Morgunblaðið - 07.05.2011, Síða 8

Morgunblaðið - 07.05.2011, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011 ÞRÝSTIJÖFNUNAR HEILSUDÝNUR OG HEILSUKODDAR Stillanlegt og þægilegt Stillanlegir dagar í maí. 6 mánaða vaxtalausar greiðslur!         0% vextir 30% afsláttur Hér var í vikunni vitnað í skrifJóns Magnússonar, fyrrum alþingismanns, sem benti á að í Seðlabankanum væri farið yfir öll kreditkortaviðskipti Íslendinga er- lendis.    Mörgum blöskr-aði, þar með talið þingmanninum Guðlaugi Þór Þórð- arsyni, sem spurði Árna Pál Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra út í þetta nákvæma eftirlit.    Guðlaugur Þór sagði lýsingarnará eftirlitinu hljóma eins og lýs- ing á STASI í Austur-Þýskalandi, en Árni Páll lét það ekki slá sig út af laginu og varði af kappi lestur ríkisins á kreditkortareikningum landsmanna.    Árni Páll sagði að jafn víðtækgjaldeyrishöft og hér væru í gildi stæðust ekki nema með þeim væri haft eftirlit.    Það er líka ljóst að undanskots-hættan er umtalsverð jafnvel í litlum fjárhæðum og skapast þá veruleg hætta á að menn brjóti stærri fjárhæðir niður í smáar og komist þannig framhjá gjaldeyr- ishöftunum,“ sagði Árni Páll.    Að mati hins frjálslynda ráð-herra er sem sagt „veruleg hætta“ á því ef einhver Íslendingur hefur pantað sér bók af Amazon- .com fyrir 20 dali að hann sé að „brjóta stærri fjárhæðir niður“ til að fara framhjá höftunum.    Fyrrum félagar Árna Páls íAustur-Þýskalandi höfðu líka sínar röksemdir fyrir því að fylgj- ast með almenningi. Gott ef þær voru ekki ámóta frambærilegar. Árni Páll Árnason Eftirlitið varið blygðunarlaust STAKSTEINAR Veður víða um heim 6.5., kl. 18.00 Reykjavík 12 skýjað Bolungarvík 11 léttskýjað Akureyri 13 léttskýjað Egilsstaðir 8 skýjað Kirkjubæjarkl. 8 skýjað Nuuk -2 léttskýjað Þórshöfn 6 skúrir Ósló 12 skýjað Kaupmannahöfn 15 heiðskírt Stokkhólmur 11 heiðskírt Helsinki 13 heiðskírt Lúxemborg 22 heiðskírt Brussel 23 heiðskírt Dublin 15 skýjað Glasgow 17 léttskýjað London 23 heiðskírt París 25 heiðskírt Amsterdam 22 heiðskírt Hamborg 22 heiðskírt Berlín 21 heiðskírt Vín 17 léttskýjað Moskva 13 skýjað Algarve 20 léttskýjað Madríd 21 léttskýjað Barcelona 21 léttskýjað Mallorca 25 heiðskírt Róm 18 léttskýjað Aþena 16 léttskýjað Winnipeg 17 alskýjað Montreal 11 léttskýjað New York 20 heiðskírt Chicago 16 léttskýjað Orlando 24 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:40 22:10 ÍSAFJÖRÐUR 4:26 22:34 SIGLUFJÖRÐUR 4:08 22:17 DJÚPIVOGUR 4:05 21:44 Á mæðradaginn, sunnudaginn 8. maí, hefst sala á púsli til styrktar UNICEF sem ber heitið Móðurást. Í tilefni af upphafi sam- starfsins við UNICEF býður fyrirtækið Puzzled by Iceland í kaffi en þar mun Vigdís Finnbogadóttir taka við fyrstu Móðurástinni. Hún er verndari heimsforeldra UNICEF á Íslandi. Útgáfukaffið á sunnudag er í Toppstöðinni í Elliðaárdal og hefst kl. 3. Allir velkomnir og boð- ið verður upp á kökur og kaffi. Fyrir ágóða UNICEF af einu púsli má útvega 60 skammta af saltupplausn sem hjálpar við að vinna bug á ofþornun og niður- gangi hjá börnum. Kaffi og kökur á mæðradeginum Vigdís Finnbogadóttir Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Unnið er að undirbúningi allsherjar- manntals hér á landi á vegum Hag- stofu Íslands en slík vinna hefur ekki farið fram í tvo áratugi. Síðasta manntal var þó aldrei birt opin- berlega þar sem ekki þótti nógu vel að því staðið að sögn Önnu Mar- grétar Björnsdóttur, verkefnastjóra hjá Hagstofunni, sem heldur utan um manntalið nú. Síðan hafi ekki verið farið í slíka vinnu vegna þess hversu áreiðanleg Þjóðskráin hafi verið. Markmiðið nú sé hins vegar ekki síst að afla upplýsinga sem ekki séu til í dag. „Það er ýmislegt sem við vitum ekki. Það er til dæmis eins og fjöldi heimila. Við vitum ekki hvað eru mörg heimili í landinu og við vitum heldur ekki hvernig fjölskyldurnar eru samansettar. Annað sem við vit- um ekki er menntunarstig þjóð- arinnar. Við höfum upplýsingar frá 1995 um það hverjir eru að útskrif- ast en við höfum ekki heildstæða mynd af því,“ segir Anna Margrét. Hún ítrekar þó að ekki sé um neinar viðkvæmar upplýsingar að ræða. Unnið sé út frá alþjóðlegum stöðlum með það að markmiði meðal annars að fá samanburð við önnur lönd. Öðruvísi manntal „En það sem er öðruvísi við þetta manntal er að það byggist ekki á því að gengið sé í hús og fólk spurt eins og gert var áður. Þess í stað verður þetta skráatengt manntal, það á að reyna að keyra saman skrár og tengja þessar upplýsingar saman. Þá losnar almenningur við þau óþægindi sem fylgir slíkum heim- sóknum,“ segir Anna Margrét. Hún segir að ekki hafi verið hægt að framkvæma manntal með þessum hætti áður. Verið sé að leita leiða til þess að afla þeirra upplýsinga sem ekki séu þegar til, kanna hvaða skrár séu til og hvað hægt sé að keyra saman. Markmiðið sé að gera þetta á sem hagkvæmastan og þægi- legastan hátt þannig að það valdi fólki sem minnstum óþægindum. „Það hefur verið mikil undirbún- ingsvinna fyrir þetta og hún hefur í rauninni staðið síðan árið 2007. En það á að miða við 31. desember nk. Allar upplýsingarnar miðast við það,“ segir Anna Margrét. Gagnlegar upplýsingar Meginmarkmiðið með manntalinu er að afla gagnlegra upplýsinga sem nýtist víða. „Það er auðvitað gott að geta borið sig saman við önnur lönd en þetta er fyrst og fremst fyrir okk- ur. Til dæmis bara það að vita hvað séu mörg heimili í landinu til að mynda fyrir skipulagsmál. Það verð- ur mikill munur að hafa þessar upp- lýsingar.“ Fyrsta manntal í tvo áratugi  Upplýsinga aflað sem ekki liggja fyrir, s.s. um fjölda heimila og samsetningu fjölskyldna  Allsherjarmanntal síðast gert árið 1981 en ekki birt vegna galla Morgunblaðið/G.Rúnar Manntal Íslendingar sitja og njóta blíðunnar við Austurvöll.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.