Morgunblaðið - 18.04.2011, Side 4
Samkvæmt forystumönnum innan
ASÍ náðist það samkomulag í febr-
úar að ef ekki fengist sátt um
kjarasamning til lengri
tíma yrði undirritaður
skammtímasamn-
ingur sem gilti frá 1.
mars og fram á haust.
Í drögum SA var lagt
til að allir kjarasamingar
yrðu framlengdir til 15. júní og
greidd yrði 50 þúsund króna ein-
greiðsla til starfsfólks í byrjun
maí.
SA gæti síðan fyrir 10. júní
ákveðið að framlengja sam-
komulagið til 15. september og
yrðu þá greiddar þrjár greiðslur,
hver upp á 16.670 krónur, í lok
júní, júlí og ágúst.
Ekki sátt um gildistímann?
SKAMMTÍMASAMNINGUR
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. APRÍL 2011
BAKSVIÐ
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Undir miðnætti síðastliðið föstu-
dagskvöld varð ljóst að ekki yrði
skrifað undir kjarasamning þann
daginn en fyrr um kvöldið höfðu
viðsemjendur, Samtök atvinnulífs-
ins og Alþýðusamband Íslands, haf-
ið viðræður um skammtímakjara-
samning þegar ljóst varð að
forsendur samnings til þriggja ára
voru ekki fyrir hendi. Samningsað-
ilar höfðu fundað stíft allan daginn í
húsakynnum Ríkissáttasemjara en
hið víðfræga vöfflujárn var aldrei
tekið fram úr skápnum og eru engir
fundir ráðgerðir á næstunni. For-
svarsmenn SA segjast líta svo á að
hlé hafi verið gert á viðræðunum en
ASÍ segir málið nú í höndum aðild-
arfélaga sinna.
Viðræðuhlé fram yfir páska
„Í rauninni þá var bara farið í að
skoða hvort það væri möguleiki á
skammtímasamningi, sem við vor-
um í raun tilbúnir til að skrifa und-
ir,“ segir Vilmundur Jósefsson, for-
maður SA, um það sem við tók
þegar ljóst var að þriggja ára
samningur var út úr myndinni. „En
við vildum hafa ákveðinn formála
um það hverjar væru ástæðurnar
fyrir því að ekki væri hægt að halda
lengra. Og það var eitthvað sem
ASÍ gat ekki fellt sig við að skrifa
undir,“ segir hann.
Vilmundur segir hvorugan aðil-
ann hafa slitið viðræðum og segist
enga ástæðu sjá til annars en að
reyna til þrautar að ná samningum
eftir páska. Verði lausn fundin á
sjávarútvegsmálum og viðbótarlof-
orð og trygging gefin fyrir því að
hagvexti verði náð þá sé ekkert því
til fyrirstöðu að skrifa undir þriggja
ára samning. Ríkisstjórnin verði
hins vegar að fara að átta sig.
„Það er í rauninni ótrúlegt að
fylgjast með framgöngu forsætis-
ráðherra,“ segir Vilmundur, „það er
eins og hún sé með tvær tungur; sú
hægri talar um að það sé nauðsyn-
legt að ná hagvexti og byggja hér
upp, en sú vinstri segir að það eigi
að rífa niður aðalatvinnuveginn og
koma í veg fyrir hagvöxt.“
Ekki í vegferð með SA
Í samtali við mbl.is um helgina
sagði Helgi Magnússon, formaður
Samtaka iðnaðarins og stjórnar-
maður í SA, að viðræðurnar hefðu
ekki strandað útaf sjávarútvegsmál-
unum einum saman heldur hefðu
ýmis mál verið óleyst, t.d.
þau er sneru að orkuöfl-
un, orkufrekum iðnaði
og samgöngufram-
kvæmdum.
Þessu er Signý Jó-
hannesdóttir, varafor-
seti ASÍ, ósammála og
segir Samtök atvinnu-
lífsins hafa ætlað að
stilla ASÍ upp við vegg þar
sem kröfum Landsambands ís-
lenskra útvegsmanna hefði ekki
verið mætt. „Það sem þeir kalla
sameiginlegan rökstuðning fyrir
samkomulaginu er bara þeirra
framsetning á því að ríkisstjórnin
vilji ekki hlusta á þeirra sjónarmið
varðandi kvótamálin og við höfum
frá upphafi lýst því yfir að við vær-
um ekki að fara í einhverja vegferð
með SA til að ná fram þeirra sjón-
armiðum í fiskveiðistjórnunarmál-
um,“ segir Signý.
Hún tekur undir orð Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra að
um ofbeldi sé að ræða af hálfu at-
vinnurekenda. „Þetta er auðvitað
bara algjört ofbeldi,“ segir hún.
