Morgunblaðið - 07.04.2011, Page 34

Morgunblaðið - 07.04.2011, Page 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 Frumflutningur á tveimuríslenskum dansverkumfór fram í Tjarnarbíó síð-astliðinn föstudag. Fyrra verkið er Gibbla, eftir dansflokkinn Darí Darí og það síðara nefnist Steinunn and Brian DO Art; How to be Original, eftir Steinunni Ket- ilsdóttur og Brian Gerke. Gibbla fjallar um örlög og er efniviðurinn sóttur í hinn goð- sögulega arf; Ask Yggdrasils og örlaganornirnar þrjár, Urði, Verð- andi og Skuld. Samkvæmt nor- rænni goðafræði spinna nornirnar mönnum örlög; þær spinna þræði fyrir hverja manneskju sem fæðist á jörðinni og ákvarða þannig allt lífshlaup hennar. Örlaganornirnar búa við Urðarbrunn í Ásgarði, en Urðarbrunnur stóð við eina af þremur rótum Asks Yggdrasils. Örlaganornirnar vökva Ask Yggdrasils með hvítri leðju til að viðhalda lífskrafti hans. Í sýningarskrá segir að verkið sé „afrakstur samstarfs listamanna úr mismunadi greinum þar sem dans, tónlist og kvikmyndagerð fléttast saman og mynda eina sam- rænda heild“. Þetta markmið hóps- ins tókst þó ekki til fulls. Tónlistin var mikilvægur þáttur verksins, hún gerði það að verkum að áhorf- andinn dróst inn í ákveðið ástand sem lýsti hugmyndinni á bak við verkið mjög vel. Vel unnu víd- eóverki var varpað á stórt tjald sem var staðsett aftarlega á svið- inu. En oft vantaði mikið upp á fléttuna eða samtalið á milli hreyf- inga dansaranna og þess sem var að gerast í vídeóverkinu. Þrátt fyr- ir vel útfærð hreyfiform dans- aranna leitaði augað oft frekar á tjaldið þar sem vídeóverkinu var varpað, en þar er uppsetningu sal- arins líklega um að kenna. Í heild- ina myndaði verkið ákveðna stemningu sem áhorfandinn dróst auðveldlega inn í. Hugmyndinni voru gerð góð skil, en það hefði mátt byggja upp meiri stígandi í framvindu verksins þar sem engan sérstakan hápunkt var að finna í verkinu. Steinunn and Brian DO Art; How to be Original var seinna verk kvöldsins. Verkið fjallar í grunninn um náið samstarf og vinnuferli danslistamanna. Tog- streituna við starf og hlutverk listamannsins sem vinnur að því að koma köllun sinni í form sem hon- um sjálfum, samstarfsmönnum og mögulegum áhorfendum geðjast að. Baráttu listamannsins við sköp- unargyðjuna sem getur verið mis- langt í burtu. Áhorfandinn fær það á tilfinninguna að dansararnir og danshöfundarnir Steinunn og Bri- an séu að fjalla um sjálf sig og samstarf sitt, en þau hafa unnið töluvert lengi saman. Þessi tilfinn- ing gerir það að verkum að verkið verður mjög nærgöngult og áhorf- endur geta jafnvel fundið til með dönsurunum á sama tíma og þeir hlæja hástöfum að því hversu öm- urlegt líf dansarans getur verið. Krafan um að finna upp hjólið, gera sífellt betur og jafnvel vinna til verðlauna á meðan efinn um að þetta sé hið eina rétta kraumar í þeim. Umgjörð verksins er mjög einföld; látlausir búningar, engin fyrirframgerð sviðsmynd og dans- ararnir mynda hljóðheiminn að miklu leyti sjálfir með líkama sín- um, andardrætti og samtali. Inn á milli er þó spiluð tónlist sem hent- ar verkinu í flestum tilvikum mjög vel. Steinunn og Brian tóku mikla áhættu með þessu verki þar eð efniviðurinn sem þau völdu er vandmeðfarinn, en þeim tókst sannarlega vel að skapa glæsilegt dansverk úr honum. Verk kvöldsins eru mjög ólík að gerð og framsetningu. Mögulegt er að kaupa miða á einungis annað verkið en áhugavert er að fara á báðar sýningarnar og sjá ólíkar birtingarmyndir íslenskrar dans- listar. Úr verkinu Gibbla „Í heildina myndaði verkið ákveðna stemningu sem áhorfandinn dróst auðveldlega inn í. “ Ólíkar birtingarmyndir Gibbla og „Steinunn and Brian DO Art; How to be Original“ bbbnn Frumflutningur á dansverkunum Gibbla, eftir dansflokkinn Darí Darí og „Stein- unn and Brian DO Art; How to be Orig- inal“ eftir Steinunni Ketilsdóttur og Brian Gerke. MARGRÉT ÁSKELSDÓTTIR DANS Hinn ungi rússneski fiðluleikari Mikhail Simonyan leikur einleik í hinum sívinsæla Fiðlukonserti Pjotrs Tsjajkovskíjs með Sinfón- íuhljómsveit Íslands í kvöld. Á efnisskrá tónleikanna eru einn- ig Capriccio italien, sem er skemmtiverk fyrir hljómsveit, fjörug syrpa ítalskra söngva sem varð til þegar tónskáldið dvaldi sér til heilsubótar í Róm vorið 1880, og Sinfónía nr. 5 eftir Tsjajkovskíj. Stjórnandi á hljómleikunum er