Morgunblaðið - 07.05.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011
FRÉTTASKÝRING
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Staða barna mun taka nokkrum
breytingum, verði frumvarp Ög-
mundar Jónassonar innanríkisráð-
herra til barnalaga að lögum. Þar er
meðal annars fjallað á skýran hátt
um meðferð ágreiningsmála, sem
kunna að rísa vegna forsjár barna
og þar er lagaleg staða barna frá-
skildra foreldra staðfest.
Réttindi barna til umönnunar og
til að hafa áhrif á eigin málefni
verða lögfest, en í frumvarpinu segir
að barn eigi rétt á að lifa, þroskast
og njóta verndar, umönnunar og
annarra réttinda í samræmi við ald-
ur sinn og þroska og án mismun-
unar af nokkru tagi. Það sem barni
er fyrir bestu skuli ávallt hafa for-
gang þegar teknar eru ákvarðanir
um málefni þess. Ennfremur eiga
börn rétt á að láta skoðanir sínar í
ljós í öllum málum sem þau varða.
Hagsmunir barna í forgrunni
Lögunum er ætlað að leysa af
hólmi gildandi lög frá árinu 2003, en
heildstæð barnalög voru fyrst sett á
Íslandi árið 1981. Frá þeim tíma
hafa orðið umtalsverðar breytingar
á stöðu barnafjölskyldna, ekki síst á
hlutverki foreldra. Þátttaka beggja
foreldra í uppeldi barna sinna hefur
aukist mjög, en það sem hefur ráðið
mestu um þróun barnalaga undan-
farna áratugi er áhersla á sameig-
inlega ábyrgð beggja foreldra á
uppeldi barna.
Undanfarin ár hafa nokkrar
breytingar verið gerðar á núgild-
andi lögum. Árið 2006 var það gert
að meginreglu að foreldrar færu
sameiginlega með forsjá barna
sinna eftir skilnað. Við samningu
nýju laganna var haft mið af því
hvaða reglur um samband barna og
foreldra, sem búa ekki saman, væru
líklegastar til að þjóna hagsmunum
barnsins sem best. Einnig var höfð
hliðsjón af þeim alþjóðlegu samn-
ingum sem Ísland er aðili að og
varða efnið, einkum samningi Sam-
einuðu þjóðanna um réttindi barns-
ins.
Foreldrum gert að leita sátta
Í frumvarpinu eru ennfremur
skýr ákvæði um meðferð ágrein-
ingsmála varðandi forsjá barna. Þar
er foreldrum gert skylt að leita
sátta, áður en krafist er úrskurðar
eða höfðað forsjármál. Sáttameð-
ferðarinnar geta þeir leitað eftir hjá
sýslumanni, en einnig geta þeir leit-
að til sérfræðinga. Markmiðið með
þessari sáttameðferð er að hjálpa
foreldrum að leysa málin á þann
hátt sem er barninu fyrir bestu.
Barnið á að öllu jöfnu að eiga þess
kost að tjá sig við sáttameðferðina.
Í frumvarpinu segir að barn eigi
rétt á að umgangast með reglu-
bundnum hætti það foreldra sinna
sem það býr ekki hjá, „enda sé það
ekki andstætt hagsmunum þess“.
Búi foreldrar ekki saman, beri þeir
báðir ábyrgð á því að tryggja að
þessi réttur barnsins sé virtur.
Hagsmunir barnsins í forgrunni
Í frumvarpi til barnalaga er réttur barna til að tjá sig um eigin málefni staðfestur Tekið er mið af
breyttri stöðu barnafjölskyldna Foreldrum verður gert að leita sátta varðandi forsjá barna sinna
Morgunblaðið/Kristinn
Börn Staða barna mun taka breytingum verði frumvarpið að lögum.
Í barnalögum frá 1992 var fyrst
gert ráð fyrir því að foreldrar,
sem ekki byggju saman, gætu
samið um sameiginlega forsjá
barns. Með lagabreytingu frá
2006 var gert ráð fyrir að for-
eldrar færu áfram sameiginlega
með forsjá barns eftir skilnað.
