Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Eftir að samkomulag hafði náðst hjá svo breiðum hópi um að fara samningaleiðina er það með öllu óskiljanlegt að fámennur hópur skuli setjast bak við luktar dyr og breyta þeim tillögum sem þar komu fram, eitthvað sem setur sjávarútveginn í algjöra óvissu,“ skrifar Sigurjón Aðalsteinsson í grein í Eyjafréttir í vikunni. Greinin er skrifuð sem sendibréf til Jóhönnu Sigurðardóttur, for- sætisráðherra, og þar gagnrýnir Sigurjón vinnubrögð ríkisstjórnar- innar og fer fram á svör við ákveðnum spurningum. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagðist Sigurjón engin svör hafa fengið og sagðist ekki eiga von á svörum. „Jóhanna hefur engin svör, það er bara svo einfalt,“ segir Sigurjón. „Það er ekki verið að vinna á grundvelli samningaleiðar og því hafa forystumenn ríkisstjórnarinn- ar forðast eins og heitan eldinn að mæta á fundi í þessum sterku sjáv- arplássum. Mér blöskrar hvernig menn hafa reynt að koma óorði á útgerðina og hvernig verið er að dýpka gjána á milli landsbyggðar og þéttbýlis.“ Hann segir að í áróðri stjórn- valda gegn stórútgerðinni gleymist að nefna að nokkur hundruð smá- bátaútgerða standi höllum fæti, hjá þeim eins og öðrum hafi lán hækkað gríðarlega. „Það hentar stjórnvöldum hins vegar ekki að snúast gegn þessum útgerðar- flokki heldur vilja stjórnvöld rétta þeim meiri kvóta, sem tekinn yrði af öðrum. Þeir sem seldu kvóta eiga að komast inn aftur, en þeir sem keyptu verða að blæða,“ segir Sigurjón. Án þess að steyta hnefann Í greininni í Fréttum skorar Sig- urjón á Jóhönnu „sem leiðtoga þjóðarinnar að reyna að þiggja eða rétta út sáttarhönd í málefnum sjávarútvegsins og óska eftir því í leiðinni að þú heimsækir okkur í Vestmannaeyjum til að útskýra þín sjónarmið í sjávarútvegsmálum og hlusta á aðra. Og það án þess að steyta hnefann framan í okkur úr að mér finnst öruggri fjarlægð.“ Bréfið til Jóhönnu er að finna í heild á eyjafrettir.is Ekki unnið á grundvelli samningaleiðar  Gagnrýnir vinnubrögð stjórnvalda og beinir spurningum til forsætisráðherra Morgunblaðið/ÞÖK Öflugur floti Frá Eyjum er gerður út fjöldi fiskiskipa af öllum stærðum. Sigurjón er Vestmannaeyingur og hefur á liðnum ár- um unnið margvísleg störf sem tengjast sjávarútvegi, meðal annars á fiskmarkaði, í afurðalánadeild banka og í 13 ár á Fiskistofu. Hann segist því þekkja vel til sjávarútvegs á Íslandi. Í niðurlagi greinarinnar varpar hann fram ýmsum spurningum um strandveiðar. Hann spyr m.a. um nýliðun, gæði fisksins, hvert fiskurinn fari, afkomu og brask. Spurningunum svarar hann flestum sjálfur og segir að nýliðun hafi verið mjög lítil og byggir svarið á op- inberum upplýsingum. Hann segir gæðin minni en af kvótabátum og að fiskurinn hafi verið seldur út og suður en ekki eingöngu farið til að halda uppi atvinnu á stöðunum. Af- koman hafi verið bágborin og útgerðarmenn sem hafi selt frá sér kvóta hafi komið inn í þetta nýja kerfi. Aðrir leigi báta á okurverði. Þá spyr Sigurjón hvort eitthvað sé hæft í því að verðminnsta aflanum hafi verið hent fyrir borð til að drýgja þann afla, sem koma má með að landi á hverjum degi. Lítil nýliðun í strandveiðum FISKURINN SELDUR ÚT OG SUÐUR Sigurjón