Morgunblaðið - 07.05.2011, Síða 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011
FRÉTTASKÝRING
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Grundvallarbreyting er að eiga sér
stað á fasteignalánamarkaðnum, en
kaupendur fasteigna þurfa nú al-
mennt að reiða fram aukið eigið fé við
kaup á fasteignum en áður. Arion
banki kynnti í gær til sögunnar val-
kosti viðskiptavina í fasteignalánum,
sem bera lægri vexti en boðist hafa
frá hruni.
Arion banki býður verðtryggð lán
með 4,3% vöxtum til 25 eða 40 ára og
er um er að ræða hagstæðari vaxta-
kjör en Íbúðalánasjóður býður upp á
um þessar mundir, en þar fást verð-
tryggð lán með 4,4 til 4,9% vöxtum,
allt eftir því hvort uppgreiðsluákvæði
er í lánasamningum. Athygli vekur að
Arion banki býður þá að hámarki upp
á 60% veðhlutfall. Er þar um að ræða
nokkra breytingu frá því sem tíðkað-
ist á Íslandi á árunum 2004-2008, þeg-
ar einstaklingar gátu fengið íbúðalán
með allt að 100% veðhlutfalli. Því er
ekki hægt að bera saman innreið Ar-
ion banka á markaðinn nú, við kosta-
boð KB banka árið 2004, þegar blásið
var til harðrar samkeppni við Íbúða-
lánasjóð. Raunar lánaði KB banki
langmest af sínum fasteignalánum á
árunum 2004 til 2006. Eftir það varð
mestur vöxtur hjá aðilum á borð við
sparisjóði og Íbúðalánasjóð.
Talsverð breyting
Ásgeir Jónsson, hagfræðingur og
lektor við Háskóla Íslands, segir að
grundvallarbreyting sé að eiga sér
stað á fasteignalánamarkaðnum.
„Bankar lána með tilliti til veðs ann-
ars vegar og greiðsluflæðis hins veg-
ar. Á árinu 2004 fóru bankar að líta í
auknum mæli til greiðsluflæðis, sem
gerði til að mynda ungu fólki mun
auðveldara fyrir að festa kaup á sinni
fyrstu fasteign. Þetta hefur snúist við
að nokkru leyti,“ segir hann.
Ekki eru allir í þeirri aðstöðu að
geta reitt fram 40% eigið fé við fyrstu
fasteignakaup, að sögn Ásgeirs. Hann
segist því reikna með því að flestir
sem nýti sér nýkynnta leið Arion
banka verði þeir sem þegar búi yfir
jákvæðri eiginfjárstöðu í íbúð og þurfi
að stækka við sig. „Ég tel að ungt fólk
hafi í dag mun verri aðgang að fjár-
magni en tíðkast hefur síðustu tvo
áratugi. Því má reikna með að ungt
fólk þurfi nú að leigja húsnæði í
lengra tíma, það er að segja ef bankar
ætla sér nú að krefjast aukins eig-
infjárframlags,“ segir hann.
Fagnar fjölbreytni
Sigurður Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segist
líta samkeppni Arion banka jákvæð-
um augum. „Þetta er gott fyrir mark-
aðinn og eigendur fasteigna,“ segir
hann. „Núna eru uppi allt aðrar að-
stæður en árið 2004. Arion banki býð-
ur tíu punktum hagstæðari kjör en
Íbúðalánasjóður í fyrstu 60% af kaup-
verði og það kemur þeim kaupendum
sem eiga eigið fé til góða. Þeir sem
þurfa að fjármagna hærra hlutfall
kaupverðs t.d. 70% veðhlutfall eða
hærra fá hagstæðari vaxtakjör.“
Sigurður nefnir að veðhlutfall vegi
sennilegra þyngra við fjárfestinga-
ákvarðanir einstaklinga heldur en
vaxtakjör. „Það er alltaf erfiðast að
útvega eigið fé, sérstaklega í tilfelli
fyrstu íbúðakaupenda. Veðhlutföllin
voru hins vegar ívið há á síðustu ár-
um, það er einn lærdóma síðustu ára.
