Morgunblaðið - 07.05.2011, Page 41

Morgunblaðið - 07.05.2011, Page 41
Geturðu lýst þér í fimm orðum? Eldhestur, sporðdreki, skemmtilegur, fyndinn, lífsglaður. Ætlar þú að kíkja á opnunarhátíð Hörpu um helgina 13.-15. maí? (spyr síðasti aðalsmaður, Hallveig Rúnarsdóttir óperusöngkona) Nei, nei. Hvað færðu ekki staðist? Lakkrís og popp. Áttu þér leyndan hæfileika og ef svo er þá hvern? Það vita bara ástkonur mínar. Geturðu lýst dansstíl þínum á djamminu? Ég hreyfi rassinn, mjaðmirnar, lærin, hendurnar, hálsinn og hausinn í takt við tónlist og hef gaman af. Hnakkar og skinkur eru …? … smekklausar dúllur. Ef þér hefði staðið til boða að syngja við brúð- kaup Vilhjálms og Katrínar, hvaða lög hefðir þú sungið og af hverju? „Jólasveinar ganga um gólf“ og „Ísland ögrum skorið“ því það eru einu textarnir sem ég kann utan bókar. Myndi fá Evil Madness eða Reptil- icus til að sjá um undirspilið. Ef þú ættir að velja, hvort vildirðu vera skinka eða hnakki? Kóteletta. Hvers konar skinka er best? Skinkan frá Kjarnafæði. Er eitthvað mannlegt þér óviðkomandi? Já, já. Eru einhver tabú í listum og ef svo er þá hver? Nekt því hún er ódýr. Hver er uppáhaldsmyndlistarmaðurinn þinn og af hverju? Það er ég sjálfur af því ég er listamaður lífs- ins. Hvað fær þig til að skella upp úr? Ég hlæ mest að sjálfum mér. Hvað er það vandræðalegasta sem komið hefur fyrir þig? Ég kann ekkert að vera vandræðalegur. Hver kæmu til greina sem konungur og drottning Íslands? Mér hefur alltaf fundist ég vera með blátt blóð í æðum. Ef þú ættir eina ósk, hvers myndirðu óska þér? Mig skortir ekkert nema peninga til að láta efnislega drauma mína rætast. Átti sala þín á aflátsbréfum einhvern þátt í efnahagshruninu? Fólk sem fjárfesti í bréfunum slapp reyndar við hrunið. Hver er tilgangur lífsins (bannað að segja 42)? Þroskast og vaxa. Hvers viltu spyrja næsta að- alsmann? Hvernig líður þér? Og í fram- haldi mætti spurningin „Ertu viss?“ fylgja með. Aðalsmaður vikunnar er myndlistar- maðurinn Snorri Ásmundsson. Snorri er einn þeirra sem verk eiga á einni umtöluðustu mynd- listarsýningu seinni ára, Koddu, og framdi á henni gjörninginn „Hnakkar og skinkur“. Fimur Snorri Ásmundsson dansar ballett í Leikhúsi listamanna fyrr á árinu. „Ég hlæ mest að sjálfum mér“ MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011 Kirkjulistavika verður sett í tólfta sinn á sunnudag í Akureyrarkirkju og stendur til 15. maí. Setning kirkjuvikunnar verður kl. 11:00 á sunnudag og strax í kjölfarið, kl. 13:00, flytja barnakórar Akureyr- arkirkju ásamt hljómsveit söngleik- inn Líf og frið í samstarfi við leik- listarskóla Leikfélags Akureyrar. Hljómsveitina skipa Daníel Þor- steinsson á píanó, Matti Saarinen á gítar, Stefán Ingólfsson á bassa og Hjörleifur Örn Jónsson á slagverk. Sigrún Magna Þórsteinsdóttir stjórnar kórnum og María Sigurð- ardóttir stýrir leiknum. Kl. 15:00 verður opnuð myndlist- arsýning