Morgunblaðið - 18.04.2011, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 18.04.2011, Qupperneq 21
blessi minningu Þorvaldar Thor- oddsen. María og Ágúst Breiðfjörð. Elsku afi og langafi okkar. Þú varst tekinn frá okkur alltof snemma og trúi ég því ekki enn að þú sért farinn frá okkur. Það varð skyndilega allt svo tómlegt hér án þín. Ég útskýrði fyrir Tristani hvar langafi hans væri núna, að hann væri orðinn engill sem flygi fyrir ofan okkur og vekti yfir okk- ur. Á hverju kvöldi þegar við Tristan förum með bænir og sign- um okkur segir hann í lokin „afi engill fljúga“ og bendir upp í loft. Við eigum eftir að sakna þín sárt elsku afi minn, sérstaklega Tristan þar sem hann var svo mikill afakarl og minnist ég þess þegar þú söngst alltaf fyrir hann, lékst við hann og leyfðir honum að glamra á píanóið þitt jafnvel þótt það hefði farið í eyrun á sum- um. Þér þótti bara gaman að hlusta á hann, alveg eins og þegar ég var yngri og fékk að spila á það. Elsku afi minn, þér á eftir að líða betur núna þar sem þú ert kominn upp til systur þinnar, og okkur á eftir að líða betur að vita af þér á góðum stað og erum við einnig þakklát fyrir að hafa haft þig og þína nærveru sem hluta í lífi okkar. Hafðu það gott hjá englunum og þín verður sárt saknað. Þín Kristrún og Tristan Berg. Við kynntumst Þorvaldi seint, þó að alltaf hafi hann verið nálæg- ur, og nú er hann farinn. Undan- farið höfum við hist oftar á förn- um vegi en áður, spjallað saman í síma, svona eins og ættingjar gera. Þægileg samvera er minn- isstæð. Þorvaldur með bros á vör og glettni í augum. Í minningu sjáum við fyrir okkur Þorvald þar sem hann upphóf rödd sína í af- mæli, keppt var við góða samgesti um hver gæti sungið hæst. Rödd- in er minnisstæð, Þorvaldur vann. Seinast voru málin rædd þá lið- ið var nokkuð á mars, þá var hann ekki „alveg jafn sprækur og vana- lega“, sagði hann, lyfjagjöfin hafði eitthvað dregið úr honum. Það var svo sem ekkert merki- legt. Hann hafði verið í lyfjagjöf, en hjólaði, söng og synti, ekkert amaði að honum frekar þá en vanalega. Svona var Þorvaldur, ekkert að bera á torg líðan sína, bjartsýnn. Stefnt á tónleika á af- mæli Bolla bróður. Vildi hafa hann með. Ekki hvarflaði að okk- ur að um síðasta samtal væri að ræða. Þorvaldur Thoroddsen hafði góða nærveru og var góður mað- ur. Hvíl í friði. Megi allt hið góða styðja Guð- rúnu og fjölskyldu. Emil og Katla. Þorvaldur Thoroddsen hafði yndi af að syngja. Þorvaldur var félagi í Söngsveitinni Fílharmón- íu í 25 ár. Mætti á velflestar æf- ingar, tvisvar í viku, stundum beint af æfingu með kirkjukórn- um sínum. Hann lagði sig fram í starfinu, seldi miða í tugavís fyrir hverja tónleika, þar sem hann gekk um vinnustað sinn og hafði ræktað upp dyggan hóp aðdáenda kórsins. Þorvaldur var um árabil burðarás í stundum fámennum en ætíð galvöskum og þétt skipuðum hópi tenóra. Hann söng einsöng með kórnum í Háskólabíói í frum- flutningi á verkinu Fjalla-Eyvindi eftir Franz Mixa og tók þátt í fjöl- mörgum stórverkum sem flutt voru á þessum árum, oftar en ekki með Sinfóníuhljómsveitinni; 9. sinfóníu Beethovens, Þýsku sálu- messunni, Sálumessu Mozarts, Messíasi eftir Händel, fjölda óp- erutónleika og svo mætti lengi telja. Ótal góðar minningar lifa frá þessum árum. Kórfélagar þakka Þorvaldi fyrir samfylgdina og framlag hans til starfsins. Ég votta aðstandendum innilega samúð. Einar Karl Friðriksson, formaður Söngsveitar- innar Fílharmóníu. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. APRÍL 2011 ✝ Halldóra Ingi-marsdóttir fæddist í Ingimars- húsi á Þórshöfn á Langanesi 19. júní 1920. Hún lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 8. apríl 2011. Foreldrar henn- ar voru Ingimar Baldvinsson, út- vegsbóndi og póst- og símstöðvarstjóri á Þórshöfn, f. 20.11. 1891, d. 30.01. 1979, og Oddný Friðrika Árnadóttir hús- freyja, f. 16.7. 1893, d. 29.9. 1977. Halldóra ólst upp í stórum hópi systkina, systurnar voru átta, Soffía, Þórdís, Helga, Birna, Arnþrúður, Oddný og Jóna, auk Halldóru. Bræðurnir voru þrír, Ingimar, Jóhann (Nói), sem lifir systur sína, og yngstur var Árni Sigfús Páll. Hinn 14. ágúst 1944 giftist Halldóra Jóhanni Gunnari Bene- diktssyni tannlækni, f. 9.1. 1916, d. 8.2. 2010. Foreldrar hans voru Benedikt Björnsson, skóla- stjóri á Húsavík, frá Bangastöð- um á Tjörnesi, f. 8.2. 1879, d. 28.7. 1941, og Margrét Ás- mundsdóttir frá Auðbjarg- arstöðum í Kelduhverfi, f. 15.3. 1881, d. 3.10. 1969. Halldóra og Jóhann eiga tvö börn: 1) Margrét, f. 6.3. 1953, héldu utan til náms, hún á handavinnuskóla og hann í tannlækningar, bæði í Stokk- hólmi og Kaupmannahöfn. Á meðan Jóhann lauk námi sínu eftir að heim kom kenndi Hall- dóra handavinnu á ýmsum nám- skeiðum. Eftir að þau settust að á Akureyri unnu þau hlið við hlið á tannlæknastofunni allt þar til Jóhann hætti að vinna 1986. Starfsferli sínum lauk Halldóra svo í versluninni Am- aró á Akureyri. Halldóra hafði unun af útivist og ferðalögum og ferðuðust þau hjón um víða veröld. Þá fór hún í fjöldann allan af veiðiferðum með Jóhanni, en ekkert endi- lega til að veiða. Halldóra var mikil félags- málakona og var meðlimur í Inner Wheel, m.a. umdæm- isstjóri samtakanna um tíma. Þá var hún systir í Rb.st. nr. 2, Auði, og var heiðursfélagi stúk- unnar. Síðustu æviárin bjó Halldóra á dvalarheimilinu Hlíð á Ak- ureyri. Hún var óþreytandi að tala um hve mikil forréttindi það væru að dvelja á Hlíð og hversu vel væri hugsað um sig og hvað starfsfólkið væri ein- stakt í alla staði. Útför Halldóru verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, 18. apríl 2011, og hefst athöfnin kl. 10.30. gift Arnari Ein- arssyni f. 14.6. 1945, d. 21.7. 2009. Börn þeirra eru a) Jóhann Gunnar, f. 26.4. 1973, kvæntur Kristínu Ólafs- dóttur, f. 3.5. 1972, dætur þeirra eru Kristrún Dröfn, unnusti Tryggvi Lárusson, Katrín Ósk og Margrét Hörn. b) Erna Margrét, f .3.6. 1975, gift Ólafi Gylfasyni, f. 19.12. 1969, dætur þeirra eru Svanhildur Ýr, unnusti Ari Kristján Halldórsson, Arna María, Ásta Sonja og Elfa Mar- grét. c) Elísa Kristín, f. 16.11. 1984, unnusti Arnviður Ævarr Björnsson, f. 4.12. 1981. Dóttir þeirra er Erna Karen. 