Morgunblaðið - 07.05.2011, Qupperneq 48
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 127. DAGUR ÁRSINS 2011
Tónlistarkonurnar Lára og Lay Low
halda tónleika á Rósenberg í kvöld.
Báðar vinna þær nú að nýju efni sem
lítur dagsins ljós í ár. Lára fer svo til
Bretlands í næstu viku að spila á The
Great Escape-hátíðinni.
Lára og Lay Low
á Rósenberg
Opnunarhátíð
Listar án landa-
mæra 2011 á
Norðurlandi fer
fram í dag, 7. maí,
í Ketilhúsinu á Ak-
ureyri kl. 14. Með-
al viðburða verður
flutningur leik-
hópsins Fjölmenntar á Apóllóníu,
leikgerð eftir færeyskri sögu Ed-
wards Fuglö, í þýðingu Úlfs Hjörvars
og tónlistarhópur Fjölmenntar mun
flytja þekkt íslensk dægurlög og
þjóðlög.
List án landamæra
opnuð á Norðurlandi
Í tilefni af útgáfu bókarinnar Stuð
stuð stuð – Rokk og popp á Íslandi
1950-2010 eftir Dr. Gunna leitar Rás
2 að stuðlagi íslensku þjóðarinnar í
samvinnu við höfundinn. Fólk er
hvatt til að senda tillögur að besta
stuðlaginu á stuð@ruv.is eða skrifa á
Facebook-síður Popplands, Virkra
morgna eða Bergsson og
Blöndal fyrir 13. maí. Lögin
sem fá flest atkvæði
verða spiluð á Rás 2 og
íslenska þjóðin velur
svo á milli þeirra í
netkosningu.
Leit að stuðlagi
íslensku þjóðarinnar
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Enn er til fólk sem gengur í verkin
þegar á þarf að halda en bíður ekki
eftir því að aðrir sjái um vinnuna.
Frændurnir og Vestfirðingarnir Jón
Sveinsson á Suðureyri og Ólafur
Friðbjarnarson í Hnífsdal eru í þess-
um hópi, en þeir tóku sig til í fyrra-
dag og lögðust í vegabætur í Hnífs-
dal án þess að spyrja kóng eða prest.
Holur og hvörf
Dalbrautin í Hnífsdal hefur verið
eins og svissneskur ostur, ekkert
nema stórar holur og hvörf, og
reynst vegfarendum erfið. Jóni
Sveinssyni blöskraði að faðir sinn og
bróðir Ólafs þyrfti að fara um göt-
una í svona ásigkomulagi, vildi gera
eitthvað í málinu og fékk föður-
bróður sinn til að lappa upp á götuna
með sér. „Það var bara olíumöl á
henni og hún dugar nú skammt, eins
og allir vita,“ segir Ólafur. „Það var
stutt að fara og við bara kýldum á
það,“ segir Ólafur, sem verður átt-
ræður í næsta mánuði og býr í næstu
götu við bróður sinn, sem er 82 ára.
„Það þurfti að laga þetta, ég er
áhugamaður um að betrumbæta
gatnakerfið, sem er heldur báglegt,
og brást því vel við.“
Væntanlega vegna ástandsins í
þjóðfélaginu segir Ólafur að bærinn
hafi ekki getað lagað Dalbrautina en
Hnífsdælingar séu ekki einir um að
standa í ströngu. „Það kreppir að
víða, eins og allir vita,“ segir
hann.
Ekki hægt að bíða
Ólafur segir að þeir hafi farið í
áhaldahús bæjarins og spurt
hvort olíumöl væri ekki
væntanleg á götuna. Full-
yrt hafi verið við þá að
það kæmi að því þegar
liði á sumarið, en ekki
hafi verið hægt að bíða
eftir því. Steypuhrærivél Jóns var
sett aftan í bílinn sem og kerra með
möl í. „Svo blönduðum við bara á
staðnum og þetta gekk ljómandi
vel,“ segir Ólafur, en frændurnir
byrjuðu að vinna fyrir hádegi í
fyrradag og luku verkinu um klukk-
an hálfníu um kvöldið. „Við tókum
smá matarhlé um hálfsjöleytið, kom-
um sprækir til baka, holufylltum
þetta og áttum við mestu hvörfin.
