Morgunblaðið - 18.04.2011, Síða 1
M Á N U D A G U R 1 8. A P R Í L 2 0 1 1
Stofnað 1913 91. tölublað 99. árgangur
FRJÁLSAR VEIÐI-
LENDUR Á NET-
INU TIL AÐ TÆLA
ÞREFALDIR MEISTARAR HVAR ÞRÍFST
FRUMLEG TÓNLIST
Á ÍSLANDI Í DAG?
ÍÞRÓTTIR
JÖFN FRAMLEIÐSLA 26FORVARNARVERKEFNI 10
Vinnsla Starfsmenn Samherja
vinna aflann sem landað var í gær.
Leikskólinn Krílakot á Dalvík var
opnaður klukkan átta í gærmorg-
un. Það var gert svo starfsfólk
Samherja, sem á börn á leikskól-
anum, gæti mætt til vinnu, en
vinnsla á 200 tonnum af ferskum
fiski hófst klukkan fjögur aðfara-
nótt pálmasunnudags í landvinnslu
Samherja á Dalvík. Samherji
greiddi kostnaðinn sem hlaust af
opnun leikskólans, en hafnarsjóður
Dalvíkurbyggðar veitti Samherja á
móti afslátt af hafnargjöldum. Tog-
ari í eigu dótturfélags Samherja í
Þýskalandi, Baldvin NC, sigldi þrjá
sólarhringa úr Barentshafi til að
geta landað í Dalvík. Um er að
ræða fisk sem veiddur var innan
aflaheimilda Evrópusambandsins.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
herja hefur ferskum fiski frá skipi
skráðu innan Evrópusambandsins
ekki verið landað til vinnslu á Ís-
landi í um það bil tvo áratugi. Þor-
steinn Már Baldvinsson forstjóri
sagðist í samtali við Morgunblaðið í
gær reikna með því að hluti aflans
yrði keyrður til Keflavíkur strax
um kvöldið og flogið með hann til
Evrópu nóttina eftir. »2
Leikskólar
opnaðir á
sunnudegi
Samherji landaði
ESB-þorski á Dalvík
Steingrímur J. Sigfússon, fjármála-
ráðherra, segir að fundur fulltrúa Ís-
lendinga í Washington í gær hafi
verið góður og málefnalegur. Árni
Páll Árnason, efnahagsráðherra,
sagðist í gær eftir fundinn ekki telja
að Bretar og Hollendingar myndu
leggja stein í götu Íslendinga við
framgang efnahagsáætlunar Íslands
hjá AGS. Hins vegar kom fram í tíu-
fréttum RÚV í gær, að Frank Wee-
kers, aðstoðarfjármálaráðherra Hol-
lands, hafi sagt við hollenska
fjölmiðla að Ísland gæti ekki reitt sig
á stuðning Hollands í stjórn AGS.
Ræddu við Moody’s
Steingrímur sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi að fulltrú-
ar Íslands hefðu freistað þess að
sannfæra Moody’s um að fella Ísland
ekki í ruslflokk „og í öllu falli ef þeir
væru í slíkum hugleiðingum hvort
þeir væru ekki tilbúnir að anda ró-
lega og sjá hvernig ynnist úr mál-
um,“ sagði Steingrímur. »2
Stíft fundað í Washington
Hollendingar segja Íslendinga ekki geta reitt sig á stuðn-
ing sinn innan AGS Matsfyrirtækið Moody’s „andi rólega“
Ráðherrar Steingrímur og Árni
Páll fóru til Washington á fund.
Morgunblaðið/Ómar
Tómar íbúðir á
höfuðborgarsvæðinu
2010 2011
Fokhelt og lengra komið
Að fokheldu
375
1.641 348
1.300
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Samtök iðnaðarins létu nýverið telja
tómar nýbyggingar á höfuðborgar-
svæðinu og í ljós kom að þeim hefur
fækkað um 18% milli ára. Samtökin
segja þessa niðurstöðu óvírætt
benda til þess að aukin þörf sé að
skapast á frekari byggingarfram-
kvæmdum, einkum smærri íbúða.
Sambærileg talning fór fram á síð-
asta ári. Þá voru tómar nýbyggingar
á höfuðborgarsvæðinu ríflega 2.000,
þar af um 1.600 fokheldar íbúðir og
lengra komnar. Talningin nú sýndi
1.648 tómar byggingar, þar af um
1.300 fokheldar og nær fullbúnar.
Samtökin létu líkt og í fyrra einnig
kanna stöðuna á Akranesi, Selfossi
og í Reykjanesbæ og þar hefur tóm-
um íbúðum sömuleiðis fækkað. Þá
voru íbúðir með þessum hætti taldar
í fyrsta sinn á Akureyri og reyndust
þær vera ríflega 100 í fjölbýli.
Talið er að byggja þurfi 1.500 til
2.000 íbúðir á ári til að uppfylla eðli-
lega þörf markaðarins en stórir ár-
gangar ungs fólks eru á leiðinni með-
al íbúðarkaupenda. Jón Bjarni
Gunnarsson og Friðrik Ágúst Ólafs-
son hjá Samtökum iðnaðarins, sem
önnuðust talninguna, segja m.a. í
Morgunblaðinu í dag að sveitarfélög-
in þurfi að breyta skipulagi sínu og
lækka ýmis gjöld til að koma mark-
aðnum af stað á ný.
MFramkvæmdir fari af stað »6
Tómum íbúðum fækkar
Samtök iðnaðarins segja nýja talningu sýna aukna þörf á
að byggja nýjar og ódýrari íbúðir á höfuðborgarsvæðinu
Einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar, Björgvin
Halldórsson, varð sextugur sl. laugardag og
fagnaði stórafmælinu með þrennum tónleikum
um helgina í Háskólabíói. Uppselt var á alla tón-
leikana, fólk fær aldrei nóg af Bo. Myndin var
tekin í gærkvöldi á tónleikum Björgvins en með
honum á sviði var þá söngvarinn Eyjólfur Krist-
jánsson, Eyfi, sem varð fimmtugur í gær. Stór-
afmæli hjá tveimur stórsöngvurum.
Björgvin og Eyfi fögnuðu stórafmælum sínum
Morgunblaðið/Golli
Flokkur Timos Soini, Sannir Finn-
ar, vann stórsigur í þingkosning-
unum í gær og er nú þriðji stærsti
flokkur landsins með 39 þingsæti af
alls 200 og 19% atkvæða. Í kosning-
unum 2007 var flokkurinn með
fimm þingsæti. Miðflokkur Mari
Kiviniemi forsætisráðherra galt af-
hroð, fékk 35 sæti en hafði 51.
Soini hefur lýst andstöðu við að
Finnar taki þátt í að bjarga efnahag
illra staddra evruríkja með lánum
og var því fylgst vel með kosning-
unum víða í álfunni, ekki síst í
Brussel. Takist flokknum að fá sæti
í næstu stjórn gæti það orðið af-
drifaríkt að mati
stjórnmálaskýr-
enda, samstaða
evrusvæðisins
um aðgerðir gæti
rofnað.
Erfitt er að
staðsetja flokk
Soinis í pólitíska
litrófinu þótt
margir kalli
hann hægri öfgaflokk. Hann er t.d.
vinstra megin þegar kemur að ýms-
um velferðar- og efnahagsmálum
en mjög þjóðernissinnaður á sum-
um sviðum. kjon@mbl.is
Stórsigur Sannra Finna
í þingkosningunum
Timo Soini