Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011 Reykjavík Til leigu eða sölu öll húseignin við Bitruháls 2, áður höfuðstöðvar Osta- og smjör- sölunnar. Húseignin er 4.723,5 fm að stærð og er að hluta til á tveimur hæðum. Góð staðsetning á hornlóð með góðu athafnarými og fjölda bílastæða. Eignin skiptist þannig í stórum dráttum: Vinnslusalir með fjórum vörumóttökupöllum, afgreiðsla (verslun) o.fl. um 4.300 fm, og skrifstofur um 570 fm. Áætlaður viðbótarbygginga- réttur er fyrir allt að 18.400 fm atvinnuhúsnæði á lóðinni. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. Bitruháls 2 – atvinnuhúsnæði og byggingarréttur – til leigu eða sölu Sími 588 9090 • Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali Aðalfundur Gigtarfélags Íslands Aðalfundur Gigtarfélags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 11. maí nk. kl. 19:30 í húsnæði Gigtarfélags Íslands að Ármúla 5, 2. hæð. Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Dr. Ingibjörg Jónsdóttir, associate professor, við Institute of Stress Medicine í Gautaborg vera með fyrirlestur um: “Áhrif streitu og hreyfingar fyrir heilsuna” Allir eru velkomnir Gigtarfélag Íslands Nú þegar kjara- samningar sigldu í strand og ríkisstjórn- armeðlimir tala um óbilgirni LÍÚ finnst mér kominn tími til að fólkið í þessu landi átti sig á því að við sem stundum sjómennsku sem atvinnu erum líka launþegar. Það er alveg ljóst frá mínum bæjardyrum að ekki er hægt að gera kjarasamning við sjómenn né þá sem að fiskvinnslu koma nema útgerðirnar viti eftir hvaða leikreglum þær eiga að fara. Það er nú einu sinni þannig með fyrirtæki að það verður að byggja á tekjugrunni til að það sé rekstrarhæft. Grunnur útgerðar eru aflaheimildir. Áður en lengra er haldið ætla ég að út- skýra hvernig makrílveiði hófst. Var það Hafrannsóknastofnun sem hafði frumkvæði að þeirri til- raun? Voru það stjórnmálamennirnir sem hringdu í útgerðirnar og hvöttu þær til veiðanna? Nei, það var þannig að tvö skip frá Vestmannaeyjum voru að toga eitt troll saman í yfirborðinu fyrir austan Ísland sumarið 2006 og fengu makríl með síldinni sem þeir ætluðu að veiða, fljótlega bættist þriðja Eyjaskipið við, Huginn VE. Gott mál fyrir okkur sem á þessum skipum vorum, ágætis búdrýgindi fyrir áhafnir og fyrirtækið. Þetta skilaði gjaldeyri í þjóðarbúið og sjó- menn borguðu meiri skatta sem skil- aði sér í meiri veltu inn í þjóðfélagið öllum til heilla. Menn sáu tækifæri í þessum veiðum og undanfarin ár hafa menn eytt ómældum tíma og peningum í þróun á veiðarfærum, eyðslu á olíu og öðrum kostnaði til að ná tökum á þessum veiðum og skapa með því veiðireynslu. Ef drifkraftur þessara útgerða og áhafna hefði ekki komið til þá væri staða Íslands tals- vert önnur í dag. Fyrir sumarið 2009 þurftu stjórnvöld að grípa til þess að fara að stjórna þessum veiðum, eða þannig. Sjávarútvegsráðherra gaf út heildarkvóta til skipa. Nú var farið í kappfiskirí til að ná sem mestu í hús og lauk veiðunum um miðjan júlí það ár. Fyrir sumarið 2010 var farin önn- ur leið, úthlutað eftir veiðireynslu til þeirra sem höfðu stundað þessar veiðar. Síðan var tekinn hluti af kvót- anum og dreift til hinna og þessara aðila allt niður í árabáta. Hvernig gekk svo þessi ráðherrasnilli fyrir sig? Margir héldu að