Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011
VIÐTAL
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@nbl.is
Ég brá mér út úr húsi í vikunni og
það alla leið niður á BSÍ. Var það
hugmynd Jóhanns Helgasonar, en
hugmyndin var að ræða við hann
og tón- og sálufélaga hans, Magnús
Þór Sigmundsson, um feril þeirra
sem lagasmiða sem nú spannar 40
ár. Ferlinum eru gerð skil á vand-
aðri, tvöfaldri plötu sem ber heitið
Ástin og lífið 1971-2011. Á henni
flytja þeir félagar sjálfir öll sín
þekktustu lög og eru upptökurnar
ýmist þær upprunalegu eða nýrri
útgáfur þeirra sjálfra á eigin lögum
sem aðrir flytjendur gerðu fræg á
sínum tíma.
„Í sögulegu samhengi mætti líka
hugsa sér að hittast á BSÍ, þeim
eðla stað, þar sem útgefandinn Jón
Ármannsson pikkaði okkur alltaf
upp vegna fyrstu plötuupptöku fyr-
ir 40 árum,“ sagði Jóhann í tölvu-
pósti til blaðamanns. Varð það svo
ofan á.
Andans bræður
Magnús og Jóhann tala sjálfir um
sig sem andans bræður og sú stað-
hæfing verður manni ljós bara við
að fylgjast með þeim í viðtalinu.
Þeir tala stundum báðir í einu, tal
þeirra flæðir einhvern veginn sam-
an og stundum klára þeir setningu
hvor annars.
„Sambandið kemur á undan tón-
listinni,“ segir Magnús. „Það er
eitthvað með andann á milli okkar,
eitthvert svið þar sem tíminn stopp-
ar. Hann hverfur. Takmark allra
hlustenda, gerenda, flytjenda er
bara eitt: Að gleyma sér. Þegar við
vinnum saman myndast einstök
stemning. Svo er svo fyndið að við
fundum okkur síðan konur sem
minna á okkur. Jói fann sér konu
sem er lík mér í háttum og ég konu
sem er lík honum í háttum (hlær).“
Tónlistarlega var það Kinks-
lagið „Tired of Waiting for You“
sem færði þá félaga saman.
„Við vorum að spila saman í Nes-
mönnum og Maggi spilaði inngang-
inn að laginu svo vel,“ rifjar Jóhann
upp. Lagið er draumkennt og
hægstreymt, smellpassar við þann
stíl sem Magnús og Jóhann áttu eft-
ir að beita fyrir sig upp úr 1970,
söngvaskáldastílnum sem var að
ryðja sér til rúms í Bandaríkjunum.
Að sögn þeirra félaga urðu þeir
stjörnur á einni nóttu.
„Þetta gerðist mjög fljótt,“ segir
Magnús. „Við ætluðum að fara
hægar af stað. En þegar maður er
svona ungur heldur maður að þetta
eigi bara að vera svona. Maður
stoppar aldrei til að velta þessu fyr-
ir sér, maður bara gerir (Jóhann
kinkar samþykkjandi kolli). Þetta
brennur í þér á þessum aldri. Þú ert
bara í eldinum.“
Þvergripið!
Magnús og Jóhann áttu svo eftir
að taka þátt í Change-ævintýrinu
ásamt fleirum, gefa út sólóplötur
og semja yfrin öll af lögum fyrir
aðra. Svo afkastamiklir hafa þeir
verið að þjóðin syngur með í fleiri
lögum eftir þá félaga en hún gerir
sér grein fyrir (og margt kemur
þægilega á óvart þegar rennt er yf-
ir lagalista plötunnar).
Lögin koma tiltölulega auðveld-
lega hjá þeim félögum og snemma
lærðu þeir á gítar. Jóhann segist
hafa komist yfir bók þar sem hann
lærði öll gripin en hann þótti ekki
gjaldgengur í hljómsveitir fyrr en
hann var búinn að læra þvergripin.
„Þótt ég kynni vinnukonugripin
aftur og áfram þá þurfti ég að gjöra
svo vel að læra „þvergripið“ (legg-
ur áherslu á orðið) áður en ég gat
hljómsveitastússast eitthvað.“
Magnús skýtur inn að hann hafi
sjálfur upprunalega bara ætlað að
spila sóló, sleppa hljómunum.
„Maður var t.d. mjög hrifinn af
þessum hljómsveitum eins og Sha-
dows og Ventures. Lög eins og „Pi-
peline“ eru svakaleg.“
Marglitur vegur
Spjallið er orðið losaralegt og fer
þægilega út um hvippinn og hvapp-
inn.
