Siglfirðingur - 08.05.1967, Page 4
4
SIGLFIRÐINGUR
Mánudaginn 8. maí 1967
Nokkrir miðar til sölu fyrir nýja þátttakendur í Siglufirði og Fljótum.
Umboðsmaður: GESTUR FANNDAL — Sími 71162 — SIGLUFIRÐI
II.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
AÐALFUNDUR
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands verður
haldinn í fundarsal félagsins 1 Reykjavík, föstu-
daginn 12. maí 1967 kl. 13.30.
Dagskrá:
1) Tekin fyrir þau mál, er um getur í 13. gr.
samþykkta félagsins.
2) Ákvörðun aðalfundar 12. maí 1966 um út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa og aukningu hluta-
fjár til fullnaðarafgreiðslu.
3) Aðrar tillögur til breytinga á samþykktum
félagsins (ef fram koma).
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu
félagsins í Reykjavík, dagana 9.—10. maí.
Reykjavík, 31. marz 1967.
STJÓRNIN
Bókasafnsnotendur, Siglufirði
Munið að skila bókunum reglulega. — Lánstími
14 dagar.
BÓKAVÖRÐUR
Lóðaklukkurnar
komnar aftur
Kaupfélag Siglfirðinga
Fasteignagjöld 1967
Fasteignagjöld 1967 féllu í gjalddaga 2. janúar sl.
Þeir, sem enn hafa ekki lokið greiðslum þeirra, eru
vinsamlegast hvattir til að gera það hið allra
fyrsta.
Siglufirði, 23. febrúar 1967.
BÆJARGJALDKERINN
t
KRISTINN HALLDðfiSSON
Minningarorð
Kjörskrárstofn
fyrir Siglufjarðarkaupstað vegna fyrirhugaðra
alþingiskosninga í júnímánuði 1967 liggur frammi
á bæjarskrifstofunni, bæjarbúum til athugunar, á
venjulegum skrifstofutíma frá og með föstudeg-
inum 7. apríl 1967.
Athygli skal vakin á að heimilisföng í skránni
miðast við 1. desember 1966.
Athugasemdir við kjörskrárstofninn þurfa að
hafa borizt bæjarstjórn Siglufjarðar þrem vikum
fyrir kjördag.
Siglufirði. 7. apríl 1967.
BÆJARSTJÓRINN
iSú sorgarfregn barst hing-
að til Siglufjarðar 16. des.
s. 1. að Kristinn Halldórsson
væri dáinn. Okkur vini hans
setti hljóða.
Alltaf virðist dauðinn
koma mönnum á óvart, og
vissulega gerði hann það í
þetta skipti.
Kristinn var fæddur hér
í Siglufirði 7. desember 1915,
jsonur merkishjónanna Krist-
(ínar Hafliðadóttur, Guð-
j mundssonar, hreppstjóra,
j þess þekkta og vinsæla
manns, og Halldórs Jónas-
sonar, kaupmanns.
j Hann ólst upp á fyrir-
myndarheimili foreldra sinna
ásamt f jórum systkinum sín-
' um, en hann var yngstur
þeirra.
Kristinn brautskráðist frá
Verzlunarskóla íslands 1938
með miklum sóma, enda
námshæfileikar mikhr, trútt
minni og gáfur góðar. Hann
byrjaði ungur að starfa við
verzlun föður síns og tók við
rekstri hennar að öllu 1940,
en áður hafði Hafliði bróðir
hans veitt fyrirtækinu for-
stöðu. Um nokkurt árabil
fékkst Kristinn einnig við
síldarverkun á eigin söltun-
arstöð, en varð að hætta
þeim rekstri sem aðrir fleiri,
þegar síldin hætti að veiðast
fyrir Norðurlandi. SíðuStu
árin vann hann á skrifstofu
Síldarverksmiðja ríkisins á
Siglufirði.
Sem fyrr greinir var Krist-
inn mjög vel greindur mað-
ur, en dulur og fremur ó-
mannblendinn, og langt frá
því að vera allra, en
hann var trölltryggur
þeim, sem hann valdi að vin-
um sínum.
Hann hafði opin augu og
eyru fyrir því skoplega sem
fyrir bar á lífsleiðinni. Svip-
aði honum þar til Halldórs
föður síns.
Kristinn gat verið manna
skemmtilegastur í þröngum
vinahópi, orðheppinn og
fyndinn, — og orð hans
geiguðu eikki frá marki.
Hann var flestum mönnum
hreinlyndari, sjálfstæður í
skoðunum og ábyggilegur í
viðskiptum öllum. — Hann
var manna fróðastur um allt
sem Siglufjörð varðaði, og
hafði viðað að sér miklum
gögnum þar að lútandi, enda
var hann fenginn af bæjar-
stjórn Siglufjarðar til að
skrifa sögu bæjarins,
sem út átti að koma
á 50 ára afmæli Siglufjarð-
arkaupstaðar, 20. maí 1968.
Eftirmæli dr. Jóns Þor-
kelssonar um fræðaþulinn
Ólaf Davíðsson enda þannig:
„Viltu taka upp verkin hans,
og verða þar að manni?“
Og við getum líka spurt,
hver vill taka upp verk
Kristins um ritun sögu Siglu
f jarðar. Verður ekki sá mað-
ur vandfundinn?
Kristinn var kvæntur
Ingibjörgu Karlsdóttur, mik-
ilhæfri húsfreyju. Þau eign-
uðust tvö börn, Dóru, f. 3.
marz 1945 og Halldór, f. 29.
sept. 1948. Síðast liðið haust
fór Kristinn með fjölskyldu
sína til Reykjavíkur og ætl-
aði að dvelja þar vetrar-
langt, því að börn hans
stunda þar nám, Dóra í Há-
skólanum, en Halldór í Verzl
unarskólanum. En hann
hafði aðeins dvalið stuttan
tíma í Reykjavík þegar kall-
ið kom. Kallið, sem allir
verða að lúta. Hann andað-
ist 16. desember og var bor-
inn til igrafar frá Siglufjarð-
arkirkju 30. s. m. Hann er
kominn heim til Siglufjarð-
ar, sem hann unni svo mik-
ið.
Konu og börnum hans,
systkinum og ættingjum
votta ég innilega samúð.
Hin sanna trú og minningin
um góðan dreng verði þeim
huggun harmi gegn.
St. St.