Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011 Kvikmyndin The LincolnLawyer, eða Lincoln-lögfræðingurinn, erbyggð á samnefndri glæpasögu rithöfundarins Michaels Connelys sem jafnframt er sú fyrsta sem segir af verjandanum Mickey Haller. Leikarinn Matthew McCo- naughey tók að sér hlutverk hins bráðsnjalla Haller en ástæðan fyrir heiti bókar og myndar, þ.e. Lincoln- lögfræðingurinn, er sú að Haller er ekki með skrifstofu eins og flestir lögfræðingar heldur afgreiðir sín mál að miklu leyti í Lincoln-bifreið sinni, með einkabílstjóra undir stýri. Í upphafi myndar fær maður að kynnast vafasömum aðferðum verj- andans sem virðist hálli en áll og tungulipur mjög. Skjólstæðingar hans eru að mestu smáglæpamenn sem komast reglulega í kast við lög- in og virðist Haller þekktur af því að bjarga þeim svörtu sauðum frá fangelsisvist. Dag einn landar hann hins vegar feitum fiski, glaumgos- anum Louis Roulet sem er af vell- auðugu fólki kominn. Roulet er gefið að sök að hafa nauðgað og gengið í skrokk á vændiskonu. Hann segist saklaus af því og heldur því fram að vændiskonan hafi leitt hann í gildru, lokkað hann heim til sín og rotað og ljúgi nú upp á hann árás í því skyni að fá himinháar skaðabætur. Roulet telur einhvern annan hafi veitt henni áverkana. Haller tekur glaumgosann trúanlegan í fyrstu en fljótlega fara að renna á hann tvær grímur. Þá fer af stað atburðarás sem líkja má við leik kattar að mús. En hver er kötturinn og hver er músin? Og er kötturinn kannski músin? Lincoln-lögfræðingurinn er ágæt- is afþreying af lögfræðitrylli-skólan- um og leikarar standa sig ágætlega. McConaughey, vatnsgreiddur og sólbrúnn að vanda, smellur eins og flís við rass í hlutverk hins sjálfs- örugga og sjálfumglaða verjanda. Og hann þarf ekki að fara úr að ofan til að ná athygli áhorfandans, eins og hann er gjarn á að gera. Það verða hins vegar nokkuð furðuleg umskipti á persónunni í myndinni Köttur og mús Sambíóin Egilshöll, Kringlunni, Akureyri og Keflavík The Lincoln Lawyer bbbnn Leikstjórn: Brad Furman. Aðalhlutverk: Matthew McConaughey, Marisa Tomei, Ryan Phillippe, William H. Macy og Josh Lucas. 119 mín. Bandaríkin, 2011. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR HARÐJAXLINN LIAM NEESON ER MÆTTUR Í MAGNAÐRI HASARMYND FRÁ CATHERINE HARDWICKE, LEIKSTJÓRA TWILIGHT "BRIDGET JONES MYNDIN Í ÁR" - COMPANY Ólafur Darri Ólafsson Arnar Jónsson Örn Árnason SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI FRÁBÆR ÆVINT ÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI á allar sýningar merktar með grænu1.000 kr.SPARBÍÓ 3D SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI Steinn Ármann Magnússon Björgvin Franz Gíslason SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI RÓMANTÍSK GAMANMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR. ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND SEM ÞÚ MUNT ELSKA! - IN TOUCH HHHH „MYNDIN ER FRÁBÆR: KYNÞOKKAFULL OG FYNDIN“ - P.H. BOXOFFICE MAGAZINE HHHH STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Í USA! SÝND Í ÁLFABAKKI OG AKUREYRI "Brjáluð afþreyingarmynd sem mun gefa þér nákvæmlega það sem þú sækist eftir, hvort sem þú ert aðdáandi seríunnar eða hasarfíkill almennt." THOR 3D kl. 2:40 - 5:20 - 8 - 10:30 12 ARTHUR kl. 5:20 - 8 7 SOMETHING BORROWED kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:20 L RIO 3D ísl. tal kl. 3 - 5:30 L THE LINCOLN LAWYER kl. 8 - 10:30 12 RIO ísl. tal kl. 3 L RED RIDING HOOD kl. 10:20 12 FAST FIVE powersýn. 10:40 kl. 2 - 5:20 - 8 - 10:40 12 DREKA BANAR ísl. tal kl. 2 - 4 L FAST FIVE kl. 2 - 5:20 - 8 - 10:40 VIP CHALET GIRL kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L SOMETHING BORROWED kl. 6 - 8:20 - 10:40 L UNKNOWN kl. 8 16 THOR 3D kl. 1 - 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 12 SOURCE CODE kl. 10:40 12 ARTHUR kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 7 RANGO ísl. tal kl. 1:30 L / EGILSHÖLL/ ÁLFABAKKA LÍFEYRISSJÓÐUR STARFSMANNA HÚSAVÍKURKAUPSTAÐAR ÁRSFUNDUR 2011 Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar verður haldinn þriðjudaginn 24. maí kl. 10.30 í Stjórnsýsluhúsinu að Ketilsbraut 7-9, Húsavík. Dagskrá: • Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins • Breyting á samþykktum • Önnur mál löglega upp borin Allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi stéttar- félög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta. Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins. Húsavík, 3. maí 2011 Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.