Í frumvarpinu, sem nú liggur
fyrir, er ekki lögfest heimild fyr-
ir dómara til að dæma sameig-
inlega forsjá með tilteknum
hætti. Foreldrar geta aftur á
móti ákveðið með dómsátt að
forsjáin verði sameiginleg.
Fyrst lögfest
árið 1992
SAMEIGINLEG FORSJÁ
Páll Þórðarson, lög-
fræðingur og fyrrver-
andi framkvæmda-
stjóri, lést
fimmtudaginn 5. maí sl.
á hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ, 66 ára að
aldri. Páll var fæddur
10. ágúst 1944 á
Borgarfirði eystra og
ólst þar upp. Foreldrar
hans voru Þórður Jóns-
son skrifstofumaður og
Sigrún Pálsdóttir
kennari.
Páll var stúdent frá
MA 1964, stundaði nám
í viðskiptafræði við HÍ 1964-65 og
lauk kandidatsprófi í lögfræði 1971.
Einnig stundaði hann nám við nor-
ræna heilsuverndarháskólann í
Gautaborg nóvember-desember
l980.
Páll hóf störf hjá Reykjavíkurborg
1971 og var skrifstofustjóri Félags-
málastofnunar borgarinnar frá 1.
september til 1. mars 1972 er hann
var ráðinn framkvæmdastjóri
Læknafélags Íslands. Því starfi
gegndi hann mestan
hluta starfsævi sinnar
eða til ársins 1999. Þá
var hann fram-
kvæmdastjóri Sjúkra-
húss Suðurlands í eitt
ár og starfaði um skeið
í launanefnd hjá Sam-
bandi íslenskra
sveitarfélaga. Síðast
starfaði Páll hjá Fyrir-
tækjaskrá Hagstofu
Íslands þar til hann lét
af störfum vegna veik-
inda árið 2003. Páll rak
jafnframt eigin bók-
halds- og framtalsþjón-
ustu frá 1974 til 2003.
Páll gegndi ýmsum trúnaðarstörf-
um. Hann var meðal annars varafor-
maður Orators og ritstjóri Úlfljóts
1968-69 og sat í stjórn stúdenta-
félags HÍ 1969-70. Páll sat einnig í
ýmsum nefndum og ráðum á vegum
Læknafélagsins á meðan hann starf-
aði þar.
Páll lætur eftir sig eiginkonu, Þor-
björgu Einarsdóttur, og þrjár upp-
komnar dætur.
Andlát
Páll Þórðarson
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, segir ekki
rétt að tala um að frumvörp um
breytingar á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu hafi tafist. Ríkisstjórnin
ræddi málið á fundi sínum í morgun,
en óvíst er hvenær frumvörpin verða
afgreidd af stjórninni. Sjálfur ætlaði
Jón þó upphaflega að flytja málið á
Alþingi í mars síðastliðnum.
Ráðherra skipaði nýverið hóp sér-
fræðinga sem ætlað er að fara yfir
hagræn áhrif kerfisbreytinganna, en
honum er ætlað að skila af sér í byrj-
un júní. Það er því tvísýnt að frum-
varp komi fram fyrir þinglok, sé ætl-
unin að notast við niðurstöður
nefndarinnar.
Bara nokkrar vikur
Jón neitaði því ekki í gær að lítið
myndi gerast í málinu fyrr en hóp-
urinn skilaði af sér skýrslu. „Það er
hluti af vinnunni við frumvarpið að
þessi hópur á að gera eins konar
hagræna úttekt á þeim breytingum
sem verið er að leggja til, áhrifum
þeirra á einstaka útgerðir, útgerð-
arform, byggðir og þjóðarhag,“
sagði Jón. „Í sjálfu sér er afar mikil-
vægt við grundvallarbreytingar á
umgjörð aðalatvinnuvegar þjóðar-
innar, að við fáum slíkt mat áður, og
það eru bara nokkrar vikur þar til
það kemur,“ bætti hann við.