þetta væri nú ekki mikið mál en guggnuðu með brostnar vonir. Trúðu því að það væri nú ekki mikið mál að losna við aflann. En ráðherrann Jón vildi líka að mak- ríllinn yrði unninn til manneldis en færi sem minnst í mjöl og lýsi. Ekk- ert var hugsað um það hvar mestu verðmætin yrðu til. Þannig er að verð á fiski til mjöl- og lýsisvinnslu hefur verið í hæstu hæðum og er ég viss um að þjóðbúið hefur grætt á því að stór hluti af þessum afla fór í mjöl og lýsi. Það er nú einu sinni þannig að það sem skiptir máli að lokum er það hvað er eftir í buddunni og ég er nokkuð viss um að staðreyndin síð- asta sumar hafi verið sú að mjöl- og lýsisvinnsla hefur skilið meira eftir þar. Margir halda að það sé ekkert mál að finna markaði fyrir fram- leiðslu sem verður til í sjávarútvegi. Það tekur jafnvel áratugi að skapa sér nafn í þessum bransa, veit ég mæta vel. Við á þessum þremur skip- um, Sighvati Bjarnasyni VE, Kap VE og Huginn VE, fiskuðum rúm 34% af heildarmagni makríls fyrsta árið en fáum úthlutað nú um 14% af úthlutuðu magni. Var það kvótabrask sem varð þess valdandi að við misst- um þessar tekjur á þessum skipum? Nei, stjórnmálamenn eru þess valdandi og ég er viss um það að ef menn skoða söguna þá hefur meiri- hluti aflaheimilda sem flust hafa frá Vestmannaeyjum verið vegna beinna aðgerða stjórnmálamanna, ekki vegna útgerðanna sjálfra. Nú dreymir hluta þessarar þjóðar um það að útgerðir þessa lands borgi meira fyrir að fá að veiða en nú er. Hvernig eiga stórskuldugar útgerðir, sem margar hverjar eru, að bæta á sig álögum? Hafa stjórnmálamenn ekki talað um að útgerðin væri skuld- sett upp í rjáfur? Flestir vita að sjó- menn eru á hlutaskiptakerfi. Ef vel gengur, verð á afurðum hátt og kvótastaða góð hjá fyrirtækjum þá höfum við sjómenn ágætis laun, borgum skatt til ríkisins, útsvar til sveitarfélagsins og tökum þátt í neyslunni með því að fæða okkur og klæða. Það er ljóst mál að ef farin verður sú leið að auka álögur á út- gerð þá lækka tekjur hjá sjómönnum því það er sá kostnaður sem hægt er að breyta en þú breytir ekki kostnaði eins og olíu sem við stjórnum ekki. Sveitarfélögin missa útsvars- tekjur, skattar sjómanna minnka en ríkið gæti haldið sínu vegna meiri gjaldtöku og veltuáhrif minnka í samfélaginu vegna launalækkunar sjómanna. Tökum dæmi. 200.000 kg farmur af ísuðum þorski á togara. Gjaldtaka í ríkissjóð. kr. 30 per kg sem gerir þá kr. 6.000.000. Það þýðir að hásetahlutur er lægri um kr. 88.800. Ef útsvars- prósentan er 12% þá missir sveitarfé- lagið kr. 10.656 úr sínum aski, bara vegna eins háseta. Er ekki eðlilegra að þessir peningar myndi veltuáhrif í samfélaginu frekar en að gímaldið mikla taki þá til sín. Það vantar heil- brigða umræðu um þessi mál og öf- undlausa hugmyndafræði. Þurfa stjórnmálamenn ekki að afla sér trausts hjá þjóðinni áður en þeir hætta sér út í þessar breytingar? Sýnir ekki nýlegt Icesave-dæmi að þjóðin telur þá allflesta dómgreind- arlitla? Kjarasamningar, LÍÚ, kvótakerfið og fleira Eftir Örn Friðriksson » Það er ljóst að ekki er hægt að gera kjarasaming við sjó- menn og landvinnslu- fólk nema útgerðir viti eftir hvaða leikreglum á að fara. Örn Friðriksson Höfundur er yfirvélstjóri á Sighvati Bjarnasyni Ve.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.