Morgunblaðið - 07.05.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.05.2011, Blaðsíða 1
gerir grillmat að hreinu lostæti! HANDHÆGARUMBÚÐIR E N N E M M / S ÍA / N M 46 40 7 50 METRA LANGUR REFILL SAUMAÐUR ÚT FYLGST MEÐ FLJÚGANDI GJÖRGÆSLU TAKMARKIÐ BARA EITT: AÐ GLEYMA SÉR SUNNUDAGSMOGGINN ANDANS BRÆÐUR 43VATNSDÆLA SAGA 23  Mánaðarlaun launþega sem nú eru undir 260 þúsund krónum á mánuði hækka hlutfallslega meira en laun þar yfir, samkvæmt ný- gerðum kjarasamningum. Þannig hækka 200 þúsund króna laun upp í 234 þúsund á tveimur árum sem svarar til 17% hækkunar. Öll laun umfram 260 þúsund króna hækka um 11,4%, eða um 34 til 70 þúsund á mánuði, miðað við 300 til 600 þúsund króna mán- aðarlaun í dag. Vegna lágmarks dagvinnu- launatryggingar hækka lægstu laun mest. Lágmarkslaun fara í 204 þúsund sem er 24% meira en nú. »6 Laun undir 260 þús- und kr. hækka meira Fasteignalán » Arion banki býður nú hag- stæðari lánakjör á fast- eignalánum en tíðkast hefur á síðustu árum. Hins vegar er krafist 40% eiginfjárframlags frá kaupendum fasteigna. » Hinir bankarnir gera svip- aðar kröfur um eiginfjár- framlag. Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Bankar krefjast þess nú að fast- eignakaupendur leggi fram meira eigið fé en áður við fasteignakaup og algengt er að bankar bjóði upp á 60-70% lánsfjármögnun við fast- eignakaup. Þetta gerir fyrstu kaup- endum fasteigna erfiðara fyrir að komast á markaðinn. Arion banki kynnti í gær nýja kosti í fasteignalánum. Býður bankinn upp á 4,3% verðtryggða vexti á fasteignalánum, með 60% veðhlutfalli. Eru þetta lægri vextir en Íbúðalánasjóður býður á sínum lánum, en þeir eru 4,4 til 4,9% verðtryggðir vextir, allt eftir því hvort uppgreiðsluákvæði er fyrir hendi. Árið 2004 hófst hörð sam- keppni milli banka og Íbúðalána- sjóðs á fasteignalánamarkaði. Stað- an nú er ekki sambærileg að því leytinu að mun hærra eiginfjár- framlags er krafist frá kaupendum en áður. Ásgeir Jónsson, lektor í hag- fræði, telur að í raun sé um nokk- urt afturhvarf til fortíðar að ræða í þessum efnum. Frá árinu 2004 hafi bankar í auknum mæli litið til framtíðargreiðsluflæðis lántakenda. Því gæti ungt fólk þurft að leigja lengur en ella undir núverandi kringumstæðum. Sigurður Erlings- son, framkvæmdastjóri Íbúðalána- sjóðs, fagnar aukinni samkeppni. „Þeir sem þurfa að fjármagna hærra hlutfall kaupverðs, til dæmis 70% veðhlutfall eða hærra, fá hag- stæðari vaxtakjör hjá okkur,“ segir hann. MSamkeppni í fasteignalánum »24 Erfiðara að kaupa fasteign  Bankar krefjast aukins eiginfjárframlags þegar lán eru veitt til fasteignakaupa  Mun líklega gera fyrstu kaupendum erfiðara að komast inn á markaðinn Morgunblaðið/Jakob Fannar Taldir Fyrir dyrum stendur fyrsta manntal á Íslandi síðan árið 1981. Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Undirbúningur hefur staðið yfir á vegum Hagstofu Íslands síðan árið 2007 að fyrsta allsherjarmanntali hér á landi í tvo áratugi. Síðast var slíkt manntal framkvæmt árið 1981 en niðurstöðurnar voru þó aldrei birtar opinberlega þar sem þær þóttu gallaðar. Ekki er gert ráð fyrir að gengið verði í hús að þessu sinni líkt og áður heldur lögð áhersla á samkeyrslu rafrænna gagna sem ekki hefur ver- ið mögulegt áður. Anna Margrét Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Hagstofunni, leggur þó áherslu á að ekki sé um að ræða neinar viðkvæm- ar upplýsingar. Upplýsingar sem vantar Markmiðið er ekki síst að afla upp- lýsinga sem ekki liggja fyrir í dag. „Það er ýmislegt sem við ekki vitum. Það er til dæmis eins og fjöldi heim- ila. Við vitum ekki hvað eru mörg heimili í landinu og við vitum heldur ekki hvernig fjölskyldurnar eru sam- ansettar,“ segir Anna Margrét. Íslendingar taldir rafrænt  Unnið að fyrsta allsherjarmanntali á Íslandi síðan 1981 Meðlimir kvenhjólaklúbbsins Skutlnanna voru meðal þeirra sem komu saman á Ingólfstorgi í gærkvöldi í tilefni af alþjóðlegum mótorhjóla- degi kvenna. Þetta er fimmta árið í röð sem dag- urinn er haldinn hátíðlegur og er tilgangurinn að vekja athygli á því að mótorsport er ekki ein- göngu bundið við karlmenn og að kvenmönnum á mótorhjólum hafi fjölgað mikið á undanförnum árum. Skutlur á mótorhjólum skemmtu sér saman Morgunblaðið/Árni Sæberg  Án flugvall- arins í Vatns- mýri lengist flutningstími sjúklinga í sjúkraflugi um að minnsta kosti 45 mínútur við bestu aðstæður, að sögn Þorkels Ásgeirs Jóhanns- sonar, flugstjóra hjá Mýflugi. „Það er alls ekki boð- legt því með slíkri seinkun minnka batahorfur fólks verulega,“ segir Þorkell. Það sé fáfræði að halda öðru fram en mikilvægi flugvall- arins. Fjallað er um málið í Sunnu- dagsmogganum. Mannfórnir færðar ef flugvöllurinn fer Þorkell Ásgeir Jóhannsson  Á ársfundi Veiðimálastofnunar í gær spáði Guðni Guðbergsson fiski- fræðingur því að fiskigengd og lax- veiði kæmi til með að vera áfram góð og yfir meðaltali í ám með nátt- úrulega laxastofna. Guðni kynnti einnig tölur úr lax- veiðinni í fyrrasumar en þá veidd- ust 74.419 laxar og var það næst- besta laxveiðisumarið frá upphafi. Ef hafbeitarveiðin er undanskilin hefur aldrei veiðst meira af laxi úr náttúrulegum stofnum, 56.847 fisk- ar. 28,8% laxa var sleppt aftur. »20 Spáð er laxveiði yfir meðaltali í sumar  Stofnað 1913  106. tölublað  99. árgangur  L A U G A R D A G U R 7. M A Í 2 0 1 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.