Morgunblaðið - 18.04.2011, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. APRÍL 2011
*Verð á mann miðað við flug fram og til baka til Reykjavíkur, Egilsstaða, Akureyrar eða Ísafjarðar.
SKEMMTUM OKKUR
INNANLANDS
FLUG OG GISTING
Í EINA NÓTT
FRÁ AÐEINS 21.030 KR.*
FLUGFELAG.IS
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/F
LU
53
86
4
03
/1
1
Hringdu í 570 3030 og skelltu þér á skíði.
NINTENDO 3DS
Á SÉR ENGA HLIÐSTÆÐU
Í HEIMI LEIKJATÖLVA
Upplifðu að spila tölvuleiki í ÞRÍVÍDD án
þess að nota gleraugu. Hægt að tengjast
þráðlaust á Internetið, spila þráðlaust við
aðrar Nintendo DS leikjatölvur, taka
ljósmyndir í 3 vídd og margt, margt fleira.
LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800
Sjá nánar á www.ormsson.is
VERSLANIR OG UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
Komdu og sjáðu þetta undratæki með eigin augum!
Liðsmaður sögufélagsins Gruppo Storico Romano,
klæddur eins og hundraðshöfðingi í rómverska hernum
til forna, tekur þátt í hátíð í Róm í tilefni þess að 2.764
ár voru liðin frá stofnun borgarinnar eilífu í gær. Sam-
kvæmt goðsögninni stofnuðu tvíburarnir Rómúlus og
Remus hana en þeir voru fóstraðir af úlfynju.
Reuters
Afmæli Rómaborgar er fagnað með mikilli viðhöfn ár hvert
Hundraðshöfðingi bregður sér í úlfsham
Robert Zoellick,
forstjóri Alþjóða-
bankans, segir
hækkandi verð á
mat og aukið at-
vinnuleysi geta
valdið miklu
tjóni í þróun-
arlöndunum, þar
geti heil kynslóð
misst af öllum
tækifærum.
„Við erum á barmi mikils áfalls,“
sagði hann á vorfundi Alþjóðabank-
ans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í
Washington um helgina.
Hann vísaði einkum til ólgunnar í
Mið-Austurlöndum og Norður-
Afríku, ef menn biðu með nauðsyn-
legar umbætur þar til ró færðist yf-
ir færu tækifærin forgörðum. En
jafnframt stofnaði veik staða í þró-
uðum hagkerfum efnahagsbat-
anum í heiminum í hættu.
„Fjármálakreppan kenndi okkur
að forvarnir eru betri en lækning.
Við höfum ekki efni á að gleyma
þeirri lexíu,“ sagði Zoellick.
kjon@mbl.is
Varar við áfalli
vegna hækkandi
matvælaverðs
Robert Zoellick
Goodluck Jonath-
an, forseti Níger-
íu, virðist hafa
tryggt sér sigur í
Nígeríu í kosn-
ingunum sl. laug-
ardag. Jonathan
var kominn með
um tuttugu millj-
ónir atkvæða í
gærkvöld en
helsti keppinauturinn, Muhammadu
Buhari, um tíu milljónir. Ákvæði eru
í stjórnarskrá um að sigurvegari
þurfi að fá að minnsta kosti 25 pró-
sent atkvæða í tveim þriðju sam-
bandsríkjanna 36.
Frambjóðandi þarf einnig að fá
meirihluta allra atkvæða í landinu
öllu en um 74 milljónir manna voru á
kjörskrá. Buhari er frá norðurhluta
landsins þar sem flestir eru múslím-
ar en Jonathan frá suðurhlutanum
þar sem þorri manna er kristinn.