Sem fyrr vildi ráðherra ekki ræða
efnisatriði frumvarpanna. Hann
hafnaði því þó að óþarfa leynd ríkti
yfir vinnunni. Fjölmargar skýrslur
hefðu komið fram um málið og lengi
hefði verið unnið að því. Hins vegar
væru það hefðbundin vinnubrögð,
þegar komið væri á lokastig frum-
varpsvinnu, að frumvarp væri fyrst
rætt í ríkisstjórn áður en það væri
lagt fram á Alþingi.
Fátt nýtt af sjávarútvegs-
frumvörpum þar til í júní
ALÞJÓÐARÁÐSTEFNA FÉLAGS KVENNA Í ATVINNUREKSTRI (FKA)
Í SAMSTARFI VIÐ SAMTÖK ATVINNULÍFSINS OG VIÐSKIPTARÁÐ ÍSLANDS Á
HILTON REYKJAVÍK NORDICA FÖSTUDAGINN 13. MAÍ 2011.
RÁÐSTEFNUNNI ER ÆTLAÐ AÐ ÝTA UNDIR UMRÆÐU UM KYNJAHLUTFÖLL Í
STJÓRNUM, EN ÁKVÆÐI Í LÖGUM UM KYNJAKVÓTA MUNU TAKA GILDI HÉR Á LANDI
ÁRIÐ 2013.
SAMTÖK
ATVINNULÍFSINS
VIÐSKIPTARÁÐ
ÍSLANDS
IÐNAÐAR-
RÁÐUNEYTIÐ
FÉLAG KVENNA Í
ATVINNUREKSTRI
NORSKA
SENDIRÁÐIÐ
CREDITINFO
ICELANDAIR
Húsið opnar - Létt morgunverðarhlaðborð
Ávarp Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra
Mari Teigen:
Gender Quotas in Corporate Boards: The Norwegian Experiences
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans:
Ný stefna - Nýtt hugarfar
Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova:
Við leitum að konu í Bogamerkinu
Benja Stig Fagerland: Women Mean Business!
Dagskrárlok
BJÓÐUM Á STEFNUMÓT:
Kona og karl sem koma saman greiða eitt ráðstefnugjald eða 5.900 krónur,
morgunverður innifalinn. Þátttökugjald í vinnustofur er 3.900 krónur
SÝNUM
FJÖLBREYTNI
Í FORYSTU! KARLA & KONUR
VIRKJUM
TIL ATHAFNA
Tveir erlendir fyrirlesarar verða með framsögu, þær Mari Teigen og Benja Stig Fagerland. Mari
Teigen er doktor í félagsfræði og rannsóknarstjóri hjá Rannsóknarstofnun í félagsvísindum í
Osló. Benja Stig Fagerland er eigandi Talent Tuning sem einblínir á viðmið og stefnur kvenhag-
fræðinnar (e. womenomics) auk þess sem hún aðstoðar fyrirtæki við að finna konur í stjórnir.
Þá mun Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans ræða um nýja stjórnarhætti og Liv
Bergþórsdóttir framkvæmdastjóri Nova um reynslu af stjórnarsetu í erlendu fyrirtæki.
HÁSKÓLINN Í
REYKJAVÍK
DAGSKRÁ:
8.15
8:30
8:40
9:10
9:25
9:40
10:10
FUNDARSTJÓRN:
Rakel Sveinsdóttir hjá CreditInfo Group og Ásbjörn Gíslason forstjóri Samskipa
VINNUSTOFUR:
Með Opna Háskólanum í HR, Menntavegi frá klukkan 13.00 til 16.10
13:00-14:00
14:10-15:00
15:10-16:10
Fjöldi þátttakenda í vinnustofur er takmarkaður
EFNAHAGS- OG
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ
HILTON
REYKJAVÍK NORDICA
Skráning á:
WWW.SA.IS
LANDSBANKINN
Benja Stig Fagerland: The road to the board room
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur hjá KPMG: Hlutverk, ábyrgð
og skyldur stjórnarmanna
Mari Teigen: The ideal practises about gender quotas