Við höfum líka verið að sjá lægri veð-
hlutföll í löndunum í kringum okkur.“
Hærri vextir annars staðar
Þau fasteignalán sem Arion banki
kynnti til sögunnar í gær eru ein-
göngu verðtryggð. Hinir stóru bank-
arnir, Landsbankinn og Íslandsbanki
bjóða bæði upp á verðtryggð og
óverðtryggð lán. Landsbankinn birtir
ekki vaxtakjör á óverðtryggðum lán-
um á vefsvæði sínu en tekið er fram
að vextir séu breytilegir. Verðtryggð
lán bera 4,8% breytilega vexti.
Samkvæmt upplýsingum frá Unu
Steinsdóttur, framkvæmdastjóra við-
skiptabankasviðs Íslandsbanka, er
unnið að útgáfu á sértryggðum
skuldabréfum til að fjármagna bank-
ann. Vöruframboð og stefna bankans
í þeim efnum haldist í hendur við þá
vinnu. „Við höfum á síðustu misserum
lagt áherslu á að bjóða viðskiptavin-
um óverðtryggð húsnæðislán á mjög
góðum kjörum. Má nefna að bankinn
hefur boðið tímabundin afsláttarkjör
vegna endurútreiknings á erlendum
húsnæðislánum.“
Samkeppni í fasteignalánum á ný
Morgunblaðið/Ásdís
Fasteignamarkaður Samkeppni er hafin á fasteignalánamarkaði á ný. Kaupendur þurfa nú meira eigið fé.
Arion banki kynnir ný og hagstæðari fasteignalán til sögunnar Lægra veðhlutfalls er krafist við
fasteignakaup en tíðkast hefur á síðustu árum Erfiðara að fjármagna við fyrstu kaup en áður
Fjármögnun fasteigna
» Arion banki kynnti í gær
hagstæðari vaxtakjör á fast-
eignalánum en tíðkast hafa á
síðastliðnum tveimur til þrem-
ur árum á Íslandi. Hins vegar
er krafist 40% eiginfjár-
framlags frá væntanlegum
fasteignakaupendum.
» Líklegt er að krafa um aukið
eiginfjárframlag muni torvelda
fyrstu kaupendum aðgang að
fasteignamarkaðnum.
» Hinir stóru bankarnir bjóða
óhagstæðari vexti, ef marka
má upplýsingar á netinu.
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Eigendur tæplega helmings þeirra
erlendu ríkisskuldabréfa, sem Seðla-
bankinn bauðst til að kaupa um miðj-
an apríl, tók tilboði bankans.
Í útboðinu, sem lauk á fimmtudag,
samþykkti Seðlabankinn, fyrir hönd
ríkissjóðs, að kaupa á nafnverði bréf
fyrir um 346 milljónir evra, eða um
57 milljarða króna.
Um er að ræða tvö erlend skulda-
bréf ríkissjóðs, sem falla á gjalddaga
árin 2011 og 2012. Voru þau upphaf-
lega að fjárhæð 1.000 milljónir evra
annars vegar og 250 milljónir evra
hins vegar. Fyrir útboðið núna voru
samtals útistandandi um 800 millj-
ónir evra, en eftir það standa úti
samtals 454 milljónir evra.
Í tilkynningu frá Seðlabankanum
segir að kaupin séu þáttur í lausa-
fjár- og skuldastýringu ríkisjóðs, en
einnig liður í gjaldeyrisforðastýr-
ingu Seðlabanka Íslands. Í lok mars
nam gjaldeyrisforði Seðlabankans
767 milljörðum króna, sem samsvar-
ar um 4,7 milljörðum evra og segir í
tilkynningunni að Seðlabankinn og
ríkissjóður séu því í góðri stöðu til að
greiða þau erlendu lán sem falla í
gjalddaga samkvæmt lánasamning-
um á næstu árum, þar á meðal þau
skuldabréf sem hér um ræðir.
