Morgunblaðið - 07.04.2011, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.04.2011, Blaðsíða 14
Morgunblaðið/Valdís Thor Við leiði Hér er umhirðan góð. „Umhirða yfir sumartímann felst í því að slá í þeirri miklu grassprettu sem er yfir hásumarið á Íslandi. Það verður því meiri graslubbi í einhvern tíma. Við höfum reynt að slá garðana rúmlega tíu sinnum að sumri,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri kirkjugarða Reykjavíkurprófasts- dæma, aðspurður um sýnileg áhrif af minni ríkisframlögum í ár. Af Þórsteini má skilja að fólk þurfi að huga betur að beðum við leiði lát- inna ættingja sinna í sumar. „Beðin í görðunum verða síður hirt en áður vegna mannfæðar. Eins er um alla þjónustu sem varðar blóm og annað í görðunum. Minni framlög draga líka úr möguleikanum á að verða við beiðnum um þjónustu. Beðin verða vanhirtari að sjá.“ – Hvað finnst þér um þessa þróun? „Þetta er komið í algjört lágmark fyrir kirkjugarðana. Við búum við 30% tekjurýrnun miðað við 2009. Um 80% af tekjum garðanna fara í laun. Við getum heldur ekki endur- nýjað tæki. Menn verða að leiðrétta kúrsinn þegar færi gefst. Garðarnir endurspegla menningu hvers tíma,“ segir Þórsteinn. baldura@mbl.is Vanhirtari kirkjugarðar  Minni framlög munu þýða minni umhirðu og slátt í sumar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Landakotsskóli við Túngötu í Reykjavík er skreyttur listaverkum eftir nemendur auk þess sem nýjar og gamlar myndir úr sögu skólans hanga uppi í tilefni þess að skólinn er 115 ára um þessar mundir, en op- ið hús verður í skólanum á morgun. Í hugum margra er Landakots- skóli kaþólskur skóli enda var hann það lengi vel en ekki lengur. Skólinn er einn elsti starfandi skóli landsins, stofnaður 1896, og fram til 2005 var hann rekinn af kaþólsku kirkjunni, en síðan hefur hann verið rekinn sem sjálfseignarstofnun með sjálf- stæðri stjórn. „Ég tók við í haust sem skólastjóri og ég veit ekki hvað margir hafa sagt við mig: „Ekki vissi ég, Sölvi, að þú værir kaþólskur“,“ segir Sölvi Sveinsson skólastjóri. Um 30% nemenda koma úr Vesturbænum, um 30% annars stað- ar úr Reykjavík og frá nágranna- sveitarfélögum, um 30% eru útlend- ingar, meðal annars börn starfsfólks sendiráða og erlendra starfsmanna einstakra fyrirtækja og stofnana og um 10% íslensk börn sem hafa alist upp erlendis. Sölvi segir að samstarf þessara ólíku hópa gangi mjög vel og börnin fái margvíslega séraðstoð, en þá sé þeim tímabundið kippt út úr tímum þar sem styrkleikar þeirra liggi. Altalandi frönsk börn fari þannig úr frönskutímum og fái aukakennslu í íslensku í staðinn. Læra tungumál 5 ára Landakotsskóli er sjálfstætt starfandi grunnskóli fyrir 1. til 10. bekk ásamt deild fimm ára barna. Hann starfar samkvæmt grunn- skólalögum og kennsla er í samræmi við aðalnámskrá en Sölvi bendir á að skólinn hafi ákveðna sérstöðu. Lögð sé áhersla á fámenna bekki og mark- miðið sé að hafa um 17 nemendur að meðaltali í bekk. Miðað við þann fjölda sé hægt að sinna öllum nem- endum prýðilega. Tungumálakennsla hefst þegar í 5. bekk. Þá er byrjað að kenna börnunum lestur og íslensku auk frönsku og ensku. „Þetta gengur ótrúlega vel,“ segir Sölvi og bætir við að þegar börnin séu orðin læs og farin að lesa bækur á erlendum mál- um hafi þau náð valdi á framburð- inum. Fleiri tímar séu í íslensku og stærðfræði heldur en námskrá kveði á um auk þess sem allir nemendur séu í list- og verkgreinum öll skóla- árin. Þetta fyrirkomulag hafi meðal annars skilað þeim góða árangri að í síðustu Pisa-könnun hafi nemendur Landakotsskóla verið langhæstir í náttúrufræði og stærðfræði yfir allt landið og næsthæstir í lesskilningi. Aukin tungumálakennsla held- ur áfram á miðstiginu, þegar börnin byrja að læra dönsku og spænsku og á unglingastigi geta nemendur valið spænsku og þýsku. Um 120 nemendur eru í skól- anum en stefnt er að því að þeir verði milli 180 og 190 innan þriggja ára. Sölvi segir að óeining í skól- anum fyrir nokkrum árum hafi leitt til þess að nemendum hafi fækkað. Sá tími sé að baki. Umsóknum hafi fjölgað til muna og útlit sé fyrir að 150 nemendur verði við skólann í haust. Með fleiri nemendum verði reksturinn hagkvæmari auk þess sem hægt verði að gera meira fyrir krakkana. Heppilegt húsnæði Við skólann starfa um 30 manns í 20 stöðugildum. Kennt er í þremur húsum, þar á meðal einu al- friðuðu. Auk þess er kennt í gamla prestsbústaðnum, sem er frá 1854, og í nýrri viðbyggingum. Kaþólska kirkjan á húsnæði skólans og segir Sölvi það einkar vel til skólarekst- urs fallið. Hægt sé að stúka það í sundur og því séu yngstu börnin sér, miðstigið út af fyrir sig sem og unglingarnir. Eins sé skólinn af- skaplega vel búinn til listakennslu. Í húsakynnunum sé danssalur, sérbú- in myndmenntastofa, sérbúin text- ílstofa, tónmenntastofa og smíða- verkstæði. Sölvi bendir á að allir viti hvar Landakotsskóli sé en fæstir hafi komið inn í skólann og nú sé lag. Fjölmenningarlegt yfirbragð í Landakoti Morgunblaðið/Kristinn Afmæli Sölvi Sveinsson skólastjóri með nokkrum nemendum Landakotsskóla síðdegis í gær.  Landakotsskóli ekki kaþólskur skóli heldur öllum opinn 115 ára afmæli » Um þessar mundir eru 115 ár liðin síðan skólastarf hófst í Landakoti og af því tilefni verð- ur opið hús í skólanum frá kl. 8:30 í fyrramálið og fram eftir degi. » Kennsla fer fram með hefðbundnum hætti en opið verður inn í allar skólastofur og geta gestir og gangandi fræðst um starfið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.