Í höndum aðildarfélaganna
Signý segir að ASÍ hefði fyrir sitt
leyti verið tilbúið að skrifa undir
langtímasamning, að því gefnu að
stjórnvöld hefðu gengið frá
ákveðnum málum fyrir byrjun júní-
mánaðar. ASÍ hafi komið aftur að
borðinu í febrúar þar sem það taldi
sig hafa tryggingu fyrir að ef ekki
næðist sátt um samning til lengri
tíma yrði a.m.k skrifað undir
skammtímasamning. Það loforð hafi
nú verið svikið og framhald málsins
sé í höndum aðildarfélaganna.
„Menn vilja bara hugsa sinn gang
til að geta ákveðið hvað þeir vilja
gera, hvort þeir vilja vísa deilum til
sáttasemjara til að geta gripið til
aðgerða. En við vitum ekkert hvort
þær aðgerðir verða samræmdar eða
hvort landsamböndin fari hér fram
hvert fyrir sig,“ segir hún.
Alls óvíst um framhald viðræðna
Engir fundir ASÍ og SA ráðgerðir eftir að viðræðum lauk með hvelli á föstudag „Auðvitað bara al-
gjört ofbeldi,“ segir varaforseti ASÍ Formaður SA segir forsætisráðherra tala tveimur tungum
Morgunblaðið/Golli
Karphúsið Upp úr viðræðum slitnaði á föstudagskvöld eftir langa fundi.
*Verð á mann miðað við flug fram og til baka til Reykjavíkur, Egilsstaða, Akureyrar eða Ísafjarðar.
SKEMMTUM OKKUR
INNANLANDS
FLUG OG GISTING
Í EINA NÓTT
FRÁ AÐEINS 21.030 KR.*
FLUGFELAG.IS
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/F
LU
53
86
4
03
/1
1
Hringdu í 570 3030 og skelltu þér á skíði.
Fáni Evrópusambandsins prýðir nú varðskipið Tý en
verið er að undirbúa skipið til að sinna verkefnum fyrir
Frontex, Landamærastofnun Evrópusambandsins, í
Miðjarðarhafinu. Ísland er aðili að Frontex í gegnum
Schengen og í fyrra störfuðu varðskipið Ægir og flug-
vél Landhelgisgæslunnar fyrir samtökin við góðan
orðstír. Óskað var eftir að Gæslan sendi skip og flugvél
til Miðjarðarhafsins í kjölfar þess óróa sem skapaðist á
svæðinu þegar íbúar í norðanverðri Afríku kröfðust
frelsis og umbóta.
Morgunblaðið/Júlíus
Evrópu-stjörnum prýddur Týr
Einn lottómiðakaupandi var með
allar tölur réttar í útdrætti helg-
arinnar og hlaut hvorki meira né
minna en 61 milljón kr. í vinning.
Miðinn var keyptur í bensínstöð Ol-
ís við Tjarnargötu á Siglufirði og er
það í annað sinn á skömmum tíma
sem stór vinningur fæst á miða sem
keyptur er í bænum, í febrúar sl.
skilaði Víkingalottómiði þaðan eig-
anda sínum 16 milljónum króna.
Hann var keyptur í versluninni
Siglósporti. Eigandi lottómiðans
sem vinningurinn stóri fékkst á
hafði ekki gefið
sig fram við Ís-
lenska getspá í
gær, enda sunnu-
dagur og lokað
hjá fyrirtækinu.
Þá vissu starfs-
menn á Olís-stöð-
inni á Siglufirði
ekki hver hefði
keypt miðann, enda býsna margir
lottómiðar seldir þar og ekki ljóst
að svo stöddu hvort sá heppni er
Siglfirðingur eða utanbæjarmaður.
Einn með 60 milljóna
króna lottóvinning Stórmeistararnir Héðinn Stein-grímsson og Henrik Danielsen
héldu sínu striki í 3. umferð á Ís-
landsmótinu í skák á Eiðum í gær.
Héðinn vann Guðmund Kjart-
ansson en Henrik vann Þröst Þór-
hallsson. Þeir hafa báðir fullt hús
stiga eftir þrjár umferðir.
Bragi Þorfinnsson kemur í hum-
átt á eftir með tvo og hálfan vinn-
ing eftir sigur á Róberti Lagerman.
Stefán Kristjánsson er fjórði með
tvo vinninga eftir sigur á Ingvari
Þór Jóhannessyni. Næstu menn
hafa einn vinning og því gæti stefnt
í tvískipt mót. Fjórða umferð fer
fram á Eiðum á Héraði í dag.
Héðinn og Henrik
með fullt hús stiga