Christian Lindbergh sem sagður er sannkallaður básúnuvirtúós og hef- ur komi áður fram hér á landi, sem einleikari og stjórnandi. Hann hef- ur frumflutt yfir 300 ný tónverk, hljóðritað yfir 70 einleiksdiska og semur einnig tónlist. Mikhail Simonyan er sagður á hraðri leið upp á stjörnuhimininn, en til marks um það hefur hann ný- verið gert samning við hina virtu plötuútgáfu Deutsche Grammo- phon. Simonyan hefur nýverið flutt Fiðlukonsert Tsjajkovskíjs með Fíl- harmóníuhljómsveit New York- borgar en hann var einungis þrett- án ára gamall þegar hann kom fyrst fram í Lincoln Center. Simonyan leikur á nýja fiðlu frá Christophe Landon en á morgun leikur hann með kvintett í Lista- safni Sigurjóns, þar sem meðleik- arar hans leika einnig á hljóðfæri Landons. Snjall fiðluleikari Mikhail Simonyan á æfingu í Listasafni Sigurjóns í fyrrakvöld. Rísandi stjarna með Sinfóníunni Skoska indísveitin Glasvegas hlaut al- mennt lof gagnrýn- enda fyrir fyrstu breiðskífu sína árið 2008, sem hét ein- faldlega nafni hljómsveitarinnar og platan var m.a. tilnefnd til Mercury-tónlistarverð- launanna 2009. Í fyrra gekk nýr trommari til liðs við sveitina, hin sænska Jonna Löfgren og hún lemur húðir afbragðsvel á plötunni nýju sem ber sex skástrik í titli sínum, einhverra hluta vegna. Platan er hin áheyrilegasta og má það ekki síst þakka söngvaranum James Allan sem jafnframt er helsti lagasmiður hljómsveitarinnar. Og ekki skemmir fyrir hnausþykkur, skoskur hreim- urinn. Hljómsveitin hefur verið bor- in saman við ýmsar sveitir, m.a. Jes- us And Mary Chain, Clash og The Smiths, svo menn átti sig betur á því hvers konar tónlist hér er á ferð. Hjörtu munu bresta við tregafullan söng Allans og eflaust munu ein- hverjir upplifa alsælu í dramatík- inni. Fín plata/// en ekki frábær\\\. Glasvegas - Euphoric /// Heartbreak \\\ bbbnn Alsæla og hjartasorg Helgi Snær Sigurðsson Forevermore er nýjasta plata stein- aldarrokkarans Davids Coverdales og félaga í White- snake. Led Zeppel- in og bandarískt áttunda áratugar rokk svífa yfir vötnum, reyndar eru áhrifin frá Zeppunum yfirþyrmandi á köflum, sérstaklega í lögunum „Whipping Boy Blues“ og „My Evil Ways“. Það er svolítið eins og að fara í gamla peysu að hlusta á plötuna; hún er örugg, þægileg og hlý. En eins og flestar gamlar peysur er Forever- more ekkert sérlega spennandi. Áferðin er kunnugleg og mikið er sótt í eldri verk Whitesnake. Hún er keimlík plötunni Good to be Bad (2008) en sú plata var óneitanlega betur heppnuð. Lagið „Love Will Set You Free“ stendur upp úr sem og tit- illagið en þar nýtur blúsuð og hlý barítónrödd Coverdales sín vel. For- evermore er ekki nauðsynleg öðrum en hörðustu aðdáendum en er sveit- inni þó ekki til vansa. Mælt er með Saints & Sinners (1982) eða titilplötu sveitarinnar (1987) fyrir byrjendur. Óspennandi peysa Whitesnake - Forevermore bbnnn Skúli Á. Sigurðsson Nú með batnandi veðri er maður byrjaður að leita að einhverri tónlist sem hægt er að dilla sér við í sumar og lofuðu því fyrstu fréttir af sólóplötu Katy B góðu. Þar er stórborgar-„dubstep“ að hætti Lundúnabúa í fyrirrúmi en úr þar- lendu höfuðborgarumhverfi hafa sprottið upp margar bassaþungar danstónlistarstefnur síðustu ár. Katy B heitir fullu nafni Kathleen Bryan og er 21 árs. Þrátt fyrir ung- an aldur er hún ekki ný í brans- anum. Hún hóf ferilinn undir nafn- inu Baby Katy og söng í lagi DJ NG útgefnu af Ministry of Sound. Fyrir slíkum gestasöngvurum liggur sjaldnast sú gæfa að verða popp- stjörnur. Þetta er alvöru-dansplata en ekki poppplata sem er búið að smella í nokkrum danstöktum hér og þar. Platan er dansvæn en líka mjög mel- ódísk og áheyrileg. Eins og í svo mörgu öðru um þessar mundir eru vísanir til tíunda áratugarins eða nánar tiltekið til trylltra trommu- takta í upphafi hans. Lagið „Lights Out“ náði fjórða sæti breska smáskífulistans og gladdi það hjarta undirritaðrar mjög að í því lagi fær hún til sín gesta- söngkonu, enga aðra en Ms Dyna- mite, sem lítið hefur farið fyrir síð- ustu ár. Fyrsta sumartónlistin er komin til landsins. Takið upp ballskóna og byrjið að dansa! Sumarið er komið Katy B - On a Mission bbbbn Inga Rún Sigurðardóttir Dansvæn Plata Katy B er dansvæn en líka mjög melódísk og áheyrileg Erlend tónlist

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.