Morgunblaðið - 07.05.2011, Side 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011
✝ Pétur Breið-fjörð Sig-
urjónsson var fædd-
ur í Lárkoti í Eyrar-
sveit 30. nóvember
1918. Hann lést á
dvalarheimilinu
Fellaskjóli í Grund-
arfirði 28. apríl
2011. Hann var son-
ur hjónanna Sig-
urjóns Halldórs-
sonar skipstjóra og
útgerðarmanns, f. 1.2. 1898, d.
31.1. 1987 og Bjargar Her-
mannsdóttur, f. 20.11. 1890, d.
31.3. 1977, konu hans.
Á fimmta ári fluttist Pétur
ásamt foreldrum sínum og yngri
bróður, Hermanni Kristberg, f.
1922, frá Lárkoti, þegar for-
eldrar hans keyptu Norður-Bár í
Eyrarsveit.
Pétur lagði ungur stund á sjó-
mennsku, bæði með föður sínum
og á eigin vegum en lengst af
vann hann sem vélgæslumaður í
arfirði, þar sem þau byggðu sér
svo hús að Eyrarvegi 18. Pétur
andaðist á Dvalarheimilinu Fella-
skjóli í Grundarfirði 28. apríl sl.
en þar bjuggu þau Guðrún síð-
ustu æviárin.
Börn Péturs og Guðrúnar eru:
Pétur, f. 28.3. 1947, d. 28.4. 1947,
Kristín, f. 17.2. 1949 og Sigurður
Pétur, f. 11.4. 1956. Kristín er gift
Kristjáni L. Runólfssyni, börn
þeirra eru: Guðrún, f. 18.3. 1968,
gift Kristni Sigurþórssyni, börn
þeirra eru: Sjöfn Óskarsdóttir, f.
23.6. 1994, Sigurþór, f. 8.1. 2003
og Signý Lára, f. 24.3. 2005. Lára
Ágústa, f. 25.5. 1971, gift Gunnari
Valdimarssyni, börn þeirra eru:
Jón Pétur, f. 7.9. 1991, d. 19.7.
1997, Arnar, f. 3.11. 1993, Bjarni,
f. 31.8. 2003 og Haukur, f. 23.11.
2005. Runólfur Jóhann, f. 10.8.
1985, sambýliskona hans er Ingi-
björg Eyrún Bergvinsdóttir. Sig-
urður Pétur, f. 11.4. 1956. Sig-
urður var giftur Ásdísi Björk
Stefánsdóttur, þau slitu sam-
vistum 2009. Stjúpdætur Sig-
urðar og dætur Ásdísar eru Mar-
grét Huld Guðmundsdóttir og
Svanhildur Rós Guðmundsdóttir.
Útför Péturs verður gerð frá
Grundarfjarðarkirkju í dag, 7.
maí 2011, og hefst athöfnin kl. 14.
Hraðfrystihúsi
Grundarfjarðar eða
í 51 ár. Eftirlifandi
af bræðrum Péturs
er Hermann, en
yngri bræður
þeirra, Ágúst, f.
1925, og Halldór, f.
1926, féllu frá langt
fyrir aldur fram,
Halldór árið 1979 og
Ágúst árið 1982.
Hálfsystur áttu þeir
sammæðra, Jensínu Maríu, f.
1909. María giftist og bjó í Fær-
eyjum til dauðadags árið 2003.
Sigurjón og Björg voru Breiðfirð-
ingar og Snæfellingar og bjuggu
alla sína búskapartíð í Eyrarsveit
og þéttbýlinu Grundarfirði. Það
gerðu synir þeirra einnig.
Pétur hóf sambúð með eftirlif-
andi eiginkonu sinni Guðrúnu
Hansdóttur frá Brekkubæ á
Hellnum árið 1943, en þau giftu
sig árið 1995. Þau bjuggu fyrst í
Norður-Bár en síðan í Grund-
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
(Pétur Þórarinsson)
Elskulegi afi minn sem ég
kallaði þó Pétur frá því ég hitti
hann fyrst er fallinn frá. Honum
fylgja þó ótal margar ljúfar og
góðar minningar í huga mínum.