2) Ásgeir, f. 12.7. 1956, kvæntur Helgu Sigurðardóttur, f. 21.6. 1957. Börn þeirra eru a) Sæþór, f. 4.9. 1983. b) Íris Björk, f. 10.6. 1989, unnusti Jakob Valgarð Óð- insson, f. 17.2. 1988. c) Fannar Freyr, f. 19.1. 1994. Halldóra sleit barnsskónum á Þórshöfn, sem hún taldi einn dásamlegasta stað á Íslandi. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri ár- ið 1938. Að því loknu stundaði hún verslunarstörf á Akureyri og Þórshöfn, þar sem hún kynntist eiginmanni sínum. Þau Elsku mamma mín. Nú hefur þú kvatt þessa jörð eftir rúm 90 falleg og góð ár. Ég veit að þú yf- irgafst þennan heim glöð eftir við- burðaríka ævi. Þitt líf var ævintýri líkast því þú gerðir það að því sem það var. Þín afstaða til lífsins var einstök, þín gleði og þitt viðhorf var engu líkt. Í minningunni man ég aldrei eftir þér nema hlæjandi og brosandi jafnvel á erfiðum stundum. Það var alltaf mikið um að vera í kringum þig. Þið pabbi voruð einstaklega gestrisin og það skipti engu máli hversu margir voru í gistingu eða í mat heima hjá ykkur, þú tókst öllu svo vel með þínu einstaka brosi. Ég man þeg- ar ég var lítill og kom heim svolítið súr, þá tókst þú í hendurnar á mér og sagðir „nú skulum við dansa charleston“ og alltaf fór maður að hlæja og gleðin var komin aftur. Eftir að þú og pabbi fluttuð á dval- arheimilið Hlíð áttir þú stundum erfitt með að sætta þig við það og varðst leið. Þá beitti ég sömu brögðum og þú á mig í gamla daga og sagði: „Við tökum þessu vel og tökum sporið“ og rifjaði upp skemmtilegar minningar. Þá var eins og við manninn mælt að þú tókst gleði þína að nýju. Ég var ekki ættleiddur af ykk- ur fyrr en ég var 17 ára en hafði búið hjá ykkur frá unga aldri. Að hafa alist upp hjá ykkur voru for- réttindi og fyrir það er ég afskap- lega þakklátur og glaður. Þú kenndir mér svo margt á lífsleið- inni. Þeir einföldu hlutir svo sem heiðarleiki, vinnusemi og jákvætt viðhorf er einstaklega gott vega- nesti í dagsins önn. Þú vitnaðir sí- fellt í Stein Steinarr, sem þú þekktir frá námsárunum og kunn- ir megnið af hans ljóðum. Þau ljóð sem þú fórst með innihéldu lífs- gleði og hvatningu því það var þitt mottó í lífinu. Nóttina áður en þú kvaddir okkur las ég Stein Stein- arr fyrir þig. Ég sá það á svipnum og í augunum hvað þér fannst það gaman. Þú skynjaðir návist mína. Elsku mamma. Ég kveð þig með ljóði eftir Stein Steinarr: Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn rænir þig. En samt var nafn þitt nálægt mér og nóttin full af söngvaklið svo oft, og þetta auða svið bar ætíð svip af þér. Og þungur gnýr sem hrynji höf mitt hjarta lýstur enn eitt sinn: Mín hljóða sorg og hlátur þinn, sem hlutu sömu gröf. Ég vil nota tækifærið og þakka öllu starfsfólki á Hlíð fyrir fyrir alla þá hlýju og einstaku umönn- un sem þau veittu mömmu og pabba. Minning þín lifir og við söknum þín öll. Þinn sonur, Ásgeir. Elsku Halla amma mín. Mikið ótrúlega var ég heppin að fá að kynnast þér. Hjá þér var alltaf gestagangur og fjör enda einkenndi þig lífsgleði og kæti. Það lifnaði yfir þér þegar þú sagð- ir sögur frá gömlu góðu dögunum