Morgunblaðið - 07.05.2011, Side 11
Hjólum í bæinn og látum yfirfara hjólin okkar
Fjölmennum, verslum og njótum
þar sem hjartað slær!
Félagar úr harmonikkufélagi Reykjavíkur og
Landssambandi harmonikkuleikara skemmta
frá kl. 13 á eftirtöldum stöðum:
Stjörnuporti, Laugavegi 77, Kjörgarði
(Laugatorgi), Hljómalindarreit, við
Hegningarhúsið Skólavörðustíg,
við Sólon Bankastræti, Lækjartorgi
og Ingólfstorgi.
Harmonikkustórtóneikar í Ráðhúsinu kl. 15.
Harmonikku-stórtónleikarí Ráðhúsinukl. 15:00
Fulltrúar frá Erninum verða á Lækjartorgi frá kl. 13:00,
kynna ný hjól og yfirfara þau eldri. Fulltrúar frá GÁP
verða við Hegningarhúsið Skólavörðustíg frá
kl. 13:00, kynna ný hjól og yfirfara þau eldri.
Munið jaðarsportsýninguna á reiðhjólum,
mótorhjólum, hjólabrettum o.fl.
á Ingólfstorgi í samstarfi
við X-ið og 365.
K
R
A
FT
A
V
E
R
K
Spennt Stafgangan tekur meira á en blaðamaður ímyndaði sér, hann er þó enn brosandi eftir tímann.
svo heppin að hafa fengið lánaða stafi en þarf að fá
lánaða skó hjá Guðnýju Árnadóttur, einkaþjálfara
og stafgönguleiðbeinanda, sem sér um um göng-
una ásamt dóttur sinni, Örnu Borgþórsdóttur. „Þú
ærist af því að ganga með stafina á malbiki án
þeirra,“ segir Guðný og segir mér til um
hvernig skuli setja skóna á sig svo og hvern-
ig skuli herða ólarnar á stöfunum þétt að
úlnliðunum. Síðan er haldið af stað og
ég fylgi byrjendahópnum sem
Arna fer fyrir. Það er ekki jafn
auðvelt að ganga með stafi og ég
hélt. Mikilvægt er að ná góðri samhæf-
ingu handa og fóta og gleyma um leið
ekki að beygja sig dálítið fram og
passa mjóbakið með því að spenna
magavöðvana. Dálítið eins og þegar
maður er á skíðum. Arna kennir okk-
ur undirstöðutriðin og við göngum í
nokkra hringi til að æfa okkur. Ég einbeiti
mér svo mikið að ég set í herðarnar og verð stíf.
Þetta er víst algengt vandamál en mikilvægt er að
reyna eins og maður getur að slaka á í öxlunum.
Brennir mun meira
Eftir að Arna ráðleggur okkur
að hugsa ekki of mikið heldur bara
ganga fer þetta að ganga ágætlega
hjá mér. Nema náttúrlega að ég er svo
fött að ég fæ smá í bakið. En þetta er
allt saman spurning um að æfa sig. Það
er frískandi að ganga úti í Laugardalnum
og gangan er meira púl en ég átti von á.
Enda brennir maður 20% meira í stafgöngu
en í venjulegri gönguþjálfun og fólk styrkir
vöðva í efri búk 40% meira en í venjulegri göngu.
Á eftir er teygt vel og vandlega sem er gott því
annars hefði ég örugglega vaknað með ógurlegar
harðsperrur á glænýjum og skrýtnum stöðum
daginn eftir.
Áfram gakk Blaðamaður reynir að ná samhæfingu.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011
Hvað er betra en að nota sunnu-
dagskvöld til að upplifa nýja tón-
list? Nú gefst aldeilis tækifærið til
þess því lettneska sveitin Instru-
menti verður með tónleika á Bakk-
usi á sunnudaginn.
Um er að ræða rafpoppsdúett en
hann hefur verið staddur í Gróður-
húsi Valgeirs Sigurðssonar að und-
anförnu við upptökur. Breiðskífa er
svo væntanleg með hækkandi sól.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20
og ætti ekki nokkur músíkaðdáandi
að missa af þessu tækifæri til að
kynna sér nýjustu strauma og
stefnur í tónlistarsenu vina okkar í
Lettlandi.
Endilega…
Spila Hljómsveitin Instrumenti.
…hlustið á
lettneskt
rafpopp
Norðurlandaþjóðirnar ásamt Austurrík-
ismönnum og Þjóðverjum urðu fyrstar til að
tileinka sér stafgöngu. Í dag er talið að um að
ein milljón manna í heiminum stundi staf-
göngu a.m.k. einu sinni í viku.
Hér á Íslandi hóf tilraunahópur Kvenna-
hlaups ÍSÍ stafgöngu í júní 2003 og vakti verð-
skuldaða athygli á göngu sinni. Í framhaldinu
hefur ÍSÍ staðið að menntun stafgönguleið-
beinenda sem halda námskeið fyrir almenning
í Laugardalnum. Hist er klukkan 17:30 á þriðju-
og fimmtudögum og er fólki skipt í hópa fyrir
byrjendur og lengra komna. Nánari upplýs-
ingar má finna á vefsíðunni stafganga.is.
Hófst á Íslandi 2003
STAFGANGA
Skannaðu kóðann til að sjá
Maríu erfiða í stafgöngu.