhuga, 24 aurar,
25 næddi.
Lóðrétt: 1 hægja, 2 ráðin, 3 aurs, 4 stjá, 5 bifar, 6 apann, 10
jarða, 12 ask, 13 tin, 15 fokka, 16 rýrar, 18 ólund, 19 apaði, 20
gaur, 21 tían.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. cxb5 a6 5. f3
g6 6. e4 d6 7. Ra3 Bg7 8. Re2 O-O 9.
Rc3 axb5 10. Raxb5 Ra6 11. Be2 Rc7
12. O-O Rxb5 13. Rxb5 Re8 14. a4 Rc7
15. Ra3 e6 16. dxe6 Bxe6 17. Rc4 d5 18.
Rb6 Ha7 19. a5 dxe4 20. fxe4 Dd4+ 21.
Dxd4 Bxd4+ 22. Kh1 Kg7 23. Bc4 Bxc4
24. Rxc4 Re6 25. Bd2 Hb8 26. Hab1
Hb3 27. Hf3 Hb5 28. h4 h5 29. Hbf1 f6
30. Bc3 Hb3 31. Kh2 g5 32. Rd2 Hbb7
Staðan kom upp á MP Reykjavík-
urskákmótinu sem lauk nýverið í Ráð-
húsi Reykjavíkur. Stórmeistarinn Illya
Nyzhnyk (2563) frá Úkraínu hafði
hvítt gegn Róberti Lagerman (2320).
33. Hxf6! Bxf6 34. Hxf6 Rd4 35. Hf5
Kh6 36. Hxc5 Re2 37. hxg5+ Kg6 38.
Hc6+ Kxg5 39. Rf3+ Kg4 40. Bd2 Hg7
41. Hg6+! Hxg6 42. Re5+ Kh4 43.
Rxg6+ Kg4 44. Re5+ Kh4 45. b4 og
svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hin rétta slóð. A-AV.
Norður
♠KG73
♥82
♦KG92
♣G43
Vestur Austur
♠D ♠854
♥D1043 ♥ÁG765
♦8653 ♦--
♣Á862 ♣KD975
Suður
♠Á10962
♥K9
♦ÁD1074
♣10
Suður spilar 5♠.
Oft er vandamál varnarinnar í því
fólgið að koma makker á rétta slóð.
Segjum sem svo að vestur lyfti ♣Á
gegn 5♠. Hvernig á austur að panta
tígul í öðrum slag?
Spurningin er svolítið ósanngjörn,
ef engar eru sagnirnar. Spilið er frá
undankeppni Íslandsmótsins um
helgina og gekk á ýmsu. Á einu borð-
inu vakti Ragnar Hermannsson létt á
1♥ í austur. Suður kom inn á 1♠,
vestur stökk í 4♥ og norður sagði 4♠.
„Nú hefði ég betur sagt 5♣,“ sagði
Ragnar síðar, en hann valdi 5♥. N-S
fóru í 5♠ og vestur kom út með ♣Á.
Einföld frávísun í laufinu er vart
öskur í tígli í þessari stöðu, en ef
austur hefur áður sýnt lauflit getur
hann hugsanlega opnað augu makkers
með því að láta drottninguna undir
ásinn.
31. mars 1905
Við borun eftir vatni við
Öskjuhlíð fannst málmtegund
sem talin var vera gull. Síðar
kom í ljós að vinnsla myndi
ekki borga sig.
31. mars 1955
Allri áhöfn, 42 mönnum, var
bjargað þegar togarinn Jón
Baldvinsson strandaði við
Reykjanes, skammt frá gamla
vitanum. Morgunblaðið sagði
að þetta hefði verið mikið
björgunarafrek.
31. mars 1967
Snjódýpt á Raufarhöfn mæld-
ist 205 sentimetrar, sem er
með eindæmum í þéttbýli.
„Ein fjölskylda varð að yfir-
gefa hús sitt vegna þess hve
snjóinn skóf ofan í skorstein-
inn svo ekki var hægt að
kynda það,“ sagði Alþýðublað-
ið.
31. mars 1967
Við nauðungaruppboð á hús-
eign við Njálsgötu í Reykjavík
læsti húseigandi fógeta og
fleiri viðstadda inni. Lög-
reglan var kvödd á staðinn og
sá til þess að embættismenn-
irnir gætu unnið sín störf.
