Morgunblaðið - 18.04.2011, Síða 32

Morgunblaðið - 18.04.2011, Síða 32
MÁNUDAGUR 18. APRÍL 108. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Lést í bílslysi 2. Ingólfur Margeirsson látinn 3. Kyssti keisaraynjuna á kinnina 4. Siglfirðingur fékk 61 milljón »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Á gullaldarárum Hollywood höfðu flestar kvikmyndir karllega frásagn- arfestu sem rofin var með nær- myndum af fögrum konum. Síðustu árin hefur orðið bylting í þessum efn- um og hasarmyndakvenhetjur rutt sér til rúms. »28 Þróun kvenhetjunnar í hasar Hollywood  Leikhópurinn Vesturport tók í gær við evrópsku leiklistarverðlaun- unum í Péturs- borg. Verðlaunin hlaut hópurinn fyrir frumleika, nýsköpun og framlag sitt til leiklistar í Evrópu. Hópurinn hefur sett upp Faust og Hamskiptin í borg- inni sl. daga fyrir fullu húsi leikhús- fólks, blaðamanna og gagnrýnenda. Vesturport tók við leiklistarverðlaunum  The Weird Girls Project ætlar að framkvæma næsta gjörning í maí og hafa stúlkurnar verið að afla fjár til þess að af honum megi verða. Hópurinn ætlar að nota trampólín í gjörningnum og óskar eftir að fá lánuð lítil trampól- ín. Þeir sem til- búnir eru til þess eru beðnir að hafa samband við kittyvonsometi- me@gmail.com Weird Girls Project leitar að trampólínum Á þriðjudag Vestan 8-13 m/s, en 15-20 við NA-ströndina í fyrstu. Bjartviðri A-lands, annars víða él. Hiti í kringum frostmark. Á miðvikudag SV 8-15 m/s. Rigning eða slydda. Hiti 2 til 10 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG S 10-15 m/s austan til, hægari vestlæg eða breytileg átt á V-landi. Rigning víða um land og slydda vestast. Hiti 1 til 10 stig, mildast A-lands. Vestan 10-15 í kvöld og él V-til. VEÐUR Rut Jónsdóttir braut blað í sögu íslensks handbolta á laugardaginn. Hún varð þá fyrsta íslenska handknatt- leikskonan sem tryggir sér rétt til að spila úrslitaleik í Evrópukeppni. Rut og sam- herjar hennar í danska lið- inu Team Tvis Holstebro fengu óvænt sæti í Evr- ópukeppni í haust og á laugardag unnu þær ævin- týralegan sigur á Lada frá Rússlandi. »1 Rut fyrst í úrslit í Evrópukeppni Liverpool kom erkifjendum sínum í Manchester United að góðu liði í bar- áttunni um enska meistaratitilinn í fótbolta í gær. Dirk Kuyt jafnaði fyrir Liverpool gegn Arsenal á síðustu sekúndu í 12 mínútna uppbótartíma og jók verulega möguleikana á að United yrði meistari í 19. sinn, einu sinni oftar en Liver- pool. »7 Liverpool aðstoðar erkifjendurna Eftir góðan árangur íslenska karla- landsliðsins í íshokkíi á öðru heims- meistaramótinu í röð er sorglegt að íshokkíáhugamenn á Íslandi skuli ekki fá tækifæri til að sjá með eigin augum hversu sterkt landslið þeirra er orðið, segir Kristján Jónsson í við- horfsgrein en hann fylgdist með mótinu sem lauk í Zagreb á laug- ardaginn. »8 Sorglegt að fá ekki að sjá landsliðið ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Um helgina fór fram þing ung- mennaráða sveitarfélaga í Iðnó í Reykjavík, Stjórnlög unga fólksins, en að því stóðu Barnahjálp Samein- uðu þjóðanna, UNICEF, umboðs- maður barna og Reykjavíkurborg. Markmiðið með þinginu var að rödd barna og ungmenna fengi að heyrast við endurskoðun stjórn- arskrárinnar. Á þinginu mótuðu fulltrúar ung- mennaráða 16 sveitarfélaga á land- inu tillögur og gáfu álit á ýmsum málum sem tengjast stjórnarskrá Íslands og verður skýrsla unnin úr niðurstöðum þingsins og afhent Al- þingi og stjórnlagaráði. Var m.a. gerð krafa um að stjórnarskráin væri læsileg, aðgengileg og á ein- földu og skýru máli og einnig að efni hennar yrði kynnt börnum og unglingum. Þátttakendur eða þing- menn voru 41, sá yngsti 13 ára. Fjármálafræði í grunnskólum „Mér fannst þetta ganga framar mínum björtustu vonum, alveg frá- bærlega,“ segir Vigdís Fríða Þor- valdsdóttir, fulltrúi ungmennaráðs sveitarfélagsins Árborgar, um þing- ið en hún er 15 ára. Hvað endur- skoðun stjórnarskrárinnar eða mögulegar breytingar á henni varð- ar nefnir Vigdís mikilvægi þess að kennd verði fjármálafræði í grunn- skólum. „Það er verið að kenna okkur eðl- isfræði og ýmislegt annað en okkur er ekki kennt að fara með peninga,“ segir Vigdís. Vigdís segist hafa orðið hissa þegar hún komst að því hversu stutt stjórnarskráin væri og segist hafa kynnt sér hana m.a. með því að horfa á myndbönd á vef Stjórnlaga unga fólksins. Óþarft ákvæði um þjóðkirkju Svanur Pálsson, 17 ára, sat einnig þingið sem fulltrúi ungmennaráðs Ísafjarðarbæjar. Svanur segir erfitt fyrir unga fólkið að lesa stjórnar- skrána, hana þurfi að umorða fyrir ungmenni landsins svo þau geti kynnt sér hana vel. „Þetta eru nátt- úrlega grunnlögin,“ bendir Svanur á. Hvað aðrar mögulegar breyt- ingar á stjórnarskránni varðar nefnir Svanur orðalag í mannrétt- indakafla skrárinnar, telur að það megi einfalda með því að segja stutt og laggott að allir séu jafnir fyrir lögum. Þá telur hann ákvæði um þjóðkirkju ekki eiga heima í skránni. Stjórnarskrá unga fólksins  Ungmenni hug- leiddu stjórnar- skrána í Iðnó Morgunblaðið/Golli Þing Fulltrúar ungmennaráða sveitarfélaga í Iðnó í fyrradag að velta fyrir sér endurskoðun stjórnarskrárinnar. „Við fáum Nýja testamentið að gjöf í barnaskóla, af hverju ekki stjórnarskrána?“ var ein þeirra hugmynda sem viðr- aðar voru á Stjórn- lögum unga fólksins. Einnig var krafa gerð um að stjórnarskráin væri læsileg, að- gengileg, á einföldu og skýru máli og að börnum og unglingum yrði kynnt efni hennar sérstaklega. Silja Bára Ómarsdóttir stjórnlaga- ráðsmaður var á þinginu. „Þarna kom ýmislegt áhugavert fram, til dæmis að forsetinn eigi að geta vísað málum aftur til þingsins. Þetta sýnir bara hvað unglingarnir eru frjóir og hafa margt til mál- anna að leggja,“ er haft eftir henni á vef Morgunblaðsins. Læsileg og aðgengileg UNGMENNIN UM STJÓRNARSKRÁNA Vigdís Fríða og Svanur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.