þegar þú ferðaðist þvers og kruss um heiminn. Ekki leiddist þér að krydda sögurnar örlítið, það er jú ekkert gaman að segja sömu sög- una nákvæmlega eins tvisvar sinnum. Ég er svo ánægð að hafa ákveðið að fara í Menntaskólann á Akureyri því það skildi eftir sig svo margar minningar sem tengdust þér. Í hugann kemur upp sólríkt sumar þegar ég vann fyrir norðan. Við hittumst gjarn- an eftir vinnu á sólpallinum þín- um, fengum okkur rauðvínsdreit- il, lásum Stein Steinar og flissuðum yfir furðulegum klæða- burði „gömlu kerlinganna“ á elli- heimilinu eins og þú kallaðir þær. Þú klikkaðir auðvitað ekki á klæðaburðinum, alltaf í nýjustu tísku með greiðsluna í lagi. Það eru sko ekki margar konur sem ganga á háum hælum á elliheim- ilinu, en þig munaði ekkert um að skella þér í hælana á morgnana og þramma í morgunmat. Mér er svo minnisstætt þegar ég var að fara á árshátíð í menntaskólanum eitt árið. Ég var í einhverjum vandræðum með klæðaburðinn og ákvað því að kíkja í heimsókn til þín. Þú varst auðvitað með ráð við því. Þú dressaðir mig upp í kjól sem þú hafðir átt í gamla daga og lést mig ganga fram og til baka á gang- inum á Ásveginum til að sjá hvernig hann færi mér. Kjóllinn smellpassaði og árshátíðinni var reddað. Þú færðir mér hann síðar að gjöf, sagðir alltaf að hann væri eins og sérsaumaður á mig. Mér þykir svo ótrúlega vænt um þenn- an gullfallega kjól að ég varla tími að nota hann. Mig langar mig að kveðja þig með uppáhaldsljóði okkar, sem við fórum alltaf með saman þegar ég kom í heimsókn. Elsku amma, ég á eftir að sakna stundanna með þér. Guð geymi þig. Það vex eitt blóm fyrir vestan, og vornóttin mild og góð kemur á ljósum klæðum og kveður því vögguljóð. Ég ann þessu eina blómi, sem aldrei ég fékk að sjá, og þangað horfir minn hugur í hljóðri og einmana þrá. Og því geng ég fár og fölur með framandi jörð við il. Það vex eitt blóm fyrir vestan og veit ekki, að ég er til (Steinn Steinarr) Íris Björk. Vaknaðu! sungu vængir dagsins inn í vökudraum minn, sjáðu! heimur þinn sem liðin veröld lét í hendur þér og líf þitt, sál þín skóp, er brot af mér, því ég er allt; í andartaki því sem er að líða fæðist þú á ný í nýjum heimi, gríptu mína gjöf með glöðum huga, ég á stutta töf; já vaktu! því að allt er aðeins nú og allt er hér, í mér; og ég er þú! (Snorri Hjartarson) Já, þetta er eitt af ljóðunum okkar ömmu, sem eru svo ótal- mörg. Þetta ljóð segir ótrúlega margt um lífsviðhorf ömmu, að grípa tækifærin þegar þau gefast, lífið er svo ótrúlega stutt, eins gott að njóta þess meðan maður getur. Það er svo ótalmargt sem ég á henni ömmu minni að þakka. Fyrst og fremst kannski þessa endalausu og skilyrðislausu ást og trú á því sem ég var að gera hverju sinni. Hún var ekkert venjuleg amma, hún amma mín. Í hennar huga átti allt að vera skemmtilegt, alltaf. Ævintýrin voru á hverju strái. Henni ömmu fannst ekkert athugavert við að ég, strákurinn, fengi að koma með í alla saum- klúbba með sér, síspyrjandi um allt og alla. Þolinmæðin endalaus og alltaf svaraði hún öllu sem ég spurði um, sem var ekkert lítið, með brosi á vör. Ekki síður var sjálfsagt að taka mig með í allar veiðiferðir, sem var ekkert endi- lega vinsælt hjá öllum sem í veiði- ferðina fóru. Óteljandi voru ferð- irnar í berjamóinn, heitt súkkulaði á brúsanum og smurt brauð í töskunni. Síðan var sultað og strákurinn fékk að sjálfsögðu að vera með. Alltaf var hún jafn- glöð þegar maður færði henni blómvönd, sem samanstóð af flestöllum blómunum úr verð- launagarðinum hennar. 