Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011 Dagskrá 1. Flutt skýrsla stjórnar 2. Ger› grein fyrir ársreikningi 3. Tryggingafræ›ileg úttekt 4. Fjárfestingarstefna sjó›sins kynnt 5. Önnur mál Ársfundur 2011 Allir sjó›félagar, jafnt grei›andi sem lífeyrisflegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjó›félagar eru hvattir til a› mæta á fundinn. Stjórn Söfnunarsjó›s lífeyrisréttinda Ársfundur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda verður haldinn þriðjudaginn 17. maí 2011 kl. 16.00, að Borgartúni 29, 4. hæð. Reykjavík 19. 04. 2011 F í t o n / S Í A Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS um nýgerðan kjarasamning VR og SA verður haldinn mánudaginn 9. maí nk. kl. 19:30 á Hilton Nordica hótel. Við hvetjum félagsmenn til að mæta. Félagsfundur VR smálax og 13% stórlax, lax sem hafði dvalið tvö ár í sjó. Sumarið 2010 var metveiði í all- mörgum ám, flestum á norðan- og austanverðu landinu en einnig í Sog- inu og Stóru-Laxá á Suðurlandi. Betri heimtur úr hafi „Almennt séð er gott ástand á laxastofnunum og veiðin hefur verið góð. Ástandið hefur verið gott til sjávar og áa og laxveiðin vaxandi vegna betri heimta úr sjó og auk- innar seiðaframleiðslu. Seiðavísitölur hafa hækkað á síðustu árum,“ sagði Guðni. Hann bendir á tölur um end- urheimt seiða úr Elliða- ánum en þær hafa verið allt að 14% síðustu tvö árin, það er langtum hærra hlutfall en áður. „Það er væntanlega skýringin á aukinni veiði á síð- ustu árum, að meira af laxi skilar sér úr sjó,“ sagði hann. Guðni sýndi á fundinum súlurit yf- ir ganginn í veiðinni síðustu áratugi og síðustu þrjú ár stíga súlurnar um- talsvert hærra en áratugina á undan. „Ef við trúum sögunni þá erum við ennþá í uppsveiflunni,“ sagði hann. Hátt í 16.000 laxar í net Netaveiddir laxar voru 15.903. Flestir veiddust í Þjórsá, 8.990, og er það nær 4.000 löxum meira en sum- arið 2009. Fiskgengd og netaveiði í Þjórsá hefur aukist á síðustu árum í kjölfar þess að fiskvegur var byggð- ur við fossinn Búða árið 1991 en lax- inn hefur verið að nema land ofan hans. Í Ölfusá og Hvítá á Suðurlandi veiddust 6.178 laxar í net og 450 í Hvítá í Borgarfirði. Stórlaxinum verði hlíft Sigurður Guðjónsson forstjóri Veiðimálastofnunar hefur síðustu ár hvatt veiðimenn til að hlífa stórlax- inum og hélt því áfram. „Stórlaxinum hefur hnignað og við þurfum að taka okkur á til að við töp- um honum ekki,“ sagði hann. „Það hefur nokkuð gengið, menn eru farn- ir að stytta veiðitímann í byrjun þeg- ar stórlaxinn er á ferðinni og einnig að sleppa honum. Það er reynt að koma því á í gegnum nýtingaáætlanir en það gengur fremur hægt. Ef allt um þrýtur geta stjórnvöld gripið inn í en best er að hver grípi til friðunar- aðgerða á sínu svæði.“ Sigurður sagði sjóbleikju hafa látið undan síga á Suður- og Vesturlandi og sjóbirtingur væri að nema land þar sem bleikja var áður ríkjandi. Rannsókna sé þörf á því sviði. Hann greindi einnig frá því að unnið sé að því að koma upp rafrænu skráningarkerfi í laxveiðinni, þannig að hægt sé að skrá alla veiði jafn- óðum á netið, og er stefnt að því að kerfið verði komið í gagnið þegar lax- veiðitímabilið hefst. Áfram spáð góðum endur- heimtum laxa og góðri veiði  Sumarið 2010 var næstbesta laxveiðisumarið  74.419 laxar veiddust Morgunblaðið/Einar Falur Nýrenningur í Hafralónsá Metveiði var í sumum laxveiðiánum á Norður- landi í fyrra og þriðja sumarið í röð í Hafralónsá í Þistilfirði. Sumarið 2010 var næstbesta laxveiðisumarið frá upphafi en hátt í 75 þúsund laxar veiddust. Hlutfall laxa sem sleppt er aftur hefur aldrei verið hærra en 21.463 löxum var sleppt. Er það 28,8% veiðinnar. Hlutfallið er hærra ef aðeins er horft til laxa af náttúrulegum stofnum, 35,6%. Sífellt fleiri veiðmenn hafa svarað kalli Veiðimála- stofnunar um að sleppa stór- laxi, laxi sem hefur verið tvö ár í sjó, en það er komið í 56,5%. Hlutfall slepptra smálaxa úr náttúrlegum stofnum er 30,8%. Rannsóknir sýna að um 26% slepptra laxa veiðast aftur og um fjögur prósent veiðast oftar. 