Morgunblaðið - 11.07.2011, Side 4
Gulltryggir Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV, rennir sér á boltann og skorar þriðja markið gegn FH í gær án þess að Freyr Bjarnason varnarmaður FH-inga fái rönd við
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2011
Í ÁRBÆ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Ég var mjög svekktur yfir því að ná
ekki þrennunni gegn ÍF um daginn
því þá hefði ég farið í sögubækurnar
enda ekki margir Íslendingar sem
hafa skorað þrennu í Evrópukeppni.
Þá fékk ég fleiri færi en þau tvö sem
ég skoraði úr, rétt eins og í dag en
maður getur ekki verið óánægður á
meðan maður er að skora,“ sagði
Guðjón Baldvinsson, sóknarmaður
KR-inga, við Morgunblaðið eftir að
hafa skorað öll mörkin í 3:0 sigri á
Fylki í 10. umferð Pepsí-deildarinnar
í knattspyrnu.
Guðjón var ekki lengi að landa
þrennunni og um leið þremur stigum
fyrir KR því Fylkir átti sér vart við-
reisnar von eftir frábæran fyrri hálf-
leik KR-inga. Fyrsta markið skoraði
Guðjón á 14. mínútu og hið þriðja á
28. mínútu. Hann skoraði því þrennu
á 14 mínútna kafla og geri aðrir bet-
ur. Það segir kannski eitthvað um
sókndirfsku Guðjóns, og slakan varn-
arleik Fylkis, að Guðjón fékk tvö úr-
valsfæri til þess að bæta við mörkum
eftir að hann var kominn með þrennu.
„Nú líður mér vel“
„Ég er bara kominn í form, það er
ekki flóknara en svo. Ég var meiddur
á undirbúningstímabilinu og mér
fannst erfitt að spila mig í gang enda
leið mér ekki vel á vellinum. Nú líður
mér vel og er kominn í form til þess
að hlaupa,“ sagði Guðjón en talsverð
umræða átti sér stað hjá sparkelsk-
um í upphafi móts vegna marka-
þurrðar Guðjóns. Nú eru mörkin hins
vegar orðin fimm hjá honum á þrem-
ur sólarhringum.
„Ég lagði upp eitt og eitt mark
framan af sumri og sjálfstraustið
mjatlaðist inn smám saman. Það er
eiginlega broslegt hvernig maður
missir sjálfstraustið þegar maður er í
framlínunni og illa gengur að skora.
Ég skoraði á móti Þór en bikarleik-
urinn á móti Keflavík var vendi-
punkturinn því þá skoraði ég og lagði
upp mark. Mörkin á móti ÍF fylgdu í
kjölfarið og nú finnst mér ég vera
kominn í gang,“ sagði Guðjón Bald-
vinsson ennfremur við Morgunblaðið
í Árbænum í gærkvöldi en þar hefur
hann áður sýnt á sér sparihliðarnar.
Mörgum stuðningsmönnum KR er
vafalaust í fersku minni þegar Guðjón
skoraði með glæsilegri hjólhesta-
spyrnu á Fylkisvellinum í fyrra.
KR-ingar eru meistaraefni
KR-liðið er vægast sagt sannfær-
andi á þessu sumri og þeir hafa fellt
mörg vígin. Þar vegur FH-grýlan í
Vesturbænum líklega þyngst, en KR-
ingar hafa loksins kveðið hana niður.
Einnig er lykilatriði fyrir KR að
byrja vel svo pressan hlaðist ekki upp
í kringum liðið. Ekki verður annað
sagt en að þeir hafi gert það, því KR
er taplaust eftir 9 leiki. Í gamla 18
leikja Íslandsmótinu þótti gott að
vera með 20 stig þegar mótið var
hálfnað og KR-ingar eru komnir með
23 stig. Ekki er því ofsagt að segja að
þeir séu meistaraefni.
Kominn í ham
Guðjón skoraði þrennu fyrir KR á 14 mínútum gegn Fylki
Er búinn að skora fimm mörk á þremur sólarhringum
Þrenna Guðjón Baldvinsson var aðeins 14 m
0:1 14.Fylk-
ismenn gáfu
misheppnaða
sendingu á
miðjum vell-
inum. Baldur
Sigurðsson
fékk boltann á
miðjum vall-
arhelmingi
Fylkis og
stakk boltanum strax inn fyrir vörn-
ina. Þar var einn KR-ingur rang-
stæður en hann tók hins vegar ekki
boltann heldur Guðjón Baldvinsson
sem var réttstæður. Hann komst
einn gegn Bjarna og renndi bolt-
anum af yfirvegun neðst í hægra
hornið.
0:2 24. Óskar Örn Haukssontók aukaspyrnu á hægri
kantinum, um það bil á miðjum vall-
arhelmingi Fylkis. Guðjón Baldvins-
son fékk boltann vinstra megin í
teignum, talsvert utarlega, og skall-
aði hann í boga efst í hægra hornið.
Markið skrifast væntanlega á reikn-
ing Bjarna markvarðar enda var
skallinn ekki fastur.