Við notuðum steypu, höfðum ekki
ráð á öðru, og kláruðum frá enda til
enda. Þetta var lítið mál.“
Ólafur segir að engin áform séu
um að halda áfram á sömu braut, en
þvertekur ekki fyrir það. „Það er
aldrei að vita hvað gerist,“ segir
hann og minnir á að víða sé pottur
brotinn í gatnakerfi bæjarins.
Sprækir í steypuvinnunni
Frændur tóku
að sér vegagerð-
ina óumbeðnir
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Blandað á staðnum Jón Sveinsson og Ólafur Friðbjarnarson tvínónuðu ekkert við það og löguðu Dalbrautina.
„Það var gaman að þessu í
góða veðrinu þá loksins að
það þornaði til í veðráttunni,“
segir Ólafur Friðbjarnarson
um framkvæmdirnar á Dal-
brautinni. „Það er ekki hægt
að gera þetta í bleytutíð,
eins og allir vita. Það er
útilokað. En það er víða
hægt að taka til hend-
inni ef menn hafa
áhuga á því.“
Ólafur var sjómaður í 55 ár en
hætti að vinna fyrir nokkrum ár-
um. „Þegar menn eru komnir í
úreldingu eiga þeir bara að vera í
golfi og því um líku,“ segir hann og
segist ekki geta svarið fyrir að
hann sé kominn með bakteríuna.
„Ég hef kíkt á það,“ segir hann og
bætir við að mikilvægt sé að njóta
lystisemdanna og lífsins. Liður í
því sé að fylla í holur eins og voru
á Dalbrautinni.
Víða hægt að taka til hendinni
MIKILVÆGT AÐ NJÓTA LYSTISEMDANNA OG LÍFSINS
Ólafur
Friðbjörnsson
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Anna Mjöll giftist ríkum bílasala
2. Kaupir í matinn í flatbotna skóm
3. Fór ekki út úr húsi í 5 ár
4. Maðurinn yfirbugaður
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austanátt, víða 5-10 m/s, en 10-15 við suðausturströndina og
syðst. Rigning með köflum en þurrt að mestu norðan- og norðvestanlands. Hiti 5-14 stig.
Á sunnudag Norðaustan 5-13 m/s og skýjað með köflum, en dálítil væta á Norðaustur-
og Austurlandi. Bætir í vind um kvöldið með rigningu, en þurrt vestanlands. Hiti 6-17 stig.
Á mánudag Ákveðin austlæg átt og víða rigning, en úrkomuminna eftir hádegi. Hiti 6 til
17 stig, hlýjast vestanlands.
„Að vinna titilinn er alltaf jafn gott
og það er kannski einhver saga á bak
við hvern titil,“ sagði hornamaðurinn
Baldvin Þorsteinsson þegar Morg-
unblaðið ræddi við hann en Baldvin
hefur nú orðið Íslandsmeistari í
handknattleik með þremur félögum.
Fyrst með uppeldisfélaginu KA árið
2002, Val árið 2007 og nú síðast á
miðvikudagskvöldið með FH. »3
Hefur orðið meistari
með þremur félögum
Einar Jónsson, þjálfari bik-
armeistara Fram í hand-
knattleik kvenna, er efstur á
óskalista forsvarsmanna fé-
lagsins yfir næstu þjálfara
karlaliðs félagsins. Reynir
Þór Reynisson, sem þjálfaði
Fram á nýliðinni leiktíð,
hætti í gær en hann var
sjötti þjálfarinn sem stýrir
Fram frá 2007. Reynir segir
að breyta verði mörgu innan
leikmannahópsins. »1
Sjötti þjálfarinn
á fjórum árum
„Ég er búinn að spila sömu stöðuna
hvern einasta leik í vetur og það er
mjög nýtt fyrir mér. Ég hef alltaf ver-
ið að flakka á milli varnar, miðju og
sóknar síðan ég kom til
Grindavíkur. Mér finnst því
eins og það sé kominn
ákveðinn stöðugleiki í
minn leik,“ segir Orri
Freyr Hjaltalín sem
fór á kostum með
Grindavík í
fyrstu umferð
úrvalsdeildar
karla, Pepsi-
deildinni í
knatt-
spyrnu. »4
Kominn meiri stöð-
ugleiki í Grindvíkinga