10 slátur tekin á haustin, sníða vambir, sauma, skera mör og hræra blóð- ið, setja í súr og sjóða punga, allt- af fékk strákurinn að vera með. Laufabrauðsgerðin var sér kapít- uli út af fyrir sig, nánast trúar- brögð. Fljótur að setja saman deigið, skipta niður, setja í poka og fletja þunnt út, ekki gleyma að vanda sig við skurðinn, hafa feit- ina nógu heita og steikja passlega með bros á vör, að sjálfsögðu fékk strákurinn að vera með. Sögu- stundir um prakkarastrik systr- anna í Ingimarshúsi, sem voru ekkert svo fá, og Húsavíkursögur afa og systkina hans. Það var al- veg sama hversu oft maður heyrði þær sögur, það var alltaf jafn mikið hlegið, nú síðast í liðinni viku, þegar við amma töluðum um Kára í Hulduhól, hinn þunglynda og brjálaða drenginn sem sendur var suður með Esjunni. Ekki má gleyma ljóðunum. Hún amma kenndi mér svo mörg ljóð, sem ég kann enn í dag. Ég held að eina leiðin til að fá mig til að hætta að tala hafi verið að kenna mér ljóð. Mikið óskaplega er það góð leið! Allt er hægt að segja og jafnvel ekki segja með ljóðum. Það er mér svo dýrmætt að Kiddý og stelpurnar mínar hafi fengið að upplifa hana ömmu eins og ég upplifði hana, fulla af enda- lausri og skilyrðislausri ást og hvatningu í öllu sem þær tóku sér fyrir hendur. Þú sem ferð ferð aldrei allur Hverju sinni skilur þú eitthvað eftir x Hluta af þér – í mér (Sverrir Páll Erlendsson) Minning ömmu mun lifa áfram í mér og mínum. Elsku amma! Svo sannarlega er allt hér, í mér og ég er þú! Jóhann Gunnar. Jæja, þá er komið að kveðju- stund. Hún elsku Hall’amma er dáin. Mér finnst það mjög skrítin tilhugsun, ég hef aldrei hugsað út í það að þessi dagur myndi koma, amma Halla var einhvernveginn eilíf. Mér finnst ég lánsamasta manneskja í heimi að hafa átt hana sem ömmu, hún var svona amma sem maður les um í æv- intýrum. Lífsgleðin skein af henni og ég tala nú ekki um glæsileik- ann, alltaf með nýlagt hárið, augnskugga, varalit og auðvitað klædd eftir nýjustu tísku. Sem barn var ég mjög mikið hjá ömmu og afa og ég vissi fátt skemmtilegra en að fá að heim- sækja þau. Ófáar tískusýningar voru haldnar þar sem ég fór í flottu kjólana hennar ömmu sem voru geymdir í sérstökum kistli. Og nóg átti hún af skópörum til að máta við! Fyrir háttinn var alltaf sama rútína, við amma inni á baði að bera allskonar hreinsikrem á andlitið á okkur og síðan nætur- kremið. Hún kenndi mér nú það trix að ef maður myndi skjóta hökunni upp í loft og horfa upp og síðan strjúka 10 sinnum niður hálsinn þá myndi maður ekki fá undirhöku. Þetta fannst henni al- gjör snilld. Annað sem kemur strax upp í hugann eru bílferðirn- ar með ömmu. Hún