Ég gleymi seint minni fyrstu
ferð vestur þá nærri 4 ára gömul,
farið var í samfloti á Willys og
Volvo en ófærðin og veðrið var
þó svo slæmt að skilja varð bíl-
ana eftir á Kerlingarskarðinu og
flytja okkur restina á flutninga-
bíl. Síðan þá hafa hrannast upp
margar góðar stundir á Eyrar-
vegi 18 en þar átti ég mjög svo
gott yfirlæti þangað til Gunna og
Pétur fluttu þaðan. Ég man að
ég átti mitt fasta sæti við eldhús-
borðið við hliðina á Pétri og lét
það eftir með herkjum svona inn
á milli þegar hin barnabörnin
mættu vestan úr borginni. Veit
ekki hvað ég eyddi mörgum
stundum við eldhúsborðið með
þeim eða inni á þeirra yndislega
heimili. Ég fékk janframt að
fylgja Pétri ansi oft hvort sem
hann var að stússa í bílskúrnum,
berja harðfisk, gera við bíla eða
sækja trillu. Það stendur þó upp
úr þessum minningum hversu
ljúfur hann var og góður, aldrei
byrsti hann sig við mig og ekki
var leiðinlegt þegar hann leyfði
mér að vinna sig í „marías“ en
það spiluðum við ansi oft. Ekki
var síðra að koma þarna við á
Eyrarveginum þegar ég var
komin á unglingsárin og fá sér
jólakökubita, eða þegar ég var
komin á framhaldsskólaaldurinn
og vann fyrir vestan á sumrin,
alltaf var jafn gott að koma við á
Eyrarveginum. Og seinna meir
gaf það fjölskyldu minni og börn-
um mikið að halda jól með þess-
um kæru hjónum og urðu þau
nokkur skiptin sem þau komu til
okkar á aðfangadag og fannst Ír-
isi og Hugrúnu það afar spenn-
andi og minntust þær á það þeg-
ar við héldum okkar jól í
Danaveldi að nú vantaði fleiri til
að halda jól með og þar með átt
við Gunnu og Pétur. Ég vil því að
endingu segja: Takk kærlega
fyrir ótal margar góðar stundir
sem hafa gefið mér mikið og ekki
síður kennt mér mikið. Minning-
arnar góðu lifa áfram um góðan
og einstakan mann sem verður
sárt saknað og hlátur hans og
bros lifir í huga mér og kannski
læðist einstaka hrota með.
Svanhildur Rós
Guðmundsdóttir.
Það fór ekki mikið fyrir föð-
urbróður mínum, drengnum sem
fæddist í lágreistum húsakynn-
um í Lárkoti í Eyrarsveit síðasta
dag nóvembermánaðar árið
1918. Það voru viðsjárverðir
tímar. Fyrstu mánuði Péturs í
móðurkviði lifðu Íslendingar
mestu frosthörkur sem sögur
fara af, frostaveturinn mikla og
heimsstyrjöld hafði þegar hert
verulega að lífskjörum fólks.
Heyfengur bænda það sumar
varð rýr, um haustið gaus Katla
og spænska veikin reyndi enn
frekar á þolrif landans. Þegar
Pétur fæddist var þetta þó flest á
undanhaldi og nýir tímar fram
undan.
Daginn eftir að Pétur kom í
heiminn fögnuðu Íslendingar
fullveldi. Í ræðu Sigurðar Eg-
gerz, starfandi forsætisráðherra,
sagði: „Í dag byrjar ný saga […]
Það eru ekki aðeins stjórnmála-
mennirnir, er miklu ráða um mál
þjóðarinnar, sem skapa hina
nýju sögu, nei, það eru allir. All-
ir, sem inna lífsstarf sitt af hendi
með alúð og samviskusemi, auka
veg hins íslenska ríkis. Og sú er
skylda vor allra.“
Og víst er að Pétur Breiðfjörð
sinnti skyldu sinni. Hann innti
lífsstarf sitt af hendi af alúð og
samviskusemi og átti þannig
sinn þátt í að skapa hina nýju
sögu. Hann lagði fyrst stund á
sjómennsku en varð síðan vél-
stjóri í Hraðfrystihúsi Grund-
arfjarðar sem þá hafði verið
stofnsett og varð mikil lyfti-
stöng í atvinnulífi staðarins. Því
starfi gegndi hann í meira en
fimm áratugi og var án efa einn
af traustustu stólpunum í starf-
semi fyrirtækisins.
Meðal fyrstu æskuminninga
Péturs eru búferlaflutningar úr
útsveitinni en vorið 1923 festu
foreldrar hans, þau Sigurjón
Halldórsson skipstjóri og Björg
Hermannsdóttir kona hans,
kaup á Norður-Bár. Á fimmta
ári sat hann í bát föður síns,
ásamt móður sinni og Her-
manni bróður sínum ársgöml-
um, fábrotinni búslóð og einni
kú á leið yfir fjörðinn í fram-
sveitina. Í Norður-Bár fæddust
yngri bræðurnir Ágúst og Hall-
dór, en hálfsystirin María, dótt-
ir Bjargar, ólst ekki upp hjá
móður sinni. Hagur fjölskyld-
unnar vænkaðist með árunum,
fyrir elju og með auknum
bjargráðum, aðallega til sjós en
líka til lands.