Aðalsteinsson Námskeið fyrir verðandi leiðsögumenn með hreindýraveiðum Umhverfisstofnun auglýsir fyrirhugað námskeið fyrir verðandi leiðsögumenn með hreindýraveiðum. Námskeiðið verður haldið á Egilsstöðum 9-12. júní og námskeiðsgjaldið er 160.000 kr. Eingöngu verður tekið við umsóknum í gegnum umsóknarkerfi á hreindyr.is en opnað verður fyrir skráningu kl.12 mánu- daginn 9. maí. Umsóknir sem berast á annan máta verða ekki teknar gildar. Allar nánari upplýsingar eru á ust.is og hreindyr.is Umsóknafrestur er til og með 16. maí Laugardagur til lista Í dag milli kl. 12.00 – 17.00 eru verk í eigu Eldfjallasafnsins í Stykkishólmi til sýnis í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Í ráðstefnusal bankans verður sýnd upptaka af fyrirlestri Haralds Sigurðssonar prófessors, eldfjallafræðings og forstöðumanns Eldfjallasafnsins - viðskipti og vísindi. Verið velkomin. Í dag, laugardaginn 7. maí, verður Öskjuhlíðardagurinn haldinn í fyrsta sinn. Tilefni þess er að þá verður undirritað samkomulag um stofnun starfshóps sem ætlað er að móta samstarf Reykjavíkurborgar, Há- skólans í Reykjavík og Skógrækt- arfélags Íslands um útivistarsvæðið í Öskjuhlíð með það að markmiði að styrkja svæðið sem náttúruperlu, útivistar- og kennslusvæði. Skipaður verður starfshópur sem mun fyrst í stað greina þá möguleika sem í svæðinu felast og vinna að hugmyndum um hvernig megi styrkja Öskjuhlíðina með samstarfi þessara þriggja aðila. Jón Gnarr borgarstjóri setur há- tíðina kl. 11 og hann mun síðan kenna gestum að búa til moltu kl. 11,30. Meðal atriða á hátíðinni er rathlaupsleikur, gönguferð um Öskjuhlíð, ljóðalestur, sjóböð, sigl- ingar um Fossvog og fræsöfnun. Starfsmenn Skálatúns kynna sköp- un sína og Raggi Bjarna og HR- bandið koma fram. Öskjuhlíðardagurinn haldinn í fyrsta sinn Morgunblaðið/Ernir Hátíð Öskjuhlíðin hefur alltaf haft aðdráttarafl. Þar verður hátíð í dag. Það sem af er þessu fiskveiðiári hafa yfir fjögur þúsund tonn af úthafsrækju borist á land. Það er talsvert meira en veiddist á fyrstu átta mánuðum síðasta fisk- veiðiárs. Í ár er úthafsrækja utan kvóta og sóknin því frjáls. Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu veiddust 7.144 þúsund tonn af rækju á síðasta fiskveiðiári, en um miðja vikuna voru komin á land ríflega fjögur þúsund tonn á þessu fiskveiðiári. Í hönd fara þeir mánuðir sem mest barst á land af rækju í fyrra. Yfir sumarmánuðina á síðasta ári var afli hvers mánaðar um eða yfir þúsund lestir. Ekki er ólíklegt að skipum fjölgi á þessum veiðum í sumar með betri tíð og minnkandi kvóta í öðrum tegundum. Ráðgjöfin sjö þúsund tonn Hafrannsóknastofnun lagði til að heildaraflamark úthafsrækju á þessu fiskveiðiári yrði sjö þúsund tonn, sem er það sama og lagt var til fyrir síðustu fjögur ár. Rækjuveiðar á Íslandsmiðum náðu hámarki á ár- unum 1994–1997 þegar aflinn var yf- ir 70 þúsund tonn á ári. Frá 1997 dróst aflinn hins vegar mjög hratt saman. Árin 2006–2008 var aflinn 860–2.200 tonn. Hann jókst aftur ár- ið 2009 og var þá um 5.500 tonn og yfir sjö þúsund í fyrra. aij@mbl.is Meira veitt af rækju en á síðasta ári Mest aflaðist í fyrra yfir sumartímann

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.