Morgunblaðið - 18.04.2011, Side 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. APRÍL 2011
Sudoku
Frumstig
2 9 5
4 3 6
4 5
9 3 7 6 4
4 9
2 5 3
9 7 8
5 8 6 7
3
4 2 8
9 4 1 6
6 7
8 7
5 4 7
1 5 9
2 1 5
7 9 6 2
2 4
3 7 8
6
9 8 4 7
1 9 5
4 3
6 9 5
1 9 5 6 3
8 1
9 2 8 3 4 7 1 6 5
7 3 5 1 6 9 2 8 4
6 4 1 2 5 8 9 7 3
8 1 6 4 9 2 5 3 7
5 7 2 8 1 3 6 4 9
4 9 3 5 7 6 8 2 1
3 8 4 9 2 5 7 1 6
1 6 9 7 8 4 3 5 2
2 5 7 6 3 1 4 9 8
1 5 9 3 4 7 2 6 8
3 4 6 8 5 2 9 1 7
8 2 7 6 1 9 5 4 3
4 3 2 5 6 1 8 7 9
5 6 1 9 7 8 3 2 4
7 9 8 2 3 4 6 5 1
2 1 3 4 8 6 7 9 5
9 7 5 1 2 3 4 8 6
6 8 4 7 9 5 1 3 2
1 9 8 7 6 5 3 4 2
5 2 7 3 4 1 8 9 6
4 3 6 2 8 9 1 7 5
7 8 1 9 2 6 4 5 3
6 4 9 5 3 8 2 1 7
2 5 3 4 1 7 6 8 9
9 6 2 1 5 4 7 3 8
8 1 5 6 7 3 9 2 4
3 7 4 8 9 2 5 6 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 18. apríl, 108. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: En nú varir trú, von og
kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er
kærleikurinn mestur. (I. Kor. 13, 13.)
Vonandi er einhver útrásar-kraftur eftir hjá þjóðinni þó að
margt hafi farið úrskeiðis síðustu ár-
in. Þegar Víkverji staulast skjálfandi
í gegnum hríðina í Reykjavík, í
miðjum apríl, fær hann ýmsar hug-
myndir, sumar góðar, aðrar kannski
ekki eins góðar. Er ekki eðlilegt að
treysta betur tengslin við þjóðir sem
standa okkur nær en margar aðrar
þótt þær séu landfræðilega nokkuð
fjarlægar?
x x x
Víkverji dagsins er einn af þeimmörgu sem sáu húsnæðisskuld-
ina rjúka upp fyrir íbúðarverðið og á
því um sárt að binda. Tæknilega séð
á hann líklega minna en engan pen-
ing. Hann gæti því vel hugsað sér að
geta skroppið til hlýrra stranda í
skammdeginu, án þess að þurfa að
yfirgefa ríkið.
x x x
Tortólumenn búa í Karíbahafinu,þeir eiga nóg af sólskini og
notalegum baðströndum. Þeir hafa
árum saman átt mikil samskipti við
okkur, að vísu hafa fæstir þeirra haft
hugmynd um þetta og deila má um
það hversu farsæl samskiptin voru.
En þau eru söguleg staðreynd.
Víkverji vill hér með varpa fram
hugmyndinni um ríkjasamband Ís-
lands og Tortólu. Tvær litlar eyþjóð-
ir eru sterkari en ein. Þessi hret eru
óþolandi. Og hverju hefðum við að
tapa?
x x x
Nóg um það. Annars langar Vík-verja að óska hjónunum á Þor-
valdseyri til hamingju með nýju
Gestastofuna. Það er svo frábært að
sjá fólk grípa tækifærið til að snúa á
örlögin sem léku marga bændur
undir Eyjafjöllum svo hart í gosinu.
Þau Guðný og Ólafur áttuðu sig á
því að þetta varð að gera strax með-
an hamfarirnar voru enn í fersku
minni bæði okkar og erlendra ferða-
manna. Margir þeirra vilja örugg-
lega sjá með eigin augum staðina
sem voru á sjónvarpsskjám um allan
heim. Og fræðast.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 dyngja, 4 dæma, 7
steinn, 8 skrá, 9 pinni, 11
raddar, 13 dvöldust, 14 ævi-
skeiðið, 15 verkfæri, 17 dútl,
20 elska, 22 loðskinns, 23
ljúkum, 24 híma, 25 lengd-
areining.
Lóðrétt | 1 tryggingafé, 2
mjúkum, 3 svelgurinn, 4
spilltan félagsskap, 5 hrúg-
an, 6 bardaganum, 10 hak-
an, 12 urmul, 13 sár, 15 lág-
fótan, 16 skartgripir, 18
snérum, 19 myrkur, 20
kvenfugl, 21 klæðleysi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sjávardýr, 8 lækur, 9 kytra, 10 nýr, 11 turna, 13 af-
ræð, 15 spors, 18 klára, 21 kol, 22 fatta, 23 Óttar, 24 saka-
manns.
Lóðrétt: 2 jakar, 3 varna, 4 ríkra, 5 ýktur, 6 hlut, 7 gauð, 12
nær, 14 fól, 15 sófl, 16 ostra, 17 skaða, 18 klóra, 19 ástin, 20
aurs.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6
5. Be2 Rf6 6. Rc3 Dc7 7. 0-0 Rc6 8. Be3
Be7 9. f4 d6 10. Kh1 0-0 11. De1 Rxd4
12. Bxd4 b5 13. a3 Bb7 14. Dg3 Had8
15. Bd3 Hd7 16. Hf3 Re8 17. Dh3 g6
Staðan kom upp á Evrópumeist-
aramóti einstaklinga sem lauk fyrir
skömmu í Aix-les-Bains í Frakklandi.
Stórmeistarinn Sergey Fedorchuk
(2.677) hafði hvítt gegn Rúmenanum
Titus-Nad Petre (2.377). 18. Dxh7+!
og svartur gafst upp enda óverjandi
mát eftir 18. … Kxh7 19. Hh3+. Skák-
þing Íslands, landsliðsflokkur, fer fram
þessa dagana á Egilsstöðum. Nánari
upplýsingar um mótið er að finna á
www.skak.is.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Grandmaster.
Norður
♠D10
♥G743
♦K84
♣10864
Vestur Austur
♠KG9 ♠8542
♥KD98 ♥1052
♦D9 ♦Á10753
♣9732 ♣5
Suður
♠Á763
♥Á6
♦G62
♣ÁKDG
Suður spilar 3G.
Hollendingar æfa nú af kappi fyrir
HM, sem verður á heimavelli þeirra í
Veldhofen í haust. Nýlega spiluðu þeir
æfingaleik við sterka blöndu frá Ísrael
og Englandi. Jan Jansma var í bana-
stuði, einkum ef hann komst í þrjú
grönd. Minntu tilþrifin á Sigtrygg
„grandhog“ Sigurðsson í gamla daga,
þegar hann var að hogga til sín og rúlla
heim næfurþunnum grandgeimum.
A-V voru Bakhshi og Townsend. Sá
fyrrnefndi hafði doblað laufopnun
Jansma og fengið tígulsvar. Þess
vegna valdi hann fremur undarlegt út-
spil – ♦D. Jansma lagði kónginn á og
tók næsta slag strax á ♦G. Spilaði svo
spaða að blindum. Vestur drap og spil-
aði aftur spaða. Átta slagir mættir og
sá níundi kom á batta: Jansma tók lauf-
in og ♠Á, spilaði svo ♥Á og hjarta, sem
tryggði honum slag á ♥G í lokin.
18. apríl 1872
Jarðskjálftar ollu stórtjóni á
Húsavík. „Húsin léku til og
frá, teygðust sundur og sam-
an,“ segir í Annál nítjándu ald-
ar, og „varla gátu staðið á ber-
svæði nema styrkustu menn.“
Meira en hundrað manns urðu
húsnæðislausir. Stærstu
skjálftarnir voru 6-7 stig.
18. apríl 1903
Eldur kom upp í húsinu Glas-
gow, sem stóð milli Fischer-
sunds og Vesturgötu í Reykja-
vík, en það var stærsta hús
sem reist hafði verið á Íslandi.
Ekki varð við eldinn ráðið en
fólk bjargaðist með naum-
indum.
18. apríl 1935
Efnt var til „skíðaviku“ á Ísa-
firði í fyrsta sinn. Þátttak-
endur voru níutíu, flestir frá
Ísafirði. Skíðavikan hefur síð-
an verið árlega, um páskana.
18. apríl 1958
Volkswagen-bifreið var flutt
með flugvélinni Gljáfaxa frá
Reykjavík til Akureyrar.
„Þetta mun vera í fyrsta sinn
sem bíll er fluttur loftleiðis
hér innanlands,“ sagði Al-
þýðublaðið.
