Morgunblaðið - 18.04.2011, Side 16

Morgunblaðið - 18.04.2011, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. APRÍL 2011 Ábyrgðir: Seljir þú verktaka vörubíl og gangir frá pappírum þess efnis á formlegan hátt þá berð þú enga ábyrgð á því tjóni sem af þessu ágæta tæki gæti hugsanlega hlotist. Það er kaupandinn, eigandinn sem ber þá ábyrgð á sínu fyrirtæki og eigum þess. Svindl: Taki verktakinn að sér stórverk og verkkauparnir eru svo vitlausir að borga fyrir fram vegna loforða um hagstæð kjör, þá er það á þeirra ábyrgð að treysta honum. Fari verktakinn svo í lystireisur á snekkjum og þotum og kaupi allt sem honum finnst spennandi fyrir aura verkkaupanna, en skili ekki umsömdum verkum, heldur grafi af- ganga verklauna sinna í bönkum á einhverri breskri paradísareyju og selji svo vélina, gírkassann og hjólin undan bílnum sem þú seldir honum og grafi andvirði þess á Tortola, þá er ekki mikið að sækja fyrir þessa glámskyggnu, fégráðugu verkkaupa. En að verkkauparnir rukki þig fyrir tjón sitt er fáheyrt nema þar sem mafíur, handrukkarar og stuðnings- menn þeirra ráða ríkjum. Ég hélt lengi að höfuðvígi slíkra væri suður við Miðjarðarhaf, með útibú í Banda- ríkjunum. En nú er að koma í ljós að höfuðvígi svona þjösna er hjá Bret- um og Þjóðverjum með stuðningi héðan frá Íslandi. En til þess að fá inngöngu í klúbbinn og fullnaðarvið- urkenningu þá þarf að gera óskunda til að sanna sig eins og hjá Hells Angels og þannig skýrist þrjóska Jó- hönnu og Steingríms í þessu máli, þau þurfa að fá viðurkenningu Hell Evrópu klúbbsins, sem er afgangur þriðja ríkisins uppræktaður. Gúmmíkarlarnir: Ég gafst upp á að finna vitrænt samhengi í fram- setningu B. Benediktssonar í Morg- unblaðinu 26. mars sl. og sneri mér að máli T.Þ. Herbertssonar sem ég hafði nokkurt traust til. En nú bregðast krossspýturnar. Hann seg- ir í sama blaði að samningurinn sé gerður á jafnréttisgrundvelli og án þvingana. Hann segir og að samn- ingurinn lýsi vilja til að halda áfram. Hverslags bull er þetta eiginlega í vesalings manninum, veit hann ekki að Bretar lýstu okkur hryðjuverka- menn og veit hann ekki að þeir fé- lagar G. Brown og A. Darling ætluðu að rústa íslensku samfélagi í sam- starfi við Evrópusambandið til að vernda Evrópubankana? Hann segir og að samningurinn lýsi þrá eftir að koma undan sænginni, hann má vel vera leiður á að vera undir sæng en það kemur þessu máli bara ekkert við. Fólk sem kann sig ekki: Engum Breta hefur svo mikið sem dottið í hug að biðjast afsökunar á því verk- lagi sem hinum ruddalega G. Brown og hinum mál- og hughalta A. Dar- ling þóknaðist að beita þjóð sem þeir töldu minnimáttar á örlagastundu. Því miður fyrir þá bjargaði Geir því sem hann fékk frið til að bjarga fyrir Ingibjörgu og Steingrími, en með tímanum koma staðreyndirnar í ljós. Til athugunar: Að skrifa undir óútfylltan víxil er samskonar glap- ræði og að segja já við Icesave. Það fólk sem er sífellt að tala um að Ice- save sé flókið skilur málið ljóslega ekki, eða smíðar flækjuna í ann- arlegum tilgangi. HRÓLFUR HRAUNDAL, rekur vélsmiðju á landsbyggðinni. Allt er einfalt sem maður skilur, hitt er flókið Frá Hrólfi Hraundal Núverandi ríkisstjórn er þegar orðin skelfilegasta óáran sem yfir landið hefur gengið. Það var nógu slæmt sem kom út úr fyrri stjórn en nú eftir hálft