28,8% sleppt FLEIRI LÖXUM SLEPPT Stórlaxi sleppt í Vatnsdalsá. STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Það eru engin merki um annað en að fiskgengd og veiði komi til með að vera áfram góð og yfir meðaltali í ám með náttúrulega laxastofna og um- talsverð í ám með hafbeitarlaxi,“ sagði Guðni Guðbergsson fiskifræð- ingur á ársfundi Veiðimálastofnunar í gær, þegar hann spáði fyrir um ástand og horfur í laxveiðinni í sum- ar. Megindrættir í laxveiðinni á síð- asta sumri liggja einnig fyrir. Sum- arið 2010 var næstbesta laxveiðisum- arið frá upphafið. Guðni sagði að samkvæmt fyrirliggjandi tölum hafi 74.419 laxar veiðst í fyrra en það er rúmum tug meira en fært var til bók- ar sumarið 2009. Sumarið 2008 var metveiði, 84.124 laxar. Veiðin í fyrra var um tvöföld með- alstangveiði áranna 1974-2009. Best úr náttúrulegum stofnum Þegar rýnt er í veiðitölurnar sést að veiðin í hafbeitaránum, ám á borð við Rangárnar þar sem veiðin byggir á sleppingum hafbeitarseiða, var alls 17.572 laxar eða um 24% af allri stangveiði á landinu. Þegar hafbeit- arveiðin er undanskilin sést að stang- veiðin í ám með náttúrlega stofna var 56.847 laxar en það er mesta veiði laxa af náttúrlegum uppruna sem um getur hér á landi, 2,4% meira en sum- arið 2009. Er það um 67% yfir með- alstangveiði fyrrgreinds tímabils, 1974-2009. Guðni segir að hafa beri þó í huga að með sífellt aukinni sleppingu laxa veiðist margir fiskanna aftur. Því eru forsendur talnanna að vissu leyti breyttar. Það breytir þó ekki því að aldrei hafa fleiri náttúrulegir laxar veiðst. Af lönduðum afla úr náttúrlegum laxastofnum í fyrra voru um 87% Ford Focus verður frumsýndur hjá Brimborg í dag, laugardag, á milli kl. 12 til 16 en Þetta er fyrsti bíllinn sem Ford hefur hannað í einni og sömu útgáfunni fyrir alla markaði heimsins. „Með þessu móti tekst Ford að nýta þróunarkostnað al- heimsbílsins í að framleiða bíl sem býr yfir búnaði, öryggi og sparnaði sem áður þekktist ekki nema í mun dýrari bílum,“ segir í frétt frá fyr- irtækinu. Hjá Brimborg í Reykjavík verða nokkrir bílar til sýnis á laugardag- inn og munu gestir fá tækifæri til að kynna sér einn nýstárlegasta búnað bílsins en hann getur stýrt í stæði sjálfur. Þegar stefnuljós er gefið segir skynjari til um hvort nægt rými sé til að leggja. Hann leggur svo sjálfur á stýrið meðan ökumaður bílsins stýrir eldsneyt- isgjöf og bremsum auk þess að fylgjast með umhverfinu. sbs@mbl.is Brimborg frum- sýnir Ford Focus Ákveðið var á félagsfundi veiði- félags Þverár-Kjarrár í Borgarfirði að bjóða út veiðina í ánni, frá og með sumrinu 2013. Þverá og Kjarrá, ásamt Litlu-Þverá, eru eitt- hvert eftirsóttasta og besta lax- veiðisvæði landsins en upptök þess eru á Arnarvatnsheiði. Þverá sam- einast Hvítá í Borgarfirði þar sem heitir Brenna. Veiðifélagið Sporður hefur verið leigutaki svæðisins í á þriðja áratug. Að sögn Kristjáns Axelssonar í Bakkakoti, formanns veiðifélagsins, fer Sporður með leiguna nú í sumar og á næsta ári en talsverður meiri- hluti félagsmanna samþykkti á fundinum að setja ána í útboð. Hluti landeigenda sat hjá en 32 eiga hlut í veiðisvæðinu. „Menn vilja leita fyrir sér og sjá hvaða verð er á þessu,“ segir Krist- ján og bætir við að ýmis veiðisvæði hafi farið í útboð á síðustu miss- erum, enda hafi miklar breytingar orðið á efnahagsumhverfinu. Í fyrra veiddust 3.760 laxar á 14 stangir í Þverá-Kjarrá og var hún fjórða aflahæsta áin. efi@mbl.is Þverá-Kjarrá í útboð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.