Morgunblaðið - 07.04.2011, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.04.2011, Blaðsíða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 Viðbót við menningarflóru Húsavíkur Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Menningarfélagið Úti á Túni hóf starfsemi sína í fyrra, skömmu fyrir áramót, á Húsavík en að því standa ungar manneskjur með list- og hönnunarmenntun að baki, þau Röð- ull Reyr Kárason, Sigríður Hauks- dóttir, Arnhildur Pálmadóttir, Bald- ur Kristjánsson og Arnþrúður Dagsdóttir. Röðull segir aðdragandann að stofnun félagsins þann að Sigríður og Arnhildur hafi verið með hug- myndasmiðjur fyrir krakka á Húsa- vík á sumrin. Þær hafi farið þess á leit við bæjaryfirvöld að fá húsnæði undir ungmennahús og vinnustofur fyrir listamenn. Þær hafi fengið til afnota húsið Tún sem félagið er nefnt eftir, gamla sýslumannshúsið í bænum. „Sigríður er yfir ungmennahúsi og félagsstarfi í framhaldsskóla og í öðrum helmingi Túns er ungmenna- hús og félagsmiðstöð. Hinn helming- inn fékk Arnhild- ur til umráða,“ útskýrir Röðull. Í síðarnefnda helmingnum séu sex vinnustofur eða -rými, stofa og eldhús og í kjallara sé fyr- irhugað að hafa æfingaaðstöðu fyrir hljómsveitir og segir Röðull að vonandi verði þar einnig hljóðver. Hann og Baldur hafi fengið þarna vinnuaðstöðu sem og Arnþrúður Dagsdóttir, mynd- menntakennari og myndlist- armaður, en Röðull og Baldur eru báðir lærðir arkitektar og Röðull auk þess með BA-gráðu í myndlist. Fyrir alla, ekki bara unglinga „Upp úr því kemur þessi hug- mynd að stofna menningarfélag með það að markmiði í sinni stefnu að auka við menningarflóruna á Húsa- vík, með fókus á ungt fólk. Ungt fólk á öllum aldri, innan sviga,“ segir Röðull kíminn. Haft sé samstarf við ungmennahúsið í Túni og stefnt að því að halda uppi öðruvísi menning- arstarfsemi fyrir bæjarbúa. Boðið hafi verið upp á bíósýningar, tónlist- arviðburði, handverksmarkað, vínyl- plötukvöld og teiknikvöld þar sem fólk mætti, drakk kaffi og teiknaði saman, svo fátt eitt sé nefnt. „Það hefur verið margt í gangi en það halda margir hér í bænum að það sem fari fram í þessu húsi sé fyr- ir unglinga,“ segir Röðull og hér með leiðréttist það. Tilgangurinn með félaginu sé m.a. sá að gera eitt- hvað fyrir fólkið í bænum og þá m.a. unga fólkið, kveikja í því sköpunar- þörfina. Framundan er myndlistarsýning um páskana og segir Röðull að fólki sé frjálst að leita til félagsins, vilji það halda sýningar, tónleika eða annars konar menningarviðburði. Áhugasamir geti hringt í hann í síma 6918301 eða sent honum tölvupóst á rodull@gmail.com.  Menningarfélag stofnað í gamla sýslumannshúsinu á Húsavík, Túni  Tilgangurinn að auka við menningarflóru bæjarins og margt í boði fyrir „ungt fólk á öllum aldri“, segir einn stofnenda Sköpun Ungir Húsvíkingar spreyta sig og sýna afraksturinn. Starfsemi menningarfélagsins Úti á Túni má kynna sér á utiatuni.blogspot.com. Röðull Reyr Kárason María Ólafsdóttir maria@mbl.is Rafmagnslaust á Norðurpólnum kallast tónleikaröð þar sem tveimur ólíkum hljómsveitum er stefnt sam- an til að spila órafmagnað. Það er Stormur & Stilla sem stendur að tónleikunum sem fram fara í Norðurpólnum, leikhúsrými á Sel- tjarnarnesi. „Það vildi þannig til að ég þekki einn af stofnendum Norðurpólsins, hann Denna, og við fórum að velta þeirri