Morgunblaðið - 31.03.2011, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 31.03.2011, Blaðsíða 36
 Rolling Stones-heiðrunarsveit Ís- lands, Stóns, mun halda heljarinnar tónleika á Sódómu Reykjavík nú á föstudaginn. Sveitin er meðal annars skipuð meðlimum úr Mínus og fleiri harðrokkandi sveitum. Stóns spilar á Sódómu á morgun Vinir Sandra Björk Ingadóttir starfsmaður er sannur hundavinur. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Hljóðin sem berast frá leikskólanum Voffaborg í Víðidal í Reykjavík eru af nokkuð öðrum toga en gengur og gerist með leikskóla. Það er varla nema von, þar sem allir leikskóla- nemendurnir eru loðnir, ferfættir og tjá sig með gelti. Á Voffaborg dvelja hundar á öllum aldri og af öllum stærðum og gerðum við leik og hvíld á meðan eigendur þeirra sinna daglegum störfum sínum. Ólafur Arnberg, einn aðstand- enda Voffaborgar, segir að mikil að- sókn sé í pláss á Voffaborg og greinilegt að mikil þörf sé fyrir þjónustu sem þessa. „Það er mikil aðsókn. En það eru ekki allir hundar alla daga vikunnar, það er algengt að þeir séu einn til þrjá daga í viku.“ Ólafur segir að flestir heimilis- hundar ættu að geta notið dval- arinnar á Voffaborg, en sé um grimma eða árásargjarna hunda að ræða, ættu eigendurnir síður að koma með þá á leikskólann. „Þá þýðir ekkert að koma með þá í svona samfélag.“ Hundar í skammarkrók Tekið er á agamálum með hefð- bundnum hætti; álpist einhver hundurinn út af hinum þrönga vegi dyggðarinnar er hann einfaldlega settur í skammarkrókinn þar til um hægist. „Þetta er bara eins og með óþekka krakka,“ segir Ólafur. Að öllu jöfnu dvelja um þrjátíu hundar á Voffaborg og þeim er skipt niður eftir stærð. Skipulag skóladagsins er nokkuð hefðbundið. Eftir að hafa leikið sér og ærslast fram eftir morgni fá hundarnir hádegishressingu og leggjast síðan til hvíldar. Að því loknu eru þeir endurnærðir og tilbúnir að halda áfram við leik og gönguferðir og þannig líður dagurinn, uns þeir eru sóttir síðdegis. Lóð Voffaborgar er í litlu frá- brugðin hefðbundinni leikskólalóð. Þar eru ýmis leiktæki ætluð fjör- ugum ferfætlingum, þar er meira að segja kastali, sem að sögn starfs- fólks Voffaborgar er nokkuð vinsæll hjá tíkunum í hópnum. Gaman að hitta aðra hunda Að sögn Ólafs er nokkuð um að hundar dvelji á Voffaborg í þeim til- gangi einum að eiga félagslegt sam- neyti við aðra hunda. „Hundar þurfa að fá að hitta aðra hunda, þannig þroskast þeir best.“ Loðnir leikskólanemendur  Gelt og gleði á leikskólanum Voffaborg Morgunblaðið/Sigurgeir S. Hundagleði Þeir eru margskonar hundarnir á Voffaborg en allir hoppandi kátir og sprelluðu fyrir ljósmyndarann. FIMMTUDAGUR 31. MARS 90. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Með hærri greindarvísitölu en ... 2. Nota tíðatappa til að verða ölvuð 3. Regluleg laun 348 þúsund 4. Óheppnir með milljarðamæringa »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Mugison ætlar að halda tónleika á fjórum stöðum næstu daga. Hann spilar á Græna hattinum á Akureyri í kvöld, 1. apríl verður hann í Slát- urhúsinu á Egilsstöðum, dag- inn eftir leikur hann á Höfn og á sunnudaginn, 3. apríl, verður hann í Nýlendu- verzlun Hemma og Valda, Reykjavík. Uppselt er á tón- leikana í Reykja- vík og á Höfn. Mugison heimsækir fjóra staði  Íslenska kvik- myndin Kurteist fólk, eftir Ólaf de Fleur Jóhannes- son, verður frum- sýnd í dag. Kurt- eist fólk fjallar um óhæfan verkfræð- ing sem lýgur sig inn í samfélag á Vesturlandi og þykist geta komið sláturhúsi staðarins í gang á ný. Með hlutverk verkfræðingsins fer leikarinn Stefán Karl Stefánsson. Kurteist fólk frumsýnt í dag Á föstudag Sunnan og suðaustan 5-10 m/s og rigning með köfl- um, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 3 til 8 stig að deginum. Á laugardag, sunnudag og mánudag Breytileg átt og stöku skúrir eða slydduél. Hiti 0 til 5 stig, vægt frost fyrir norðan. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 8-15 m/s og rigning víða um land, einkum þó sunnanlands. Aftur rigning á morgun. Hiti 3 til 8 stig. VEÐUR KR-ingar eru komnir með gott tak á Keflvíkingum eft- ir sigur á þeim, 105:87, suð- ur með sjó í gærkvöld en þar fór fram annar leikur liðanna í undanúrslitum Ís- landsmóts karla í körfu- bolta. Staðan er 2:0 fyrir KR-inga sem taka á móti Keflvíkingum í þriðja leikn- um annað kvöld. „Það verð- ur stríð,“ sagði KR-ingurinn Pavel Ermolinskij við Morg- unblaðið. »2 Pavel spáir stríði í Vesturbænum „Það liggur í augum uppi að sam- keppnin er gríðarlega hörð um sæti í byrjunarliðinu og á næstu vikum ríð- ur á fyrir drengina sem gera tilkall í liðið og í lokahópinn að þeir haldi sig við efnið, verði á tánum og standi sig vel með sínum félagsliðum á næstu vikum,“ segir Guðmundur Hilmarsson m.a. í við- horfsgrein um 21 árs landsliðið í knatt- spyrnu. »4 Samkeppnin um sæti er gríðarlega hörð Fram og Valur misstigu sig ekki í fyrstu leikjum undanúrslitanna á Ís- landsmóti kvenna í handbolta í gær- kvöld. Flestir reikna með því að liðin leiki til úrslita um Íslandsmeistaratit- ilinn, þau eru skrefinu nær því. Fram vann Stjörnuna örugglega, 38:30, og Valur vann Fylki með enn meiri mun, 31:19. Liðin eigast við að nýju á laug- ardaginn. »2-3 Fram og Valur ekki í miklum vandræðum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Skannaðu kóðann til að horfa á fjörugt myndskeið af hundunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.