Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Íhaldsflokkur Davids Camerons,
forsætisráðherra Bretlands, virðist
hafa haldið að mestu sínum hlut í
sveitar- og héraðskosningunum í
Bretlandi í fyrradag og unnið veru-
legan varnarsigur. Verkamanna-
flokkur Ed Milibands vann mjög á
en hann hefur gagnrýnt hart niður-
skurðartillögur stjórnvalda. Leið-
togi Frjálslyndra demókrata, Nick
Mikill ósigur Frjálslyndra
Leiðtogastaða Cleggs gæti verið í hættu eftir sveitarstjórnarkosningarnar
Verkamannaflokkurinn vann mikið á og íhaldsmenn héldu sínum hlut
Clegg aðstoðarforsætisráðherra,
varð fyrir miklu áfalli, flokkurinn
galt afhroð.
Skoskir þjóðernissinnar (SNP)
undir forystu Alex Salmonds, for-
sætisráðherra skosku heimastjórn-
arinnar, unnu mikinn sigur og hafa
nú meirihluta á þinginu í Edinborg.
Miliband sagði að Clegg hefði
fengi þau skilaboð frá kjósendum að
hann ætti ekki að starfa með íhalds-
mönnum. Ljóst er að leiðtogastaða
Cleggs getur verið í hættu og jafnvel
stjórnarsamstarfið. Ekki bætti úr
skák fyrir hann að fyrstu tölur úr
þjóðaratkvæði um breytingar á
kosningakerfinu bentu til þess að til-
lögurnar, sem Clegg barðist fyrir,
hefðu verið felldar með miklum mun.
Núverandi kerfi tryggir þeim sem
flest fær atkvæðin þingsætið, án til-
lits til kjörfylgis. Frjálslyndir hafa
víðast verið í þriðja sæti og lúta þing-
mannsefni þeirra því oftast í lægra
haldi fyrir Íhaldsmönnum eða fram-
bjóðendum Verkamannaflokksins.
Vildu forgangsröð
» Í tillögunum sem féllu var
gert ráð fyrir að hver kjósandi
gæti raðað frambjóðendum í
forgangsröð.
» Þessi tilhögun myndi
gagnast vel Frjálslyndum, at-
kvæði þeirra myndu nýtast
betur.
Reuters
Hugsi Nick Clegg aðstoðarforsætis-
ráðherra við heimili sitt í gær.
Liðsmenn íslamistasamtaka í Quetta í Pakistan hrópa
slagorð gegn Bandaríkjunum eftir bænir í gær og veifa
myndum af Osama bin Laden. Al-Qaeda sendi í gær frá
sér yfirlýsingu á netinu og viðurkenndi að bin Laden
væri fallinn, Bandaríkjamönnum var hótað grimmileg-
um hefndum. Dauði leiðtogans myndi þýða „bölvun“
fyrir þá, einnig var hvatt til uppreisnar í Pakistan.
Búið er að þýða nokkuð af þeim umfangsmiklu gögn-
um, tölvudiskum, minnismiðum og öðru, sem sérsveit-
armennirnir höfðu á brott með sér eftir að hafa vegið
bin Laden. Bandarískur hershöfðingi, Richard Mills,
segir gögnin geysilegan happafeng, þau muni t.d. geta
dugað til að finna aðila sem hafi stutt uppreisnarmenn í
Afganistan með fé og vopnum. Nú er ljóst að bin Laden
var í virku sambandi við aðstoðarmenn sína og lagði á
ráðin um ný hryðjuverk. Fram kemur að hann velti fyr-
ir sér árásum á járnbrautarlestir og fleiri mannvirki í
Bandaríkjunum á næstu mánuðum.
Reuters
Al-Qaeda segir bin Laden fallinn
einn af uppkomnum sonum leiðtog-
ans lét lífið ásamt þrem barnabörn-
um.
Sósíalíski vinstriflokkurinn
(SV), á aðild að samsteypustjórn
Jens Stoltenbergs. Mikill urgur er
meðal friðarsinna í flokknum og
nokkrar flokksdeildir hafa þegar
ályktað að stöðva beri aðild Norð-
manna að átökunum. Þær segja að
bandamenn hafi túlkað ályktun SÞ
of frjálslega, nú sé líka greinilega
ætlunin að setja Gadaffi af með
vopnavaldi. Ólíklegt er að stjórnin
springi vegna málsins, fullyrt er í
Aftenposten að leiðtogi flokksins,
Kristin Halvorsen, vilji að Norð-
menn hætti ekki strax þátttökunni.