Pétur fékk í vöggugjöf og
með uppeldinu ýmsa kosti for-
eldra sinna. Hann var trygg-
lyndur og óáreitinn og lagði
ekki illt til nokkurs manns.
Hann var ósérhlífinn, laginn og
góður verkmaður, útsjónar-
samur. Hann var hæglátur,
tranaði sér ekki fram, en þó
höfðu orð hans vægi. Hann var
kíminn og hafði lag á að skjóta
hnyttnum athugasemdum inn í
umræður. Pétur sóttist mjög í
lestur, einkum á ýmsum fróð-
leik og var með afbrigðum
minnugur, á kveðskap, fólk og
ættartengsl, en ekki síst á skip
og báta og allt sem þeim við-
kom.
Upp úr stendur þó einstök
góðmennska hans, ekki síst
barngæska. Barnabörnin sóttu
í að vera hjá afa og ömmu, og
önnur börn sömuleiðis. Ekki
spilltu fyrir góðu kökurnar
hennar Gunnu – og kleinurnar.
Það verður ekki betur orðað en
dótturdóttir Péturs gerði þegar
hún var barn að aldri og sagði:
„Hann afi er svo góður að ég
gæti grátið.“ Við það er engu að
bæta.
Við fjölskyldan sendum
Gunnu, Stínu og Sigga og
þeirra fólki innilegar samúðar-
kveðjur. Guð blessi minningu
góðs drengs.
Björg Ágústsdóttir.
Pétur Breiðfjörð
Sigurjónsson
✝ Ásta KristínGuðmunds-
dóttir fæddist í
Reykjavík 28.
mars 1926. Hún
lést á sjúkrahús-
inu í Neskaupstað
27. apríl 2011.
Foreldrar hennar
voru Elín Lára
Ingjaldsdóttir, f.
31. október 1902,
fórst með Goða-
fossi 10. nóvember 1944, og
Guðmundur Árni Júlíus Þórð-
arson, f. 1. júlí 1902, drukkn-
aði af togaranum Venusi 19.
Ásta Kristín. Börn Ástu Krist-
ínar og Sigurðar Þorkelssonar
eru, 1) Guðmundur Árni Þor-
kell, f. 13. nóv. 1948, eig-
inkona hans er Sigurbjörg
Sigurðardóttir, f. 17. júní
1953, börn þeirra: a) Petrína
Margrét, b) Kristófer Eiríkur,
c) Þorkell. 2) Elín Lára, f. 16.
feb. 1950, eiginmaður Sig-
urður Oddur Gunnarsson, f. 1.
ágúst 1931, börn þeirra eru: a)
Guðrún Sigríður, b) Ólafur
Oddur, fyrir átti Elín Lára
Sigurð Þorkel Kristjánsson og
Ástu Kristínu Guðmundsóttur.
3) Ásta Sigríður, f. 2. okt.
1957, eiginmaður Sigurbjörn
Árnason, f. 7. feb. 1954, börn
þeirra eru: a) Katrín Ósk, b)
Margrét Auður, c) Selma Rut,
d) Sindri Fannar, e) Sigurður
Árni. Þann 18. nóv. 1961 gift-
ist Ásta Kristín Birni Jóns-
syni, f. 30. júní 1935, börn
þeirra eru: 1) Ingveldur
Björk, f. 8. mars 1963, eig-
inmaður hennar er Magnús
Hreinsson, f. 14. mars 1955,
börn þeirra eru: a) Agnes
Ösp, b) Ásta Birna, c) Katla
Rún. 2) Jón Rúnar, f. 18. maí
1965, eiginkona hans er Jonah
Socorro M. Marchadech, f. 27.
júní 1978, börn þeirra eru: a)
Victoría Isabelle, b) Elín Sa-
brína.
Útför Ástu Kristínar fer
fram frá Djúpavogskirkju í
dag, 7. maí 2011, og hefst at-
höfnin kl. 14.
júlí 1948.
Ásta Kristín
giftist Sigurði
Þorkelssyni, f. 23.
júní 1922, þann
19. júní 1948, þau
skildu. Fyrir átti
Ásta Kristín Vic-
tor Björgvin Ing-
ólfsson, f. 1. okt.
1946, d. 8. júlí
2004. Eiginkona
hans er Kristín
Sigrún Halldórsdóttir, f. 11.
okt. 1947, börn þeirra eru, a)
Guðrún Emelía, b) Halldór
Gunnar, c) Victor Björgvin, d)
Gulli og perlum að safna sér
sumir endalaust reyna.
Vita ekki að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
(Hjálmar Freysteinsson)
Fallin er frá sómakonan Ásta
Kr. Guðmundsdóttir eftir erfið
veikindi sem hún tók eins og
hetja. Langar mig með þessum
orðum að kveðja mína kæru vin-
konu og þakka um leið fyrir ára-
tuga vináttu mér og mínum til
handa.
Orð fá ekki lýst þeirri góð-
mennsku, sem hún sýndi okkur
alla tíð, jafnt í gleði og sorg. Ár-
um saman vorum við nágrannar í
Garðabænum, þar sem einnig
myndaðist traust vinátta milli
barnanna okkar. Þó margt hafi
breyst í áranna rás og fjölskyldur
okkar hafi dreifst víða um land,
þá hafa aldrei rofnað þau vina-
bönd sem þar voru bundin.
Síðar lágu leiðir Ástu til
Djúpavogs ásamt eiginmanni og
börnum, þar sem þau bjuggu sér
glæsilegt heimili, sem bar hús-
móðurinni fagurt vitni. Alltaf var
jafn gaman að hittast og spjalla
saman, hvort sem var á heimilum
okkar eða í gegnum símann, sem
var gjarnan gripið til. Það er allt-
af sárt er leiðir skilur en að sama
skapi gleði að geta litið til baka
með svo yndislegar minningar
sem ekkert fær grandað og bera
með sér birtu og yl.
Eiginmanni Ástu, börnum og
fjölskyldum þeirra flyt ég inni-
legar samúðarkveðjur frá okkur
hjónum, sonum mínum og fjöl-
skyldum þeirra.
Ó, hve sælt er að sofna hér
síðasta blund að ævikveldi,
helst er kvöldsól kveðja fer,
krýnir fjöllin rauðum eldi.
Englaskari ofan stígur,
upp með sálu mína flýgur.
(Halla Eyjólfsdóttir)
Guð blessi minningu minnar
góðu vinkonu og leiði hana í ljósið
til sín.
Ingibjörg Halldórsdóttir.
Ásta Kristín
Guðmundsdóttir
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Imma á Hernum,
til heimilis að Norðurgötu 38,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju í
Reykjavík mánudaginn 9. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast Ingibjargar
er bent á sjóð til styrktar æskulýðsstarfi Hjálpræðishersins,
162-26-37722, kt. 140132-7999.
Rannveig Óskarsdóttir, Einar Björnsson,
Hákon Óskarsson, Heiður Agnes Björnsdóttir,
Daníel Óskarsson, Anne Gurine Óskarsson,
Mirjam Óskarsdóttir,
Torhild Ajer,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÓLAFÍU STEINÞÓRU
KRISTJÁNSDÓTTUR,
Hlíf 2,
Ísafirði.
Sérstakar þakkir færum við Þorsteini Jóhannessyni yfirlækni og
samstarfsfólki hans á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði fyrir
umönnun í veikindum hennar.
Þorbjörg Jónsdóttir, Vésteinn Jónsson,
Erna Jónsdóttir, Guðmundur Þórðarson,
Pétur Jónsson, Hansína Sigurðardóttir,
Eggert Jónsson, Kristín Björnsdóttir,
Halldór Jónsson, Dagrún Dagbjartsdóttir,
Óttar Jónsson, Arnheiður Þorsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Bestu þakkir til allra sem heiðruðu minningu
mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
ARINBJARNAR HJÁLMARSSONAR
frá Vagnbrekku í Mývatnssveit,
Lindasíðu 2,
Akureyri,
og sýndu fjölskyldunni samúð og vinarhug við andlát hans
og útför.
Halldóra Sigríður Þórarinsdóttir,
Kristín Arinbjarnardóttir, Sigurður R. Ragnarsson,
Þórarinn Arinbjarnarson, Ingibjörg Antonsdóttir,
Halldór Arinbjarnarson, Edda G. Aradóttir,
Hjálmar Arinbjarnarson, Gizelle Balo,
Ásdís H. Arinbjarnardóttir, Þórður Pálsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar og tengdamóður,
BALDVINU JÓNU GUÐLAUGSDÓTTUR,
Bellu.
Ebba Gunnlaugsdóttir, Magnús Bjarnason,
Margrét Gunnlaugsdóttir,
Björgvin Þorleifur Gunnlaugsson, Hafdís Sigurbergsdóttir,
Gunnlaugur Jón Gunnlaugsson, Ósk Finnsdóttir,
Kári Gunnlaugsson, Kolbrún Sigurðardóttir,
Albert Gunnlaugsson,
Víðir Gunnlaugsson, Rósa Ragúels,
Andrea Guðrún Gunnlaugsdóttir, Jónas Rafn Tómasson
og fjölskyldur.
✝
BENEDIKT BENEDIKTSSON
kennari,
Þórðarsveig 6,
Reykjavík,
er látinn.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðju-
daginn 10. maí kl. 13.00.
Systkini hins látna.