31. mars 2007
Hafnfirðingar höfnuðu til-
lögum um stækkun álversins í
Straumsvík með 88 atkvæða
mun. Andvígir stækkun voru
6.382 en 6.294 hlynntir. Kosn-
ingaþátttaka var 77%. „Það er
mikil sorg í mönnum og von-
brigði,“ sagði Rannveig Rist
forstjóri Alcan á Íslandi í sam-
tali við Fréttablaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Ég ætla til Reykjavíkur og fara út að borða með
börnunum mínum og síðan í Þjóðleikhúsið að sjá
Íslandsklukkuna,“ segir Aldís Pálsdóttir, bóndi í
Litlu-Sandvík í Árnessýslu, spurð hvernig hún ætli
að verja 50 ára afmælisdeginum í dag. Hún segist
hafa ákveðið að gefa sjálfri sér þessa ferð og eiga
stund með börnunum, sem eru tveir uppkomnir
synir, Páll Óli og Ólafur Ingvi, og yngst er dóttirin
Sigríður, 16 ára, allt Ólabörn. Um helgina hittir
hún nánustu fjölskyldu og vini, en heitt verður á
könnunni í Litlu-Sandvík. Unnusti Aldísar er Sig-
urður Arvid Nielsen, sjómaður frá Eyrarbakka,
sem einmitt verður fimmtugur 6. apríl nk. Aldís segist fagna innilega
hverjum afmælisdegi þar sem hún hefur kynnst því af eigin raun að
morgundagurinn er ekki sjálfsagður. Hún sigraðist á hvítblæði sem
hún greindist með árið 2002 og í kjölfarið fylgdu erfið ár, þegar hún
skildi við barnsföður sinn. Aldís býr félagsbúi með kýr í Litlu-Sandvík
ásamt bróður sínum, Guðmundi, auk þess sem hún stundar hrossa-
rækt. Hún segir búskapinn ganga mjög vel og er bjartsýn á framtíð-
ina. „Það var aldrei neitt annað í stöðunni en að lifa þetta af,“ segir
Aldís um hvítblæðið sem hún sigraðist á. bjb@mbl.is
Aldís Pálsdóttir í Litlu-Sandvík 50 ára
Út að borða og í leikhús
Flóðogfjara
31. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.51 3,4 11.05 0,8 17.10 3,3 23.19 0,7 6.50 20.15
Ísafjörður 0.48 0,5 6.50 1,7 13.12 0,3 19.14 1,6 6.51 20.24
Siglufjörður 2.42 0,4 8.53 1,1 15.11 0,3 21.28 1,1 6.34 20.07
Djúpivogur 2.08 1,7 8.11 0,6 14.17 1,7 20.29 0,5 6.19 19.45
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ef þú færð tækifæri til þess að
hafa áhrif á eða vingast við erfiða mann-
eskju áttu að grípa tækifærið og hafa hrað-
an á.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert glettin/n, hrekkjótt/ur og erf-
ið/ur í dag. Taktu samt á móti deginum
með bjartsýni, því þú getur átt einkar
skemmtilegan dag.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú hefur mikla löngun til að
ferðast og skoða heiminn í kringum þig.
Einhver sendir þér kaldar kveðjur.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Snúðu ekki upp á þig þótt aðrir
hlaupi ekki upp til handa og fóta til þess að
uppfylla óskir þínar. Fjölskyldulífið mun
taka stakkaskiptum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú er fínasti undirmaður, vinnur vel,
ert skapandi og ansi nákvæm/ur. Vertu þar
sem innblásturinn er kraftmestur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Löngun þín í frelsi og flótta frá
hversdagslegu amstri er sterk í dag. Ekki
er gott að taka ákvarðanir í dag sem snerta
börn.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ert með of mörg járn í eldinum og
þarft að koma lagi á hlutina og raða þeim
eftir mikilvægi þeirra. Ástarævintýri er í
uppsiglingu hjá þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú getur auðveldlega þjálfað
þig upp á nýtt. Vertu ekkert að boða þeim
heilbrigt líferni sem ekki kæra sig um það.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þér kann að finnast þú svo um-
setin/n að þú eigir erfitt með að gera
nokkurn skapaðan hlut. Kannski sérðu ekki
skóginn fyrir trjánum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Skoðanir þínar eru afar persónu-
legs eðlis í dag. Samræður við yfirboðara
af einhverju tagi gætu skipt máli.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Finndu gömlu dagbókina, grafðu
upp gítarinn og klæddu þig í gömul föt.
Gömul fjölskyldumál reyna á þolinmæði
þína. Sannleikurinn án gyllingar er það eina
sem vinir vilja heyra í dag.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Margir munu að líkindum skipta um
dvalarstað eða vinnu á þessu ári. Láttu
ekki óttann ná tökum á þér.
Stjörnuspá
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is