18. apríl 2007
Milljónatjón varð í stórbruna á
horni Lækjargötu og Austur-
strætis í Reykjavík. Rúmlega
200 ára gamalt hús gjör-
eyðilagðist og hús sem var
reist fyrir meira en 150 árum
stórskemmdist. „Mesti bruni í
miðbænum í fjörutíu ár,“
sagði Morgunblaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Helgi Jónas Guðfinnsson, einka- og körfuknatt-
leiksþjálfari fagnar 35 ára afmæli sínu í dag. Helgi
er þjálfari meistaraflokks Grindavíkur í körfu-
knattleik og einkaþjálfari í Orkubúinu-Heilsurækt
þar í bæ. Hann er einnig kennari við ÍAK einka-
þjálfaranám Keilis. Þá er ekki allt upp talið, því
Helgi heldur einnig úti vefnum styrktarthjalfun.is,
upplýsingavef um allt sem tengist styrktarþjálfun,
næringu og almennri heilsu. Helgi hefur þjálfað
fjöldra þekktra íþróttamanna, ekki bara úr körf-
unni, en á meðal þeirra eru Hlynur Bæringsson,
Einar Hólmgeirsson og Brenton Birmingham.
Helgi á sjálfur að baki glæsilegan körfuknattleiksferil, og á til að
mynda 63 A-landsleiki að baki. Ellefu ára gamall flutti hann frá Nes-
kaupstað til Grindavíkur. Hann lék lengi vel með liði Grindavíkur, en
gerðist atvinnumaður rúmlega tvítugur. Hann lék með liðum í Belgíu
og Hollandi og fagnaði meistaratitlum í báðum löndum. Þegar heim
var komið gekk hann aftur til liðs við Grindavík, sem hann þjálfar í
dag. Helgi segist ætla að halda afmælisdaginn hátíðlegan með fjöl-
skyldu sinni, en hann er kvæntur Arnfríði Krisinsdóttur og á tvö börn,
Arnór Tristan og Anítu Rut. einarorn@mbl.is
Helgi Jónas Guðfinnsson er 35 ára í dag
Fagnar með fjölskyldunni
Flóðogfjara
18. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.10 -0,1 6.12 4,1 12.26 -0,1 18.37 4,3 5.46 21.09
Ísafjörður 2.16 -0,2 8.06 2,2 14.32 -0,2 20.36 2,3 5.41 21.24
Siglufjörður 4.14 -0,1 10.35 1,3 16.42 -0,1 22.54 1,4 5.23 21.08
Djúpivogur 3.25 2,2 9.30 0,2 15.46 2,5 22.04 0,1 5.13 20.41
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er margt sem freistar í fjár-
málaheiminum og margt að varast. Fólk sem
hefur áhuga á þér getur líka hjálpað þér.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú hefur velt langtímamarkmiðum fyrir
þér og komist að niðurstöðu. Vertu eins og
franskur rennilás og losaðu þig annað veifið.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Til að forðast allan misskilning
skaltu samt ræða málið við viðkomandi að-
ila. Næsta mánuðinn munu samstarfsfélag-
arnir sýna þér venju fremur mikinn stuðning.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Eitthvað sem þú hefur reitt þig á frá
öðrum er skyndilega ekki í boði lengur. Fólk
sem á sér líf ætlast ekki til að þú sleppir öllu
til að falla því í geð.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert svo upptekinn af tæknilegum at-
riðum þess sem þú ert að bauka að þú verð-
ur að passa þig að missa ekki sjónar á stóru
myndinni. Skyndilega er heimilis- og fjár-
málavandinn á brott.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Rómantíkin nær sér á skrið, þó að þú
takir kannski varla eftir því. Eitthvað sem var
ófrágengið eða óútskýrt í síðasta mánuði er
nú alveg klippt og skorið.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er ekki nóg að geta sett mál sitt
fram með skemmtilegum hætti ef þú gætir
þess ekki að ræðan sé líka fræðandi. Leggðu
þitt af mörkum til að bæta heiminn.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er langur listi verka sem
þarf að sinna, og þú ert rétti maðurinn. Nú
er tækifærið að sýna hvað í þér býr. Hikaðu
ekki við að slá til, þú þarft ekki að vera of-
urhetja.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þig langar til að skipta sköpum í
lífi vina þinna, en sú löngun má ekki taka yfir
líf þitt. Krafturinn liggur í loftinu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er ágætt að staldra við, líta
yfir sviðið og reyna að gera sér grein fyrir
því, hvort málin þokast áfram eða ekki.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú átt eitthvað erfitt með að gera
upp hug þinn núna. Búðu þig undir að fyrr
eða síðar reyni á útsjónarsemi þína.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér finnst þú vera að drukkna í alls
kyns misvísandi upplýsingum. Ekki snið-
ganga þarfir þinna nánustu núna.
Stjörnuspá
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is