Morgunblaðið - 18.04.2011, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.04.2011, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. APRÍL 2011 Hjördís Stefánsdóttir hjordst@hi.is Á gullaldarárum Hollywood (1927-1960) höfðu flestar kvik- myndir karllega frásagnarfestu sem rofin var með nærmyndum af íðilfögrum konum. Ímynd konunnar birtist þá sem af- markaður og kynferðislegur við- burður sem var oft í litlu sam- hengi við atburðarásina. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síð- an og nú er svo komið að meðal vinsælustu hasarmyndahetjanna eru kraftmiklar konur sem tukta varmenni hressilega og bjarga gjarnan heiminum í leið- inni. Fyrir stuttu steig til dæm- is Beatrix Kiddo á svið og tryllti lýðinn með aðför sinni að fúl- menninu Bill. Þar áður lét Lara Croft til sín taka og englar Charlies komu, sáu og sigruðu. Hasarmyndakvenhetjan blómstrar hreinlega í Hollywood um þessar mundir en hún á rætur að rekja aftur til miðrar síðustu aldar. Tálkvendi í rökkurmyndum Þá fóru konur í fyrsta sinn að knýja atburðrás kvikmynda í rökkurmyndunum svokölluðu. Á stríðsárum héldu konur hjólum atvinnulífsins gangandi en að stríði loknu urðu margar þeirra frá að hverfa þegar heimkomnir hermenn mettuðu vinnumark- aðinn. Rökkurmyndir taka á þessum öru hlutverkaskiptum og tefla fram hinu ógurlega tálkvendi. Tálkvendið er sjálf- stæð kona sem með þokka sín- um dregur ólánsamar karlhetjur inn í heim morða og svika. Hún er dulúðleg og myndavélin fylgir hverri hreyfingu hennar. Það gerir einnig karlkyns áhorf- andinn sem er óbanginn því tálkvendinu var ávallt rutt úr vegi á endanum þannig að feðraveldið hélt velli. Fæðing hasarmynda- kvenhetjunnar Það má segja að fæðing hasarmyndakvenhetjunnar verði síðan á áttunda áratugnum í kjölfar vaxandi jafnréttisbar- áttu. Kvenhetjan er þá sköru- legri og heildstæðari persóna. Í sjónvarpsþáttum eins og Char- lie’s Angels og Wonder Woman er kvenhetja komin í stað karls- ins í miðju atburðarásarinnar þó formgerðin beri augljós merki þess óöryggis sem fylgdi breyt- ingunni. Englar Charlies voru í senn hetjur og fyrirsætur en umfram allt þjónuðu þær mið- lægri karlpersónu. Kynþokki þeira vegur upp á móti sterkri stöðu þeirra í frásögnunum. Þessir sjónvarpsþættir eru byggðir á myndasögum um leðurklæddar slagsmálastelpur. Af sama meiði úr heimi kvik- myndanna kemur Barbarella (1968) sem aftur varð svo fyr- irmynd að Red Sonja (1985) og Conan the Destroyer (1984). Á þessum tíma áttu austurlenskar bardagamyndir einnig miklum vinsældum að fagna, þar á með- al myndir með aðsópsmiklum kvenhetjum. Hollywood innlim- aði þessa hefð í sína framleiðslu og í byrjun tíunda áratugarins voru China O’Brien-myndirnar frumsýndar þar sem kvenhetjan er byssulaus lögreglustjóri, föð- urlaus dóttir og óttalaus kona. Andstæðingar hennar gerðu ráð fyrir að hún gæti ekki barist en annað kom á daginn. Ný kynslóð kvenhetja Síðan þá verður frásagn- arminnið um kvenhetjuna sem fet- ar í fótspor föður síns sífellt al- gengara. Oftast tengjast störf þeirra þá löggæslu og er Clarice Starling gott dæmi um slíka hetju. Í The Silence of the Lambs (1991) sjáum við þessa litlu nettu konu reyna að hasla sér völl innan karl- veldis FBI. Hún er notuð sem kynferðislegt agn á Hannibal Lec- ter í von um að hann hjálpi FBI við að handsama annan raðmorð- ingja. Þar sem henni er kerf- isbundið haldið utan rannsókn- arinnar sameinar hún krafta sína og Lecters og leysir málið á eigin vegum. Þannig hlýtur hún náð karlveldis FBI en kvenhetjur á borð við hana þurfa iðulega að berjast gegn kerfinu til að sanna sig, öðlast sjálfstæði og verða hluti af hópnum. Slíkt á sterklega við Ripley í Alien(s)-myndunum sem upp- haflega tilheyrir ekki hópnum og er auðsýnileg andstæða allra hinna kvenpersónanna. Ripley og Sarah Connor úr Terminator 2 (1991) eru enn fremur kyndilberar nýrrar kynslóðar kvenhetja, þær eru massaðar og búa yfir miklum karllegum styrk. Yfirleitt tengjast slíkar hetjur hermennsku af ein- hverju tagi. Með Alien