hugmynd fyrir okkur að það væri gaman að halda þar líka tón- leika. Við ákváðum að órafmagnaðir tónleikar væru sniðugir þar sem lít- ið er haldið af slíku,“ segir Jana María Guðmundsdóttir, söng- og leikkona, sem sér um skipulagningu tónleikanna. Hljómsveitirnar Agent Fresco og Orphic Oxtra riðu á vaðið nú í byrjun mars en Jana María segir að undantekningarlaust hafi verið tekið vel í þessa hugmynd. „Við biðjum tvö ólík bönd að koma og gera eitthvað saman sem þau myndu ekki gera undir öðrum kringumstæðum. Það er alltaf vilji fyrir slíkum nýjungum og við- brögðin hafa verið mjög góð bæði frá tónlistarfólkinu og tónleikagest- um,“ segir Jana María. Lára og Valdimar Næst stíga á svið söngkonan Lára Rúnars og hljómsveitin Valdi- mar, í kvöld, 7. apríl, og hefjast tón- leikarnir kl. 21. En svo skemmtilega vill til að sama lagið, „Næturrölt“, er að finna á plötum beggja og tengir þau saman. Það var samið af einum meðlima Valdimars og hefur fengið að njóta sín í flutningi beggja. Hljómsveitunum sem fram koma er einnig gert að undirbúa sameiginlegt verk sem síðan er sýnt á tónleikakvöldinu. Má það vera allt frá málverki til gjörnings og lista- mönnunum gefnar alfarið frjálsar hendur í þeirri listsköpun. „Orphic Oxtra og Agent Fresco gerðu gjörn- ing í hléinu þar sem mætt var með eina 10 eða 12 rafmagnsgítara og pylsur, lesið ljóð og sýnt vídeó af matarslag. Ég vil endilega að þau taki áhættu í þessu og í raun má hvað sem er. Hljómsveitirnar ráða líka alveg hvort þær spila hver í sínu lagi allan tímann eða að ein- hverju eða öllu leyti saman. Okkur langar að halda áfram með þessa tónleika en á þessu ári slá Stórsveit Samma og Pétur Ben lokatóninn í nóvember og líklegast verður engin lognmolla í kringum það,“ segir Jana María. Morgunblaðið/Eggert Valdimar Hljómsveitin ómfagra. Engin lognmolla á Norðurpólnum  Matarslagur, gjörningur og tón- list úr ólíkum átt- um á tónleikaröð Lára Spilar á Norðurpólnum. Ljósmynd/Daníel Pétursson Rafmagnslaust Frá seinasta kvöldi tónleikaraðarinnar í Norðurpólnum, meðlimir hljómsveitanna Agent Fresco og Orphic Oxtra saman komnir.  Hljómsveitin Amiina hefur gert samninga um útgáfu á geisla- disknum Puzzle í Japan og Ástralíu auk þess að tryggja sér dreifingu um alla Evrópu. Í Ástralíu mun fyr- irtækið Other Tongues gefa Puzzle út þann 15. apríl en það er Rallye- útgáfan sem hefur gefið diskinn út í Japan. Föstudaginn 8. apríl kemur svo Puzzle út á vínyl um heim allan á vegum Sound of a Handshake / Morr Music. Amiina spilar á Fak- torý í kvöld og þar verður hægt að kaupa vínylinn. Þetta verða síðustu tónleikar sveitarinnar þar sem allir meðlimir koma fram í nokkurn tíma vegna barneigna og lofar sveitin sérstaklega miklu stuði. Amiina kemur út um allan heim  Ein af merkari sveitum íslensku nýbylgjunnar um miðbik tíunda áratugarins var Kvartett Ó. Jónson & Grjóni sem var stofnuð á rústum hljómsveitarinnar Púff. Eina plata sveitarinnar, Karnival í Texas, kom út í Lúðraseríu Smekkleysu árið 1997 og hefur verið ófáanleg um langa hríð. Henni hefur nú ver- ið hlaðið upp á vefsíðuna Soundclo- ud af meðlimum þar sem hægt er að hlusta á hana án endurgjalds. Er það vel. Kvartett Ó. Jónson & Grjóni á netið Skannaðu kóðann til að horfa á myndband við lag Láru Rúnars, „In Between“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.