Morgunblaðið - 07.05.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Önundur Páll Ragnarsson
Rúnar Pálmason
Væn peningasumma dúkkaði upp á
bankareikningum þúsunda Íslend-
inga um mánaðamótin, mörgum að
óvörum. Þar var á ferðinni hin sér-
staka vaxtaniðurgreiðsla ríkisins, til
stuðnings skuldurum íbúðalána,
sem stjórnvöld ákváðu um síðustu
áramót að reiða af hendi.
Alls fengu vaxtaniðurgreiðslu
96.653 manns sem búa á 62.000
heimilum. Það var því tæpur þriðj-
ungur þjóðarinnar sem fékk glaðn-
ing.
Von er á annarri greiðslu 1. ágúst
næstkomandi, en greiðslan fyrsta
þessa mánaðar var fyrirfram-
greiðsla byggð á skattframtali síð-
asta árs. Kostnaður ríkissjóðs við
fyrri greiðsluna
nam ríflega 2.957
milljónum króna
og áætlar Skúli
Eggert Þórðar-
son ríkiskatt-
stjóri, í samtali
við Morgunblað-
ið, að kostnaður-
inn við greiðsluna
í ágúst verði svip-
aður og við þessa.
Skerðist með hreinni eign
Ekki fengu allir þessa aðstoð,
enda bundin vissum skilyrðum og
aðstoðin tengd þeirri upphæð sem
fólk skuldar. Niðurgreiðslan er hins
vegar ekki tekjutengd og er því ljóst
að margir sem skulda mikið en hafa
jafnframt nógu háar tekjur til að
ráða við skuldbindingar sínar fengu
talsverða niðurgreiðslu.
Ein veigamikil ástæða fyrir því að
sumir fengu greiðslu en aðrir ekki
er að hún skerðist eftir því sem
hrein eign fólks í íbúðum sínum er
meiri. Á vef ríkisskattstjóra kemur
fram að skerðing hjá einstaklingi
byrjar við tíu milljóna króna eign í
íbúðinni umfram skuldir og fellur al-
veg niður þegar hin hreina eign nær
tuttugu milljónum. Skerðing hjá
hjónum, sambúðarfólki og einstæð-
um foreldrum byrjar við fimmtán
milljóna króna nettóeign og fellur
niður þegar eignin nær þrjátíu millj-
ónum.
Mest 300.000 krónur
Greiðslan er 0,6% af skuldum
vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota
eins og þær stóðu í árslok 2010 og
2011 samkvæmt skattframtölum
2011 og 2012.
Hún verður að hámarki 200.000
krónur hjá einhleypingi og 300.000
krónur hjá hjónum, sambúðarfólki
og einstæðum foreldrum.
Ef fólk borgar skatta erlendis
hluta úr árinu miðast hámarksupp-
hæðin sem það getur fengið við það
hlutfall ársins sem það borgar
skatta hér á landi.
Þar að auki getur niðurgreiðslan,
að viðbættum hefðbundnum vaxta-
bótum, ekki orðið hærri en vaxta-
gjöld viðmiðunarársins vegna kaupa
eða byggingar á íbúðarhúsnæði til
eigin nota. Fólk á með öðrum orðum
ekki að geta komið út í hreinum
gróða, hvað vexti varðar, vegna
þessarar ráðstöfunar.
Þrír milljarðar til skuldara
96.653 manns með sérstaka vaxtaniðurgreiðslu, en önnur greiðsla berst í ágúst
Ekki tekjutengt en skerðist eftir því sem hrein eign fólks í húsnæði er meiri
Skúli Eggert
Þórðarson
Vorið minnti loksins á sig í vikunni og nýttu
margir tækifærið og tóku út hjólfáka sína eftir
vetrarlanga geymslu. Að venju taka fjölmargir
þátt í átakinu Hjólað í vinnuna – sem hófst ein-
mitt í vikunni – en líkt og þessar tvær ungu kon-
ur eru aðrir sem aðeins njóta útivistarinnar í
góða veðrinu. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands
rignir á höfuðborgarsvæðinu í dag en á sunnu-
dag brestur á með sól og vænum hita.
Morgunblaðið/Golli
Þeystust á hjólfákum
fráum um Laugardal
Alls bárust auglýsingastofunni Pipar/TBWA 1.017 um-
sóknir þegar hún auglýsti eftir markaðsfulltrúa í sér-
deild samfélagsvefja í byrjun apríl. Valgeir Magnússon,
framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar, segist hafa það
á tilfinningunni að einhverjir hafi sent inn umsóknir með
hálfum hug en greinilegt sé að gríðarlegur áhugi hafi
verið á starfinu.
„Ég byrjaði á að sigta þá út sem uppfylltu ekki þau
skilyrði sem sett voru fram í auglýsingunni eða skiluðu
ekki þeim upplýsingum sem farið var fram á,“ segir Val-
geir, hæfir umsækjendur hafi verið 178. Hann sat að lok-
um uppi með umsóknir 15 einstaklinga sem hann vildi
alla ráða.
„Þetta varð gríðarlega erfitt þegar ég var kominn nið-
ur í 8 og upprunalega ætlaði ég að ráða einn eða tvo en
endaði á því að ráða fjóra,“ segir hann, „ég fékk bara
þarna svo svakalega öflugt fólk“.
Réðu starfsfólk í hruninu
Starfið eftirsóknarverða fólst í því
að vinna innan deildar sem að sögn
Valgeirs sérhæfir sig í öllu sem teng-
ist samfélagsvefjum og snjallsímum
og markaðssetningu vara í gegnum
þessa miðla. Fólkið sem á endanum
hlaut störfin var tækni-, viðskipta-, og
sálfræðimenntað.
„Það er ofsalega mikið af hæfu fólki
sem er ungt og vill gera nýja hluti,“
segir Valgeir. Hann segir auglýsingastofuna hafa verið í
örum vexti þrátt fyrir efnahagsaðstæður í landinu. „Við
erum búin að stækka alveg síðan í október 2008 og vor-
um að ráða starfsfólk í janúar 2009,“ segir hann.
holmfridur@mbl.is
Bárust 1.017 umsóknir
um starf á auglýsingastofu
„Mikið af hæfu fólki sem er ungt og vill gera nýja hluti“
Valgeir
Magnússon
Heimsmark-
aðsverð á olíu
hækkaði um 1,2-
1,8 prósent í
gær, en það hafði
lækkað mjög
mikið dagana á
undan. Íslensk
olíufyrirtæki
hafa lækkað verð
á bensíni og dísilolíu um nokkrar
krónur í vikunni, og kostar bens-
ínlítrinn nú um 239 krónur og lítri
af dísilolíu um 235 krónur.
Samúel Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri vörustýringarsviðs
Olís, segir að fyrirtækið hafi þegar
hafið lækkunarferli á eldsneyt-
isverði, en fleira spili inn í verð-
lagninguna en aðeins hráolíuverð
ytra.
„Í fyrsta lagi seljum við ekki hrá-
olíu, þannig að fara verður varlega í
að draga ályktanir um bensínverð
af hreyfingum á hráolíumarkaði. Þá
er helmingur af bensínverði skattar
frá ríkinu, sem við höfum enga
stjórn á. Annar kostnaðarliður er
innlendur kostnaður, en verðbreyt-
ing á heimsmarkaði breytir honum
ekki. Að lokum verður að benda á
að Bandaríkjadalur hefur styrkst
gagnvart krónu undanfarna daga,
þannig að lækkunin erlendis er
ekki jafnmikil í krónum talið.“
Lækkunar-
ferli hafið
Karlmaður á fimmtugsaldri var í
fyrradag úrskurðaður í fjögurra
vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi
Reykjaness, en hann er grunaður
um að hafa árum saman beitt pilt,
sem nú er 14 ára, kynferðislegu of-
beldi. Fjölskyldutengsl eru á milli
mannsins og drengsins.
Maðurinn var handtekinn í kjölfar
ábendinga frá barnaverndaryf-
irvöldum. Húsleit var gerð hjá hon-
um og lagt hald á tölvubúnað og
-gögn, en grunur leikur á að þar sé
að finna myndir sem sýna barnaníð.
„Rannsóknin er á frumstigi og við
ekki byrjuð að skoða þessi gögn, það
tekur langan tíma,“ segir Björgvin
Björgvinsson, yfirmaður kynferð-
isbrotadeildar Lögreglu höfuðborg-
arsvæðisins. „Það liggur því ekki
fyrir hvort þetta efni tengist við-
komandi barni.“
Að sögn Björgvins hefur mað-
urinn áður komið við sögu lögreglu
vegna vörslu barnakláms og var
hann dæmdur til refsingar fyrir um
tveimur árum. annalilja@mbl.is
Grunaður
um kyn-
ferðisofbeldi