kjör- tímabil er stjórnin löngu búin að sanna sitt óhæfi til þess að stjórna. Það er löngu komið að því að fólkið í þessu landi geti með undirskrift viss hluta landsmanna krafist nýrra kosn- inga. Það hefur komið í ljós að einn skelfilegasti morðingi á Íslandi virðist ganga laus eftir að hafa verið úrskurðaður ósakhæfur. Hann hafði þó nógu mikið vit til þess að þræta fyrir og reyna að hylja glæpinn, en fyrst hægt er að úr- skurða morðingja ósakhæfan, af hverju er ekki hægt að kanna það hvort stjórnendur þessa lands eru „stjórnhæfir“? Framkoma núverandi stjórnar er að verða eins og þriðja flokks glæpasaga. Forsætisráðherra er búinn að fremja þrjú lögbrot og ætlar að sitja áfram þrátt fyrir það. 1) Hún réð útlending í æðstu stöðu Seðlabankans sem er stjórn- arskrárbrot. 2) Hún réð of marga aðstoðarmenn fyrir sig án lagaheimildar. 3) Og svo núna þverbraut hún jafn- réttislög sem hún hafði sjálf krafist að aðrir færu eftir. Það vill svo til að í einu fylki í Bandaríkjunum er það regla að setja menn inn ævilangt þegar þeir hafa framið þrjá glæpi. Það hlýtur að vera komið að því í þessu landi að setja staðal um há- mark siðleysis. Nú þegar á að greiða atkvæði um einn ömurlegheitasamn- inginn í viðbót er alveg kominn tími til að fjármálaráðherra svari einni lít- illi spurningu, en hún er svona: Verð- ur ráðherrann aldrei þreyttur á að mæla með ömurlega óhæfum samn- ingum? Og svo bætist við umhverf- isráðherrann sem hefur fengið hæstaréttardóm gegn sér en ætlar samt að sitja áfram! Nú er svo komið að búið er að byggja fyrir ljósvitann á Sjómannaskólanum og það eru alveg ákaflega skýr lagafyrirmæli um hvað skuli gert ef byggt er fyrir ljósvita og það þarf engan hæstaréttardóm til þess að úrskurða þar um. Næsta tilkynning frá Vita- málaskrifstofunni gæti hljóðað svona: Vitinn á Sjómannaskólanum logar áfram en það er bara búið að byggja fyrir hann og gera hann ónothæfan! Vitanum verður haldið logandi áfram til minningar um óhæfustu rík- isstjórn allra alda á Íslandi. En ástæðan fyrir því að byggingin sem skyggir á vitann hefur ekki verið rifin niður er sú að stjórnin er að bíða eftir því að það verði hefð að byggja fyrir ljós- vita í Íslandi. BERGSVEINN GUÐMUNDSSON, Garði. Helferðarstjórnin Frá Bergsveini Guðmundssyni Bergsveinn Gudmundsson Ég skilaði auðu í síðustu þjóð- aratkvæðakosningunum um Ice- save-samninginn. Vegna þess að mér fannst óviðeigandi að verið væri að leggja valkosti í dóm al- mennings sem jafnvel færustu sér- fræðingar gátu ekki komið sér saman um; hvor þeirra væri ódýr- ari fyrir þjóðina. Hins vegar vildi ég taka þátt í að leggja rækt við hina nýju hefð sem er að skapast: um að leggja mál í dóm þjóð- arinnar. Er ekki eitthvað bogið við það að við sem þjóð erum alltaf að safna skuldum, og að nú þegar eitthvað fer úrskeiðis sé helsta úr- ræði okkar að reyna að fá enn meiri lán; sem leiða svo til enn meiri skulda; nema allt fari á besta veg? Erum við þá ekki enn föst í þjóðarhlutaveltuhugsunarhætt- inum sem olli hruninu? Ættum við ekki frekar að gera eins og ein- staklingi er uppálagt, sem fer á hausinn með sitt fyrirtæki; að leggja ekki í ný áhættuævintýri fyrr en hann er búinn að lækka sínar skuldir? Getur verið að þjóð- in sé komin í hliðstætt kennitöluf- lakk gagnvart útlöndum og sumir gjaldþrota framkvæmdamenn stunda nú á