Þegar greint var frá þessum
áformum um miðjan apríl síðastlið-
inn sagði Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri að niðurstaðan gæti ekki
annað en verið jákvæð fyrir Ísland.
„Vextir á skuldabréfunum eru ann-
ars vegar 3,75 prósent og hins vegar
5,4 prósent. Ávöxtun á lausu fé í
gjaldeyrisforðanum er hins vegar í
kringum eitt prósent. Ef við getum
keypt bréfin losnum við því við að
greiða háar vaxtagreiðslur til eig-
endanna. Ef þeir hins vegar ákveða
að halda bréfunum í staðinn fyrir að
selja þau er það mjög mikilvæg
traustsyfirlýsing á íslenska ríkinu,“
sagði Már.
Ríflega helming-
ur vill halda
skuldabréfunum
Morgunblaðið/Ernir
Jákvætt Már sagði niðurstöðuna
aðeins geta verið jákvæða.
Seðlabanki kaupir til baka skuldabréf
● Lánamál ríkisins buðu í gær út tvo
óverðtryggða flokka ríkisbréfa, með
gjalddaga 2012 (RIKB 12 0824) og
2016 (RIKB 16 1013).
Sex gild tilboð bárust í þann fyrr-
nefnda, að fjárhæð 3.600 milljónir að
nafnverði, og var þremur tekið fyrir 700
milljónir, á 3,23% ávöxtunarkröfu.
Jafnmörg tilboð bárust í síðarnefnda
flokkinn og var fimm tekið fyrir 785
milljónir að nafnverði, á 5,54% ávöxt-
unarkröfu.
1,5 ma. ríkisbréf seld
● Fyrirtækið Handpoint ehf. hefur
hlotið Vaxtarsprotann 2011, sem er
viðurkenning fyrir öfluga uppbygg-
ingu sprotafyrirtækis. Fyrirtækið
meira en fjórfaldaði veltu sína milli
áranna 2009 og 2010. Fyrirtækin
Marorka, Trackwell og Gogogic fengu
einnig viðurkenningar fyrir góðan
vöxt á síðasta ári. Vaxtarsprotann
veita Samtök iðnaðarins, Rann-
sóknamiðstöð Íslands og Háskólinn í
Reykjavík.
Handpoint verðlaunað
Skuldabréfa-
vísitala GAMMA
lækkaði um 0,21
prósent í gær og
hefur þá lækkað
um 1,16 prósent í
vikunni. Verð-
tryggði hluti
hennar lækkaði
um 0,95 prósent í
gær og sá óverðtryggði um 0,09
prósent. Velta á skuldabréfamark-
aði nam 10,6 milljörðum.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar
lækkaði um 0,53 prósent í gær og
endaði í 995,62 stigum. Gengi bréfa
Icelandair Group hækkaði um 3,49
prósent á meðan gengi bréfa Öss-
urar lækkaði um 1,76 prósent. Þá
hækkaði gengi Century Aluminum
um 0,16 prósent. Hlutabréfaveltan
nam 117 milljónum króna.
bjarni@mbl.is
Skuldabréf
lækka
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.+
+/0-1/
++2-13
,+-13,
,4-3/0
+/-+33
+,1-++
+-045,
+/+-41
+25-.,
++,-1/
+/3-05
++.-,1
,,-4+2
,4-203
+/-,4/
+,1-0.
+-04.5
+/+-25
+20-+/
,+.-111
++5-,3
+/3-//
++.-25
,,-4/
,4-.42
+/-,2+
+,1-/5
+-0++0
+/,-+.
+20-20
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
LÍFEYRISSJÓÐUR
STARFSMANNA KÓPAVOGSBÆJAR
ÁRSFUNDUR 2011
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar verður
haldinn mánudaginn 23. maí kl. 17.00 í Bæjarstjórnarsal
Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 1. hæð.
Dagskrá:
• Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
• Breyting á samþykktum
• Önnur mál löglega upp borin
Allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi stéttar-
félög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru
þeir hvattir til að mæta.
Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins.
Kópavogi, 3. maí 2011
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar