Morgunblaðið - 07.05.2011, Side 26

Morgunblaðið - 07.05.2011, Side 26
FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is L yf hafa náð yfirhöndinni sem meðferðarform við geðröskunum á Íslandi, jafnvel þótt lyfin henti ekki öllum og oft sé ekki vitað hvernig þau virka. Þetta má rekja annars vegar til þeirrar ofur- áherslu sem lögð er á líffræðilegar skýringar á orsökum geðraskana og hinsvegar til áhrifa frá lyfjaiðn- aðinum. Þetta segir dr. Steindór J. Erl- ingsson, vísindasagnfræðingur. Hann ritar grein, sem er afrakstur tveggja ára rannsóknarvinnu, í nýjasta tölu- blað Tímarits félagsráðgjafa, þar sem hann leiðir líkur að því að geðlæknis- fræðin glími við hugmyndafræðilega kreppu. Líffræðin ósönnuð tilgáta Enn er fjarri lagi að hægt sé að segja til um með nokkurri vissu hver orsök geðraskana sé í raun og veru. Síðustu áratugi hafa hinsvegar líf- fræðilegar tilgátur smátt og smátt orðið ráðandi, ekki síst sú útbreidda hugmynd að þunglyndi, kvíði og fleiri geðraskanir stafi af ójafnvægi í tauga- boðefnum heilans. „Þessu er haldið að fólki sí og æ, en þetta er algjörlega ósönnuð til- gáta,“ segir Steindór og vísar í grein sem birtist í fræðiritinu American Journal of Psychiatry í október 2010 þar sem niðurstaðan var sú að þrátt fyrir áratugalangar rannsóknir hefði ekki tekist að sannreyna að efnaójafn- vægi ylli geðröskunum. Einkenni, ekki orsakir Að sögn Steindórs var það í kringum 1980 sem byrjað var að leggja aukna áherslu á líffræðilegu skýringarnar. Nýtt greiningarkerfi geðraskana var smíðað sem byggðist á flokkun ákveðinna einkenna í skýrt afmarkaðar raskanir. „Þeir sem bjuggu til þetta kerfi sáu fyrir sér að í framtíðinni myndu líffræðilegu skýr- ingarnar finnast með aukinni tæki. Nú 30 árum síðar eru þær ekki komnar. Þannig að þetta kerfi lýsir bara ein- kennum, en greinir ekki orsakirnar.“ Flokkunarkerfið sem geðlæknis- fræðin reiðir sig á virðist því vera hluti af vandanum, að sögn Steindórs, því það byggist á veikum vísindalegum grunni. Afleiðingarnar virðast m.a. vera þær að fjöldi þeirra einstaklinga sem hægt er að greina með geðröskun hefur aukist verulega, og lyf yf- irgnæfa önnur meðferðarform geð- raskana. Í ljósi þess að ekki er vitað fyrir víst hvað það er sem veldur geðrösk- unum eins og t.d. þunglyndi, þarf heldur ekki að koma á óvart að ekki er með vissu vitað hvernig t.d. þung- lyndislyfin virka í raun. Steindór rekur einnig í grein sinni í Tímariti félagsráðgjafa að hvorki ríkir einhugur um mögulega virkni geðlyfja né hversu mikið beri að nota þau til að meðhöndla geðrask- anir, en óvíða eru fleiri ávísanir á geð- lyf en einmitt á Íslandi. Fleiri valmöguleikar en lyf Steindór segir að horfast verði í augu við þá veikleika sem séu í kerfinu og skapa umræðu milli fagstétta. Hann segist t.d. gjarnan vilja sjá að meðferð hjá sálfræðingum verði einn- ig niðurgreidd af Sjúkratryggingum Íslands, enda hafi sýnt sig að hún gagnist mörgum ekki síður og jafnvel betur en lyfjameðferð, sérstaklega þeim sem þjást af vægu eða miðlungs þunglyndi. „Það er þægileg leið að ávísa lyfj- um, og lyfin hjálpa auðvitað mörgum, það má ekki líta fram hjá því. En þau hjálpa ekki öllum og við verðum að fara að horfa í aðrar áttir en aðeins til lyfjagjafar og gera fleiri valmöguleika sýnilegri.“ Hugmyndafræðileg kreppa geðlækninga Morgunblaðið/Ásdís Lyf Líffræðilegar tilgátur um orsakir geðraskana urðu smám saman ráð- andi í rannsóknum innan geðlæknisfræðinnar. Notkun geðlyfja er mikil. 26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Íjúní 2009undirrituðuJóhanna Sig- urðardóttir og Steingrímur J. Sig- fússon stöðug- leikasáttamála við aðila vinnumarkaðarins í þeim tilgangi að lengja kjarasamn- inga og stuðla að endurreisn efnahagslífsins. Sáttmálinn var ítarlegur og þar var einkum horft til þess að ríkisstjórnin mundi hleypa framkvæmdum af stað og bæta stöðu atvinnu- lífs og heimila. Auk þess lögðu atvinnurekendur sérstaka áherslu á að endurskoðun fisk- veiðistjórnunar yrði í þeim sáttafarvegi sem lagt hefði ver- ið upp með við skipan sér- stakrar sáttanefndar um það mál. Skemmst er frá því að segja að stöðugleikasáttmálinn, sem undirritaður var við hátíðlega athöfn og fylgt úr hlaði með há- stemmdum yfirlýsingum, hélt ekki. Ríkisstjórnin stóð ekki við sinn hluta sáttarinnar og eftir að hafa sýnt nokkurt lang- lundargeð sögðu bæði atvinnu- rekendur og verkalýðshreyfing sig frá sáttmálanum og hafa síðan verið gagnrýn á fram- göngu ríkisstjórnarinnar í þessu efni. Þetta er ástæða þess að um leið og því er fagnað að verk- föllum hefur verið forðað þá hljóta menn að hafa miklar efa- semdir um að forsendur ný- gerðra samninga haldi. Þegar í fyrradag kom í ljós að forsætis- ráðherra gerði sér enga grein fyrir því hver efnahagsleg áhrif samninganna kynnu að verða og fór með fleipur í því sambandi. Sú staðreynd gerir yf- irlýsingu ríkis- stjórnarinnar í tengslum við ný- gerða kjarasamn- inga enn ótrúverðugri en ella. Annað sem gerir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar ótrúverðuga er hve mjög hún minnir á stöð- ugleikasáttmálann, til dæmis hvað varðar fyrirhugaðar framkvæmdir. Þar er rík- isstjórnin ítrekað að lofa sömu framkvæmdunum eða að kynna óljós fyrirheit um ótilgreindar stórfelldar fjárfestingar. Full- komlega óútskýrt er hvers vegna menn ættu að taka meira mark á þessu nú en áður. Með nýgerðum kjarasamn- ingum er teflt á tæpasta vað í efnahagslegu tilliti. En þar sem launþegar hafa orðið fyrir miklum búsifjum og laun of margra eru allt of lág er eðli- legt að reynt sé að ná saman um mjög metnaðarfull mark- mið. Vandinn er hins vegar sá að án verulegrar stefnubreyt- ingar hjá stjórnvöldum verða að teljast litlar líkur á að at- vinnulífið geti staðið undir þeim mikilvægu kjarabótum sem samið hefur verið um. Allir hljóta að vona að nú sé komið að því að ríkisstjórnin breyti um kúrs, láti hendur standa fram úr ermum og horfi á hags- muni landsmanna en ýti kredd- unum og fordómunum til hlið- ar. Það getur hins vegar seint talist mikið raunsæi að treysta því í blindni að slíkar breyt- ingar gangi eftir. Margt þarf að breyt- ast hjá stjórnvöldum til að grundvöllur kjarasamninga haldi} Teflt á tæpasta vað Innanrík-isráðherra hafði í vikunni uppi góð orð um að tryggja traustar samgöngur við Vestmannaeyjar. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu um Landeyjahöfn og næstu skref í samgöngum milli lands og Eyja þar sem stjórnvöld voru gagnrýnd fyrir að hægt gengi að koma Landeyjahöfn í nothæft ástand. Vissulega er það rétt sem ráðherra benti á að veðurfar hefur verið óhagfellt það sem af er ári. Þá má líta það já- kvæðum augum að um miðjan mánuðinn muni Siglinga- málastofnun skila af sér skýrslu um málið, eins og ráð- herra boðaði. Meginatriðið er þó að stjórn- völd geri sér grein fyrir að samgöngur við Vestmanna- eyjar eru enn í algerum ólestri. Enn fremur að þessar að- stæður eru óþol- andi fyrir íbúa Vestmannaeyja og aðra þá sem þang- að vilja komast. Síðast í gær voru, með óþægilega skömm- um fyrirvara eins og oft hefur verið, afboðaðar ferðir til Landeyjahafnar og ákveðið að sigla til Þorlákshafnar. Aug- ljóst er að þetta getur ekki gengið lengur og stjórnvöld verða án tafar að grípa til þeirra aðgerða sem duga til að koma samgöngum við Vest- mannaeyjar í það horf sem lof- að hefur verið. Núverandi stjórnvöld hafa haft ríka til- hneigingu til að setja mál í nefnd og hugleiða aðgerðir í stað þess að framkvæma. Slík vinnubrögð duga ekki lengur í þessu máli. Óvissan um sam- göngur til Eyja hefur verið nógu slæm í vetur, en ekki er hægt að bjóða upp á að hún haldi áfram í sumar. Landeyjahöfn má ekki vera í lamasessi fram eftir sumri} Samgöngur í ólestri V ið mannfólkið erum almennt mjög íhaldssamar skepnur og óttumst breytingar.Á það sérstaklega við þegar kemur að því sem skiptir okkur hvað mestu máli, aðbúnaði barna og heilbrigðismálum almennt. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því hvernig stendur á því að svo margir eru alfarið á móti grundvallarbreytingum í mennta- og heilbrigð- ismálum. Margir eru sannfærðir um að besta, ef ekki eina leiðin til að skila hágæða heilbrigðis- og menntaþjónustu til almennings sé sú að ríkið sjái um að veita hana. Ég er ekki að fullyrða að þeir sem trúa þessu geri það af íhaldssemi einni saman, en hún gerir þeim hinum sömu erfiðara fyrir að íhuga breytingar á þessum kerfum. Hagfræðiprófessorinn Donald J. Boudreaux skrifaði áhugaverðan pistil í Wall Street Journal í vikunni þar sem hann velti upp þeirri spurningu hvernig mat- vörumarkaðurinn liti út ef hann væri skipulagður á sama hátt og hið opinbera grunnskólakerfi. Hér á Íslandi myndi þetta kerfi líta þannig út að við myndum öll greiða skatt til ríkisins sem svo væri notaður til að standa undir rekstri matvöruverslana. Hver íbúi gæti aðeins verslað í einni slíkri verslun. Hann gæti hugs- anlega flutt sig úr einni verslun í aðra, en slíkur flutningur væri flókinn og tímafrekur. Verslunin sjálf væri frábrugðin þeim verslunum sem við þekkjum nú. Í stað þess að ganga um verslunina og velja sjálf hvað við viljum kaupa myndum við koma að afgreiðsluborðinu og fá mat- vörupakkann okkar „ókeypis“. Allir fengju samskonar matvörupakka og hefðu lítið ef nokkuð um það að segja hvað í honum væri. Vel meinandi fólk væri nefnilega búið að reikna út hvað við ættum að fá, hvað væri best fyrir okkur. Niðurstöður þessara útreikninga væru birtar í matvöruskrá, sem stjórnendur og starfsmenn verslananna hefðu til hliðsjónar í sínu starfi. Lítil sem engin samkeppni væri á milli verslananna, hvort heldur sem væri í gæðum eða verði, og því enginn hvati fyrir stjórn- endur þeirra að bæta þjónustuna, nema að því leyti sem pólitískir yfirboðarar þeirra krefð- ust. Það merkilega við þetta er að mjög fljótlega myndi stór hluti þjóðarinnar venjast þessu og telja þetta hið besta mál. Þeir sem myndu mæla gegn þessu kerfi og vilja gera það markaðsdrifnara yrðu annaðhvort af- greiddir sem froðusnakkar eða úthrópaðir sem nýfrjáls- hyggjumenn sem hata allt og alla. Til allrar hamingju lifum við ekki í slíku samfélagi. Mat- vælaverð er vissulega hátt á Íslandi en það hefur lækkað, þökk sé verslunum eins og Bónus og Krónunni. Úrval matvæla er margfalt það sem var fyrir nokkrum áratug- um og gæðin hafa aukist sömuleiðis. Það er áhugavert að velta því fyrir sér hvar menntakerfið stæði ef sömu kraft- ar og hvatar hefðu fengið að móta það líka. bjarni@mbl.is Bjarni Ólafsson Pistill Matvælaverslun ríkisins STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Einn af hverjum fimm, eða um 20% fólks, upplifir depurð eða þunglyndi einhvern tíma á ævinni. 104.149 Íslendingar notuðu geðlyf árið 2010 samkvæmt lyfjagagnagrunni land- læknis. 34.500 af þeim einstaklingum notuðu þunglyndislyf. 952.619 ávísanir á geðlyf voru gefnar árið 2010. ‹ LYFJANOTKUN › »

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.