Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 10
PRUFUTÍMINN María Ólafsdóttir maria@mbl.is Þetta lítur nú ekki út fyrir aðvera mikið mál,“ hef éghugsað með mér þegar égsé fólk arka í gönguferðum með stafi í höndum. Svo ég er bara nokkuð drjúg með mig þegar ég mæti fyrir utan Laugardalslaugina í blíðskaparveðri til að prófa staf- göngu. Þar hefur hópur fólks hist alla þriðjudaga og fimmtudaga síðan ár- ið 2004. Alveg sama hvernig viðrar. Þó er tekið smá jóla- og sumarfrí. Enda varla annað hægt fyrir svona duglega göngugarpa. Ærist af að ganga á malbikinu Í gönguna eru notaðir sérhann- aðir stafir úr fiber-efni eða stáli. Þá þarf meðal annars að velja sam- kvæmt líkamshæð og líkamlegu ástandi. Þarf þá að hafa ástand háls og herða sérstaklega í huga. Ég er Stafganga í blíðskap- arveðri er hressandi bæði fyrir líkama og sál. Blaðamaður komst að því að stafganga er meira púl en hann bjóst við og þörf er á góðri samhæf- ingu líkamans. Morgunblaðið/Árni Sæberg Allir af stað Göngugarparnir æfa réttu hreyfingarnar áður en lagt er af stað í gönguferð. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011 Þeir sem hafa dregið fram fráa hjól- fáka til að ferðast á til vinnu eða milli staða eiga sér eflaust sína uppá- haldsleið á daglegum ferðalögum. Að sama skapi er ekki óhugsandi að eitt- hvað sé á þeirri leið sem fara mætti betur til að gera hjólaleiðina þægi- legri og greiðfærari. Kannski er hola í malbiki, enginn göngu- eða hjólastíg- ur, þrengsli eða hættuleg horn þar sem bílar koma skyndilega í ljós á blússandi kani. Nú hefur Reykjavíkurborg sett upp sérstakan kortavef sem hefur það að markmiði að bæta þessar leiðir. Á vefnum geta hjólreiðamenn merkt inn leiðirnar sínar og um leið gefið til kynna hvar þeir vilja hjóla, hvar þeir telja sig örugga og hvar óörugga. Þá geta þeir merkt inn á kortið vástaði, t.d. hvar vanti göngu- og hjólreiða- stíga, hvar bifreiðar fari of hratt og komið með aðrar athugasemdir og ábendingar. Hugmyndin er að upplýsingarnar nýtist svo við að skipuleggja hjóla- borgina Reykjavík í framtíðinni svo auðveldara verði fyrir hjólandi veg- farendur að komast leiðar sinnar og veitir sennilega ekki af á tímum stöð- ugt hækkandi eldsneytisverðs. Vefsíðan http://lukr-01.reykjavik.is/hjolakonnun Hjólað í vinnuna Komin með hjálm og sest á hjólfákinn en hvert liggur leiðin? Góðar ábendingar vel þegnar „Laugardagurinn verður nær allur undirlagður vegna Virkjunardagsins, en þá ætlum við að vera með mikið húllumhæ,“ segir Gunnar Halldór Gunnarsson, verkefnisstjóri Virkj- unar á Ásbrú í Reykjanesbæ, en henni er ætlað að stuðla að virkni atvinnuleitenda og öryrkja á Suður- nesjum. „Það hefur tekist að mörgu leyti mjög vel upp með starfsemina og við ætlum að enda vetrarstarfið með eins konar uppskeruhátíð.“ Mikið verður um að vera. „Við kynnum starfsemina og verðum með billjardkennslu, kaffihlaðborð, töfra- menn, uppistandara, örfyrirlestra og fleira auk þess sem sitthvað verður fyrir börnin.“ Hátíðin hefst kl. tólf og endar með „dúndurtónleikum“ í Andrews-leikhúsinu sem hefjast kl. fjögur. „Þar koma listamenn eins og KK, Bjarni Ara; Valdimar úr hljóm- sveitinni Valdimar og Björgvin Bald- ursson úr Klassart koma fram sam- an í fyrsta sinn; þarna verður hljómsveitin Framkoma sem hefur æft í húsnæði Virkjunar, Mirra Rós og blúsbandið The Lamedudes. Kynnir og uppistandari verður Alma Geirdal, Daníel Örn töframaður verður þarna líka þannig að þetta verður svakaleg skemmtun.“ Gunnar ætlar ekki að slá slöku við að tónleik- unum loknum. „Systir mín og mágur sem búa í Alaska ætla að koma í heimsókn svo ég á von á skemmtilegu kvöldi. Sunnudagurinn hefst svo með messu í Keflavíkurkirkju þar sem Gunnar er sjálfboðaliði. „Þar verð ég meðhjálpari; tek á móti fólki, les ritningarvers og huga að því að allt sé klárt fyrir messuna.“ Hvað gerist að lokinni messu er enn óráðið. „Væntanlega verð ég með börnunum mínum og svo á ég einn afastrák sem væri ekki dóna- legt að fá að hitta. Svo förum við oft í sund á sunnudögum því yngsta dóttir mín er mikið fyrir það. Þannig að þetta verður alveg meiriháttar skemmtileg helgi.“ Hvað ætlar þú að gera um helgina? Mikið húllumhæ á Virkjunar- deginum í Reykjanesbæ Morgunblaðið/Kristinn Spila M.a. verður boðið upp á billjardkennslu enda nóg af billjardborðum. Gunnar Halldór Gunnarsson Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Púl í stafgöngu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.