Íslandi? Mér sýnist að svarið sé, að ný- sköpun í fyrirtækjum sé orðin svo stór þáttur í rekstrinum á síðari áratugum, að áhættan sé orðin geigvænlega mikil; einkum fyrir fámenna og fábreytilega menntaða þjóð. Og kannski hafa hvorki Ís- lendingar né aðrar vestrænar þjóðir efni á að hægja á sér og borga skuldir sínar, af því þá myndu þær fara halloka fyrir hin- um upprennandi efnahagsrisum Asíu, sem eru stækkandi í krafti mannfjölda en ekki áhættusækni. Getur verið að þensluæði okkar síðustu áratuga sé í raun æð- isgenginn flótti undan asíska valt- aranum? Og að við neyðumst til að fara í skuldaánauð að lokum? Því við getum ekki endalaust vonast til að afskrifa skuldirnar hver hjá öðrum. Svo virðist sem lánardrottnar til Vesturlanda séu að miklu leyti fá- mennur hópur ofurríkra, sem stuðli þannig að framkvæmdum sem þeir græða á ef vel fer, en sem almúginn á Vesturlöndum þarf að borga ef illa fer. Að þar sé ekki neinum ákveðnum þjóðum um að kenna, né einhverjum illskilgreinanlegum alþjóðlegum hópi fjárfesta, né ein- hverjum nafngreinanlegum ein- staklingum, heldur að þetta sé lík- ara sjálfvirku píramídakerfi sem sé látið vaxa; vegna þess að það gefst oftar en ekki vel. Lítið má þó bera út af til að það rústi ekki framavonum heilla kynslóða, æ tíðar. Forseti Íslands fullyrti eftir kosningarnar, að hann vissi um fullt af fyrirtækjum á Íslandi, og í mörgum atvinnugreinum, sem væru nú einmitt að blómstra í kreppunni. Ég hef frétt af ein- hverjum slíkum, en vel mætti þó hugsa sér að hann svipti hulunni af þessum lista sínum, okkur hin- um til uppörvunar, jafnvel þótt þau séu lítill hluti af heildinni. Til að sýna að bjartsýni hans sé ekki alveg úr lausu lofti gripin! TRYGGVI V. LÍNDAL, þjóðfélagsfræðingur og skáld. Er broddur á skuldahalanum? Frá Tryggva V. Líndal –– Meira fyrir lesendur Morgunblaðið gefur út glæsi- legt sérblað um Heimili og Hönnun föstudaginn 6. maí. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 2. maí MEÐAL EFNIS : Hvaða litir verða áberandi í vor og sumar? Hönnun og hönnuðir. Sniðugar lausnir. Stofan. Eldhúsið. Baðið. Svefnherbergið. Barnaherbergið. Innlit á fallegt heimili. Þjófavörn. Vorverkin á heimili og í garðinn. Ásamt fullt af öðru spennandi efni um heimili og hönnun. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Heimili og Hönnun SÉ R B LA Ð Verð: (án vsk.) Dálksentimetrinn í 4 lit er 1.250-, Dálksentimetrinn á síðu 3 er 1.400-, Dálksentimetrinn á baksíðu er 1.500-, Í blaðinu verða kynntir geysimargir möguleikar og sniðugar lausnir fyrir heimilin. Skoðuð verða húsgögn í stofu, hjónaherbergi,barnaherbergi og inntéttingar bæði í eldhús og bað. Blaðamaður er Sigurður Bogi Sævarsson netfang: sigurdurbogi@mbl.is sími 569-1268 HOLTSBÚÐ 97 - GARÐABÆ Þóroddur S. Skaptason lögg. fasteignasali GARÐATORGI 7 210 GARÐABÆ Sími 545 0800 gardatorg@gardatorg.is www.gardatorg.is Tveggja íbúða hús. Mjög gott mikið endurnýjað. Samtals 306 m² einbýli á frábærum útsýnisstað í Holtsbúðinni. 100 m² séríbúð með sérinngangi er á neðri hæð hússins. Tvöfaldur 57,4 m² bílskúr. Góð aðkoma er að húsinu en það stendur á hornlóð, stór bílastæði. Lóðin er vel gróin og í góðri rækt. Framhlið hússins snýr í suður. Mjög gott hús á frábærum stað. Sölumaður: Sigurður s. 898 3708

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.