„Einn daginn, þetta var ’73,
hringir Jói í mig og segist orðinn
leiður á því að vera í svona kassa-
gítardúói. Segist vilja gera þetta
öðruvísi. Og þá semur hann „Ya-
ketty Yak …“
Jóhann tekur við.
„Ég var áskrifandi að Melody
Maker og það var alltaf verið að
birta myndir af Marc Bolan og Dav-
id Bowie. Ég smitaðist af þessu,
þetta voru töffarar. Ég var áhrifa-
gjarn“ (brosir).
Magnús segir að þeir hafi með-
vitað farið inn í þessa deild.
„Það hefur alltaf verið erfitt fyr-
ir okkur að halda okkur á ein-
hverjum einlitum vegi … (og Jó-
hann tekur við) … Ég held að þetta
sé sumpart afsprengi þess að alast
upp í litlu samfélagi. Sérhæfing er
ekki kostur. Þegar við vorum að
spila á böllum þurftum við að vera
með allan skalann undir. Gömlu
dansarnir og jafnvel kóralög í
bland við poppið. Svona var þetta
bara … sem betur fer.“
Tengdir „Sambandið kemur á undan tónlistinni,“ segir Magnús. „Það er eitthvað með andann á milli okkar, eitthvað svið þar sem tíminn stoppar. “
Morgunblaðið/RAX
Listin að gleyma sér
Glæsilegur ferill Magnúsar Þórs Sigmundssonar og Jóhanns Helgasonar gerður upp á veglegri
safnplötu Útgáfunni fagnað með tónleikum í Austurbæ á morgun og í Hofi, Akureyri, 21. maí
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR
NÁNARI UPPLÝSINGAR
OG MIÐASALA Á
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Í 3-D
FAST FIVE KL. 3.10 (TILBOÐ) 5.20 - 8 - 10.40 12
FAST FIVE Í LÚXUS KL. (2.40 SUN.) - 5.20 - 8 - 10.40 12
THOR 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
SCREAM 4 5.45 - 8 - 10.20 16
HANNA KL. 8 - 10.25 16
RIO 3D ÍSLENSKT TAL KL. 1 - 3.10 (TILBOÐ) - 5.45 L
RIO 2D ÍSLENSKT TAL KL. 1 - 3.20 (TILBOÐ) L
RIO 3D ENSKT TAL ÓTEXTUÐ KL. 1 (TILBOÐ) L
HOPP ÍSLENSKT TAL KL. 1 - 3.20 (TILBOÐ) L FAST FIVE KL. 5.45 - 8 - 10.20 12
THOR 3D KL. 5.40 - 8 - 10.15 12
RIO 3D ÍSLENSKT TAL KL. 2 (TILBOÐ) - 3.50 L
HOPP ÍSLENSKT TAL KL. 2 (TILBOÐ) - 3.50 L
A.E.T - MBL
MBL
FAST FIVE KL. 3.10 (TILBOÐ) - 6 - 9 12
HÆVNEN KL. 5.25 – 8 – 10.35 12
THOR 3D KL. 6 - 9 12
HANNA KL. 8 - 10.20 16
RIO 3D ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 (TILBOÐ) L
HOPP ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 (TILBOÐ) L
OKKAR EIGIN OSLÓ KL. 5.50 L
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
“Thor er klárlega ein óvæntasta
mynd ársins... Hasar, húmor og
stuð alla leið. Skottastu í bíó!”
T.V. - kvikmyndir.is / Séð og Heyrt
GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR
MERKTAR MEÐ RAUÐUTilboð í bíó
“Myndin er algjör rússibana-
reið og frábær bíóupplifun”
A.E.T - MBL
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Í USA
FAST & FURIOUS 5 Sýnd kl. 4, 7 og 10(POWER)
THOR 3D Sýnd kl. 5, 7:30 og 10
YOUR HIGHNESS Sýnd kl. 10
RIO ÍSLENSKT TAL 3D Sýnd kl. 2(950kr)
RIO ÍSLENSKT TAL 2D Sýnd kl. 2(700kr)
HOPP ÍSLENSKT TAL Sýnd kl. 2(700kr), 4 og 6
KURTEIST FÓLK Sýnd kl. 8
„Brjáluð afþreyingarmynd sem mun
gefa þér nákvæmlega það sem þú
sækist eftir, hvort sem þú ert aðdáandi
seríunnar eða hasarfíkill almennt.”
T.V. - kvikmyndir.is / Séð og Heyrt
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is