Um 150 milljónir manna búa í Níg-
eríu sem er lang-fjölmennasta land
Afríku. kjon@mbl.is
Jonathan
á sigurbraut
í Nígeríu
Goodluck Jonathan
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Herlið Muammars Gaddafis í Líbíu
var í gær í aðeins 20 km fjarlægð frá
borginni Ajdabiya í austurhluta
landsins og gerði harða hríð að upp-
reisnarmönnum sem enn halda
henni. Beittu menn Gaddafis sovésk-
smíðuðum Grad-flugskeytum og
sprengjuvörpum og fjöldi óbreyttra
borgara flúði austur á bóginn.
Talið er að á laugardag hafi átta
uppreisnarmenn fallið í úthverfum
Ajdabiya og margir særst. Hart var
einnig barist í Misrata þar sem
minnst sex manns féllu og 47 særð-
ust í gær, að sögn uppreisnarmanna.
Nokkur hundruð hermanna Gaddaf-
is voru þegar komnir inn í borgina.
„Við erum vissir um að okkur
tekst að frelsa borgina alveg og
bjarga óbreyttum borgurum okkar
sem sæta tryllingslegum árásum
dauðasveita Gaddafis,“ sagði Sham-
siddin Abdelmolah, talsmaður upp-
reisnarmanna.
Hann gagnrýndi að sögn CNN
aðgerðir NATO í Misrata, sagði að
uppreisnarmenn skildu ekki stefnu
bandalagsins. Nýlega hefðu upp-
reisnarmenn sótt fram og Gadd-
afi-menn hörfað inn í skóverksmiðju
sem þeir notuðu síðan sem bækistöð
til að gera sprengjuárásir á íbúðar-
hverfi. En NATO hefði neitað að
gera árásir á verksmiðjuna, hún
væri „borgaralegt skotmark“.
Sótt að Ajdabiya
Uppreisnarmenn gagnrýna stefnu NATO sem forðast að
gera loftárásir á svonefnd borgaraleg skotmörk
Reuters
Vörn Uppreisnarmenn leggja jarð-
sprengjur við veg að Ajdabiya.
Slagorð og sprengingar
» Miklar sprengingar heyrð-
ust í Tripoli á laugardag, talið
er að um hafi verið að ræða
loftárásir NATO-véla.
» Um kvöldið söfnuðust
hundruð stuðningsmanna
Gaddafis saman og hrópuðu
slagorð gegn Vesturveldunum.
» Yfirmaður sjúkrahúss í
Misrata segir um 700 manns
hafa fallið í borginni síðan
átökin hófust þar fyrir tveim
mánuðum.
Mubarak-fjölskyldan í Egyptalandi
má muna tímana tvenna; fyrir fáein-
um vikum var Hosni Mubarak valda-
mesti maður landsins og nánast ein-
ráður. En nú hírast synir hans tveir,
Gamal og Alaa, saman í klefa í
tveggja hæða steinsteyptu fangelsi í
Kaíró er nefnist Tora-býlið þótt fátt
minni þar á landbúnað. Óvinir valda-
stéttarinnar voru löngum hafðir þar
í haldi, að sögn L.A. Times.
Sjálfur er forsetinn fyrrverandi á
sjúkrahúsi en
verður senn flutt-
ur á hersjúkra-
hús þar sem hans
verður gætt vel
til að hindra
flótta.
Í Tora eru
einnig yfirstétt-
armaðurinn Ah-
med Nazif, fyrr-
verandi forsætisráðherra, sem eitt
sinn sagði að Egyptar væru ekki
reiðubúnir fyrir lýðræði, og fleiri
fyrrverandi ráðamenn.
Fangaverðir segja að gömlu vald-
hafarnir séu eins og í losti yfir því að
vera bak við rimla. Þeir haga sér vel,
„þeir brýna aldrei raustina“. Fang-
arnir nýta sér rétt þeirra sem ekki
hafa enn hlotið dóm og láta senda
sér mat utan frá. En Gamal Mub-
arak virðist vera niðurbrotinn, hann
neitar oft að borða. kjon@mbl.is
„Þeir brýna aldrei raustina“
Hosni Mubarak
Skannaðu kóðann
til að lesa meira
um Líbíu.