Morgunblaðið - 07.04.2011, Blaðsíða 31
DAGBÓK 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011
Sudoku
Frumstig
9 2
2 7 5 8
8 4 3 7
3 2 5
7 1 9
1 2 4 9
4 3
7 9 4 5
8
7 6 2 3
8 3 2 4 7
4 6
2 6 1 9
6
1 7
2 8 4
4 1
1 3 7
5 6 7 8
9 7
8 6
4 9
9 3 6
4 5 7 2
2 9 3
8 6 7 5
7 2 8
2 8 7 4 5 3 1 9 6
5 3 4 9 6 1 7 8 2
9 6 1 2 8 7 5 4 3
4 9 6 8 7 5 2 3 1
7 5 2 3 1 9 4 6 8
3 1 8 6 2 4 9 5 7
1 4 9 7 3 8 6 2 5
6 7 3 5 9 2 8 1 4
8 2 5 1 4 6 3 7 9
7 6 5 9 3 8 4 2 1
8 2 4 7 1 5 3 9 6
3 1 9 2 4 6 8 5 7
6 3 2 1 9 7 5 4 8
9 5 7 4 8 2 1 6 3
1 4 8 5 6 3 9 7 2
2 7 1 3 5 4 6 8 9
5 8 3 6 2 9 7 1 4
4 9 6 8 7 1 2 3 5
4 2 3 7 5 8 1 9 6
5 9 6 2 1 4 7 8 3
1 7 8 9 6 3 5 4 2
3 5 9 6 8 7 4 2 1
7 6 2 4 9 1 8 3 5
8 4 1 3 2 5 9 6 7
9 8 7 5 3 2 6 1 4
6 3 4 1 7 9 2 5 8
2 1 5 8 4 6 3 7 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 7. apríl,
97. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Varpið allri áhyggju yðar
á hann, því að hann ber umhyggju fyr-
ir yður. (1Pt. 5, 7.)
Það er vor í lofti og dag tekið aðlengja. Á laugardag var Vík-
verji þess fullviss að nú veturinn
hefði tekið saman föggur sínar og
væri farinn á suðlægari slóðir. Sól
skein í heiði og í bænum var ekki
þverfótandi fyrir fólki. Veðurblíðan
varð til þess að Víkverji og kona
hans ákváðu að draga fram hjólin og
hjóla sem leið lá á útgáfutónleika
Megasar í Norðurpólnum á Seltjarn-
arnesi. Þá hafði að vísu eitthvað
kólnað í veðri, en kvöldbirtan og
anganin úr fjöruborðinu vógu á móti
því.
x x x
Tónleikar Megasar voru hinmesta skemmtun og fór hann á
kostum ásamt Senuþjófunum.
x x x
Eftir tónleikana var eins og skipthefði verið um árstíð og slydd-
unni kyngdi niður. Víkverji og kona
hans létu það þó ekki á sig fá, heldur
stigu á bak fákum sínum og lögðu í
veðrið. Slyddan fyllti öll vit og augu.
Víkverji varð fljótt gegndrepa, en
kona hans hafði viðhaft ívið meiri
skynsemi þegar hún bjóst til ferð-
arinnar. Á heimleiðinni tók Víkverji
ekki eftir rotnunarlyktinni úr fjör-
unni og myrkrið var eins og um
miðjan býsnavetur. Þegar Víkverji
loks komst heim höfðu hlaðist upp
skaflar á öxlum hans líkt og hann
hefði fengið hastarlegt tilfelli af
flösu. Næturævintýri þetta á hjóli í
slyddu og myrkri hefði getað farið
illa hefði kona Víkverja ekki haft
rænu á að hita kakó og bragðbæta
það ögn til að hrekja burt hrollinn.
x x x
Næsta dag glennti sólin sig á ný,en hafði þó ekki alveg náð að
hrekja burt verksummerki nætur-
innar því að enn mátti sjá föl á jörðu.
Á hitamælinum í sundlauginni úti á
Seltjarnarnesi sagði að hitinn væri
12°. Víkverji var ekki sannfærður
um að það væri rétt, en tókst þó að
plata sjálfan sig til að setjast niður á
bekk og sleikja sólina í nokkrar mín-
útur áður en hitamælir líkamans
sagði honum að það væri reyndar
frekar kalt. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 ójafna, 8 þrautir,
9 mannsnafn, 10 elska, 11
flýtinn, 13 yndi, 15 nagg, 18
afundið, 21 skaut, 22 bál, 23
svefnfarir, 24 hafsauga.
