Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Ef þessar tekjuforsendur standast
og það verður tekjuaukning [í sam-
félaginu] þá verður tekjuaukning hjá
sveitarfélögunum og þá hafa þau eitt-
hvert svigrúm. Ekki kannski sama
svigrúm og almenni markaðurinn tel-
ur sig hafa. En ef það verður ekki
tekjuaukning þá er svigrúmið ekk-
ert,“ segir Halldór Halldórsson, for-
maður Sambands íslenskra sveitarfé-
laga.
Kjarasamningar á milli sveitarfé-
laganna og viðsemjenda þeirra hefjast
á næstunni og er gert ráð fyrir að þar
verði tekið mið af nýgerðum kjara-
samningum á al-
mennum markaði
sem undirritaðir
voru fyrr í vik-
unni. Halldór seg-
ir sveitarfélögin
einfaldlega enn
vera í þeirri stöðu
að þurfa að gera
allt til þess að ná
niður rekstrar-
kostnaði. Það yrði
því að koma fjármagn á móti ef þau
ættu að taka á sig auknar skuldbind-
ingar vegna launakostnaðar.
„Það kom mér á óvart hversu bjart-
sýnir þeir eru með tekjumyndunina í
þessum samningum á almennum
markaði. Ég vona að þetta sé raun-
hæft en óttast að það sé það ekki. Það
vilja allir hækka laun og auka kaup-
mátt. En það verður aðeins gert með
því að auka tekjur í samfélaginu.
Þetta er einfaldlega staðan eins og
hún blasir við okkur í dag,“ segir Hall-
dór.
Fjárfestingar ekki hindraðar
Halldór segir að það verði hrein-
lega allt að ganga upp í efnahagslífinu
til þess að forsendur kjarasamning-
anna standist. „Það þýðir meðal ann-
ars að menn geri sér grein fyrir því að
það gangi ekki að vera að standa í vegi
fyrir fjárfestingum og fram-
kvæmdum.“
„Það verður allt að ganga
upp í efnahagslífinu“
Svigrúm sveitarfélaganna háð því að tekjuaukning verði
Halldór
Halldórsson
júní, 50 þúsund krónur fyrir fullt
starf. Síðan verður 10 þúsund króna
álag á orlofsuppbót og 15 þúsund
króna viðbót við desemberuppbót.
Úrslit 25. maí
Samningarnir verða kynntir fé-
lagsmönnum í félögum launþega og
vinnuveitenda næstu daga. Þá verð-
ur efnt til almennrar atkvæða-
greiðslu. Niðurstöður beggja aðila
eiga að liggja fyrir miðvikudaginn
25. maí, klukkan 16.
Hjá aðildarsamböndum og fé-
lögum ASÍ verður almennt efnt til
póstatkvæðagreiðslu um samn-
ingana. Hefst hún í næstu viku. Ein-
hver sambönd munu þó verða með
rafræna kosningu.
Bætt framkvæmd útboða
Í samningum ASÍ og SA er skerpt
á ýmsum réttindamálum. Meðal ann-
ars er sérstök yfirlýsing um fram-
kvæmd útboðsmála. „Miklu skiptir
fyrir íslenskt efnahagslíf að atvinnu-
lífið og vinnumarkaður starfi eftir
skýrum og gegnsæjum lögum og
reglum og tryggi eðlilega og heil-
brigða samkeppni. Útboð verklegra
framkvæmda er mikilvægur þáttur í
atvinnustarfsemi. Því skiptir miklu
að útboðslýsingar vegna verklegra
framkvæmda, mat á hæfi bjóðenda,
val á tilboði og ákvæði um skil á
greiðslum til allra þeirra sem vinna
tilboðsverk séu betur undirbúnar og
settar fram með ákveðnari hætti en
nú er raunin,“ segir í inngangi henn-
ar. Vísað er til ákvæða um þetta í
yfirlýsingu sem ríkisstjórnin gaf út í
tengslum við gerð kjarasamninga.
Þá komu SA og ASÍ sér saman um
samræmt mat verkkaupa á hæfi
bjóðenda í útboðum. Áhersla er lögð
á að matið taki bæði til opinbera og
almenna markaðarins og nái jafnt til
aðal- og undirverktaka. Við mat á
bjóðendum verði meginreglan að
starfsmenn séu í föstu ráðningar-
sambandi.
„Við teljum að með þessu sé verið
að styrkja stöðu verktakaiðnaðar í
landinu, reynt að koma því fyrir að
keppt verði á jafnréttisgrundvelli,
bæði launafólk og fyrirtæki,“ segir
Finnbjörn A. Hermannsson, formað-
ur Samiðnar. Hann segir að ákvæði
um gerviverktöku eigi að styrkja
fyrirtæki sem eru með fastan starfs-
mannakjarna í samkeppninni við
fyrirtæki sem kalla menn tímabund-
ið inn til verka til að losa sig undan
samningsbundnum réttindum
starfsfólks. Enginn geti keppt við
fyrirtæki sem ætli sér ekki að standa
við tilboð sem það gerir.
Mánaðarlaun hækka um 30 til 70
þúsund krónur á tveimur árum
Laun undir 260 þúsund krónum hækka mest Sammála um að bæta framkvæmd útboða
Hækkun launa
Maí 2011 Júní 2011 Feb. 2012 Feb. 2013 kr. %
600.000 626.000 647.000 668.000 68.000 11%
500.000 521.000 539.000 557.000 57.000 11%
400.000 417.000 432.000 446.000 46.000 11%
300.000 313.000 324.000 334.000 34.000 11%
200.000 212.000 223.000 234.000 34.000 17%
165.000 182.000 193.000 204.000 39.000 24%
Mánaðarlaun Hækkun á mánuði
1. júní
50.000 kr.
Álag á orlofsuppbót
10.000 kr.
Álag á des.uppbót
15.000 kr.
Aukagreiðslur 2011
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Fundað Samninganefndir Verkalýðsfélags Akraness og nágrennis og Framsýnar í Þingeyjarsýslum funduðu með
vinnuveitendum hjá Ríkissáttasemjara í gær. Aðalsteinn Árni Baldursson er oddviti samninganefndar Þingeyinga.
Opinberar framkvæmdir
Samkvæmt yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar munu stjórnvöld
auka opinberar fjárfestingar í
tengslum við nýgerða kjara-
samninga á samningstím-
anum. Ljóst er að flest þessara
verkefna eru ekki ný af nálinni
og mörg eru almennt orðuð og
ekki ljóst nákvæmlega hvaða
framkvæmdir um sé að ræða.
Helstu verkefni sem til stendur
að fara í eru samkvæmt yfir-
lýsingunni:
» Framkvæmdir vegna bygg-
ingar nýs Landspítala fyrir 3,1
milljarð króna á þessu ári og
næsta.
» Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdir vegna Vaðlaheiða-
ganga hefjist næsta haust og
að kostnaður vegna þeirra
verði 10 milljarðar króna á
næstu þremur árum.
» Fjárfesting í nýjum hjúkr-
unarheimilum er áætluð um 5
milljarðar króna á tímabilinu.
» Fyrirhuguð eru útboð nýs
fangelsis og framhaldsskóla
(nýbyggingar fyrir Framhalds-
skóla Mosfellsbæjar) á næst-
unni.
» Gert er ráð fyrir að átak
verði gert í opinberum við-
haldsframkvæmdum.
» Ráðist verði í auknar fram-
kvæmdir á vegum Ofanflóða-
sjóðs á þessu ári og því næsta.
» Fjármagn verður veitt úr
ríkissjóði til þess að gera úr-
bætur á fjölsóttum ferða-
mannastöðum á landinu.
» Nýlega var ákveðið að leggja
aukið fé til vegaframkvæmda á
Vestfjörðum.
Fram kemur í yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar að umræddar
framkvæmdir feli í sér aukn-
ingu um ríflega 13 milljarða
króna úr ríkissjóði fram til árs-
loka 2012. Þá kemur fram að
unnið hafi verið að því að skil-
greina hvaða öðrum fram-
kvæmdum stjórnvöld geti
greitt fyrir. hjorturjg@mbl.is
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mánaðarlaun launþega með 400 þús-
und króna laun verða 46 þúsund
krónum hærri eftir tæp tvö ár, verði
kjarasamningar ASÍ og SA sam-
þykktir. Laun undir 260 þúsund
hækka hlutfallslega meira og lægstu
dagvinnulaun mest. Samningarnir
eru ekki verðtryggðir þannig að
kaupmáttaraukning er ekki tilsvar-
andi.
Launin hækka 1. júní næstkom-
andi, 1. febrúar á næsta ári og 1.
febrúar 2013. Hækkanirnar koma
því á tæpum tveimur árum þótt
samningarnir gildi til nærri þriggja
ára, eða til janúarloka 2014.
Miðað við 2,5% verðbólgu
Á þessum tíma er 11,4% almenn
launahækkun, sem allir launamenn
fá sem aðild eiga að samningunum.
Heildarlaunakostnaður atvinnulífs-
ins í heild er meiri, eða um 13%,
vegna þess að meiri hækkun kemur
á lægstu laun.
Launin hækka ýmist hlutfallslega
eða með fastri krónutölu. Gildir sú
hækkun sem gefur launamanninum
meira í aðra hönd.
Það þýðir að laun sem eru umfram
260 þúsund krónur á mánuði hækka
um rúm 11% en laun sem eru lægri
hækka meira. Í þessu felst viss
launajöfnun. Til dæmis fá menn sem
hafa nú 200 þúsund krónur á mánuði
og 300 þúsund sömu krónutölu í
hækkun á samningstímanum, 34
þúsund krónur á mánuði. Hækkunin
hjá 200 þúsund króna manninum er
þó um 17%.
Lægstu dagvinnulaunin eru
hækkuð sérstaklega með lágmarks-
tekjutryggingu. Það skilar þeim sem
nú eru með 165 þúsund og ekkert
annað 39 þúsund krónum meira í
launaumslagið á mánuði en það sam-
svarar tæplega 24% hækkun.
Kjarasamningarnir eru ekki verð-
tryggðir. Sú verðbólga sem verður á
samningstímanum mun því draga úr
kaupmáttaraukningu samninganna.
Í forsendum þeirra er miðað við að
verðbólga verði ekki meiri en 2,5% á
ári. Hægt er að endurskoða samn-
ingana ef forsendur standast ekki.
ASÍ og SA sömdu um sérstakar
uppbætur, samtals 75 þúsund krón-
ur, vegna þess tíma sem liðinn er frá
því fyrri samningur gekk úr gildi.
Greiðslurnar eru bundnar við árið
2011. Fyrsta greiðslan á að koma 1.
Nokkur félög á almennum
vinnumarkaði hafa ekki lokið
gerð kjarasamninga við vinnu-
veitendur. Mörg þeirra eru að
funda um þessar mundir. Meðal
þeirra eru Framsýn í Þingeyjar-
sýslum og Verkalýðsfélag Akra-
ness og nágrennis.
Þá eru flest félög starfs-
manna ríkis og sveitarfélaga
með lausa samninga og hafa
verið um hríð. Fæst þeirra hafa
vísað kjaradeilum sínum til
ríkis0sáttasemjara.
Fjöldi sáttafunda er bókaður
hjá ríkissáttasemjara í næstu
viku.
Áfram fundað
OPINBERI GEIRINN ER EFTIR