Þeir hafi lofað að leggja fram flug-
vélar í þrjá mánuði og verði að
standa við það. En Halvorsen vill
halda flokknum saman og segir að
Norðmenn eigi að beita sér manna
mest fyrir friðsamlegri lausn í Líbíu.
Friðarsinnar gagnrýna
aðgerðir NATO í Líbíu
Margir félagar Sósíalíska vinstriflokksins í Noregi vilja
að þjóðin hætti þátttöku í loftárásunum á stöðvar Gaddafis
Komið hefur í ljós að dularfullt brott-
hvarf Mahmouds Ahmadinejads Ír-
ansforseta í 11 daga átti sér skýringu:
hann var sennilega að mótmæla því
að ajatollah Ali Khamenei, æðsti
trúarleiðtogi og valdamesti maður
landsins, skyldi grípa fram fyrir
hendurnar á forsetanum. Khamenei
setti leyniþjónusturáðherra landsins
aftur í embætti eftir að Ahmadinejad
hafði í reynd þvingað hann til að segja
af sér.
Hatrömm valdabarátta mannanna
tveggja hefur orðið til þess að nokkrir
nánir bandamenn forsetans hafa ver-
ið handteknir og m.a. sakaðir um að
nota galdra og ákalla framliðna sér til
hjálpar.
Starfsmannastjóri forsetans, Es-
fandiar Rahim Mashaei, og fleiri hafa
að sögn breska
blaðsins Guardian
þegar verið hand-
teknir. Mashaei
vill takmarka
áhrif klerka í
stjórnmálum og
margir álíta að
Ahmadinejad vilji
að hann taki við af
sér.
Öflugir liðs-
menn Khameneis úr röðum íhalds-
manna á þingi vilja að forsetinn verði
ákærður fyrir að óhlýðnast Khame-
nei. Abdulhassan Banisadr, fyrsti for-
seti landsins eftir byltinguna 1979,
fór í útlegð eftir að hann var sakaður
um að reyna að grafa undan klerka-
stjórninni. kjon@mbl.is
Menn Íransforseta
sakaðir um galdra
Hörð valdabarátta í gangi milli
æðstu manna og handtökur í Teheran
Ajatollah Ali
Khamenei
Stjórn Gaddafis hefur framið stríðsglæpi og það sem á alþjóðalagamáli
er nefnt glæpir gegn mannkyninu, að því er fram kemur í nýrri skýrslu
frá mannréttindasamtökunm Amnesty International. Fulltrúar Am-
nesty hafa safnað upplýsingum með því að ræða við fulltrúa samtak-
anna Læknar án landamæra, einnig fjölda Líbíumanna, m.a. í borg-
inni Misrata þar sem sveitir Gaddafis hafa gert harðar
flugskeytaárásir undanfarnar vikur. Uppreisnarmenn ráða enn
borginni. Annars staðar er lítið um átök, þrátefli er í stríðinu.
Gaddafi sekur um stríðsglæpi
NÝ SKÝRSLA AMNESTY INTERNATIONAL UM LÍBÍU
Skannaðu kóð-
ann til að lesa
meira um Líbíu.
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Flugmenn ríkja Atlantshafs-
bandalagsins, Svía og fleiri þjóða
sem taka þátt í vopnaða flugeftirlit-
inu í Líbíu, geta ekki beitt sér af
fullu afli vegna skilyrða sem örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna setti. Að-
eins má beita vopnavaldi til að
vernda óbreytta borgara.
En NATO, sem stýrir aðgerð-
unum, hefur ákveðið að stjórn-
stöðvar Gaddafis, þ. á m. í Tripoli,
séu lögmæt skotmörk. Nú er ljóst að
norskar F-16 þotur tóku þátt í árás
fyrir tveim vikum sem menn Gad-
dafis segja að hafi lyktað með því að
Ársfundur Sameinaða lífeyrissjóðsins verður haldinn
fimmtudaginn 19. maí nk., kl. 16.00, á Hilton
Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.
ÁRSFUNDUR 2011
Dagskrá
1. Fundarsetning
2. Staða og framtíðarsýn í orkumálum,
erindi Harðar Arnarssonar, forstjóra Landsvirkjunar
3. Almenn ársfundarstörf
4. Önnur mál löglega upp borin
Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar og rétthafar
séreignarsparnaðar rétt til setu á fundinum.
Reykjavík, 5. maí 2011
Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins
Ársskýrslu og dagskrá fundarins má nálgast á skrifstofu
sjóðsins og á www.lifeyrir.is
Borgartún 30, 105 Reykjavík
Sími 510 5000
mottaka@lifeyrir.is
lifeyrir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
46
44
9