Lóðrétt | 2 jurt, 3 ákæru-
skjalið, 4 hljóminn, 5 munn-
bita, 6 sundfæris, 7 sigra, 12
kropp, 14 beita, 15 digur, 16
gamla, 17 mánuður, 18
bylgjur, 19 húsdýrin, 20 fá
af sér.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hreif, 4 fúnar, 7 elgur, 8 æfing, 9 nár, 11 púar, 13 bann,
14 efnir, 15 fisk, 17 áköf, 20 krá, 22 kíkja, 23 lúpan, 24 runni, 24
sárið.
Lóðrétt: 1 hrepp, 2 ergja, 3 forn, 4 flær, 5 neita, 6 regin, 10 árn-
ar, 12 rek, 13 brá, 15 fákar, 16 sökin, 18 kopar, 19 fénað, 20 kati,
21 álfs.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. Bb5 Rd4 4. Bc4
e6 5. Rge2 Re7 6. O-O Rec6 7. d3 d6
8. f4 Be7 9. f5 O-O 10. a4 exf5 11.
Rg3 fxe4 12. Rgxe4 Be6 13. Rd5 Re5
14. Ba2 Bh4 15. Hf4 Be7 16. Rxe7+
Dxe7 17. Dh5 Bxa2 18. Hh4
Staðan kom upp í B-flokki Norð-
urlandamóts einstaklinga í skólaskák
sem fór fram fyrr á þessu ári í Osló í
Noregi. Nökkvi Sverrisson (1787)
hafði svart gegn Norðmanninum Er-
lend Kyrkjebø (1966). 18… Dxh4! 19.
Dxh4 Rdf3+ 20. gxf3 Rxf3+ 21. Kf2
Rxh4 22. Hxa2 Rf5 svartur hefur
gjörunnið tafl. 23. Bf4 Had8 24. Ha1
f6 25. Hg1 Kf7 26. c3 b6 27. c4 d5
28. Rc3 dxc4 29. dxc4 Rd4 og hvítur
gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Glötuð tækifæri. A-Allir.
Norður
♠ÁD98
♥KDG10
♦K
♣K1086
Vestur Austur
♠K2 ♠53
♥987542 ♥Á
♦864 ♦ÁG10932
♣74 ♣ÁD93
Suður
♠G10764
♥63
♦D75
♣G52
Suður spilar 4♠.
Austur er gjafari og opnar á 1♦. Sú
sögn er pössuð til norðurs, sem do-
blar. Á austur að skipta sér meira af
málum?
Við borðið sagði austur einfaldlega
2♦. Suður teygði sig í 2♠ og norður
hækkaði beint í 4♠. Útspilið var tígull
og um leið og blindur birtist harmaði
austur glatað tækifæri – auðvitað átti
hann að segja 2♣ til að benda makker
á annað og betra útspil.
Já – útspil í laufi setur samninginn
strax tvo niður, því vörnin nær að
trompa bæði lauf og hjarta. En eftir
tígulinn út þarf galdravörn til að ná
spilinu einn niður: Austur tekur á ♥Á
og spilar síðan ♣D! Þannig er blindur
læstur inni og sagnhafi kemst ekki
heim til að svína í trompi.
En austur glataði þessu tækifæri
líka og spilaði tígli áfram í öðrum slag.
7. apríl 1943
Laugarnesspítali í Reykjavík
brann. Hann var byggður árið
1898 sem holdsveikraspítali en
síðustu árin hafði bandaríski
herinn hann til umráða. „Einn
mesti eldsvoði sem hér hefur
orðið,“ sagði í Morgunblaðinu.
7. apríl 1979
Ólafslög voru samþykkt á Al-
þingi. Þau fjölluðu um stjórn
efnahagsmála og voru kennd
við Ólaf Jóhannesson forsætis-
ráðherra.
7. apríl 1979
Fjögur systkini úr Vest-
mannaeyjum gengu í hjóna-
band í sömu athöfn í Bústaða-
kirkju, þrír bræður og systir.
Þetta þótti mjög óvenjulegt.
7. apríl 2005
Framhaldsskólanemendur
mótmæltu hugmyndum um
styttingu náms í framhalds-
skólum úr fjórum árum í þrjú
ár.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Við höfum gefið í skyn að hér megi fá kleinur og
kaffi frá klukkan 16 og eins lengi frameftir og af-
mælisbarnið getur haldið sér vakandi,“ segir Árni
Valur Viggósson á Akureyri léttur í bragði en hann
fagnar 80 ára afmæli sínu í dag. „Ég ætla bara að
vera heima. Ef einhver man eftir mér og gestir
koma ætlar konan að sjá um þetta,“ segir Árni sem
á marga kunningja og vini, m.a. í reglu musteris-
riddara, en hann er staðarhaldari í húsnæði þeirra.
Árni er bæði rafvirkjameistari og símsmíðameistari
að mennt en hann fékk snemma mikinn áhuga á
leiklist og var ljósameistari í leikhúsi Leikfélags
Akureyrar í hartnær 20 ár. „Má því segja að ég sé þrefaldur meistari,“
segir hann og hlær. Árni segist hafa mikinn áhuga á stangveiði og bíður
spenntur eftir að ísa leysi af vötnum svo hann geti rennt fyrir silung.
„Skapið hefur alltaf verið létt og gott. Ég hef stundum verið spurður að
því hvort ég geti aldrei verið alvarlegur en ég held að ég hafi komist
býsna langt á því að vera ekkert að sökkva mér niður í þunglyndi. Mað-
ur tekur bara hlutunum eins og þeir koma fyrir.“ Árni eignaðist sjö
börn með fyrri konu sinni, sem nú er látin. Núverandi eiginkona hans er
Unnur Þorsteinsdóttir. ,,Hún er bara með mig í bómull,“ segir Árni.
Árni Valur Viggósson er 80 ára í dag
Skapið alltaf létt og gott
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
7. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.18 0,5 8.20 3,5 14.27 0,6 20.36 3,7 6.25 20.36
Ísafjörður 4.27 0,2 10.17 1,7 16.36 0,2 22.34 1,9 6.24 20.47
Siglufjörður 0.28 1,2 6.37 0,1 13.03 1,1 18.45 0,3 6.07 20.30
Djúpivogur 5.29 1,8 11.38 0,4 17.50 2,0 5.53 20.07
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú færð hverja hugmyndina á fætur
annarri en gengur illa að gera þær allar að
raunveruleika. Verndaðu sjálfa/n þig og láttu
engan ráðskast með þig.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Af mörgum ólíkum ástæðum sérðu nú
gildi þess að taka frá tíma til að horfa á gróð-
urinn lifna við. Nýttu þér tilboð.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú hefur lengi verið óánægð/ur
með sjálfa/n þig og ekki vitað hvað væri til
ráða. Viltu virkilega halda áfram á þessari
braut sem þú ert?
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Vertu vingjarnleg/ur við þá sem þú
hittir í dag. Fólki finnst þú merkileg/ur, þótt
það viti ekkert um þig.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er engin ástæða til þess að liggja á
skoðunum sínum, þótt alltaf sé nauðsynlegt
að orða þær þannig að engan særi. Endaðu
daginn með rólegu kvöldi heima við.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er afar brýnt að þú standist allar
freistingar um aukafjárútlát í dag. Mundu að
þú þarft ekki að borga brúsann fyrir alla í
kringum þig þótt þú sért ákveðin/n í að
skemmta þér.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Rannsóknarvinna getur skilað góðum ár-
angri í dag. Taktu meira tillit til annarra og
gerðu þér grein fyrir að þarfir manna eru
mismunandi.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ef þú þarft að einbeita þér að
einu takmarki skaltu gera það að þínu. Ein-
hver þér nákominn dettur í lukkupottinn.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Dagurinn markast af kraftmiklum
og skapandi törnum. Mundu að ekkert er dýr-
mætara í heimi hér en heilsan.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú færð tækifæri til að fram-
kvæma það sem þig hefur lengi langað til.
Kannski væri ráð að læra aðeins meira fyrst.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér hættir til að láta tímann líða
án þess að gera nokkuð. Kappsemi er smit-
andi. Þú færð vinning.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þótt þú sért félagslynd/ur þarftu að
gefa þér tíma til að vera ein/n með sjálfum
þér. Reyndu að sjá veröldina eins og hún er,
en ekki eins og þú vilt helst að hún sé.
Stjörnuspá
Jónína Guð-
mundsdóttir
verður sextug
10. apríl næst-
komandi. Í tilefni
þess tekur hún á
móti vinum og
samferðafólki í
Stapa, laug-
ardaginn 9. apríl kl. 20. Gjafir eru
afþakkaðar en samskotabaukur
verður á staðnum til styrktar góðu
málefni.
60 ára