var sennilega ekki besti ökumaðurinn í heimin- um en klárlega langskemmtileg- asti. Alltaf þegar við fórum í bíl- túr þá sungum við „hver stígur bensínið í botn á fyrsta gírnum, amma á mjólkurbílnum“ og þetta Halldóra Ingimarsdóttir SJÁ SÍÐU 22 veislur og afmælisdaga á hreinu og spurðir mig oft hvenær ég ætlaði að halda veislu og gefa barninu nafn sem ég eignaðist núna í febrúar og hvenær ég ætl- aði að halda upp á afmælið hans Sigurvins Ragnars. Ég er rosa- lega þakklát fyrir að þú gast fengið að sjá litla kútinn minn áður en þú kvaddir okkur. Ég verð ævilega þakklát fyrir þig og það sem þú hefur gert fyrir mig og fjölskylduna mína, kærleiks- ríkari konu en þig er ekki hægt að finna, þú varst alltaf með hjartað fullt af kærleik, opinn faðminn og tilbúin til að hjálpa öllum sem til þín leituðu. Þú sást alltaf ljósið í öllu og öllum og vildir öllum vel. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að hafa þig svona lengi í mínu lífi, ég veit að þú varst orð- in þreytt og þráðir hvíldina, að fá að verða 93 ára er bara æðislegt. Alltaf er jafn erfitt að kveðja þá sem maður elskar svona mikið eins og þig en nú ertu komin til Sófusar afa sem hefur örugglega tekið vel á móti þér með opnum örmum. Knúsaðu hann frá okk- ur, amma mín. Ég veit þið mun- uð halda áfram að fylgjast með okkur og vernda okkur. Þú átt stórt pláss í hjartanu mínu og mun ég aldrei gleyma þér, elsku amma mín. Með augun full af tárum og söknuð í hjarta kveð þig í bili. Lokið er kafla í lífsins miklu bók. Við lútum höfði í bæn á kveðjustund. Biðjum þann Guð, sem gaf þitt líf og tók græðandi hendi að milda sorgarstund. Ó, hve við eigum þér að þakka margt þegar við reikum liðins tíma slóð. Í samfylgd þinni allt var blítt og bjart blessuð hver minning, fögur, ljúf og góð. Okkur í hug er efst á hverri stund ást þín til hvers, sem lífsins anda dró hjálpsemi þín og falslaus fórnarlund. Friðarins Guð þig sveipi helgri ró. (Vigdís Runólfsdóttir.) Þitt barnabarn, Ágústa Kristín Jónsdóttir. Ég kveð nú elsku Settu ömmu mína en hún er nú komin í faðm Sófusar afa. Ég á margar fal- legar og skemmtilegar minning- ar um Settu ömmu, sem ég mun alltaf geyma í hjarta mínu. Setta amma spilaði stórt hlutverk í mínu lífi og var hún alltaf til staðar fyrir mig. Ég átti alltaf auðvelt með að tala við ömmu, bæði um það skemmtilega og eins ef mér leið illa. Í raun var hún ekki bara amma mín heldur einnig vinkona. Amma var ein- stök kona með frábæran húmor og er ég mjög þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman. Ég sakna hennar mjög sárt en ég trúi því að hún muni fylgja mér áfram og vernda. Nú stöðvar ekkert tregatárin, og tungu vart má hræra. Þakka þér amma, öll góðu árin, sem ótal minningar færa Já, vinskap þinn svo mikils ég met og minningar áfram lifa. Mót áföllum lífsins svo lítið get, en langar þó þetta að skrifa. Margt er í minninganna heimi, mun þar ljósið þitt skína. Englar hjá Guði þig geymi, ég geymi svo minningu þína. (Höf. ók.) Þín elskandi dótturdóttir Guðmunda Vilborg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.