komst kvenhetjan í stórmyndaframleiðslu Hollywood en femínistar afskrif- uðu hasarkvikmyndir níunda ára- tugarins sem karllegar og aft- urhvarf í sjálfstæðisbaráttunni. Kvikmyndin Thelma and Louise (1991) breytti viðhorfunum nokk- uð. Þær stöllur voru kvenlegar að hætti staðalímynda en mótlæti lífsins bugar þær og margir vilja því meina að boðskapur mynd- arinnar þjóni hugmyndaforræði feðraveldisins. Áfram hélt kvenhetjan þrauta- göngu sinni án teljandi vinsælda. Barb Wire (1996) fékk töluvert umtal enda kvenhetjan erótísk. Hún hefur það þó fram að færa að hún býður ekki aðeins upp á kynferðislegt gláp karlmanna heldur svarar í sömu mynt. Þrátt fyrir umtalið var aðsóknin vægast sagt dræm. Ekki áttu myndirnar The Long Kiss Goodnight (1996) og G.I. Jane (1997) heldur mikilli velgengni að fagna. Formúla kvenhetjumyndanna gekk ekki nægilega vel upp þannig að stór- jöfrar Hollywood héldu áfram að framleiða nær eingöngu myndir sem snerust um karlhetjur og rómantísk viðföng þeirra. Hasarmynda- kvenhetjan slær í gegn Síðustu árin hefur svo orðið bylting í þessum efnum og hasar- myndakvenhetjurnar hafa rutt sér til rúms. Myndirnar Charlie’s Angels (2000/2003), Kill Bill (2003/ 2004) og Salt (2010) höluðu allar inn yfir 100 milljónir dala í bíó- húsum og fóru þar með inn á vin- sældasvæði sem hörkutól eins og Schwarzenegger höfðu áður drottnað yfir. En fleira kemur til. Ímynd kvenhetjunnar hefur einnig verið endurbætt. Forsenda góðrar hasarræmu virðist því nú liggja í að kvenhetjan barmi sér aldrei, tali minna og standi vörð um dul- úð sína. Kvenhetjurnar myrða yf- irleitt ekki erkióvininn með köldu blóði heldur koma honum fyrir dóm með öðrum hætti. Subbulegt ofbeldi sem fyrirfannst í gömlu hasarmyndunum á ekki við í nýju myndunum, hárgreiðsla og farði hetjanna helst í skorðum sama hvað gengur á. Kill Bill er mik- ilvæg undantekning frá þessu og gæti verið vísir að því sem koma skal. Nútímakvenhetjurnar eru einn- ig geðfelldar. Þær leysa oft deilur án ofbeldis, á rökrænan hátt og sýna samúð og meðaumkun. Mis- kunnarlaus kvenhetja selur ekki eins og Geena Davis komst að í The Long Kiss Goodnight. Í byrj- unaratriðinu gerir hún nokkuð sem alls ekki samræmist hug- myndum um kvenlegt eðli er hún snýr dádýr úr hálsliðnum. Lykill- inn að velgengni virðist liggja í að kvenkyns áhorfendur geti sam- samað sig við hetjuna og að hún sé ekki svo ógnandi að karlmenn geti ekki litið hana girndaraugum. Söguleg þróun kvenhetjunnar í hasarmyndum Hollywood Liðug Fimir og liprir líkamar kvenhetja eins og Umu Thurman láta gamlar kempur og vöðvatröll á borð við Arnold Schwarzenegger líta út eins og þungalamalega og hægfara klumpa. Hér er Thurman á fullri ferð í mynd Quentin Tarantino, Kill Bill eða Bana Billa eins og hún var þýdd. Dýrsleg Dregið var úr ótta við hið annarlega með því að gera svartar kvenhetjur eins og Grace Jones í Conan the Destroyer dýrslegar.  Meðal vinsælustu hasarmyndahetja Hollywood í dag eru kraftmiklar konur sem tukta til varmenni  Lykillinn að velgengni kvenhetjunnar virðist m.a. liggja í að karlmenn geti litið hana girndaraugum Hanna, ný hasarmynd með kven- hetju, verður frumsýnd hér- lendis um páskana. Samnefnd aðalhetja (Saoirse Ronan) er táningsstúlka sem þjálfuð hefur verið af föður sínum (Eric Bana) til að verða hinn fullkomni laun- morðingi. Hún hefur lygilegan styrk, úthald og herkænsku en öll uppvaxtarár hennar fóru í stífa þjálfun á harðneskjulegum auðnum Finnlands. Hún er send út af örkinni til að drepa spillta bandaríska alríkislögreglukonu (Cate Blanchett) og klekkir á öll- um andstæðingum sem settir eru henni til höfuðs. Myndin ger- ir út á þá þróun síðustu ára að hafa erkióvin kvenhetjunnar harðsvíraða konu sem hægt er að sigrast á án þess að vekja geldingarótta meðal karlkyns áhorfenda. Hetjan er enn fremur barnung til að hnykkja á óflekk- aðri ímynd sakleysis og fölsku varnarleysi. NÝ ÞRÓUN Hanna Stilla úr kvikmyndinni. Ung og sak- laus kvenhetja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.