Grétu Gísladóttur í Safn- aðarheimili Akureyrarkirkju, kl. 16:00 verða tónleikar kammerkórs- ins Ísoldar í menningarhúsinu Hofi og kl. 20:00 verður dansmessa í Ak- ureyrarkirkju. Á mánudag eru á dagskrá ýmsir viðburðir, þar á meðal hádegis- djasstónleikar þeirra Margot Kiis og Kaldo Kiis í kirkjunni, opnuð verður sýning á teikningum sr. Bolla Gústavssonar vígslubiskups af kirkjum á Norðurlandi í kapellu kirkjunnar kl. 17:00 og sýnd verður kvikmyndin Children of Heaven í safnaðarheimilinu kl. 20:00. Dagskrá vikunnar má sjá á vef- setri kirkjunnar, http:// www.akirkja.is/. Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju sett á sunnudag Listahátíð Kirkjulistavika verður haldin í Akureyrarkirkju 8. til 15. maí. 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið) Lau 7/5 kl. 19:00 Fim 19/5 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Sun 8/5 kl. 20:00 Fös 20/5 kl. 19:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Fös 13/5 kl. 19:00 Lau 28/5 kl. 19:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Fös 13/5 kl. 22:00 aukasýn Sun 29/5 kl. 20:00 Sun 15/5 kl. 20:00 Fös 3/6 kl. 20:00 Tveggja tíma hláturskast...með hléi Strýhærði Pétur (Litla sviðið) Lau 7/5 kl. 20:00 Fös 13/5 kl. 20:00 Mið 18/5 kl. 20:00 Fim 12/5 kl. 20:00 ný auka Sun 15/5 kl. 20:00 Fim 19/5 kl. 20:00 lokasýn Áhorfendur standa á sýningunni. Ekki við hæfi ungra barna. Sýningum lýkur í maí Húsmóðirin (Nýja sviðið) Lau 7/5 kl. 20:00 7.k Fös 20/5 kl. 20:00 13.k Mið 1/6 kl. 20:00 19.k Sun 8/5 kl. 20:00 8.k Sun 22/5 kl. 20:00 14.k Fim 2/6 kl. 20:00 20.k Fös 13/5 kl. 20:00 9.k Þri 24/5 kl. 20:00 15.k Fös 3/6 kl. 20:00 21.k Sun 15/5 kl. 20:00 10.k Mið 25/5 kl. 20:00 16.k Lau 4/6 kl. 20:00 22.k Þri 17/5 kl. 20:00 11.k Lau 28/5 kl. 20:00 aukasýn Þri 7/6 kl. 20:00 Mið 18/5 kl. 20:00 12.k Sun 29/5 kl. 20:00 17.k Mið 8/6 kl. 20:00 Fim 19/5 kl. 20:00 aukasýn Þri 31/5 kl. 20:00 18.k Fös 10/6 kl. 20:00 Nýr íslenskur gleðileikur eftir Vesturport. Ósóttar pantanir seldar daglega Faust (Stóra svið) Lau 21/5 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00 Fös 27/5 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00 Örfár aukasýningar í maí og júní Opening Night - Les Slovaks (Stóra sviðið) Sun 22/5 kl. 20:00 Á Listahátíð - Harðjaxlar sem dansa eins og englar Ferðalag Fönixins (Stóra sviðið) Mán 23/5 kl. 20:00 forsýn Mið 25/5 kl. 20:00 Þri 24/5 kl. 20:00 frumsýn Mið 25/5 kl. 22:00 Á Listahátíð - Um listina að deyja og fæðast á ný Klúbburinn (Litla sviðið) Fös 3/6 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Þri 7/6 kl. 20:00 Á Listahátíð - Samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Klúbbsins Eldfærin (Stóra sviðið) Lau 7/5 kl. 14:30 Lau 14/5 kl. 13:00 Sun 15/5 kl. 13:00 Sun 8/5 kl. 14:30 Lau 14/5 kl. 14:30 Sun 15/5 kl. 13:00 Sögustund með öllum töfrum leikhússins Eldfærin – sögustund fyrir alla fjölskylduna ÞJÓÐLEIKHÚSI SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS Ð Bjart með köflum (Stóra sviðið) Lau 7/5 kl. 20:00 8.sýn. Fim 19/5 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00 Fös 13/5 kl. 20:00 Fös 3/6 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Lau 14/5 kl. 16:00 Br.sýn.tími Lau 4/6 kl. 20:00 Allt að verða uppselt í maí. Sýningar í júní komnar í sölu. Allir synir mínir (Stóra sviðið) Mið 11/5 kl. 20:00 Fim 12/5 kl. 20:00 Mið 18/5 kl. 20:00 Síð.sýn. Fjórar og hálf stjarna í Mbl. I.Þ og DV J.V.J. Sýningum að ljúka! Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) Sun 8/5 kl. 14:00 Sun 15/5 kl. 14:00 Sun 8/5 kl. 17:00 Sun 22/5 kl. 14:00 Fálkaorður og fjör - sýning fyrir alla fjölskylduna! Brák (Kúlan) Fös 13/5 kl. 20:00 Aukasýn. Sun 15/5 kl. 20:00 Aukasýn. Tvær aukasýningar í maí komnar í sölu! Verði þér að góðu (Kassinn) Lau 7/5 kl. 20:00 Sun 15/5 kl. 20:00 Lau 21/5 kl. 20:00 Sun 8/5 kl. 20:00 Fös 20/5 kl. 20:00 Frumsýning 7. maí. Góði dátinn Svejk (Stóra sviðið) Sun 29/5 kl. 20:00 Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins! Haze (Stóra sviðið) Fim 2/6 kl. 20:00 Á Listahátíð. Sýning sem markar tímamót í nútímadansi. Við sáum skrímsli (Stóra sviðið) Fös 20/5 kl. 20:00 Lau 21/5 kl. 20:00 Listahátíð. Listrænn stjórnandi Erna Ómarsdóttir Big Wheel Café (Stóra sviðið) Fös 27/5 kl. 20:00 Á Listahátíð. Listrænn stjórnandi Kristján Igimarsson Subtales - Söngur millistéttarinnar (Kassinn) Þri 24/5 kl. 20:00 Á Listahátíð. Norrænt velferðarsamfélag krufið til mergjar. Leikhúsin í landinu www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F Brúðuheimar í Borgarnesi 530 5000 | hildur@bruduheimar.is GILITRUTT Sun 15/5 kl. 14:00 Sun 29/5 kl. 14:00 Tjarnarbíó 5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is Óperudraugurinn Lau 7/5 kl. 20:00 Draumaraddir norðursins, Stúlknakór Norðurlands Vestra og Ópera Skagafjarðar Vocal Project Lau 14/5 kl. 15:00 Kórtónleikar Vorhátíð Kramhússins Fim 19/5 kl. 20:00 Kvöldstundmeð Janis Joplin Fös 20/5 kl. 20:00 aukatónleikar Listahátíð í Reykjavík - Rebbasaga Lau 28/5 kl. 14:00 Lau 28/5 kl. 17:00 Frönsk barnasýning Listahátíð í Reykjavík - Bændur flugust á Sun 29/5 kl. 20:00 Íslendingasögur í óvæntu ljósi! Listahátíð í Reykjavík - Sex pör Þri 31/5 kl. 20:00 Frumflutningur sex íslenskra dans- og tónverka Listahátíð í Reykjavík - Strengur Mán 30/5 kl. 20:00 Tómas R. Einarsson og Matthías Hemstock Listahátíð í Reykjavík - Tony Allen og Sammi Mið 1/6 kl. 21:00 Tony Allen og Samúel Jón Samúelsson Big Band Samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Tónlistarskólans á Akureyri Gestir frá Danmörku og Bård Monsen á fiðlu Danirnir koma! TÓNLISTARSKÓLINN Á AKUREYRI Laugardagur 14. maí í Hofi kl. 16:00 Sunnudagur 15. maí í Langholtskirkju kl. 18:00 Miðasala á www.menningarhus.is og í síma 450-1000 www.sinfonianord.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.