Morgunblaðið - 07.04.2011, Síða 1

Morgunblaðið - 07.04.2011, Síða 1
F I M M T U D A G U R 7. A P R Í L 2 0 1 1  Stofnað 1913  82. tölublað  99. árgangur  –– Meira fyrir lesendur fylgir með Morgu nblaði nu í da g HEIMILISSKIPTI Í FRÍUM HAFA FÆRST Í VÖXT DÝRT AÐ VERA Á LOFTLITLUM DEKKJUM FIMMTÁN ÁRA ÓSIGRANDI GLÍMUKONA VIÐSKIPTABLAÐ OG FINNUR.IS FREYJUMENIÐ ÍÞRÓTTIRGRÍÐARLEG FJÖLGUN 10 Morgunblaðið/Kristinn Kosið Verði lögum ekki breytt þarf að kjósa meirihluta dómara í Landsdómi.  Verði frumvarp sem gerir ráð fyrir að framlengja skipunartíma dómara við Landsdóm ekki að lög- um rennur kjörtímabil þeirra út 11. maí. Frumvarpið var tekið til fyrstu umræðu í nóvember í fyrra en lengra komst það ekki. Ekkert ligg- ur fyrir um hvenær það verður næst tekið á dagskrá. Sigríður J. Friðjónsdóttir, ný- skipaður ríkissaksóknari og sak- sóknari Alþingis, segir að það sé af- ar óheppilegt, svo ekki sé meira sagt, komi til þess að Alþingi kjósi nýja dómendur í Landsdóm, enda hafi meirihluti þingmanna ákveðið að ákæra skuli Geir. »2 Kjörtímabil dómara rennur út 11. maí Horft til næstu viku » Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir í samtali við Morg- unblaðið í dag að ljóst sé að kjarasamningar verði ekki gerðir fyrr en eftir helgina. » Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri SA, kveðst munu verða upptekinn vegna aðal- fundar samtakanna í dag. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Mér finnst forkastanlegt að haft skuli í hótunum við launafólk með þessum hætti. Ég minnist þess ekki að menn hafi gengið svona langt, að ætla nánast að taka völdin af stjórn- völdum og síðan fólkinu í landinu,“ segir Ögmundur Jónasson innan- ríkisráðherra, spurður um þau um- mæli á vef sínum að ólíðandi sé að Samtök atvinnulífsins og ASÍ skuli tengja kjaraviðræður við Icesave. „Það hefur enginn rétt á því að hafa í hótunum við kjósendur. Og hvorki samtök atvinnurekenda né verkalýðshreyfingin getur tekið sér slíkt vald. Fólk er að reyna að vega og meta það hvort það styðji eða hafni Icesave-samningnum. Það læt- ur ekki segja sér fyrir verkum.“ „Óþolandi“ afskipti Atli Gíslason þingmaður tekur undir sjónarmið ráðherrans. „Þetta eru náttúrulega óþolandi afskipti Samtaka atvinnulífsins og ASÍ af þjóðmálum. Þetta er ekkert á þeirra borði. Hvað gera þeir næst? Ég hef líka alltaf sagt að Icesave sé skilgetið afkvæmi ESB-umsókn- arinnar. Það varð kúvending í af- stöðu VG frá því á haustmánuðum 2008 og fram í janúar 2009. Ég kann enga aðra skýringu á umskiptum míns fv. flokks í málinu en þá að ESB-umsókn væri þar í húfi. For- ysta VG fór þessa leið í þágu stjórn- arsamstarfs,“ segir Atli Gíslason. MKjaraviðræður í hægagangi »2 „Forkastanlegar hótanir“  Innanríkisráðherra átelur að SA og ASÍ skuli tengja kjaramálin við Icesave  Taki með því að sér landsstjórnina  Þingmaður tengir málið við ESB-umsókn Morgunblaðið/Golli Skilanefnd Kröfuhafar geta tafið útgreiðslur með mótmælum. Tryggingasjóður innistæðueigenda og fjárfesta gæti andmælt ákvörð- unum slitastjórnar Landsbankans um útgreiðslur þar til Ragnars Hall-ákvæðið svokalla verður að fullu útkljáð fyrir dómstólum, og tafið þannig útgreiðslur úr þrotabúi Landsbankans. Þar með gæti hugs- anlegur kostnaður íslenska ríkisins aukist, verði Icesave-lögin sam- þykkt. Að sama skapi gætu deilur milli almennra og forgangskröfu- hafa tafið útgreiðslur, en fyrrnefndi hópurinn hefur hagsmuni af því að tefja útgreiðslur, þvert á hagsmuni hins síðarnefnda. Þetta er mat Jóns Gunnars Jónssonar, bankamanns, sem starfað hefur á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum um áralangt skeið. Jón Gunnar bendir á í aðsendri grein í Viðskiptablaði Morgunblaðs- ins í dag að áætlanir fjármálaráðu- neytisins um að 40% af eignum gamla Landsbankans verði greidd út í ár, gætu hæglega brugðist. „Öll óvissa um endurheimtur er almenn- um kröfuhöfum í hag, en forgangs- kröfuhöfum í óhag,“ segir Jón Gunnar. »Viðskipti Útgreiðslur gætu tafist  Segir það hagsmuni almennra kröfuhafa að tefja ferlið Samkvæmt spá Veðurstofunnar verður tíðarfarið skrykkjótt næstu daga. Suðvestan hvassviðri í dag með rigningu eða slyddu, vægt frost norðanlands í nótt en hlýnandi á morgun. Vætusamt verður um helgina og í næstu viku er spáð kólnandi veðri. Veðurklúbburinn á Dalvík spáir páskahreti þetta árið og að það byrji að snjóa daginn fyrir skírdag. Þessi ungi piltur á hjóli sínu í Laugardal kærði sig þó kollóttan um veðrið. »4 Skrykkjótt tíðarfar og páskahreti spáð Morgunblaðið/Ómar  Portúgal hefur sótt um neyðar- aðstoð Evrópu- sambandsins vegna gífurlegs skuldavanda evruríkisins. José Socrates, sem gegnir emb- ætti forsætisráð- herra Portúgals til bráðabirgða, staðfesti þetta í gærkvöldi. Suður-Evrópuríkið fylgir þar með fordæmi Grikklands og Írlands en ríkin fengu risalán hjá ESB í fyrra. Ekki er ljóst hversu mikil aðstoðin verður en rætt var um 80 milljarða evra, um 13.000 milljarða króna, í gær. Portúgal óskar eftir neyðaraðstoð ESB Jose Socrates Lárus Jónsson, sem hefur ára- tuga reynslu af alþjóðlegri samningagerð, telur að Icesave- samningarnir við Breta og Hol- lendinga séu ekki lögmætir, þar sem handritaðir viðaukar á upp- haflegum samningsdrögum séu ekki með áritun samninganefnd- armanna Bretlands, Hollands og Íslands. Lárus Blöndal, einn samninga- nefndarmanna Íslands, segir þetta vera ótímabærar vangavelt- ur, þar sem „það er enginn Ice- save-samningur undirritaður og því er enginn samningur í gildi,“ sagði Lárus Blöndal við Morg- unblaðið. agnes@mbl.is » 16 Greinir á um lögmæti Icesave

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.