0:3 28. Fylkir átti aukaspyrnuhægra megin við vítateig
KR og þangað héldu allir varn-
armenn Fylkis. KR-ingar unnu bolt-
ann og brunuðu upp völlinn. Baldur
Sigurðsson fékk gott færi vinstra
megin í teignum en Bjarni varði
skotið frá honum. Frákastið fór
beint á Guðjón Baldvinsson sem
kastaði sér á boltann og renndi hon-
um í netið rétt utan markteigs.
SLÁ 65. Boltinn barst tilGuðmundar Reynis
Gunnarssonar vinstri bakvarðar KR
eftir hornspyrnu en hann var um það
bil 25 metra frá marki. Hann hlóð
hrikalega í skotið og bombaði bolt-
anum í slána á marki Fylkis.
I Gul spjöld:Þórir (Fylki) 7. (brot), Andr-
és (Fylki) 57. (brot), Valur (Fylki) 63.
(brot), Jóhann (Fylki) 75. (kastaði
boltanum frá brotsstað), Andri Már
(Fylki) 80. (brot), Ásgeir Börkur
(Fylki) 88. (brot), Dofri (KR) 90.
(brot).
I Rauð spjöld: Enginn.
MMM
Enginn.
MM
Guðjón Baldvinsson (KR)
M
Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylki)
Andrés Már Jóhannesson (Fylki)
Hannes Þór Halldórsson (KR)
Magnús Már Lúðvíksson (KR)
Grétar Sigurðarson (KR)
Bjarni Guðjónsson (KR)
Baldur Sigurðsson (KR)
Óskar Örn Hauksson (KR)
Eitt umdeilt atvik átti sér stað sem
hefði getað haft þýðingu fyrir gang
leiksins. Fylkismenn fengu auka-
spyrnu í stöðunni 2:0 og fóru flestir í
sóknina. KR-ingar hirtu af þeim
boltann og brunuðu upp í skyndi-
sókn sem lauk með þriðja marki
Guðjóns Baldvinssonar. Fylk-
ismaður féll hins vegar við í teignum
augnabliki áður en KR-ingar náðu
boltanum og Fylkismenn vildu frá
vítaspyrnu.
Guðjón Baldvinsson hefur verið
sérlega markheppinn í leikjum með
KR gegn Fylki síðustu árin. Hann
hefur nú skorað sjö mörk hjá Árbæj-
arliðinu í efstu deild, eitt 2008, þrjú
2010 og þrennu í gærkvöld.
Guðjón er þriðji KR-ingurinn sem
skorar þrennu hjá Fylki í efstu deild
frá 2003. Arnar Gunnlaugsson skor-
aði þrjú mörk í 4:0 sigri KR árið 2003
og Björgólfur Takefusa skoraði öll
þrjú mörkin í 3:0 sigri KR árið 2008.
Fylkir lék án þeirra Fjalars Þor-
geirssonar og Baldurs Bett sem eru
meiddir og KR var án Björns Jóns-
sonar af sömu ástæðu.
Á mbl.is er að finna myndbands-
viðtöl við þá Grétar Sigurðarson KR
og Ásgeir Börk Ásgeirsson Fylki
auk hefðbundinnar atvikalýsingar
frá leiknum.
Þetta gerðist á
Fylkisvellinum
Baldur
Sigurðsson
Fylkisvöllur, Pepsi-deild karla, 10.
umferð, sunnudag 10. júlí 2011.
Skilyrði: Skýjað, smá gola og sæmi-
lega hlýtt. Völlurinn ágætur.
Skot: Fylkir 5 (1) – KR 13 (6).
Horn: Fylkir 7 – KR 4.
Lið Fylkis: (4-3-3) Mark: Bjarni Þ.
Halldórsson. Vörn: Þórir Hannesson,
Valur Fannar Gíslason (Andri Már
Hermannsson 67.), Kristján Valdi-
marsson, Tómas Þorsteinsson.
Miðja: Ásgeir Börkur Ásgeirsson,
Andrés Már Jóhannesson, Gylfi Ein-
arsson (Rúrik Þorfinnsson 85.).
Sókn: Ingimundur Níels Óskarsson
(Kjartan Breiðdal 46.), Jóhann Þór-
hallsson, Albert Ingason.
Lið KR: (4-3-3) Mark: Hannes Þór
Halldórsson. Vörn: Magnús Már Lúð-
víksson (Dofri Snorrason 83.), Skúli
Jón Friðgeirsson, Grétar S. Sigurð-
arson, Guðmundur R. Gunnarsson.
Miðja: Bjarni Guðjónsson, Baldur
Sigurðsson (Ásgeir Örn Ólafsson
58.), Viktor B. Arnarsson. Sókn:
Kjartan H. Finnbogason (Gunnar Örn
Jónsson 67.), Guðjón Baldvinsson,
Óskar Örn Hauksson.
Dómari: Þóroddur Hjaltalín jr. – 7.
Áhorfendur: 1.834.
Fylkir – KR 0:3